Morgunblaðið - 25.08.1962, Blaðsíða 8
8
MORGinvnr 4niÐ
Laugardagur 25. ágúst 1962
Vegir milli Úlafsvíkur
og Hellissands
1 SKÝRSLU vegamálastjóra Sig-
urðar Jóhannssonar um vegalagn
ingar, vegaviðhald og brúargjörð
ir á þessu ári, segir að fyrirhugað
sé, að byrja í sumar á því, að
leggja veg á milli Ólafsvíkur og
Hellissands framan í Ólafsvíkur
enni, og að í sumar og haust eigi
að vinna fyrir kr. 400,000 1
þessum vegi.
Allir íbúar í Ólafsvik og Hellis
sandi munu fagna því ef vegur
verður lagður milli kauptúnanna.
Árið 1929 var fyrst byrjað að
tala um að koma á akvegasam
bandi milli Ólafsvíkur og Hellis
sands. Það ár var ruddur akveg
ur yfir Fróðárheiði og þá komst
Ólafsvík í akvegasamband við
vegakerfi landsins. Þó þessi
ruddi vegur væri í byrjun ófull
kominn mjög, þá varð hann þó
til hagsbóta fyrir Ólafsvík og nær
liggjandi sveitir. Vegurinn yfir
Fróðárheiði var ruddur fyrir öt-
ula forgöngu þáverandi alþingis-
manns Snæfellinga, Halldórs
Steinssonar. Ólafsvíkurhreppur
og Fróðárhreppur lögðu þá báðir
fram nokkurt fé, ,á móti tillagi
ríkissjóðs, til þess að þetta verk
yrði framkvæmt. Ólafsvík er
þannig búin að vera í akvegasam
bandi í nærri 33 ár.
Árið 1929 stóð einnig íbúum
Neshrepps utan Ennis til boða að
fá ruddan veg um Ennisdal milli
Ólafsvíkur og Hellissands, ef
þeir vildu leggja fram jafnháa
upphæð á inóti tillagi ríkissjóðs,
og Ólafsvíkur- og Fróðárhreppur
lögðu í Fróðárheiði. íbúar Nes-
hrepps utan Ennis neituðu að
leggja fram féð, og því var leið
in ekki rudd, og enn eftir 33 ár
er enginn vegur milli Ólafsvíkur
og Hellissands.
íbúar Hellissands kröfðust þá
þess, að leiðin fram fyrir jökul til
Hellissands yrði gjörð akfær. Þeir
álitu, að ef akfær vegur milli
Ólafsvíkur og Hellissands yrði
ruddur, myndi það tefja fyrir því
að þeir fcngju veg fyrir framan
jökul. En vegna þess hve vegur-
inn fyrir framan jökul er langur
og liggur yfir mörg og ógreið
hraun, kom3t Hellissandur ekki
í akvegasamband fyr en árið
1956, eða 27 árum síðar en Ólafs
vík.
Eg hélt því fram. árið 1929, og
hef ávalt haldið því fram, að veg
ur milli Ólafsvíkur og Hellissands
mundi alls ekki tefja fyrir því að
vegur yrði lagður fyrir framan
jökul.
Enginn vegur er ennþá kominn
milli Ólafsvíkur og Hellissands.
Erfiður þröskuldur er á þeirri
leið, en það er Ólafsvíkurenni,
sem er þverhnípt 1 sjó fram. Þó
er hægt að komast eftir fjörunni
undir Enninu, þegar ekki er flóð.
Fyrstu jeppabílarnir komu á
Troðningur undir Ólafsvíkurenni
ÞRJÁR FRÆGAR
A UND.4NFÖRNCM árum
hafa þeldökkar óperusöngkon-
ur getið sér mikillar frægðar
bæði í Bandaríkjunum og
Evrópu. Um þessar mundir
eru þrjár, sem hæst ber í óperu
húsum Evrópu: Leontyne
Price, Grace Bumbry og Gior
ya Davy Frægð þeirra er á
engan hát bundin litarhættin
um, en fyrsl og fremst hinum
góðu söngröddum, sem þær
hafa hlotið í vöggugjöf.
LEONTYNE PRICE
er sópransöngkona. — Hún
fæddist fyrir 35 árum í Missis-
sippi í Bandaríkjunum. Faðir
hennar var trésmiður, en
móðir hennar söng í kirkju-
kór. Leontyne ætlaði að verða
m
GRACE BUMBRY
hefur messosópran rödd.
Hún er fædd í St. Louis 1937,
hefur 3tundað háskólanám
bæði í Boston og Chicago og
numið söng hjá hinni frægu
þýzku söngkonu Lotte Leh-
mann, sem nú kennir í Kali-
forníu. Einnig hefur hún verið
við söngnám í Evrópu.
SðNGKONUR
GLORYA DAVY
er 29 ára frá Brooklyn í New
York. Hún hefur sópran rödd
og söng i íyrsta skipti opinber
lega í Porgy og Bess eftir
Gershwin i flokki, sem ferðað
ist um heiminn. Næsta hlut-
verk hennar var Aida, sem
hún söng í Nissa. Eftir að hún
hafði verið nokkra mánuði í
Frakklandi, var henni boðið
að koma heim til Bandaríkj-
anna cg syngja Aidu við
Metropolitan óperuna, þar sem
söng heimar var framúrskar-
andi vel tekið.
Sl. vetur söng hún Aidu við
hina nýju Berlínaróperu og
þar bíða hennar mörg stór hlut
verk.
kennari og það var enginn ann
ar en Paux Robeson, sem fékk
hana til að hætta við það og
hefja söngnám. Kostaði hann
nám hcnnar í fjögur ár.
Fyrsta hlutverk hennar var
Bess í Porgy og Bess, sem hún
söng við góðan orðstír í sama
söngflokki og Glorya Davy
kom fyrst fram. Heimsfrægð
sína á hún að einhverju leyti
að þakka hljómsveitarstjóran
um Herbert von Karajan. Frá
því að hann heyrði hana
syngja í fyrsta skipti í New
York heíur hann útvegað
henni hlutverk við Skalaóper-
una í Mílanó, óperuna í Salz-
burg og Vínaróperuna, þar
sem nún er nú aðalsöngkona.
Nýlega söng hún hlutverk
Aidu inn á hljómplötu og það
jók enn hróður hennar.
Fyrsta hlutverk, sem hún
fékk í óperu í Evrópu, var í
Basel í Sviss, en hún varð
fyrst fræg fyrir söng sinn í
hlutverki Carmen í París.
Sl. ár söng hún hlutverk
Venusar í Tannháuser eftir
Wagner er óperan var flutt í
Bayreuth í Þýzkalandi. Vakti
söngur hennar þar geisilega
hrifningu og í sumar syngur
hún aftur hlutverk Venusar í
Bayreuth. þar sem Wagner
starfaði rnikið og flestar óper
ur hans voru frumfluttar.
Snæfellsnes árið 1944 og síðan
hefur verið klöngrast á þeim und
ir Enninu eftir fjörugrjóti, klöpp
um og fjörusandi. Menn hafa á
stuttum tíma stórskemmt og eyði
lagt jeppabíla sína á þeirri leið.
Hef ég, héraðslæknirinn í Ólafs
vík og fleiri fengið á því að
kenna.
Það er bú brýn nauðsyn á að
fá fullkominn akveg á milli kaup
túnanna. Þrátt fyrir vegaleysið
eru miklar samgöngur milli þess
ara kauptúna. og það jafnt á öll
um tímum árs, en þær mundu
vera margfalt meiri ef vegur
væri góður. Þá mundu f jöldi vöru
bíla fara með vörur og flutning
milli hafnanna í Ólafsvík og Rifi.
Færi það eftir því, hvar hentug
ast væri að skipa út og upp vör-
um hverju sinni.
Þessa veganauðsyn hafa íbúar
beggja kauptúnanna skilið svo
og yfirmenn vegamálanna. Þess
vegna er búið að mæla fyrir vegi
og gjöra áætlun um kostnað, bæði
á bak við Ólafsvíkurenni og líka
framan í því.
Þessar mælingar og áætlanir
hafa leitt í ljós að vegurinn á bak
við Ólafsvíkurenni yrði að
minnsta kosti 6 til 7 sinnum ódýr
ari en vegur framan í Enninu.
Sá vegur er að vísu nokkru lengri
en bílar nú á tímum eru ekki
lengi að fara nálægt 4 km lengri
leið.
Eg held þv' fram, og hef alltaf
haft. þá skoðun, síðan farið var að
ræða þessi mál, að veginn eigi að
leggja á bak við Ólafsvíkurenni,
en ekki framan í því.
Þá skoðun byggi ég á þessum
ástæðum:
1. Vegurinn er margfalt ódýr-
ari, og miklu fljótlagðari og
kæmist því fyrr í notkun.
2. Á þeim vegi eru engar hætt
ur. En vegur framan í Ólafs
víkurenni yrði alltaf hættu-
legur. Ólafsvíkurenni er
mestmegnis myndað af þursa
bergi og grjóthrun er þar
mikið bæði sumar og vetur.
Framan í Ólafsvíkurenni er
mjög snjóflóðahætt. Á hverj
um vetri komá þar stórar
snjóskriður. Eg er hræddur
við það. að hljóðöldur frá
bílum, sem fara um veg
framan í Enninu, og jafnvel
annar titringur frá stórum
bílum mundi oft hrinda snjó
hengjum í brúnum fjallsins
af stað. Þessar hættur af
grjóthruni og snjóskriðum
verður ekki hægt að losna
við né fyrirbyggja.
3. Þegar farið yrði að leggja
veg framan í Enninu myndi
mikið grjót frá sprengingum
við vegagjörðina falla niður
í fjöruna. Við það myndi
fjöruleiðin verða ófær jeppa
bilum. En ég tel frágangs-
sök að loka alveg þeirri leið.
Þessvegna yrði strax aS
ryðja bráðabirgðaveg fyrir
ofan Ólafsvíkurenni svo um
ferð geti haldizt, á meðan
verið er að leggja veginn
framan í Enninu. Kostnaður
við þá vegagjörð yrði því
viðbót við þá miklu fjárhæð,
sem vegur framan í Enninu
kostar.
Eg vil að forráðamenn vega-
málanna athugi gaumgæfilega
þessar ástæður mínar áður en
þeir láta byrja á vegagjörð fram
an í Ólfsvíkurenni.
Ég veit að margir menn eru mér
ekki sammála í þessu efni. Eg
hef heyrt marga halda því fram,
að svo snjóþungt sé á vetrum bak
við Ólafsvikurenni, að þar gæti
aldrei orðið vetrarleið. En leið
framan í Enninu yrði alltaf fær,
því þar festi aldrei snjó.
Þessu er því að svara, að leið
in á bak við Ólafsvíkurenni ligg-
ur hæst í nálægt 260 m hæð yfir
sjávarmál, eða um 100 metrum
lægra en leiðin yfir Fróðárheiði.
Þessvegna er miklu minni snjó-
þungi þar, en á Fróðárheiði. Þó
hefur það komið glöggt í ljós þar,
að þar sem vegurinn er nógu hár
festir ekki snjó. Vindurinn feyk
ir honum burt
VegastæðlS bak við ólafsvíkur
enn, er allt mjög gott ýtuland,
eða skurðgröfuland, má því ýta
þar upp háum vegi. Eg hef kunn
ugleika á Ólafsvíkur- og Sveins
staðafjalli, og ég tel að vel lagð
ur vegur þar, myndi alls ekki
lokast fyrr af snjó en vegir í
byggð.
Ég vil að lokum beina þeim
tilmælum til vegamálastjóra, og
þeirra manna annarra, er með
þessi mál fara, að þeir noti þessar
400 þúsund krónur, sem vinna
á fyrir í haust til þess að koma
vegi upp á Sveinsstaðafjallið vest
an Ennisins, og ryðja jafnframt
fjallið til bráðabirgða, þar til sam
band fæst við veginn frá Ólafs.
vík, sem liggur upp að rafmagns
stíflunni fyrii ofan Rjúkanda f
Fossá. En halda svo áfram næsta
ár að ýta upp og leggja veginn á
bak við Ólafsvíkurenni.
Mælingar munu allar vera fyr
ir hendi af þessum vegi, og þess
vegna þarf engan verkfræðileg
an undirbúning nú, og því er
•hægt að hefja framkvæmdir þeg
ar í haust.
Umfram allt, byggið ekki veg
framan í Ólafsvíkurenni, þar sem
stórkostleg slysahætta er æ fyrir
hendi.
Ólafsvík, 30. júlí 1962.
Magnús Guðmundsson,
prestur
HILMAR FOSS
lögg. skjalþ. og dómt.
Hafnarstræti 11 — Sími 14824
Lynghaga 4. Sími 19333.