Morgunblaðið - 11.10.1962, Blaðsíða 11
rimmtudagur 11. október 1962
MORCVISBLAÐIÐ
11
Fyrsta stór-
hýsið í
Lincoin
Center
mestur í flutningi franskra
tónsmíða. Leinsdorff, sem
er n.'ráðinn aðalstjórnandi
Ihljómsveitarinnar, þykir Uk-
legur til að leiiða hana á
alíþjóðlegra sviði. Á v'J5m-
lUkunum í Philharmonic
Hall þó.li hljómsveitin þegar
leika með nýjum blæ, óvenju
tært og nákvæmlega.
Leinsdorff er fimmtugur
að aldri, fæddu. í Vínarbcrg,
og drakk þar í sig tónlist,
með móðurm.ólkinni eins og
tfleipi börn þeirrar borgar.
Hann hefur víða dvalizt um
æfina, er víðmenntur maður
og sagður óvenju næmur á
handrit. Hann hefur stjórnað Í
ijölda hljómsveita, lengi f
verið óperustj Srnandi, meðal
anoars í Salzburg og Metro-
politan, og getið sér frábæ-
an orðstír. Og sem dæmi um
næmi hans á handrit tónsmíða
er sagt, að viku fyrir hljóm-
lei’.ana í Philharmonic Hall
ihafði hann en ekki fengið full
kon.ið handrit af píanókonsert
SamueLs Barbers, þar sem
John Browning, ungur pianó-
leikari lék einlc .. Og sinfóníu
nr. 7 eftir Walter Piston
stjórnaði hann í fyrsta sinn
eftir minni, höfundinum til
mikillar furðu — „ég átti
ekki von á því, að nokkur
maður þekkti handrit mitt
betur en ég sjálfur", sagði
Piston furðu lostinn, þegar(
banr. hafði hlýtt á æfinguna.
Tónlistarunnendur í Boston
virðast vissulega öfundsverð-
ir af því að eiga von á að
Ihlýða á þessa góðu hljóm-
sveit undir stjórn Leinsdorff,
því að ummæli gagnrýnenda
eru á þann veg, að þótt hann
hafi áður stjórnað fjölda góðra'
listamanna á hljómleikasviði,
þá hafi hann nú fyrst fengið
hljómsveit, sem svari til
hinna fráibæru hæfileika hans.
Bernstein — aðal-
stjórnandi Philharmoníu-
hPómsveitarinnar, sem fær
nú fyrst fastan sama stað.
Sumarauki
Stefán Júlíusson: Sumarauki.
Skáldsaga. 173 bls. Almenna
bókaféliagið, Beykjavik 1962.
„Sumarauki" er fjórða skáld-
saiga Stefáns Júliussonar og mun
betri en tvær þær fyrstu (þriðju
skáldsögu hans hef ég ekki les-
ið). Sagan er spennandi aflestr-
ar, söguþráðurinn kunnáttusam
lega spunninn og stígandi í at-
burðarásinni, allt sarnan góðir
kostir á skáldverki.
Efni söjunnar er orðið dálítið
þvælt: miðaldra rithöfundur, sem
er að staðna á ritferli sínum,
kemur heim frá útlöndum eftir
margra ára útivist og flýr til
æskustöðvanna í leit að sjálfum
sér. Hann hafði flúið dalinn í
ástarsorg og æskuástin fylgt
'honujn æ síðan eins og skuggi. í
þetta sinn kynnist hann dót’ r
unnustunnar gömlu, finnur sjálf
an sig í ástarsambandi þeirra, en
hverfur burt aftur af því heim
ur hans og beimur hennar eru
of ólíkir. Inn í þessa ástarsögu
fléttast tildrög flóttans forðum
og uppgjör við móður stúlkunn-
ar.
Þó sagan risti hvergi djúpt er
sálfræðileg innsýn höfundarins
víða allskörp. Viðbrögð per-
sónanna eru einatt byggð á senni
legum eða rökréttum forsenduml
Heimsókn Ála til Reykjavíkur á
fund ástíkonu sánnair er til dæmis
mjög nærfærnislega lýst og eins
síðasta fundi þeirra á skemmtun
inni og uppgjörinu á eftir. Sam-
band þessara ólíku persóna verð
ur fullkomlega cðlilegt, þegar
frá eru skilin fyrstu kynnin, sem
mér fannst dálítið galgcpaleg, þó
höfundur reyni síðar að finna
þeim sennilegar og pottíþéttar
forsendur.
Á bókakápu segir að „Sumar-
auki“ sé „nútímasaga um nútíma
vandamál“ og má til sanns veg
ar færa. Hún bregður upp nokkr
um svipmyndum af lífi unga
fólksins nú á tímum og leitast
jafnvel við að skýra orsakir rót
leysisins, en vandamálin sem
fjallað er um eru hvorki flókin
né mjög áleitin. Sagan er of
yfirborðskennd til að verða tek-
in mjög alvarlega. Sálarlíf per-
sónanna er einfalt og augljóst,
næstum formúlukennt, og Jyrir
bragðið glæðast þær ekki því lifi
sem æskilegt væri. Allar hugsan
ir og tilfinningar Ála, sem á að
vera þroskaður virtur ritíhöf
undur, snúast um einn atíburð
fyrir aldarfjórðungi, kvöldið þeg
ar hann reyndi að nauðga unn
ustu sinni eftir að hún hafði
lagt ást á annan mann. Þessi at-
burður og flótti Ála verður
hreyfiafl sögunnar og gefur henni
vissulega einingu, on ég hefi kos
ið að kynnast margslungnara
sálarlifi í svo fjölfróðum og
reyndum manni. Hinsvegar er
þessum atburði lýst af glöggum
skilningi, ög bún verður á sinn
hátt einna minnisstæðust persóna
i sögunni, þó ekki fari ýkjamikið
fyrir henni.
Persónurnar eru yfirleitt helzti
flatar, næstum einlitar, og á það
einkum við um Magnús og
þýzka konu ha.i^, Heiðu. Hún er
látin v ra nokkurs konar völva
Stefán Júlíusson.
eða „véfrétt", sem sér hin leyndu
rök lífsins og skilur mannlegt
eðli, en það vantar allan lifs-
anda í hana. Magnús er dulur
og þumbaralegur, virðist eiga
fleiri þætti í sál sinni en greið
viknina og rausnarskapinn, en
það kemur hvergi nægilega
skýrt fram. Með örfáum dráttum
til viðbótar hefði höfundur get
að gert úr honum athyglisverða
persónu, því í honum mætast
gamli og nýi tíminn. Aukaper-
sónur eru sumar skýrari en að-
alpersónur, t.d. Gu„gi og Hörður
faðir Hildu.
Umhverfislýsingar liggja greini
lega ekki vel fyrir höfundi. I>ær
eru að vísu sárafáar í bókinni en
þar sem þeim bregður fyrir
verða þær þokukenndar og mærð
arfullar.
Það sem mest háir þessari
annars laglega gerðu sögu er
stíllinn. Hann er afleitur, að
ekki sé sterkar að orði kveðið.
Höfundinum hættir mjög til há-
tíðlegs og hjákátlegs orðalags,
sem gerir stílinn uppblásinn og
þreytandi. Honum er ósýnt um
nákvæmni í lýsingum og fram-
setningu, það er engu likara en
hátíðleikinn beri hann ofurliði
og hlaupi með hann í gönur.
Margar lýsingar eru ýtarlegar
og smásmugulegar, hver hreyf-
ing rækilega útlistuð, en það
vantar reisn, skáldskap, flug í
þessar lýsingar. Þær minna
fremur á blaðamennsku en list-
sköpun.
Samtöl sögunnar eru flaust-
ursleg og ósamræmd. Málfar
Heiðu er til dæmis með köflum
hjárænulegt og allsendis ósenni-
legt, höfundi tekst ekki að gefa
talsmáta hennar erlendan blæ
nema endrum og eins, að jafn-
aði talar hún klaufalega tæpi-
tungu. Þó er enn verra hve oft
hátíðleikinn nær tökum á höf-
I. O. G. T.
Stúkan Frón nr. 227.
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg fundar-
störf. Kosning embættismanna.
Eftir fundinn verður spiluð fé-
lagsvist. Félagar, mætið vel og
stundvíslega.
Æðstitemplar.
undinum, til dæmis í sumum
samtölum þeirra Ála og Magnús-
ar, sem eru algerlega tilefnis-
laus og heldur klunnaleg stæl-
ing á fornsagnastíl. Skárst tekst
honum upp í ýmsum tilsvörum
þeirra Heiðu og Gogga, þegar
þau bregða fyrir sig götumáli,
en þar vantar líka allt samræmi,
alla tilfinningu fyrir sérkenni-
legu málfari yngri kynslóðar-
innar.
Það er vissulega sárt til þess
að vita, að bók með þeim kost-
um sem hér koma fram í bygg-
ingu og frásagnartækni, skuli
vera stórskemmd af stílleysum,
en það ætti að vera árétting til
höfundar og allra skriffinna
annarra um brýna nauðsyn þess
að leggja meiri alúð við sjálfan
stílinn. Tungan er verkfæri, sem
útheimtir mikla og linnulausa „
þjálfun, ef hún á að verða rit-
listinni til framdráttar. Það eru
engar ýkjur, að gott vald á
móðurmálinu getur verið jafn-
nauðsynlegt og heilladrjúgt eins
og sjálf skáldgáfan. Þá lexíu
hefur Halldór Laxness kennt
okkur .manna bezt. Með galdri
áhrifamikils og myndræns tungu
taks má gera litla og ómerki-
lega hluti stóra og mikilsverða,
en klaufaleg tök á móðurmál-
inu gera jafnvel háleitustu og
merkilegustu hluti lágkúrulega
og lítilsverða.
Ég hef fjölyrt um þetta hér
vegna þess að svo einkennilega
vill til, að þær tvær íslenzku
skáldsögur sem ég hef síðast
lesið leiða þetta áþreifanlega í
ljós. Gísli Ástþórsson bjargar
langsóttu og smáskrýtnu sögu-
efni með sérkennilegum stíl-
brögðum í „Brauðið og ástin“,
þar sem aftur Stefán Júlíusson
stórskemmir með klunnalegum
stíl sögu sem hefur marga góða
kosti.
Frágangur á bókinni er snyrti-
legur, prentvillur sá ég engar.
Atli Már teiknaði einkar smekk-
lega kápu og titilsíðu.
Aþenu, 4. október 1962.
Sigurður A. Magnússon.
Verkamenn óskast
Upplýsingar í síma 36177 og 32125.
Sigurður Helgason.
Þjalir — Raspar
ÞVERSKERUÞJALIR — FLATAR ÞJALIR
FERKANTAÐAR ÞJALIR — TRÉRASPAR
SÍVALAR ÞJALIR — HÁLF-SÍV ALAR ÞJALIR
HEILDSALA — SMÁSALA.
LUDVIG STORR & CO.
símar 1-16-20 og 1-33-33.
Vinnuskúr til sölu
raflýstur og með rafgeislahitun, vandaður. Hentugur
til hvers konar smáiðnaðar. Stærð ca. 40 ferm.
Skúrnum er skipt í þrjú herb. Gæti einnig notast
til íbúðar. — Uppl. í síma 22777 kl. 7—9 e. h.
Hjólsög
Óska eftir að taka hjólsög á leigu í ca. 2 mánuði.
Upplýsingar í síma 13299.
Endurskoðun
Ungur maður, sem hefur hug á að læra endurskoðun,
getur fengið atvinnu hjá okkur nú þegar. Þarf að
hafa lokið prófi frá Verzlunarskóla fslands, með
góðri einkunn, eða hafa sambærilegan undirbúning.
Björn Steffensen & Ari Ó. Thorlacius,
löggiltir endurskoðendur Klapparstíg 26.
INIýleg 2ja hcrb. íbuð
Til sölu er nýleg 2ja herbergja íbúð við Ljósheima.
Teppi á gólfum fylgja. Vönduð innrétting. Laus til
afnota um áramót.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
málflutningur — fasteignasala
Suðurgötu 4. — Símar: 14314 og 34231.
Atvinna
Óskum eftir verkamönnum og mönnum
vönum járniðnaðarvinnu.
Vélsmiðjan Héð/nn hf.