Morgunblaðið - 07.11.1962, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 07.11.1962, Qupperneq 15
Miðvikudagur 7. nóvember 1962 MORGLTSBLAÐIÐ 15 KVIKMYNDIR MARGAR eru þær kvik- myndir sem tímans tönn fær það lítt nagað, að eftir áratugi hafa þær engu tapað af fyrri reisn sinni og áhrifamagni. Sjaldan gefst þó færi á að sjá gömlu meistaraverk filmsnill- inganna á ný í hinum almennu kvikmyndahúsum. Kvikmyndaseljendum er meir um- hugað að koma nýjustu framleiðslu sinnd á markað en að vera að jafn vafasömum bísness og að vinda ofari af spólum sögunnar. Það er því vert allrar athygli að þessa dagana kynn- ir Nýja bíó eitt af stórverkum kvik- myndanna. Því verki sem markaði tímamót í kvikmyndasögunni og gerði höfund þess heimskunnan á svipstundu. Kvikmyndin er Fæðing þjóðar (Birth of a Nation), ein fræg- ust þöglu myndanna, gerð árið 1915 af D. W. Griffith, manni, sem raunar ætlaði sér aldrei að koma nálægt kvikmyndum, en varð frumkvöðull í kvikmyndalistinni og einn mesti áhrifamaður hennar. T il að geta gert sér grein fyrir áhrifum þeim sem Fæðing þjóðar hafði og hvaða spor hún markaði, er nauðsynlegt að kunna einhver deili á þróun kvikmyndanna fram að þeim tíma er myndin var gerð. Frá því hinum fyrstu hreyfimyndum var brugðið á tjald árið 1896 var öll 'túlkunaraðferð fengin að láni frá leikhúsinu. Hvert atriði í kvikmynd hófst á innfeomu leikenda frá hægri eða vinstri og hélzt órofið af klipp- ingu eða staðskiptingu myndatöku- vélarinnar þar til atriðinu lauk. — Leikendur voru aðeins sýndir i allri stærð, nærmyndir óþekktar og kvik- myndavélin stirðnuð á ákveðnum bletti, ávallt í nokkurri fjarlægð frá leikendum, svo áhrifin yrðu sem lik- ust því að áhorfandinn sæti í leik- húsi og horfði á leikrit. Kvikmyndin var einungis álitin mállaus eftiröpun leikhússins. Griffith skar á nafla- strenginn sem enn batt hana við leikhúsið og gaf henni eigið tungu- mál og tjáningarform, það tungu- mál, sem hún talar á til áhorfenda enn þann dag í dag. avid Wark Griffith, sem fædd- ist í Kentucky 22. janúar 1875, leit í fyrstu niður á starfa sinn við kvik- myndir og dreymdi um að verða rit- höfundur. Hann var af stoltri Suður- ríkjaætt kominn og til að halda nafni sínu óflekkuðu v ar það undir nafn- inu Lawrence Griffith sem hann réði sig fil The Biograph Company, fyrst sem feikari og hugmyndasmiður, en síðar sem leikstjóri. Á árunum milli 1908 og 1912 gerði hann að meðaltali tvær einnar spólu (10. mín.) kvik- myndir á viku, en það var venjuleg lengd, eða um 700 myndir alls. Með þessum smámyndum uppgötvaði hann og náði smám saman tökum á þeirri tækni og listrænni notkun kvikmyndavélarinnar, sem hann færði svo til fulls sigurs í fyrstu stór- mynd Vesturheims. Hann fullkomn- aði fálmandi og tilviljunarkennda tækni á þessum bernskuárum kvik- myndanna og til hans má rekja allrar kvikmyndunar, nærmyndina, sem útrýmdi hinum ýktu hreyfing- um og svipbrigðum leikhússins; hreyfanleika kvikmyndavélarinnar; mishraða klippingu í atriðum til að auka hughrif og spennu í myndinni; margvíslegar og mislangar tökur sneyttar saman, teknar frá mismun- andi sjónarhól og fjarlægð, svo úr því verður samfelld hrynjandi; og það sem kallað er „the last-minute rescue“, þar sem atburðarásin er spennt upp til hins ýtrasta og mál- in leysast ekki fyrr en á tilfinninga- legu hámarki myndarinnar. Hin ó- rofna, rigskorðaða og leikhúsbundna kvikmyndun var úr sögunni og í stað inn komin sjálfstæð lifandi kvik- myndun. En yfirboðarar Griffiths urðu ekki hrifnir í fyrstu og gerðu sér ekki ljóst hvað hann var að gera. , Sýna aðeins höfuðið á persónunum. Það er á móti öllum lögmálum um kvikmyndagerð". Með slíkum barna- skap var nærmyndinni tekið. B rátt sá Griffith að einnar spólu kvikmynd var of stutt til að skapa áhrifamikla söguheild. Bio- graph-forstjórarnir leyfðu honum þá, tregir samt, að gera Enoch Arden (1908), tveggja spólu (20 mín.) kvik- mynd eftir ljóði Tennysons, en lengri mættu myndir ekki vera, það mundi þreyta áhorfendur um of. En hnipri, en þegar sjáaldur myndavél- arinnar opnast til fulls um leið og hún víkur til hægri sést í fjarlægð her Norðanmanna ríða eyðandi eldi dalinn og þorpið sem konan hefur flúið. Þetta stutta atriði segir heila átakanlega sögu og sýnir næmleika Griffiths fyrir dramatískum áhrifa- mætti kvikmyndarinnar. 1r að sem helzt verður fundið að myndinni í dag, er hið sama og varð tilefni mikillar gremju og mótmæla og jafnvel óeirða þegar hún var fyrst sýnd, en það er samúð Griffiths með Ku Klux Klan og lýsing hans á svert ingjum. Hann sýnir þá sem óæðri hvita manninum, illgjarna, heimska og hrokafulla þegar ánauð þeirra er lokið og þeir komast til jafnréttis og valda. Sakir annarrar tækni nú á dögum fer kvikmyndin af meiri hraða í gegn um sýningarvélarnar. Þar sem áður fóru 16 myndir á sekúndu fyrir ljós- op sýningarvélarinnar fara nú 24 myndir á sek. og veldur það stundum hjákátlega snöggum hreyfingum og kippum, en það verður ekki skrifað á reikning myndarinnar sjálfrar. Svo rík og djúphugsuð í byggingu er þessi mynd, að beint og óbeint hefur hún haft áhrif á alla kvik- myndagerð í áratugi og til Griffiths má rekja flestar þær tækniaðferðir sem notaðar eru í kvikmyndiim nú á dögum. í þessari og næstrt mynd hans, Umburðarleysi (Intolerance, 1916), náði fullum þroska sú list klippingar og skeytingar, sem átti eft xr að hafa mikil áhi’if á sovézku meistarana Pudovkin og Eisenstein og náði hvað mesti’i fullkomnun í montage þeirra í myndum eins og Stormur yfir Asíu og Potemkin. Með Fæðingu þjóðar óg Umburðar- leysi náði Griffith hátindinum í sköp unargáfu sinni og þeim tindi fi’ægð- arinnar sem hann hrapaði svo skjótt niður af og nálega út í yztu myrk- ur. Hann átti þó eftir að gera minn- isstæðar myndir eins og Broken Blossoms (1919) og Way Down East (1920), en ruslmyndir komu á milli, sífellt fleiri og fleiri. Hann fylgdist og ekki með tímanum, myndir hans voru of einlægar og barnalegar fyrir hina veraldarvönu xynslóð sem óx úr grasi eftir fyrri heimsstyrjöldina og loks kom að þvi að hann fékk vart að koma nálægt kvikmynda- gerð. Hann lézt í Hollywood órið 1948. Endalok Griffiths urðu raúnaleg, en beztu myndir.hans gleymast ekki og nafn hans verður ætíð skráð á söguspjöld hinriar yngstu meðal list- greina — kvikmyndalistarinnar. Pétur ólafsson. Griffith fannst hann ekki ná þeim áhrifamætti og lífrænni framrás sög- unnar, sem hann vildi, í það stutt- um myndum, svo hann stakk af með allt starfslið sitt og vann með leynd að næstu mynd sinni. Hann sneri aft- ur með Judith of Bethulia (1913), fjögurra spólu (40 mín.) biblíumynd, tækni sem enn í dag er grundvöllur nokkurs konar fyrirrennara biblíu- glansmynda DeMille. Vegna ósam- komulags út af lengd myndarinnar yfirgaf Griffith Biograph og tók með sér marga af beztu starfskröftum fé- lagsins. Judith of Bethulia var ekki send út fyrr en ári seinna, þegar Evrópustórmyndir eins og Quo Vad- is? höfðu rutt leiðina og sýnt að lang ar kvikmyndir voru ekki einasta boðlegar, heldur nutu mikilla vin- sælda. Griffith þóttist nú sóma síns vegna geta notað sitt rétta nafn og það var sem David Wark Griffith að hann hóf að gera kvikmyndir fyrir Mutual Film. Mf að var á sviði borgarastyrj- aldarinnar bandarísku sem Griffith náði sannri epískri reisn og í kvik- myndinni Fæðing þjóðar, sem að þori, mikilfengleik og stærð átti eng- an sinn líka, tvinnaði hann saman mik ilfengleg orustuatriði og rómantíska persónulega aðdáun á horfnum dýrð- arljóma Suðurrikjanna. Fæðing þjóð- ar er að mestu byggð á sögu Thomas Dixons „The Clansman", sögu um borgarastyrjöldina, uppbygginguna eftir hana og tilurð Ku Klux Klan. Griffith lagði allt það, sem hann trúði og hafði lært um niðurlægingu Suðurríkjanna eftir ósigurinn, í þessa mynd. Hún er einstakt persónulegt afrek, þar sem hún er hans verk í bókstaflegum skilningi. Það sem leik- stjórar nú á dögum þafa hóp sér- fræðinga til að gera, vann Griffith sjálfur. Hann hafði alla myndina í höfðinu og skrifaði ekki einu sinni tökurit að henni. Hann annaðist sjálf ur allan undirbúning og klippti og skeytti myndina sjálfur. Með Fæð- ingu þjóðar hóf hann kvikmyndina upp á nýtt listrænt svið. Enn í dag, eftir nær hálfa öld, er áhrifamagn þessarar kvikmyndar ótrúlega mikið. Hrynjandinn og spennan sem skap- ast af aðdáunarverðri skeytingu filmunnar, sérstaklega í reið Ku Klux Klari í lok myndarinnar, eru minnisstæðar. Einnig fegurðin í heimkomu „litla ofurstans", þar sem einungis armar móðurinnar sjást réttir út um dyrnar til að umlykja soninn heimtan úr helju. ógleyman- legt er atriðjð frá sigurreið Norðan- manna, þar sem aðeins sést í fyrstu, úppi í vinstra horni mýrkvaðs tjálds ins, óttaslégin móðir og þrjú börn í

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.