Morgunblaðið - 25.08.1962, Blaðsíða 2
2
MOnCUTSHl 4Ð1Ð
Laugavdagur 25. águst 1962
Svíar telja aðild
að EBE mikilvæga
STOKKHÓLMI 24. ágúst (NTB)
Sænska vikublaðið Vecko-jurn
alen, skýrði frá. því í dag, að
samkvæmt skoðanakönnun, sem
fram hefur farið í Sviþjóð á veg
um stofnunar, sem sér um skoð-
anakavnanir (SIFO), teldu 72
prósent þjóðarinnar mikilvægt
að Svíðjóð gerðist aðili að Efna-
hagsbandalagi Evrópu, þar af
telu. 40 prósent það mjög mikil
vægt
Skoðanakönnun þessi var hald
in i samtbandi við bæjar- og sveit
arstjórnc<akosningar, sem fram
eiga að fara í Svíþjóð í næsta
mánuði. Lagði SIFO 13 spurn-
ingar fyrir 1159 menn og ein af
þeim var spurningin varðandi
aðild að Efnahagsbandalaginu.
40% 1 idu aðild Svíþjóðar að
banualaginu mjög mikilvæga.
32% töldu hana mikilvæga, 15%
töldu ekki mikilvægt að Sviþjóð
gerðist aðili að bandalaginu, en
13% voru í vafa.
U Thont ræðír við Krúsjeff
Sameinuðu 'þjóðunum, 24. ágúst
— (AP) —
U THANT, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
hélt áleiðis til Moskvu í
kvöld, en þar mun hann ræða
við Krúsjeff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, og aðra
stjórnmálamenn um heims-
vandamálin, m.a. Berlínar-
málið og Kongó.
Auk þessa er gert ráð fyrir
að U Thant spyrji Krúsjeff,
hvort hann muni styðja sig
sem framkvæmdastjóra SÞ
næstu fimm árin og hvort hann
muni sækja Allsherjarþingið,
sem hefst í næsta mánuði.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Krúsjeff og U Thant hittast,
eftir að sá síðarnefndi tók við
embætti Dag Hammarskjölds,
sem framkvæmdastjóri SÞ.
Frá Moskvu mun U Thant
fara til Póllands, Tékkóslóvakíu
og Austurríkis.
SVO fór, að norðan- áttin, sem
spáð var, að yrði í gær, náði
aldrei til Suðurlands.
í staðinn var þar V-kaldi,
þokuloft og súld með köflum,
því að frá lægðinni norðan
við SLotland lá lægðardrag-
vestur um sunnanvert ísland.
Næsti veðurvaldur er á
Davíðarsundi, milli Suður-
Grænlands og Laibrador, og
fer hart austur, mun sennilega
fara nofckiuð fyrir sunnan
land og hafa lítil áhrif á
veður hér.
Veðurspáin kl 10 í gærkvöldi
SV-land og mið: Vestan
gola og síðar hægviðri, létt-
skýjað með köflum en hætt
við síðdegisskúrum.
Faxaflói og mið: Vestan
gola og síðar hægviðri, skýj-
að.
Breiðafjörður og miðin:
Vestan gola og síðar hægviðri
d'álítil rigning í nótt en skýj
að á morgun.
Vestfirðir og miðin:' NA
gola og léttskýjað víðast inni
í fj ðum en kaldi og súld á
miðun-um.
Norðurland: Austan og NA
gola, léttskýjað með köflum
inni í sveitum, sums staðar
þoka á annesjum.
NA-land til Austfjarða,
norðurmið til Austfjarðamiða
og austurdjúp: Austan og NA
kaldi, þokuloft.
SA-land og miðin: Hæg-
viðri og léttskýjað með köfl-
um en hætt við skúrum.
16 daga ferð með Cull-
tossi fyrir 5100 kr.
Eimskip tekur upp sérstœða vetraráætlun
EIMSKIPAFÉLAG fslands hefur
ákveðið að bjóða íslendingum
upp á sérlega ódýrar utanferðir
með GuIIfossi í vetur. Verða
þær fyrst og fremst til tveggja
landa, Danmerkur og Skotlands,
en ef aðstæður leyfa, þá einnig
til annarra landa, oftast Ham-
borgar.
Sögðu forráðamenn félagsins
að frá upphafi hafi það verið
hlutverk Eimskips að brúa djúpið
milli fslands og annarra landa og
nú vill félagið bjóða Gullfoss til
þessara ferða og verða gjöldin í
vetur stórlækkuð. Kostar 16 daga
ferð aðeins 5.100 kr. Farþegar
búa í skipinu allan tímann, en
frá borði verða skipulagðar ferð-
ir upp í land með aðstoð ferða-
skrifstofa.
Fyrirhugað er að á tímabilinu
nóvemiber til marz í vetur verði
einungis 1. farrými skipsins opið
fyrir farþega og þannig aðeins
böðið upp á 'hin fullkomnustu
þægindi. Hins vegar verða far-
gjöldin lækkuð stórlega á þessu
farrými, frá því sem er á sumr-
in, svo að þau verða ekki hærri
en 2. farrýmis fargjöldin eru
venjulega. í erlendum höfnum
verður skipið opið sem gististað-
ur fyrir þá fanþega, er ferðast
með því fram og til baka. Þar
fá þeir gistingu, fæði og þjón-
ustu, ad'lf innifalið í fargjaldinu.
Sérstaklega skal vakin á því
atíhygli, að 1 engu verða rýrð
þau þægindi, mabur og drykkur,
sem bezt eru yfir sumartimann.
Ferðunum verður þannig hag-
áð, að brottför verður frá Reykja
vík síðdegis á föstudegi og siglt
til Kaupmannahafnar. Sú sigl-
ingarleið er 3—4 sólarhringar. —
Skipið dvelst nálega viku í
Kaupmannalhöfn. Oftast er það
þó svo, að skipið kemur við í
annarri erlendri höfn á leið sinni
til Kaupmannahafnar (venjuleg-
ast Hamborg) og mun það þá
að sjálfsögðu stytta dvalartímann
í Kaupmannahöfn. Frá Kaup-
mannahöfn verður síðan siglt á
þriðjudegi til Leith í Skotlandi
og komið þangað snemma á
fimmtudagsmorgni. Þaðan verð-
ur svo siglt að kveldi sama dags
og komið til Reykjavíkur á
eunnudegi.
Hver ferð tekur þannig 16 daga
og kostar 5100 krónur.
Það er von Eimskipafélagsins,
að með því að bjóða þessar ódýru
og bagkvæmu ferðir í vetur, gef-
ist mörgum, sem efcki hafa átt
þess kost áður tækifæri trl þess
að heimsækja Kaupmannahöfn,
höfuðborg Norðurlanda, sem oft
er nefnd borg gleðinnar, þar sem
opin eru leikhús, óperur og ýms-
ir aðrir skemmtistaðir, sem lok-
aðir eru yfir sumartímann. Þá
gefst og tækifæri til þess að
heimsækja Ediniborg, þá fögru
og söguríku borg Skotlands. Og
að lokum má ekki gleyma vist-
Eimskip ber hreint tap af
sekkjavöru frá Ameríku
— sagði Óttarr Möller forstjóri
A FUNDI sem Eimsldpafélag ís-
lands átti með fréttanrönnum í
gær ræddi Óttar Möller forstjóri
nokkuð um starf og stefnu Eim-
skipafélagsins fyrr oe síðar og
kom í þvi sambandi inn í hina
nýtilkomnu farmgjaldahækkun,
sem valdið hefur nokkrum mis-
skilningi meðaJ almennings og
hjá sumum blöðum.
ýr Þjónustuhlutverk.
Óttar sagði að Eimskipafélag-
ið hefði verið stofnað sem þjón-
ustufyrirtæki. Það hefði verið ó
pólitiskt og lengstum hefði þjóð
in öll viljað léta það dafna sem
bezt, vaxa og eflast til aukinn-
ar og bættrar þjónustu við lands
menn alla. Kveðst Óttar vona að
þessi sami hugur væri enn til
félagsins, því enn væri félagið
og yrði rekið ópólitískt og þjón
ustuhlutverkið yrði ailtaf í há-
vegum haft.
ir Farmgjaldahækkunin.
En það getur ekkert félag rek
ið þjónostu ei.lurgjaldslaust. í
sambandi við farmgjaldahækkun
ina lögðum \ ið fram fyrir ráða-
menn þjóðarinnar staðreyndir,
sem voru teknar til greina og
sannleikurinn «r sá, að hækkun
in nemur aðeins hluta af því,
sem skipafélög þurfa til eðlilegs
reksturs. Við flytjuan enn, þrátt
fyrir hækkunina, fóðurvörur
fyrir aðeins þriðjung af því
gjaldi ,..a. heimsmarkaðsverð
kallast og stykkjavöru fyrir mun
laegra verð. Hækkunin fólst í
þvi að flutningsgjald kornvi' u
til manneldis var hækkað og er
nú þaf sama og áður .gilti — og
gildir enn — fyrir fóðurvörur.
Stykkjavara, önnur en bílar,
hækkar um 40 %.
Á ölluim öðrum vörum, t.d.
timbri, kolum og fjölmörgum
öðrum verður engin hækkun.
þæ. voru og eru fluttar fyrir
venjule_;t heimsmarkaðsverð. Út
reiknað hefur verið, að hækkun
in njrnur sem svarar 0,6 stigi í
vísitölu.
Og þrátt fyrlr nýorðna hækk
un, hélt Óttar áfram, eru farm
gjöld af sekkjavöru frá Banda-
ríkjunum svo lág, að þegar
búið er að setja vöruna um
borð, er farmgjaldið uppurið.
Kostnaðurinn af flutningi yflr
hafið og á bafnir landsins verð
ur að greiða úr öðrum sjóðum,
svo og hafnargjöld. Slíkt þolir
ekkert félag til lengdar og það
er þjóðinni síffur en svo í hag
að svo sé um hnútana búið.
H .kkunin er spor í rétta átt.
Stökkbreyting í þessum efnum
er erfið.
— Eg get ekki séð að ncfckur
fslendingur hagnist á því að
aftra eðlilegri þróun og uppbygg
inigu félags eins og Eimskipafél-
agsins. Félagið er eign 14 þús.
íslendinga. Hagur þess og vel-
gengni kemur öllum landslýð að
notum. Félagið vill veita og veit
ir þjónustu m.a. með bví að samg
flutningsgjald er til um 50 hafna
á landinu fyrir skráðar vörur.
Við viljum verða dæmdir af
verkunum. Við munum taika til
greina gagnrýni og reyna að
mæta óskum sem flestra íslend
inga. (Jnot og skammir verða
ekki teknar til greina.
Síðan ræddi Óttar um hið nýja
fyrirkomulag vetraráætlana Gull
inni um borð í Gullfossl, þar
sem farþegar njóta þeirra þæg-
inda, þjónustu, matar og drykkj-
ar, sem stærsta íslenzka hótelið
bezt getur boðið gestum sínum.
Sildin
Framh. af bls. 20.
Raufarhöfn. Eftirtalin skip lönd-
uðu þar í gær: Halldór Jónsson
664 mál, Ólafur Magnússon EA
1064, Þorbjörn 674, Muninn 318,
Freyja 418, Hringsjá 626, Bjarmi
618, Guðbjörg ÓF 796, Sigur-
björg SU 518, Árni Geir 306,
Hrafn Sveirnbjarnarson II 516,
Sæfari AK 660, Freyja GK 492
Og Sigurvon AK 614 mál.
Eins og fyrr segir var saltað
á flestum stöðvum á Raufarhöfn
í gærkvöldi, en sölbun í fyrrada-g
nam 1500 tunnum.
Á Norðfirði er nú þriggja sól-
arhringa löndunarbið vegna erfið
leika við bræðslu á smásíld. —
Flotinn heldur sig mest útaf
Glettinganesflaki og var þar í
gærkvöldi í ágætu veðri en ekki
hafði frétzt af veiði.
foss, en þess er getið á öðrum
stað í blaðinu.
Ný bók frá
Helgafelli
BLAÐINU hefur borizt ný bók
frá Helgafelli eftir dr. Benjamín
Eiríksson, bankastjóra, er hann
kallar „The Concept and Nature
of Money“, en bókin er gefin út
á ensku, og er þetta önnur bók-
in, sem forlagið gefur út á ensku
eftir dr. Benjamín. í þessari
nýju bók sinni setur dr. Benja-
mín fram skoðanir sínar á eðli
peninga, í framhaldi af peninga-
hugtaki því er hann setti fram
í fyrri bók sinni. Sýnir hann
fram á að peningarnir séu sam-
fösunartæki atvinnulifa og við-
skipta.