Morgunblaðið - 18.10.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.10.1962, Blaðsíða 8
8 MORCINBLAÐIB Fimmtudagur 18. október 1962, Kaup og Sala Danmörk — Kaupmannahöfn Dýralæknisfjölskylda óskar eft- ir duglegri stúlku frá 1. nóv. Helzt eldri en 20 ára, og sem get- ur tekið að sér daglega húshjálp. Þarf að vera barngóð, því við eigum nokkrar yndælar litlar Stúlkur. Helmingur ferðakostnað- arins út verður borgaður og eftir minnst eitt ár i starfinu borgast ferðin heim. Laun kr. 300,- á mánuði eða eftir hæfni. Vinsamlegast sendið svar til Fru dyrlæge Gunver Andreasen, Fredensvej 25, Charlottenlund, Danmark. . . dt . SKiPAUTGCRB RIKISINS M.s. HEKLA fer vestur um land í hringferð 23. þ. m. Vörumóttaka á föstu- dag og laugardag til Patreks- fjarðar, Bildudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, ísafjarð- ar, Siglufjarðar, Akureyrar, Húsa vikur og Raufarhafnar. Farseðlar seldir á mánudag. Ms. Skjaldbreið vestur um land til Akureyrar 23. þ. m. Vörumóttaka á föstudag til áætlunarhafna við Húnaflóa og Skagafjörð og Ólafsfjörð. Far- seðlar seldir á mánudag. Samkomur K.F.U.M. A.D. Fundur í kvöld kl. 8.30. — Séra Bjarni Jónsson vígzlubiskup talar. Allir karlmenn velkomnir. Samkomuhúsið Zion, Óðinsg. 6A Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. Fíladelfía Almenn samkoma kl. 8.30. Arnulf Kywik talar. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn Fimmtudag kl. 8.30: Almenn samkoma. Majór Óskar Jónsson stjórnar og talar._ Félagslíf Knattspyrnufélagið Fram Kn<attspyrnudeild, 3., 4. og 5. fl. Munið eftir fundinum í kvöld (fimmtudag) kl. 3 e. h. í félags- heimilinu fyrir þá, er lokið hafa hæfnisþrautum K.S.Í. á þessu ári (bronz, silfur, gull). Mætið stundvíslega. Nefndin. Nýir — glæsilegir SVEFNSÓFAR 1500,- kr. afsláttur. ÍTrvals áklæði — Úrvals Svampur. Teak á örmum. Aðeins fáir óseldir. Sófaverkstæðið Grettisg. 69. Opið kl. 2—9. — Simi 20676. Guðlaugur Einarsson málflutningsskrifstofa Freyjugötu 37. — Sími 19740. hpingunum- DvHELGflSONy _ _ A . stomvsG 20 /ni/ GRArSIIT Það trúir því enginn núna hvað lífsbaráttan var hörð Rætt við Friðiik Finnbogason og Þórunn Þorbergsdóttur, sem eiga 60 dra hjuskaparafmæli í dag Þ A Ð munu nokkuð margir á landi hér, sem hafa náð því að fagna á sínu 60 ára hjúskapar- afmæli, en ekki fer hjá því að svo langt samstarf geymir margar sögur, því margt ber við á langri leið. Að þessu sinni er það Friðrik Finnbogason og kona hans, Þór- unn Þorbergsdóttir, í Keflavík, sem eiga sinn sextugasta brúð- kaupsdag í dag, 18. október. Friðrik og Þórunn eru lifandi dæmi um vaxtarmátt og við- gang þjóðarinnar, sem við til- heyrum. Þau hafa að mestu skil- að sínu dagsverki á þann hátt, sem Drottinn sjálfur lagði forð- um fyrir: í sveita þíns andlits skalt þú brauðs þíns neyta og með þjáningu skaltu börn þín fæða. Þau hafa á fyrrihluta þess- ara 60 ára fætt og alið upp sín 17 börn við svo mikla þjáningu og örðugleika, að óskiljanlegt er börnum dagsins í dag. Friðrik og Þórunn eru Vest- firðingar, bjuggu lengst af að Látrum við Aðalvík í Sléttu- hreppi. Það var ekki mjög vandasamt að komast að þessum merkis- degi í lífi gömlu hjónanna, því vart verður gata i Keflavík gengin á enda án þess að mæta þar einhverjum afkomanda eða tengdafólki Friðriks og Þórunn- ar. Afkomendur þeirra eru nú 161 og mestur hluti þeirra í Keflavík. Ég hitti þau Friðrik og konu hans heima hjá Þorbergi málara- meistara, syni þeirra, og tek hann tali um líðandi stund og liðna daga. — Nú er það orðið slæmt. Ég | get ekkert gert lengur, sjónin er alveg að fara og það er það versta. — Vertu nú ekki að fárast yfir þessu, góði minn. Þú ert bú- inn að sjá svo lengi, segir Þór- unn. — Við vorum gift á Stað í Aðalvík. Þá var þar prestur séra Páll Sýversen í Vatnsdal og svo bjuggum við á Efri-Miðvík í Aðalvík í 6 ár og fluttumst þá í þurrabúð að Látrum. — Ég fluttist þaðan árið 1941. Fyrst til Akureyrar, í Glerár- þorpið og var þar tæpt ár, svo fluttist ég til Keflavíkur, kom þangað 17. júní 1942. Ég var sá fyrsti, sem fluttist burt úr Sléttuhreppnum, en á næstu 5 árum fóru allir þaðan. Fyrir mig var ekkert annað að gera, synirnir fóru að leita sér betra Greiðsluslopper Amerískir NÆLON greiðslusloppar. FALLEGIR VANDAÐIR MISLITIR EINLITIR lífs og þá varð ég að róa einn eða með öðrum og það líkaði mér ekki. — Jú, það var oft erfitt. Með- an við bjuggum á Efri-Miðvík, höfðum við nokkrar kindur og kýr. Það var mikil stoð að því, sérstaklega fyrir krakkana, en eftir að við fluttumst að Látr- um — hreppstjórinn þurfti að fá Efri-Miðvík fyrir tengdafólk sitt — var ekkert nema sjórinn, en þó áttum við lengi 5—6 kindur, en þær féllu allar þegar verst stóð á, fyrir frostaveturinn 1918. Það var sagt að það stafaði frá öskuburði úr Kötlu, því ég hafði ekkert til að heyja á nema engja bletti upp um fjall, sem enginn annar vildi nýta. Sjóinn var ekki hægt að stunda á veturna og þá bjargaði oft nýmetið — fiskurinn, sem við fengum gefins frá útlendu togurunum, sem leituðu skjóls á Aðalvíkinni. Það var setið um þá þegar þeir komu og við feng- um gefins fisk, í eina körfu hjá þeim flestum, og stundum feng- um við aflóa föt í skiptum fyrir gæruskinn eða eitthvað annað, sem þeim þótti varið í. — Ég man eftir einum skozk- um línuveiðara, segir Þórunn, hann hét Robinson eða eitthvað þess háttar. Þetta skip kom ár eftir ár og skipstjórinn eða ein- hver yfirmaður þar um borð (WHqjmipfá} Laugavegi 26. — Sími 15186. Laugavegi 176. Sími 3-52-52. HANSA-hurbir — 10 litir — haMÍS var orðinn kunningi okkar. Hann átti 7 eða 8 dætur og ég gerði handa þeim öllum hvít- bryddaða sauðskinnskó með rósaleppum og rósavetlinga — og svo kom hann, blessaður maðurinn, með tvo fulla poka af fötum, það var fyrir frosta- veturinn. Það var nú meiri guðsblessunin að fá öll þessi föt. Það var hægt að gera upp úr þeim á alla krakkana og meira til. — Nei, maður skammaðist sín ekkert fyrir að þiggja þessa hjálp frekar en annað, sem þiggja varð — það var engin mjólk og engin efni til að fá neitt annað. Þegar ég fékk vel útilátið hjá togurunum, sem ekkert þurfti að borga fyrir, fékk margur af nábúum mínum í soðið hjá mér og það var gam- an að því að geta á þann hátt hjálpað öðrum. Finnbogi minn, elzti strákurinn, byrjaði að róa með mér 9 ára gamall. Það kom farkennari í sveitina og Finn- bogi lærði hjá honum eitthvað í enskri tungu og það hjálpaði vel í togurunum. — Nei, ég held að það sé ekki rétt að vera að rifja neitt upp frá frostavetrinum — Það trúir því enginn núna. Þá var allt skammtað og skammturinn var knappur. — Mjölvaran var hræringur úr maís, rúgmjöli og byggi — en það var ekkert feitmeti og engin mjólk. — Gleymdu ekki kúfiskinum, góði minn, segir Þórunn. — Hann Halldór minn fæddist vorið eftir frostaveturinn og var 22 merkur og frískur og hraust- ur. Hann sagði það læknirinn seinna, að það hefði verið kú- fiskinum að þakka. — Já, kúfiskurinn var ágætis búsílag. Djúpið og Jökulfirðirn- ir var allt undir ís og ísinn reif upp kúfisk og skeljarnar bar upp á sandinn, þetta var svo tínt saman, tekið úr skeljunum og soðið. Við fengum svolítið af mjólkursýru á Efri-Miðvík og notuðum hana saman við soðið. Skelfiskur mun nú þykja höfð- ingjamatur, en frostaveturinn mikla var hann lífgjöf okkar fá- tæklinganna á Látrum í Sléttu- hreppi. — Það var allt undir ís og frosti þennan voðalega vetur. Við áttum eitthvað af mó til eldsneytis, en allt var kalt og klæðlítið. Við áttum nokkra kolaköggla, sem ég fékk úr tog- urum og það hjálpaði mikið, en annars þýðir ekkert að vera að segja frá þessu — það trúir því enginn núna hve lífsbaráttan var hörð. — Jú, ég þurfti að þiggja af hreppnum. Það var nú í þann tíð litið niður á þá, sem þess þurftu, enda ekki af miklu að taka. Ég var um langan tíma nokkurs konar kaupamaður hjá hreppnum, þeir útvegðu mér vinnu eða sendu mig í vinnu og tóku alltaf mitt kaup og sáu um að halda lífinu í krökkunum með úttekt. Ég var 10 sumur á síldarstöðinni á Hesteyri og vann þar mikið. Hreppurinn hirti það allt og allt annað, sem ég vann, en þó hrökk það ekki til. Eitt sinn gáfu þeir mér upp þó nokkra upphæð, sem var komin fram yfir, en áður en ég fór úr Sléttuhreppnum borgaði ég allar mínar skuldir, því það batnaði í búi þegar börnin stálpuðust. Mér þykir vænt um það að hafa ekki þurft að svíkja neinn, hvorki hreppinn eða aðra. — í Sléttuhreppnum var. þeg- ar flest var eitthvað á fimmta hundrað. Þetta var óttalega ein- angrað, engar samgöngur nema yfir foráttu fjallvegi og svo sjó- leiðin til ísafjarðar — en það var meira en dagsferð á árabát og ekki farið nema haust og vor og svo þegar sérstaklega lá við. — Það drógst oft lengi að presturinn kæmi til að skíra, segir Þórunn, og læknir og ljós- móðir voru sjaldséðir gestir. Eftir að ég átti hana Guðmundu, Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.