Morgunblaðið - 25.08.1962, Síða 9

Morgunblaðið - 25.08.1962, Síða 9
Laugardagur 25. ágúst 1962 MORGTINBLAÐIÐ 9 Hrlilpn ö. ÍUJLjAQn F Sextugur í dag: Sigurjón Kristjánsson, skipstjóri Fast og lengi sjó þú sóttir, sigldir út rneð liðið frítt. Barst að landi gullsins gnóttir, gæfan sigldi í kjölfar þitt. Og þó risi brattur boðinn bar þig heilan yfir hann. — Það var eins og glæsta gnoðin Yfir hverskyns amstur hafinn ég af hjarta votta þér. Sit þú heill og sæmdum vafinn sérhvern dag, sem eftir er. Lát þig dreyma daga forna: dáð og kjark og manndóm þinn, Æskuna lifðu endurborna í ellinni, góði vinur minn. Ú fgeroarmenn íftvegum frá fyrsta flokks skipasmíðastöðvum í Noregi StáEfiskiskip í öllum stærðum Ef samið er strax höfum vér tilboð í 180 og 220 lesta fiskiskip. AFHENWNGARTÍMl MAÍ 1963. Teikningar, lýsingar og aðrar upplýsingar á skrifstofu vorri. Eggert Kristjánsson & Co. hf. í DAG er sextugur Sigurjón Kristjánsson, skipstjóri frá Sandi Hann er fæddur á Bíldudal 25. ágúst 1902. Faðir hans varð úti milli Tálknafjarðar og Bíldudals sama ér. Sigurjón ólst hví upp með móður sinni Stefaníu Stefánsdótt ur alþekktri sæmdarkonu og stjúpföður sínum Sigurði Jóna tanssyni á Sandi, þvi þangað fluttist móðirin með bömin tvö eftir að faðir þeirra aó. Á Sandi átti Stefanía móður er hún leit- aði til. Sigurjón var strax í æsku dugmikill vandaðt- sómadrengur Snemma hneigðist hugur hans að sjó er var aðalstarf allra ungra manna á þeim stað. Hann Byrj- aði formennsku aðeins 18 ára gamall og hefur haft manna for ráð sem formaður og skipstjóri í 40 ár, allt frá árabátum 5 manna fari til nýtízku vélskipa með full komnustu tækjum. Gæfan hefur fylgt honum allt hið langa skipstjóratímabil. Honum hefur alltaf farnast vel, verið mikill og farsæll afla maður, hvaða fari sem hann hef ur stjómað. Hann lærði til sklpstjórnar á Isafirði árið 1924, fluttist til Akra nes 1936 og var skipstjóri á bát- um þaðan til loka ársins 1959 er hann hóf starfsemi í sementsverk smiðju Akranes. Sigurjón naut þeirrar gæfu að giftast bráðgreindri ágætiskonu Sigríði Ólafsdóttur frá Sandi, hafa þau verið mjög samhent í starfi. 5. jan 1952 skeði sá sorgarat- hurður í lífi þeirra hjóna að missa son sinn Sævar er drukkn ®ði í ofsaveðri á m.b. Val frá Akranesi. Sá sonur var Sigur- jóni líkastur mikiil efnismaður er hafði ákveðið að gera sjó- mennsku að sínu lífsstarfi Sigur jón tók því sem öðru með karl- mennsku t., hugró þess manns er skynjaði að á bak við það tjald er að skílur líf og dauða. hefst nýr lífsdagur hinna full- komnu lífveru. I>ó mun bessi at- burður hafa verið honum erfið- astur í lífinu. Við slík tímamót sem þessi í sefi manna, reikar hugur sam- ferða manna og vina til liðinna tíma og staðnæmist við vissa at- burði í lífi þeirra. Ég minnist þess að fyrir 42 árum var ég staddur við Keflavikur-lendingu á Sandi, þar sem engu má muna í brimlendingu og getur aðeins faðms skekkja ráðið örlögum, hvort skipshöfn heldur lífi eða fiytzt inn á annað svið. Þennan dag var sjór úfinn, Bldur hrundu á boðum, einn bát- ur var fyrir utan brimgarðinn og beið eftir lagi, gamlir reyndir veður-barðir formienn stóðu í hóp í landi ag ræddu um útlit- ið hvort lending væri möguleg eða ekki. Voru þeir sammiála um að ekki væri lendandi nema hinni ýtrustu hár nákvæmni væri beitt með töku lags og stjórnar bóts í brimgarði. Þeir litu áhyggjufullir til litla bátsins er utan beið. Ég ipurði hvaða formaður þetta væri, svarið var, það er hann Sigurjón, þetta verður fyrsta lendingin hans í hafbrimi. Kornungur maður sat undir stýri og fjórir undir árum. Allir biðu í ofvæni í landi hvernig takast mundi. Skyndilega lyfti hinn ungi imaður hendi á sarna augnabliki beita ræðararnir römmum tök- um knýja bátinn fram svo sem frekast má, allir vita að það gild jr líf að vel sé róið og rétt stjórn að svo lendingin megi takast. Nú kom hreifing á formanna hóp inn, þeir lifðu upp þau augna- blik er þeir sjáifir höfðu fyrir mörgum árum gengið gegnum eömu eldraun. Rétta lagið tekið sögðu þeir, en tekst honum eins vel í brim- garðinum, þekkir hann straum- kastið. Það var sambland að ótta og hrifningu í svip þeirra, bát- urinn óð áfram, öldurnar nálg- ast, sú fyrsta lá en þykk utar háar gieigvænlegar, ofraun hverj um smábát, takizt honum að fylgja þeirri fyrstu tekur hún bátinn á réttum stað, það ræður örlögum, lendingarstaðurinn nálg ast, á bakborða er Vararhöfuð há geigvænleg klettaflúð. Á stjórnborði strítumyndaði klett- urinn, „Kolli“ ásamt fleiri smærri klettum á þessu um- hverfi svarvaði brimið um milli Höfuðs og Kolla verður báturinn að lenda, bilið var frílega ára- báts-breidd. Á þessum stað hafa í gegnum aldir mangar skipshafn ir tapazt. Þeir sem ókunnugir voru virtust skaikkt stefnt, en kunnugir þekktu straumkastið og sáu að hárrétt var á haldið, Fyrsta aldan reið undir litla bát- inn, lyfti honum að faldi, æddi áfram með feifcna hraða á næsta augnabliki þaut hann inn í hina þröngu vör milli höfuðs og Kolla, þar sem bilið var svo þröngt sem áður var lýst og engu mátti muna. Sigurjón hafði gengið í gegn- um hina hörðustu eldraufl for- mannsins og sigrað. Gömlu fónmennirnir réttu hon- EINANGRUN Ódýr og mjög góð einangrun. Vönduð framleiðsla. J. Þorldksson 8c Norðmann h.f. Innhú til sölu vegna flutnings: Dagstofuhús- gögn útskorið mahogní með damaskáklæði, svefnherbergis húsgögn, nokkur barnarúm, bókahillur, bamaskrifborð, — ljósakrónur, kæliskápur, sjón- varpsloftnet, borð og stólar. Kjartansgötu 2, uppi. — Vinur. Höfum einnig sölt. — Sendum gegn póstkröfu. FJÖLVIRKINN, Bogahlíð 17. Sími 20599 og 20138. um þegjandi tafc siggróinnar handar, það var hinum unga manni meiri virðing en löng ræða. Sigurglampi var í augum Fyrsta og harðasta þraut unnin. í fjörutíu ára skipstjórn hefur Sigurjón eflaust oft komist í krappan dans. Á þessum tímamótum áma ég honum langra lífdaga heilla og blessunar. Þegar húmar að kveldi og lífssól til viðar gengur mun hann fagna sem forðum með sig- urgleði því hin bjarta stjarna trúarinnar hefur blikað yfir lífs- leið hans, eftir þeim vegvísi hef- ur Sigurjón stýrt. Karvel Ögmundsson. gæti skilið stjórnandann. Carðrólur Heiðursmerkið hreina, klára, hátt þú barst um gengið skeið. Sómadrengur, sextíu ára — sólin gyllir farna leið. Merkilega frjáls í ferðum fast er sorfið var til stáls, hamingjuna hlaust að erfðum, hjartalag og tryggðir Njáls.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.