Morgunblaðið - 07.11.1962, Qupperneq 5
Miðvikudagur 7. nóvember 1962
MORCinSBL AÐIÐ
5
W. wr. ■■ ' ' 'V
Heidstra hárgreiðslumeistari og- eitt modela hans frú Ragna Ragnars.
Hár íslenzkra kvenna of sítt
f SÍÐUSTU viku dvaldist hér
á landi hollenzkur hárgreiðslu
meistari, Jan Heidstra. Heid-
stra er búsettur í Amsterdam,
þar sem hann er mjög þekkt-
ur í sinni grein og m.a. rekur
hann nú stærstu hárgreiðslu-
stofuna þar í borg. Á árunum
1946—1947 var Heidstra hár-
greiðslumeistari á hollenzka
farþegaskipinu Oranie, en ár-
ið 1950 varð hann hlutskarp-
astur í landskeppninni um tit
ilinn hárgreiðslumeistari Hol
lands og eftir það setti hann
á stofn eigin hárgreiðslustofu,
þar sem vinna yfir 20 manns,
auk þess, sem hann rekur
nokkrar smærri hárgreiðslu-
stofur í borginni.
Heidstra er mikill áhuga-
maður um bridge, og þegar
hann frétti, að fjórum bridge-
spilurum frá Amsterdam hefði
verið boðið hingað til lands til
keppni, ákvað hann að slást í
förina með þeim og fá þannig
um leið tækifæri tíl þess að
heimsækja landið.
Nokkrar íslenzkar hár-
greiðslukonur höfðu fengið
vitneskju um, hvern starfa
Heidstra stundaði. Fórú þæ.
þess á leit við hann, að hann
gæfi þeim sýnishorn af hár-
greiðslutíakunni eins og hún
er í dag í Vestur-Evrópu.
Varð Heidstra fúslega við
þeirri beiðni og efndi þá Ólöf
Björnsdóttir hárgreiðslukona,
eigandi Hárgreiðslustofunnar
Hátúni 6, til sýningar fyrir
milli 20 og 30 konur, flestar
hárgreiðislukonur, þar sem
Heidstra klippti og greiddi
hár fjögurra kvenna. Frétta-
maður Mbl. fékk einnig tæki
færi til þess að ræða stundar-
korn við Heidstra og var þá
auðvitað nýjasta hárgreiðslu-
tízkan efst í huga.
— Aðal tízkulínurnar í hár
greiðsluheiminum í dag, sagði
Heidstra, eru svokölluð lotus-
lína, sem kemur frá Frank-
furt í Þýzkalandi og hin
franska chou lína frá París.
Hárið í báðum línunum er
mjög stutt, sérstaklega eru
miklar styttur í hnakkanum í
lotus línunni, en hárið fyrir-
ferðameira uppi á hvirflinum.
Aðaleinkénni chou línunnar
eru þau, að hárið er greitt
til hliðar fná enninu og rís
það hátt að framan. Eins og í
lotus línunni er það mjög stutt
í hnakkanum. Yfir þessari
línu er sérstaklega léttur svip
ur og eru til af henni marg-
ar skemmtilegar gerðir.
Mér finnst tizkan í dag, hélt
Heidstra áfram, miklu fallegri
en mér þótti hún vera fyrir
ári, þegar margar konur
voru með fremur sítt hár og
notuðu hina svonefndu hey-
stakkagreiðslu. Auk þess eru
nýju greiðslurnar miklu þægi
legri og gera konur ólíkt ung-
legri, einkum þær, sem orðn-
ar eru 35 ára, en þær konur
ættu að mínum dómi undan-
tekningarlaust að bera stutt
hár.
— Hvað finnst yður um hár
íslenzkra kvenna?
— Eftir því að dæma, sem
ég hef séð hér á landi finnst
mér það vera alltof sítt og
þar af leiðandi á eftir tíman-
um. Annars er greinilegt að
margar íslenzkar konur hafa
fallegt hár og samanborið við
ýmis önnur lönd í Evrópu t.d.
England, virðist útkoman hér
prýðileg.
— Hvernig geðjast yður að
landinu okkar, spyrjum við
Heidstra að lokum,?
— ísland er í mínum augum
vanþróað land með háþróuðu
fólki, fólki, sem hefur ótæm-
andi möguleika til þess að
lifa góðu og heiibrigðu lífi.
Ég hafði óblandna ánægju af
því að fara í ykkar heitu laug
ar á hverjum degi og tók þar
heilmikið af myndum til þess
að mér verði trúað, er heim
kemur. Einnig varð ég undr-
andi yfir því, hve fslending-
ar eru góðir bridgespilarar og
maðurinn, sem gerði bridge-
töfluna, átti ósviikna aðdáun
mína.
Ég er staðráðinn í því, sagði
Heidstra, að koma aftur hing-
að til íslands, en ég geri þó
ráð fyrir því, að yfirleitt sé
heppilegra fyrir okkur, sem
sunnar búum, að koma hingað
að sumarlagi, þegar heitast
er, og landið í fullum skrúða.
Ja, það er sem ykkur synist
—jólin eru að náilgast, það er
ekki um að villast. Það fær-
ist nú mjög i vöxt að menn
geri jólainnkaupin fyrr en áð
ur tiðkaðist — draga ekki
allt fram til síðustu stundar.
Verziunarmennirnir hafa orð
ið varir við þetta — og getur
jafnvel þegar að líta jóla-
skreytingar í búðargiuggum.
Ljósm. blaðsins, Sv. Þorm.,
tók t.d. þessa mynd af glugg
um Rammagerðarinnar í
llafnarstræti i gær
Atvinna
Hárgreiðsludömu vantar
sem fyrst. — Gott kaup. —
Hárgreiðslustofan
Kirkjubraut 4,
Akranesi. Sími 139.
Til leigu
3 herfe. og eldhús á hæð
eftir 20. nóv. Reglusemi
áskilin. Tilb. sendist afgr.
Mbl. fyrir föstudagskvöld
merkt „íbúð 3709“.
Til sölu
Trillubátur 3 tonn með 15
hestafla Kelvinvél. Veiðar-
færi og björgunarbátur
geta fylgt. Uppl. í síma
1718, Keflavík.
Ibúð — áramót
Ung, barnlaus hjón óska
eftir 2ja—3ja herb. íbúð
upp úr miðjum desember
eða um áramót. Uppl. í
síma 13970.
Húseigendur!
Háskólanema vantar 2ja
herb. íbúð strax. Tilb. legg-
ist inn á skrifstofu Mbl.
fyrir laugardag merkt:
„Gunnar 3708“.
Afgreiðslustörf
Kona vön afgreiðslu óskar
eftir vinnu nú þegar, eða
um næstu mánaðamót. —
Meðmæli fyrir hendi. Sími
20786, eftir kl. 6.
Ökukennsla
Kenni á nýja Volkswagen
bifreið. Uppl. í síma
37339.
1—2 HERBERGJA ÍBÚÐ
óskast til leigu. I heimili
4—5. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Uppl. í síma
12826.
í Lopapeysur
konur vantar til að prjóna
lopapeysur fyrir minja-
gripaverzlun. Uppl. í
síma 20800 milli kl. 1—2.
AIHUGIÐ
að borið sarnan við útbreiðsiu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu. en öðrum
blöðum.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
RÍKISÚT V ARPIÐ
TÓNLEIKAR i HÁSKÓLABfdt
fimmtudaginn 8. nóvember, kl. 21.00.
Stjórnandi: WILLIAM STRICKLAND.
Einleikari: GÍSLI MAGNÚSSON.
EFNISSKRÁ:
Berlioz: Le Carneval Romain.
Hindemith: Konsertmúsik f. píanó, blásara og hörpu.
Magnús Bl. Jóhannsson: Púnktar.
Þorkell Sigurbjörnsson: Flökt.
Smetana: Vltava (Moldau).
Aðgöngumiðar í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, í bókaverzlun Lárusar Blöndal á Skólavörðu-
stíg og í Vesturveri.
Lögmannafélag íslands
Fundarboð
Félagsfundur verður haldinn í Hábæ við Skóla-
vörðustíg föstudaginn 16. þ. m. kl. 17.
E f n i :
Frumvarp til laga um breytingar á siglingalögum.
Dr. jur. Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari skýrir
frá helztu nýjungum frumvarpsins.
Borðhald eftir fund.
STJÓRNIN.
Dönsk stílhúsgögn
til sölu vegna flutnings. Borðstofa (mahogni-
Hepplewhite), 12 stólar. Dagstofa (ROCOCO), úr
hnotu. Sófaborð, ásamt innlögðum innskotsborðum
og franskri kommóðu.
Upplýsingar í síma 33747 milli kl. 6—7 e.h.
5 herb. glæsileg íbúð
á jarðhæð við Álfheima til sölu. Stór sér geymsla
fylgir. Bílskúrsréttur. Góð lán áhvílandi.
MÁLFLUTNING- og FASTEIGNASTOFA
Agnar Gústafsson, lidl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, simar 17994 og 22870.
Utan skrifstofutíma 35455.
\