Morgunblaðið - 25.08.1962, Síða 20

Morgunblaðið - 25.08.1962, Síða 20
Fféttasímar Mbl — eftir lokun — Erleuclar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 ciímtmMaíiiifo MDRGUNBLAÐIÐ Kvöldsala á blaðinu befst úr afgreiðslunni við Aðalstræti á hverju laugardagskvölði kl. 9. 193. tbl. — Laugardagur 25. ágúst 1962 Hnefaleikaæfingu á Hverf- isgötunni lauk með ráni Þrír unglingar stálu 15,000 krónum af fullorðnum manni AÐFARANÓTT sunudagsins var maður rændur veski sínu með 15,000 krónum á sögulegan hátt á Hverfisgötu og voru þar að verki þrír unglingar, einn 16 ára og tveir 18 ára. Málavextir voru þeir að utan bæjarmaður um fimmtugt brá sér í höfuðstaðinn og fór að skemmta sér í húsi kunningja síns á Hverfisgötu á laugardags kvöldið. Hafði hann tekið með sér 15,000 krónur og geymdi þær í veski, sem hann hafði í iakka vasa sínum. Nokkru eftir klukkan eitt um nóttina fór maðurinn út á Hverf isgötuna að fá sér ferskt loft og Cóð humarveiði Alkranesi, 24. áigúst. HUMARBÁTAR lönduðu hér f jór ir í dag , Svanur, Freyr og Ás- björn voru heldur betur að setja í hann, fengu firrwn tonn hver og Ásmundur 2 ton-n. Ðragnótatrillurnar létu ekki sitt eftir liggja, héldu sig á mið unum og toguðu í gríð og erg. Aflahæst var Björg með 1320 kg. Hafþór 500 og Sigursæll 460 kg. Fimm línutrillur reru í morg- un. Vonin fiskaði 1350 kig., Bensi 950 á sjö bjóð og Bjarmi 600 kg. — Oddur. i.'estur hljóp á bíl Akranesi 24. ágúst. BIFREIÐARSTJÓRA frá Akra- nesi varð alvarlega hvert við kiukkan rúmlega eitt aðfaranótt S.l. sunnudags. Hann var á heim- leið með farþega í bíl sínum á þjóðveginum móts við Beitistaði í Leirársveit er 2—3 vetra tryppi kemur askvaðandi á móti hon- um. Bílstjórinn hemlaði sem hann gat og vonaði »ð skepn- an stykki útaf veginum, en raun in varð önnur. Tryppið stökk beint á bilinn og hefur án efa blindast og toryllzt af ljósunum. Tryppið meiddist lítillega en bíll inn dal ðist mikið. — Oddur. komu þá til hans þrír ungir pilt ar sem voru að koma af dansleik Gáfu þeir sig á tal við manninn, en hann hafði í æsku æft hnefa leika. Kom á daginn að einn piltanna var sonur hnefaleikara, sem maðurinn þekkti frá því fyrr á árum. Hljóp þá æskugáski í manninn og stakk hann upp á því við son hnefaleikarans að þeir reyndu með sér þama á götunni i fullri vinsemd, og tækju nokkr ar sóknar og varnaræfingar. Pilt urinn var ekki á móti þvi, og fóru þeir báðir úr jökkunum og fengu öðrum kunningja piltsins. Að þessu loknu fóru „hnefa- lei’kamennirnir" að setja sig í stellingar, og um það leyti varð þeim, sem á jökkunum hélt, lit- ið í vasa mannsins og sá þar veski þykkt og mikið. Hafði hann þá engin umsvif heldur greip veskið, fleygði jökkunum í hnefaleikamennina og hvarf út í myrkrið. Hinir piltarnir tveir munu hafa haft pata af bví að hann hefði tekið veskið. Kvöddu þeir eigandann í skyndi, héldu á brott og skildu hann eftir á götunni með jakkann í hendinni. Er maðurinn fór í jafckann saknaði hann þegar veskis síns og gerði hann lögreglunni þeg- ar aðvart um ránið. Var piltanna leitað en án árangurs og var það loks sl. miðvikudag að þeir fund ust. Hafa þeir nú viðurkennt rán ið, en litið var eftir af peningun um, aðeins 25 krónur. Höfðiu piltarnir fengið sér leigulbíla og ekið út á land, heimsótt þar skemmtistaði, drukkið og haldið sig ríkmannlega. Veskinu kváð- ust þeir hafa fleygt í húsasund við Lindargötu eftir að hafa tæmt það, og stóð það heima. Hér er um að ræða unglings- pilta, einn 16 ára en hinir tveir 18 ára. Bústaður Eiríks rauða í Bröttuhlíð. Strætisvagn tek- inn úr umferð LAUST eftir klukkan sjö í gær- kvöldi varð árekstur milli stræt- isvagns og annars bíls á mótum Njarðargötu og Hringbrautar. Við athugun kom í ljós að bremsur strætisvagnsins voru ekki í full- komnu 'agi og tók bifreiðaeftir- litið hann úr umferð. Umhverfi Bröttuhlíðar í Crœnlandi friðað til mlnningar um Eirík rauða KRISTELDGT Dagblad í Kaup mannaihöfn skýrði svo frá fyrir skömmu, að danska þjóðminjasafnið hafi áíkveðið að friða Bröttuhlíð í Græn- landi, bústað Eiríks rauða, biskupssetrið í Gorðum og gamla eskimóabúetaði. Er þetta gert til að minnast fyrstu byiggðar norrænna manna á Grænlandi. Yfirmaður' danska þjóð- minjasafnsins Jörgen Meld- gaard er nýlkominn beim frá Grœnlandi, en þar hefur frið un fyrrnefndra staða verið í undirbúningi. M.a. var unnið að uppgreftri Þjóðhildar- kirlkju og bæjar Eiríiks rauða. Jörgen Meldigaard sagði m.a. I viðtali við Kristeliigt Dagblad, að hinar gömlu rúst- ir yrðu gerðar þannig úr garði, að ferðamenn og aðrir, sem heimsæiktu staðinn fengju glögga hugm/ynd um hvernig menn bjuggu á Græn landd á dlögum Eirí'ks rauða. Undirbúningur að þessu er nú hafinn og verður honum sennilega haldið áfram næsta sumar. Gdð síldveiöi síðdegis í gær Fjórlr bátar sprengdu nætur MJÖG góð síldveiði var á Ægis- slóð, 50 sjómílur NA af Raufar- höfn síðdegis í gær. en veiði í fyrrínótt var litil. Mörg skip voru búin að fá góðan afla er Nær allur saltfisk- ur farinn utan 1 ÁR er búið að flytja út óvenju- mikið af saltfiski. Hefur verið flutt út allt sem framleitt var óverkað og ætlað til útflutnings í því ástandi, eða ca. 21 þús. lestir. Eru einu birgðirnar af óverkuðum saltfiski þar sem verk að er í þessum mánuði og seinni hluta síðasta mánaðar. Þessar upplýsingar fékk blaðið hjá Helga Þórarinssyni, framkvæmda stjóra hjá SIF. Eftir eru eingöngu 6—7 þús. lestir af fiski, sem á að þurrka og verkaður er fyrir Suður- Ameríku rnarkað. Eru því minni birgðir af saltfiski nú í landinu en undanfarin ár á þessum tíma. Prentarar boða verkfall n. k. föstudag - ÞANN 1. september nk. renna út samningar Hins íslenzka prentarafélags og Félags prent- smiðjueigenda. Hafa prentarar boðað verkfall frá og með mið- nætti föstudagsins 31. ágúst tak- ist samningar ekki fyrir þann tíma. Stöðvast þá öll blaða- og bókaútgáfa í landinu, ef til kem- ur. — Óskar Guðnason, formaður Hins íslenzka prentarafélags, tjáði Mbl. í gærkvöldi að prent- arar færu fram á samtals 18% kauphækkun miðað við 1. júní sl. eða svipað <*g trésmiðir hefðu samið um. Þá hefði verið farið fram á fjölgun á þeim laugar- dögum, sem prentarar þurfa ekki að vinna eftir hádegi, þannig að vinna hætti alla laug- ardaga kl. 12 á hádegi, en októ- ber, nóvember, desember og janúar hafa prentarar unnið til kl. 5 e. h. á laugardögum. Óskar sagði að þá væri enn- fremur farið fram á að 6% orlof yrði greitt á alla aukavinnu, en til þessa hefur ekki verið greitt orlof fyrir slíka vinnu. Væru þetta kröfur prentara í höfuðat- riðum. Einn fundur hefur verið með deiluaðilum og næsti fundur ver- ið boðaður á mánudag. Prentar- ar boðuðu í fyrradag verkfall frá kl. 12 á miðnætti 31. ágúsí náist samkomulag ekki fyrir þann tíma. Mbl. hafði saimiband við Raufar- höfn í gærkvöldi. Síldin er feit og falleg, en smásíld á stöku stað og hafa nokkrir bátar lent í henni. Fjórir bátar, Jón Garðar, Ólafur Magnússon AK, Vinur ÍS og Hrafn Sveinbjarnason II fengu svo stór köst síðdegis í gær að nætur þeirra sprungu. Á Raufarhöfn eru allar þrser fullar þannig að skipin sigla mik ið til Siglufjarðar og munu um 9,000 mál hafa borizt þangað í gœr. Fyrstu bátamir komu til Rauf- arhafnar I gærkvöldi Og hófst þá söltun þar á flestum stöðvum. Landað er eftir því sem þróax- rými losnar á Raufarhötfn. Eftirtaldir bátar höfðu til- kiynn<t afla sinn er Mibl. vissi síð- ast til í gærkvöldi: Helgi Flóventsson 800, Víðir II 700, Draupnir 350, Helga RE 1400 — Mánatindur 600, Árni Geir 500, Sæþór 1000, Jón Garðar 700, Hugrún 900 Hringver 700, Ólaf- ur Magnússon AK 300, Bjarni Jóhamnesson 660, Þorbjörn 500, Sigurður Bjarnason 900, Gisli lóðs 1000 Pétur Sigurðs- son 1160, Muninn 750, Fjarða- klettur 400, Leifur Eiríksson 1000, Hail'ldór Jónsson 1160, Björn Jónsson 1200, Eldlborg 1160, Akraborg 1500 Fagriklett- ur 1100, Ólafur Magnússon EA 1300, Saefaxi 500, Stefán Árnason 700, Baldur 760, þorlákur 700, Alftanes 850, Auðunn 1000 Hannes lóðs 800, Anrva 1000, Snæ fell 1300, Jökull 900, Tál'knfirð- ingur 300, Stígandi ÓF 860, Húni 900 og Hafrún 1600 mál. Á Raufarhöfn var landað 1 gær eins og verksmiðjan hafði undan að bræða, en 5—6 þúsund mála þróarými losnar þar á sól- arhring. Allar þrær eru fullar á Framh. á bls 2 Loftleiðir byggja flugstöð í Rvík Á FUNDI sínum 21. ágúst gerði borgarráð fyrir sitt leyti álykt- un þess efnis að Loftleiðum verði leyft að byggja hluta flug- afgreiðsluhúss á Reykjavíkur- flugvelli 1 samræmi við fyrra leyfi og að félaginu verði leyft að reisa fyrir starfsemi sína skrifstofuhús á lóðinni með áð- ur tilgreindum fyrirvörum. Blaðið hafði samband við Kristján Guðlaugsson, stjórnar- formann hjá Loftleiðum, sem sagðist enga tilkynningu hafa fengið um þetta, og meðan ekki væri vitað um skilyrðin, þá gæti hann ekkert um þetta mál sagt Loftleiðir hefðu aftur sótt una leyfi til slíkrar byggingar, eftir að í ljós kom að ríkið mundi ekki í bráð veita fé til flug- stöðvarbyggingar á Reykjavik- urflugvelli. Áformað hafði verið að bygg- ingin yrði í suðaustur frá Fiug- turninum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.