Morgunblaðið - 25.08.1962, Blaðsíða 18
18
MO RGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 25. ágúst 1962
verkfœri & járnvörur h.f.
bor - hamar
Tvær stærðir af þessum þekktu bor-hömrum eru
fyrirliggjandi. Bora göt í harða steinsteypu frá
%” til 3Va”.
Bygginganieistarar og aðrir iðnaðarmenn, lækkið
byggingakostnaðinn með því að nota fljótvirk og
örugg verkíæri.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar.
Ægisgötu 7. — Sími 15815.
Skafti Þorgrímsson er einn efni
legasti spretthlaupari landsins.
Ljósm. Sv. Þormóðsson.
2. deild.
Grimsby — Portsmouth 1—1
Walsall — Huddersfiold 1—1
Chelsea — Scunthorpe 3—0
Derby — Stoke 1—1
Leeds — Hotherham 3—4
Middlesbrough — Newcaetle 4—2
Norwich — Cardifí 0—0
Plymouth — Preston 7—1
Southampton — Luton 2—2
Sunderland — Charlton 1—0
f Skotlandi urðu úrslit m.a. J>essi:
Falkirk — Celtic 1—3
Hearts — Dundee 3—1
Hangers — St. Mirren 3—0
Að loknuim 2 umferðum er stað
an þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin)
Wolverhampton 2 2-0-0 12:2 4 st.
Arsenal 2 2-0-0 4:1 4 —
Everton 2 2-0-0 6:2 4 —
Blackpool 2 2-0-0 3:1 4 —
Leytön Orient 2 0-0-2 2:4 0 —
West Haan 2 0-0-2 2:7 0 —
Birmingham 2 0-0-2 0:5 0 —
2. deild (eftu og neðstu liðin)
Chelsea 2 2-0-0 4:0 4 —
Plymouth 2 2-0-0 9:1 4 —
DANIR eru mjög upp með sér
yfir leik úrvalsliðs Kaupmanna.
hafnar gegn Evrópumikarmeist-
urum, Benefica, á dögunum.
Portúgalir unnu leikinn með
5—4, en Danir ógnuðu þeim veru
lega. Stóð 2—0 fyrir Dani og aft-
ur 3—1 þeim í vil. En fyrir hlé
hafði Portúgölum tekist að rétta
sinn hlut í 4—3, en síðari hálfleik
lauk með jafntefli 1—1.
Portúgalai nir eiga dýra og
góða menn. Þeirra er mjög vel
gætt og það svo að athygli vek-
ur í Danmörku. Portúgalarnir
búa á hóteli og fá allir sérstakaa
mat sem þjálfarinn fyrirskipar
hverju sinni. Hefur þetta ekki
gengið erfiðleikalaust á hótelinu,
Og starfsfólki hótelsins er bannað
að sinna nokkrum pöntunum leik
manna til herbergja, nema þjálf-
arinn fái fyrst að sjá pöntunina.
Heimsókn Portúgalanna var
dýr. Þeir léku upp á ákveðinn
hlut en tryggingin sem þeir heimt
uðu greidda fyrir leikinn var
rúml. 100 þúsund d. kr.
Aðeins SKIL bor-hamar hefur 3 vinnsluaðferðir.
1. Hamrar og borar.
2. Hamrar án snúnings.
3. Snýst án hömrunar.
Haynes
brotinn
JOHN Heynes fyrirliði enska{
landsliðsins og aðalstjarna
Fulham brotnaði um ökla í
bifreiðaslysi í Blackpool í1
fyrrakvöld. |
Hayues verður frá keppni
í minnst 5 vikur.
Haynes er launahæsti leik-
maður Englands, hefur 100
pund á viku í föst laun, auk
allra „bónusa“.
írarnir í kapphlaupi
við flugvél tii íslands
Eru dálítið smeykir við landsleikinn
annan sunnudag
EFMR rúma viku, annan sunnu-
dag, verður síðari landeieikur ís
lendinga og fra leikinn á Laugar
dalsvellinum. Geysilegur spenn-
ingur er um þennan leik, ekki
sízt vegna góðrar frammistöðu
ísL liðsins er það mætti frum á
heimavelli þeirra í Dublin 12.
ágúst s.l. Þá unnu írar með 4—2,
sem kunnugt er. Reglur um bikar
landsliða Evrópu, sem um er
keppt i þessari keppni eru, að
leika þarf bæði heima og heiman.
fslendingar eru ekki án mögu-
leika að komast áfram í keppn-
inni, en til þess þurfa þeir að
vinna fra með þriggja marka
mun. Samanlögð markatala ræð-
ur sem sagt, ef liðin vinna sinn
hvorn leikinn.
írska liðið á dögunum var
skipað atvinnumönnum einvörð-
ungu, mönnum sem yfirgefið hafa
írland og leik með enskum lið-
um. Það er dýrt fyrir írska sam-
bandið að þurfa að fá þá „lán-
aða“. Fyrir leikinn 12. ágúst s.l.
fékk hver leikmanna fra 50 sterl-
ingspund. Var því talið að íram-
ir vildu vinna stórsigur úti í Dúbl
in, en senda svo eitthvert blönd-
ungslið hingað annan sunnudag,
sem þyldi lítið tap, þar sem fyrir
væri góður „markaforði" frá
fyrri leiknum.
★ Áfall fyrir fra
En úrslitir. 12. ágúst voru áfall
fyrir fra. írarnir eru nú hræddir
fyrir leikinn hér. Þeir munu
senda hingað einvörðungu at-
vinnumenn og lrklega flesta af
þeim sömu og léku fyrri leikinn.
En það er dálitlum erfiðleikum
bundið. Allir írarnir eiga að
leika með sínum ensku liðum
laugardaginn 1. september. Þeir
eiga því eftir þann leik mikið
kapphlaup fyrir höndum að ná
í vélina í Glasgow ld. 9 um kvöld
ið og eru væntanlegir hingað um
eða eftir miðnætti. Þeirra bíður
svo leikurinn nokkrum klukku-
stundum eftir þennan erfiða laug
ardag.
frunum hrósað
írsku leikmennimir hafa allir
sýnt góða leiki með sínum ensku
liðum. S.l. sunnudag var margra
þeirra getið eftir umferðina þá
í ensku deildinni og þeim hrósað
vel. Má þar geta Giles frá Manch.
United, sem var einn bezti maður
liðs síns, Hurley miðvarðar sem
skoraði m. a mark fyrir Sunder-
land og var talinn beztur liðs-
manna. Og síðast en ekki sízt
Meagan frá Everton sem fékk sér
stakt lof fyrir leik sinn á laugar-
daginn.
Spenningurinn eykst því stöð-
ugt, bæði vegna erfiðleika á ferð
☆
WILMA Rudolp, bandaríska
hlaupa-„gazellan“, eins og
hún hefur verið nefnd, en
heimsfræg er hún síðan á
Rómarleikunum að hún vann
þrenn gullverðlaun, er nú I
Svíþjóð. Og hvar sem hún
kemur fram safnast þúsundir
Svía saman, að sjá hana, og
hún vinnur hug og hjörtu
þeirra með aðlaðandi fram-
komu. Samt er hún ekki í
bezta formi, en Svíar láta
sig að engu skipta. Það er
sannkölluð „Rudolph-alda“
um Svíþjóð núna.
Á föstudaginn kom hún
fram í fyrsta sinni á íþrótta-
móti. Það var í Hassleholm
og þar voru bætt öll met
viðvíkjandi áhorfendafjölda.
Það komu 6800 manns á völl-
inn, eða 4000 fleiri en Gund-
er Hágg, hlaupakonungurinn
frægi, dýrðlingur Svía,
nokkru sinni gat dregið á
★ fsl. liffið aftur nær heillt
íslenzka liðið kom mjög
„haltrandi" heim eins og menn
muna, frá þessum erfiða leik.
Nú hafa liðsmenn allir náð sér,
að Þórði Jónssyni undanskildum.
Vafalaust mun landsliðsnefndin
litlar eða engar breytingar gera á
liðinu utan v. útherjastöðu, þar
sem liðið sýndi ágæta samstöðu
eftir fréttum að dæma, baráttu-
gleði og sigurvilja.
keppninnar fór fram fyrri hluta
þessarar viku og urðu úrslit
þessi:
1. deild.
Aston Villa — Tottenham 2—1
Blaokburn — N. Forest 2—5
Blackpool — Ipswich 1—0
West Ham — Wolverhampton 1—4
Arsenal — Birmintgham 2—0
Bolton — Burnley 2—2
Everton — Manchester U. 3—1
Leicester — Sheffield W. 3—3
Manchester City — Liverpool 2—2
Sheffield U. — Fulham 2—0
W.B.A. — Leyton O. 2—1
Preston
Grimsby
100 þús.
danskar kr,
völlinn þar og 3000 fleiri en
Dan Waern nokkru sinni gat
fengið þangað.
Wilma verður 16 daga í
Svíþjóð. Hún tekur þátt í 10
mótum og einu kokteilpartíi,
hjá bandaríska sendiherran-
um. Svíþjóðarferðin verður
því erfið, milli mótanna.
Því hefur verið haldið
fram að Wilma fái geysifjár-
upphæðir fyrir að keppa í
Svíþjóð. Sannleikurinn er að
hún fær 10 kr. sænskar á dag
og má taka við verðlaunum
eftir hvert hlaup, sem nema
50 s. kr. að verðmæti. — 1
fyrstu keppni sinni valdi hún
sér dragt í verðlaun. Dragtin
var þó ekki afhent á verð-
launapallinum. heldur kom
tízkuklæðskeri á völlinn og
tók mál af Wilmu.
Wilma er sérstakt efni
sænskra blaða nú. Blaðamenn
irnir róta upp fjölskýldu- og
einkalífi hennar. Hún er 22
ára gömul og á 20 systkini.
Hún er nr. 9 i röðinni hvað
aldur snertir. Hún er kenn-
ari að menntun og hefur ósk-
að sérstaklega eftir að fá að
heimsækja sænskan barna-
skóla. Hún er gift og heitir
nú eiginlega frú Ward. Hún
neitar því sem fleygt hefur
verið að hún hafi nýlega fætt
barn. Svíarnir eru sammála
um að hún sé falleg, elsku-
leg og aðlaðandi stúlka.
um íranna, og þess að hjá hvernig
ísl. piltunum tekst í glímunni við
þessa nafntoguðu atvinnumenn.
■o- Enska knattspyrnan ■>
2. umferð ensku deildar-s> Sunderland