Morgunblaðið - 10.08.1962, Qupperneq 1
20 siðui1
49 árgangur
180. tbl. — Föstudagur 10. ágúst 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Merkar minjar um víkinga
á Nyfundnalandi
Nóbelshöfundurinn
Hesse
látinn
FRANKFURT, 9. ágúst (NTB)
«_ ÞÝZKI Nóbelsverðlaunahöf-
undurinn Hermann Hesse- lézt á
íimtmtuidag að heimili sínu
Montagola í Sviss. Hann var 8ð
éra að aldri. Hesse fædidist
EJuður-Þýzkalandi hinn 2. júlí
1877, en fluttist til Sviss og gerð-
ist síðar svissneskur rikisbong-
ari. Bókmienntaverðl aun Nóbels
blaut Hesse árið 1946. Fyrsta
bók hans, skáldsagan „Peter
Camenzind" kom út 1904 og fékk
prýðisviðtökur; síðar ritaði hann
mangar ástarsögur, ritgerðir og
orti ljóð. — Hesse var mjög and-
•núinn öllum hernaði og barðist
6 ritvellinum gegn slíku í Þýzka
landi. Á árum síðari heims-
Btyrjaldarinnar orti hann mörg
Ijóð gegn Hitler og stefnu hans
t— og lét þau ganga milli vina
•inna.
segij: Helge Ingstad efiir uppgxöfLian
í sumar
E I N S og kunnugt er, hefur undanfarið verið unnið að því
á vegum Norðmannsins Helge Ingstad að grafa upp fornar
bæjarrústir á Nýfundnalandi, eða nánar tiltekið við Lance
au Meadows á norðurhluta Nýfundnalands. Þrír íslend-
ingar hafa meðal annarra unnið við uppgröft þennan og
eru það þeir dr. Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður, Gísli
Gestsson, safnvörður og prófessor Þórhallur Vilmundarson.
Leiðangur Helge Ingstad hefur vakið mikla athygli, og nú
segir leiðangursstjórinn að þeir féfagar hafi við rannsókn-
irnar að undanförnu fundið marga merka hluti, auk
þeirra sem sáu dagsins Ijós, þegar Ingstad fór til Nýfundna-
lands í fyrra. —
Helge Ingstad skýrir frá þessu
í grein, sem hann skrifar í norska
blaðið Aftenposten s.l. þriðju-
dag. Ekki verður grein þessi rak-
in hér, en þess má geta sem
merkrar fréttar, að Helge Ing-
stad fullyrðir, að leiðangurinn
hafi nú fundið herbergisrústir í
langhúsi og í því marga merka
hluti. Langhús þetta var að
nokkru leyti grafið upp í fyrra,
en nú virðast þeir félagar hafa
fundið þetta nýja herbergi við
nánari athugun.
15 metrar
Aðalherbergið í langhúsinu er
um lö metra langt með eldstaeði
á miðju gólfi. Að því liggja fjög
ur minni hfirbergi, en auk þess
hafa þeir félagar fundið smiðju
nokkra í sandhól, ekki allfjarri
á. Þar fundu þeir steinsteðja og
afl. í siniðjunni fundust mörg
hundruð gjallmolar, auk járns
og rauða, sem forfeður okkar
kunnu að nota til járngerðar, en
ekki eskimóar. Þá fundu þeir
félagar einnig viðarkol og önnur
merki þess, að þarna hafi verið
búseta um langt skeið. Hið mikil
vægasta sem fundizt hefur mun
vera bronshlutur.
Nánari fregnir af þessum, að
því er virðist, merka fornleifa-
fundi verða að bíða þess að ís-
lendingarnir komi heim, en
þeirra er von áður en langt um
líður.
Halvard Lange skrifar:
Hockwell sendur
vestur um haf
(NTB/AP). | vikudagskvöld, en áður hafði
hann átt símtal við blaðamann
,þar og boðað komu sína. Var
hann þá reiðulbúinn til að ganga
á vald lögreglunni.
Nazista-fundur
fyrirhugaður
Brezki nazista-leiðtogínn Colin
Jordan sagði frá því á fimmtu-
dag, að nazista-foringjar frá
mörgum löndum mundu halda
leynifund í Bretlandi dagana lð.
og 16. ágúst n.k. Ekki vildi hann
gefa upp nöfn þátttakenda ög bar
því m.a. við, að slikt gæti leitt
til þess að þeim yrði synjað land
göngu í Bretlandi.
LONDON, 9
.— Bandaríski nazistaforinginn
Lincoln Rokwell, sem á miðviku
dag var vísað úr landi af brezku
stjórninni, var á fimmtudag
sendur með flugvél Pan Amerí-
can-félagsins vestur um haf til
Boston.
Áður en Rockwell hvarf inn í
flugvélina, kvaddi hann með
kveðju nazista.
Rockwell var fylgt alla leið
Jnn í flugvélina af teynilögreglu-
mönnum, sem óku honum á flug-
völlinn í lögreglubiíreið. Nazista
foringinn var handtekinn í rit-
stjórnarskrifstofum brezka stór-
blaðsins „Daily Mirror“ á mið-
Efnahagslífi IXIoregs
stefnt ■ mikla hættu
— ef landið tæki ekki þátt í efnahags-
samstarfi Evrópwíkjanna
hagbandalags Evrópu.
Brussel, 9. ágúst ('NTB).
HALVARD LANGE, utan-
ríkisráðherra Noregs, leggur
á það áherzlu í grein, sem
birt var í Briissel á fimmtud.,
að Norðmenn geti ekki staðið
utan við efnahagssamvinnu
Evrópu-ríkjanna — án þess
að stefna efnahagslífi lands-
ins í mikla hættu. Eigi þetta
við um Noreg ekki síður en
önnur aðildarríki EFTA-frí-
vezlunarsambandsins.
r,r r»rem Langs um þessi mál
birt í málgagni samstarfsskrif-
stofu jafnaðarmannaflokkanna í
| hinum 6 meðlimaríkjum Efna-
Sex millj. mcð at-
kvæðisrétt í Alsír
Almennar þingkosningar fara þar fram 2. sept.
’JLlgeirsborg, 9. ágúst — (NTB)
SEX milljónir alsírskra borg-
ara munu sennilega greiða
atkvæði í fyrstu almennu
þingkosningunum í hinu nýja
Alsírríki, en þær eiga fram
að fara hinn 2. sept. næstk.
— í dag kunngerði bráða-
birgðastjórnarliðið í Algeirs-
borg, að kosninagbaráttan
mundi hefjast næstk. mið-
vikudag og standa til ágúst-
loka. —
í kosningunum verða valdir
196 fulltrúar á þjóðþing hins
sjálfstæða Alsír-ríkis, og sam-
kvæmt Evian-samkomulaginu
munu 16 þingmannanna verða
af evrópskum uppruna.
Fábrotnar kosningar
Það þykir strax fyrirfram
sýnt, að FLN-hreyfingin muni
ná algjörum undirtökum á
þingi. Við kosningarnar mun
aðeins koma fram einn listi,
Frh. á bls. 19
Lange lýsir yfir þeirri skoð
un sinni, að í samningavið-
ræðum nt.uni verða unnt að
ræða út í æsar þau sérstöku
vandamál rsem samfara séu
aðild Noregs að Efnahags-
bandalagi Evrópu.
Hann leggur áherzlu á að
þetta verði að sjálfsögðu að eiga
sér stað innan ramma Rómar-
samningsins. Þá kveðst utanrík-
isráðherrann gera sér grein fyr-
ir að ekki gæti farið hjá því, að
svo náin samvinna í efnahags-
málum hafi jafnframt einhver á-
hrif á stjórnmálalega afstöðu
þeirra rikja, sem hlut eigi að
máli, og gefur hann til kynna,
að Norðmenn muni taka þátt í
undirbúningi þeirra áætlana,
sem í deiglunni eru um stjórn-
málalegt samstarf ríkjanna.
Af heilum hug
Lange leggur áherzlu á
að Norðmenn muni af heilum
hug taka þátt í því samstarfi,
sem muni eiga sér stað milli
aðildarríkja bandalagsins bæði
á efnahags- og stjórnmálasviðinu.
Hann kemst svo að orði, að
skoðun sín sé sú, að samstarf-
ið á stjórnmálasviðinu muni
mótast simátt og smátt, eftir
því sem þörfin á sliku sam-
starfi skapist við efnahagsleg-
an samruna og útfærslu.
Lange getur um þá tregðu,
sem af tilfinningalegum ástæð-
um hefur gert var við sig meðal
sums fólks og beinist gegn því
að afsalað sé að einu eða neinu
fullveldisrétti norsku þjóðarinn-
ar. Hann bendir á, að Noregur
hafi aðeins verið sjálfstætt ríki
síðan árið 1905. Leggur Lange í
þessu samibandi áherzlu á þýð-
ingu hinnar jákvæðu afstöðu
sem norskir jafnaðarmenn Og
stéttarfélög tóku til Efnahags-
bandalags Evrópu, þegar Norski
Jafnaðarmannaflokkurinn ákvað
að styðja aðild Norðmanna að
bandalaginu.
í lok greinar sinnar lýsir Lange
ánægju sinni yfir þeim mögu-
leikum sem náið samstarf jafn-
aðarmanna í Evrópu geti skapað
þeim til áhrifa á þróun samvinn-
unnar.
Norðmenn frysta
síld á miðunukn
AALBSUND, 9. ágúst (NTB). —
Tilraunir með að frysta íslands-
síld strax á miðunum til beitu
í Noregi hafa tekizt mjög vel.
Hefur heimskautafarið Polarstar
farið tvær veiðiferðir í þeim til-
gangi og komið heim með 5000
til 6000 kassa af frosinni síld,
sem lögð hefur verið inn í ríkis-
frystihúsið.
Merkileg reynsla hefur fengizt
af tilraunum þessum, og getur
það komið sér vel seinna meir.
Síldin er mjög góð og bætir úr
beituskorti hjá norskum línu-
bátum.
íslendingar frysta í landi
íslendingar frysta talsvert af
síld í beitu. Til eru íslenzk skip
sem geta fryst um borð, en ekki
hefur verið þörf fyrir það, þar
eð stutt er að ^ara með síldina
í land.