Morgunblaðið - 03.10.1962, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.10.1962, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 3. óíkt. 1962 M Ö R C V N B L A Ð t Ð 23 Uppreisn í Kasai hœld niður LeopOldville, 2. okt. — (AP) — MIÐSTJÓRNIN í Leopold- ville hefur brotið á bak aft- ur uppreisn í Suður Kasai- héraði, sem Albert Kalonji °g fylgismenn hans stóðu ak. Hefur verið lýst hernaðar- éstandi í héraðinu en Kal- onji og fjöldi nánustu stuðn- ingsmanna hans verið hand- teknir. Hermenn miðstjórnarinnar hafa aðalborg fylkisins, Bak- wanga, á sínu valdi og er Al- bert Kangolongo, fulltrúi Adoula forsætisráðherra, nú á leið þang að. Segir talsmaður stjórnar- innar að flestir hershöfðingjar í einkaher Kalonji hafi gefizt upp og gengið í þjónustu mið- stjórnarinnar. í Kasai eru mikilvægar dem- antanámur og hefur stjórn fé- lagsins MIBA, sem rekur nám- urnar, ekki greitt skatt til mið- stjórnarinnar fremur en Union Miniére í Katanga. Það var fyrir tveim árum, að Þjóðaratkvæðagreiðsla í Frakklandi 28. okt. París, 2. okt. — AP. í DAG var tilkynnt í París, að 28. október næstkomandi verði látin fara iram þjóðaratkvæða- greiðsla um tillögur de Gaulle um breytingar á kjöri forseta þjóðarinnar. Allmiklar deilur hafa orðið í Frakklandi um til- lögu forsetans, sem kveður svo á, að forseti skuli kjörinn með þjóðaratkvæði í stað þess sem nú tíðkast, að hann sé kjörinn af sérstökum kjörmönnum. Deilurnar hafa jafnvel náð til stjórnarinnar sjálfrar — er höf- uöandstæðingur de Gaulle þar Pierre Sudreau, menntamálaráð- herra landsins, sem sýndi and- stöðu í dag með því að mæta ekki til ráðuneytisfundar. Orðrómur hefur verið á kreiki I nokkurn tíma um, að Sudreau hafi sagt af sér ráðherraembætt- inu, en Christian Fouchet, upplýs ingamálaráðherra sagði við frétta menn í dag, að Sudreau væri enn ráðherra í stjórn Frakklands, „eftir því sem hann bezt vissi“. Það voru 80.000 kjörmenn, sem á sínum tíma kusu de Gaulle í embætti forseta, — en í ræðu, sem hann flutti á þingfundi í dag, lagði hann á það áherzlu að for- seti Frakklands yrði að vera þess fullviss að hann nyti stuðnings meiri hluta þjóðarinnar, — og það yrði bezt tryggt með þjóðar- atkvæðagreiðslu. Heitar umræður um fyrir- ætlun forsetans og lagði stjórn arandstaðan fram tillögu tii vantrausts á hann og stjórnina. Verður hún rædd á fimmtudag inn og eru ýmsir fréttamenn þeirrar skoðunar að hún kunni að verða samþykkt. Albert Kalonji krýndi sjálfan sig; til konungs og kallaði sig Al- bert I konung í Kasai. Hefur hann haldið héraðinu aðskildu frá öðrum hlutum Kongó, en lítt var gert til að brjóta veldi hans á bak aftur, þar til í fyrra, að hann var tekinn höndum. Fyrir nokkrum vikum Slapp hann úr fangelsi miðstjórnarinnar og flúði til Kasai. Hann hefur dval- izt í Bakwanga og safnað liði tii uppreisnarinnar. EINS og skýrt hefur verið í fréttum, hefur Edwin A. Walk er, fyrrverandi yfirher..hóíð- ingi, komið mikið við sögu í fréttuni af óeirðunum í Mississippi. Walker á sér óvenjulega sögu. í heimsstyrjöldinni síð ari gat hann sér mjög gott orð, og hann hlaut viðurkenn li|l ■ikiý.úiáii ."m'* Edwin A. Walker stefnuskrá sinni að ofurselja Bandiaríkin í hendur kommún ista. Fremstur í flokki þeirra taldi hann Kennedy, forsetia Dean Rusk, utanríkisráðiherra o. fl., en þá taldi hann alla tfylgjandi undanlhaldsstefnai gagnvart kommúnistum. Þé lýsti Walker því yfir við sama tækifæri, að hann teldi engan vafa leika á því, að Hammar- skjöld, hinn látni framkvæmd arstjóri S.þ. hefði verið „rauð liði“. Rannsókn þessari lauk á þann hátt, að ákveðið var að láta mál hans niður falla. Síðan hefur Walker ferðazt um Bandaríkin og haldið æs ingaræður. Hefur þar m.a. komið fram, að hann teldi nú afskipti sín af kynþáttaóeirð unum í Little Rock 1957, hafa verið hann mesta misskilning Þá var Walker fyrirliði her- manna ríkisstjórnarinnar, er Eiseruhower, þáverandi forseti sendi til Little Rock. Segist Skipulagöi óeirðirnar I3ver|ir fá leikföngin? UNDANFARNA daga hafa fnargir krakkar í bænum beðið tneð eftirvæntingu eftir að dreg- ið yrði í leikfangahappdrætti Thorvaldsensfélagsins, og hafa imörg börnin flatt út nefin við rúðurnar í Háskólabíói þar sem meters háum brúðum og alls kyns girnilegum leikföngum var stillt út. í gær eftir að dregið var, var svo stöðugur straumur krakka til að spyrja um númerin Vinningarnir verða afhentir í Háskólabíói kl. 2-4 í dag og vinn- ingsnúmerin eru: 19395 18884 17199 7200 14989 16869 5367 24607 27272 23176 10731 22735 14550 15804 20156 28915 22329 19476 2294 8134 4217 17807 20350 9422 3448 5141 10987 12812 29759 12380 28211 8487 7666 42 28972 15040 23473 1118 2411 15417 4972 18161 6171 10857 778 18585 14026 9141 24311 1442 19664 20622 10169 15391 27808 24938 11061 6990 17598 16806 7790 10085 8957 2673 1849 15073 839 838 28022 22745 7303 15153 6805 8016 6875 23332 6884 10520 6327 1772 12801 21242 4812 1765 7291 8566 424 24087 9742 6464 24481 — Ingibjörg Frh. af bls. 8. það allt eins og eitt heimili. Bæði á sorgar- og gleðistundum var safnazt saman um Ingi- björgu, henni var jafnlagið að sinna hugðarefnum yngri og eldri. Og aldrei máttu hvorki börn eða tengdabörn heyra nefnt að þau legðu nokkuð á sig hennar vegna. Þvert á móti: „Það er hún, sem gerir allt fyr- ir okkur.“ I dag verður minn- ingarathöfn um Ingibjörgu í Dómkirkjunni, en jarðsett verð- ur hún að Laufási. Þar hafði hún átt sínar sælustu stundir, þar vildi hún hvíla hjá elskuð- um eiginmanni og foreldrum. Með henni fara þangað líka síð- ustu jarðneskár leifar elzta son- arins, en hann hafði fyrir löngu mælt svo fyrir að aska hans yrði látin í kistuna hjá „mömmu." Þessi ósk er sérlega táknræn fyrir Samheldni fjöl- skyldunnar frá Laufási. Sigríður J. Mágnússon. 22231 7663 7959 8519 3766 24503 4495 22722 17774 (Birt án ábyrgðar). Oxford Frh. af bls. 1. ið tveggja herbergja íbúð í húsi á landareign skólans og gætir hans vopnað herlið en húsið er flóðlýst er rökkvar. Stúdentar í Oxford eru um sex þúsund tals- ins og sóttu aðeins tveir þriðju þeirra fyrirlestra í dag. Virtu þeir Meredith ekki við- lits, en létu að öðru leyti ekki andúð sína i Ijósi. í dag hafa hátt í þrjátíu manns verið handteknir í Ox- ford fyrir að bera skotvopn. — Leita hermenn á gangandi fólki og í bifreiðum og hafa sums staðar fundið allmikið af riffl- um og skotfærum. f nótt var enn aukið við herlið sambandsstjórn arinnar og eru þar nú um 12 þúsund hermenn eða helmingi fleiri en stúdentarnir í háskól- anum. Enn kom til óeirða í nótt, er mannfjöldi safnaðist saman í einu hverfi borgarinnar. Var ' fólkinu dreift með táragasi. • Walker til geðrannsóknar Alls hafa um 250 manns verið handteknir vegna óeirð- anna í Oxford, þar af þriðjung- ur stúdentar, en meiri hluti þeirra hefur verið látinn laus aft úr. Edwin A. Walker hershöfð- ingi, sem skipulagði óeirðirnar og handtekinn var í gær, hefur verið sendur til geðrannsóknar. ingu fyrir framgöngu sína í Kóreustyrjöldinni. Seint á síðasta áratug fór hann aftur að vekja sérscaka atihygli, en þá gegndi hann störfum hjá bandaríska hern um í V-Þýzkalandi. Fór þá að bera á viðleitni hans til að hafa áhrif á stjórnmálas'koð- ard- undirmanna si—ra, og við bosningarnar árið 1960 kom í ljós, að hann hafði látið nota önnur kjörgöfe.i, en tilskilið var, viC kosningar það ár. Fyr ir þrtta hlaut Walker áminn ingu, og s>vo fór, -ð hann sagði af sér í nóvemlber sl. haust. Ekki var mál hans þar með úr sögunni. Walker hefur síð Barnett fylkisstjóra hafa verið send mótmæli víðs vegar að vegna máls þessa og hafa nokkr ir aðilar boðizt til að greiða námskostnað Merediths. Barnett var stefnt fyrir rétt í New Orleans í dag, að viðlögðum þungum sektum og handtöku, ef hann ekki kæmi — sem hann ekki gerði. í þess stað sendi hann lögfræðing sinn, en ekki er ljóst, hvort það verður talið jafngilda því, að hann hafi virt boð dómsvaldsins að vettugi. Umfangsmikil rannsókn er hafin vegna láts mannanna tveggja, er skotnir voru í óeirð- unum á sunnudagskvöld. Ekki er vitað hverjir skutu, aðeins að skotunum var hleypt af frá æst- um mannfjöldanum. — Annar hinna látnu var franskur frétta- maður, Paul Guihard, þrítugur að aldri, hinn 23 ára Bandaríkja maður, Walther Gunter. Frétta- menn í Mississippi hafa stofnað sjóð til minningar um Guihard. Á hann að vera til styrktar stúdentum í Oxford. ustu árin verið talsmaður öfga manna, og í april sl. var hon um stefnt fyrir rannsóknar- nefnd bandarísku öldunga- deildarinnar, þar sem hann var beðinn að gera grein fyi ir því, hvers vegna hann á- liti ýmsa æðstu menn Banda- ríkjanna vera handbendi kommúnista. Walker mætti fyrir -ann- sóknarnefndinni ásamt lög- fræðing sínum. Málflutning- ur stóð í tvo daga, og þar kenndi ýmissa grasa. Walker lýsti því yfir, að hann væri fórnardýr þeirra leynilegu afla, innan Banda- ríkjanna, sem hefðu það á Rennismiður vanur allri járnsmíðavinnu óskar eftir vinnu og íbúð úti j á landi. Tilboð sendist afgr. ? Mbl. fyrir 10. okt., merkt: ' „Mikil vinna — 3005“. Skrifstofa mín er flutt frá Austurstræti 12 að KIRKJUTORGI 6 BALDVIN JÓNSSON, hrl. Sími 15545. Walker þá hafa barizt fyrir röngum málstað. Er sýnt var hvert stefndi við Oxford í Mississippi nú, kvaddi Barnett, fylkisstjóri, Walker þangað. Gegndi Walk er þc.r hlutverki æsingamanns ins og hvatti óðan lýð til hermdarverka. Því lauk, eins og sagt hefur verið frá, með handtöku Walk ers .Verður hann nú leiddur fyrir rétt, sakaður um að skipuleggja ofbeldisaðgerðir gegn löglegum stjórnarvöld- um landsins. Við slíku framferði geta legið miklar refsingar, alit að 20 ára fangelsi, auk fjársekta. Þarf að fá duglega krakka og unglinga, til að bera blaðið til kaupenda þess víðs vegar um borgina og úthverfi hennar. Talið við skrifstofuna eða afgreiðsluna strax. fHiovpmMafriíEi Sími 22480. Vélbáfur til sölu Nýr 15 tonna vélbátur með 100 ha Ford-Pharson diesel- vél, Turno-dýptarmæli, talstöð og gúmmíbjörgunarbát, til sölu. — Semja ber við undirritaða: Málflutningsskrifstofa Jóns Skaftasonar hrl., Jóns Sigurðssonar lögfr., Laugavegi 18, III. hæð. Símar 18783 og 18429. Góð 3ja herb. íbúð óskast til kaups í Vestur- eða Austurbæ. — Utborgun kr. 250 þús. FASTEIGNA- og LÖGFRÆÐISTOFAN Austurstræti 21. 3. hæð, Sími 19729. Jóhann Steinason, hdl. Heima 10211. Haraldur Gunnlaugsson. Heima 18536.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.