Morgunblaðið - 07.11.1962, Page 23
Miðvikudagur 7. nóvember 1962
MORGVISBLAÐIÐ
23
EINS OG skýrt var frá í blað
inu sL fimmtudag var Þor-
valdur Guðmundsson, forstjóri
í Síid og Fisk beðinn að út-
vega lambakjöt til Hollywood
fyrir Restaurant Skandia þar
í borg.
Nú er svo komið að kjötið
er farið áleiðis vestur og sést
hér hvar verið er að bera pakk
ana um borð í flugvél Loft-
leiða á Reykjavíkurflugvelli
í fyrrakvöld. Sá er síðar geng
ur upp í vélina er Egill Ást-
björnsson verzlunarstjóri í
Síld og Fisk við Bergstaða-
stræti, en hann sá um send-
ingu kjötsins.
Kadar til Moskvu
Vín, Berlín 6. nóv.
JANOS Kadar, forsætisráðherra
Ungverjalands og formaður
kommúnástaflokks landsius, hélt
til Moskvu í dag.
Kadar hefur nú bætzt í hóp
kommúnistaleiðtoganna, sem að
undanförnu hafa rætt við Krús-
jeff forsætisriðherra Sovétríkj-
anna í Moskvu, eins og skýrt
var frá í Mbl. í gær.
Sendiherra Sovétríkjanna í
A-Þýzkalandi, Mikhail G. Perv-
ukhin, sem fór til Moskvu með
Walter Ulbrioht, leiðtoga a-
þýzkra kommúnista, ritaði grein
í blað eitt í A-Þýzkalandi í dag.
Sagði hann, að Sovétstjórnin
hefði enn áhuga á friðsamlegri
lausn Þýzkalandsmálsins. Enn-
fremur að Sovétríkin og all-
ar aðrar friðelskandi þjóðir
myndu undirrita friðarsamning
við A-Þýzkaland, ef ekki yrði
hægt að ná samkomulagi við
Vesturveldin um lausn málsins.
IVIafteí bauð
islenzkum
mámsmanni
Italíudvöl
EINS og kunnugt er af frétt-
um fórst forstjóri ítalska olíu-
félagsins ENI, Enrico Mattei,
í flugslysi fyrir skömmu. —
Þegar hann var á ferð hér á
landi í sumar, kynntist hann
íslenzkum námsmanni, Sig-
tryggi Bragasyni (Eiríksson-
ar hjá Samlagi skreiðarfram-
leiðenda). Sigtryggur er nú í
sjötta bekk Menntaskólans i
Reykjavík. Mattei féll vel við
Sigtrygg og bauðst til þess að
kosta hann til ítalíudvalar
að stúdentsprófi loknu. Eftir
því, sem Mbl. hefur frétt,
var það í fyrsta skipti, sem
Mattei gerði nokkrum slíkt
boð.
JON E. ÁGÚSXSSON
málarameistari, Otrateigi 6.
Aliskonar málaravinnn.
Sími 36346.
Guðjón Steingrimsson, hd!..
Reykjavíkurv. 3, Hafnarfirði
simj 50960 og 50783.
Fargjaldalækkanir geta komið
niður á öryggi farþeganna,
Segir talsmaður SAS við Dagens Nyheter
Dregið í hopp-
drætti DAS
Á LAUGARDAGINN var dregið
í 7. fl. Happdrættis D.A.S. um
100 vinninga og féllu vinning-
ar þannig: _
3ja herb. fbúð Ljósheimum 20,
VIII. h. (C). tilbúin undir tré-
verk kom á nr. 8483. Umboð
Siglufjörður.
2ja herb. fbúð Ljósheimum 20,
VIII. h. (B). tilbúin undir tré-
verk kom á nr. 59166, Verzl.
Réttarholt.
Opel Caravan Station-bifreið
kom á nr. 55784. Umboð Aðal
umboð.
BMW COUPE 700 De Luxe
fólksbifreið kom á nr. 40S64.
Umb. Hreyfill.
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 10.000,00 hvert:
4729, 20395, 28421, 37868, 41196,
42790, 44594, 50952, 52406, 57586.
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 5.000,00 hvert:
318, 1164, 1622, 1667, 1958,
2395 2900, 3480, 4294, 4445,
4708, 5073, 5468, 6189, 6461,
7058, 7998, 8357, 8923, 9512,
9804, 11684, 11722, 12453, 13903,
14766, 15355, 16132, 16584, 17199,
17446, 18689, 18927, 19392, 19890,
21939, 23308, 23924, 24325, 24853,
26423, 26947, 27022, 28528, 29515,
31821, 34264, 34551, 35436, 35575,
37633, 37735, 39818, 40967, 41335,
42383, 42389, 43659, 43858, 44215,
45513, 46810, 46820, 48088, 48098,
48631, 50092, 50617, 50647, 51012,
53089, 53561, 55363, 55494, 57274,
57506, 57863, 58494, 60530, 60436,
61453, 61559, 61899, 62853, 63902,
64564.
(Birt án ábyrgðar).
— Kosningar
Framhald af bls. 1.
miklar líkur til þess, að hann
verði frambjóðandi repúblikana
við forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum 1964.
• MASSACHUSETS
í Massachusets keppa þeir
um sæti í öldungadeildinni, Ed-
ward Aennedy, bróðir Banda-
ríkjaforseta, og George Cabot
Lodge, sonur Henry Cabot
Lodge, sem áður var fulltrúi
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Þar var kjörsókn
mjög góð. Kennedy Bandaríkja-
forseti greiddi atkvæði í morg-
un í lögreglustöðnni í Boston.
Sem kunnugt er var forsetinn
öldungadeildarþingmaður fyrir
Massachusets áður en hann varð
forseti, og í 45 ár af síðustu 69
árunum hefur annaðhvort
Kennedy eða Lodge átt sæti í öld
ungadeildinni fyrir Massachu-
sets.
í Michigan var einnig mikil
kjörsókn strax í morgun. Þar
keppir ríkisstjóri Michigan, sem
er demókrati, við George Romm-
ey, bílakonung, sem talið er að
keppi að því að verða I fram-
boði fyrir repúblikana við
næstu forsetakosninear
EINS og skýrt hefur verið frá
í fréttum Mbl. hyggst flug-
félagið SAS taka upp ferðir
yfir Atlantshaf með skrúfu-
flugvélum, til þess að geta
keppt við hin iágu fargjöld
Loftleiða hX á þeirri leið.
Stokkhólmsblaðið Dagens
Nyheter skýrði frá þessu fyrir
helgina og sagði, að SAS
myndi hefja þessar ferðir í
apríl n.k., ef félagið fengi
samþykki yfirvalda á Norður
löudum.
Skýrir blaðið frá fyrirvar-
anum, sem fulltrúar SAS
gerðu á IATA-ráðstefnunni í
Arizona í Bandaríkjunuim, eft
ir að ráðstefnan hafði vísað á
bug óskum, sem félagið bar
fram ásamt bandaríska flug-
félaginu Pan American, um
að þau fengju leyfi tál að
lækka fargjöld yfir Atlantshaf
ið, ef þau notuðu skrúfuflug-
vélar. Ef SAS dregur fyrir-
varann ekki til baka áður en
45 dagar eru liðnir frá því að
hann var gerður, geta öll flug
félög, sem aðild eiga að IATA,
lækkað fargjöld sín yfir Atl-
antshafið eftir eigin geðþótta
1. apríl n.k., pf þau fá sam-
þykfcd viðkomandi stjórnvalda
segir blaðið
Dagens Nyheter hefur frétt-
ina eftir talsmanni SAS. Seg-
ir hann enn fremur við blað-
ið, að varla verði hsegt að
kalla afleiðingamar af ákvörð
un SAS, fargjaldastríð við
Loftleiðir, sem ekki eru með-
limir í IATA, geti þar af
leiðandi boðið lægri fargjöld
en samtökin samþykkja.
Þó verður að taka það til
athugunar, segir talsmaður-
inn, að Loftleiðir nota ein-
göngu skrúfuflugvélar á leið-
inni yfir Atlantshafið, en SAS
notar þotur.
Méð SAS ferðast um 80 þús.
farþegar árlega yfir Atlants-
haf. Segir talsmaður félags-
ins, að Loftleiðir fljúgi 11 sinn
um á viku yfir hafið á sumrin
þar af fimm sinnum í beinu
sambandi við Skandinavíu og
flytji 70 þús. farþega árlega.
(Mbl. þykir rétt að geta þess,
að Loftleiðir fluttu á sl. ári,
52 þúsund farþega
þar af lang flesta milli Evrópu
og Ameríku, en gera má ráð
fyrir að félagið flytji um 70
þús. farþega á þessu ári).
Talsmaður SAS, segir, að
hin lágu fargjöiid Loftleiða,
hafi komið niður á SAS, þar
sem félagið hafi ekki rétt tii.
að keppa við hið íslenzka flug
félag á jafnréttis grundvelii.
Astandið er nú mjög alvar-
legt, því að Atlantshafsflugið
hefur mikla þýðingu fyrir fjár
hag SAS, heldur talsmaður-
inn áfram. Það er aðalþáttur-
inn í milliiandafluigi félags-
ins og þar af leiðandi hefur
samkeppnisaðstaðan, eins og
hún er nú, verið Þrándur í
götu vaxtar og viðgangs SAS.
Á s.l 10 árum hefux SAS
hvað eftir annað rætt þetta
vandamál við IATA og einnig
hefur félagið reynt að leysa
það með samningum við Loft
leiðir, en án árangurs.
— Það er aldrei skemmti-
legt, að þurfa að grípa til verð
lækkana, segir talsmaður
SAS. Þegar allt kemur til Eills
getur tæpast orðið miikill á-
vinningur af því, að félögin
keppi um hylli farþeganna
með fargjaldalækkunum. Ef
til slíks kemur er hætt við
því að afleiðingin verði sú, að
hin ábyrgðarlausari félög
lækki fargjöld sín svo mi'kið,
að þau neyðist að lokum til
þess að láta það koma niður
á öryggi farþeganna.
Ef SAS tekur upp ferðir yfir
Atlantshaf með skrúfuflugvéi
um, verða þær af gerðinni
DC— 7—C og fara til New
York um Grænland.
Til 1. apríl næsta ár verða
ferðir og fargjöld félagsins ó-
breytt frá því, sem nú er.
Hvernig þetta verður eftir 1.
apríl er erfitt að segja eins
og sakir standa. Það má telja
víst, að félögin innan IATA
séu þess fýsandi að leysa
þetta vandamál með samn—
ingum og viljinn til samkomu
lagis mikill, segir blaðið að
lokum.
Verkalýðurinn og
þjóðfélagið
f GÆR kom út á vegum Félags-
málastofnunarinnar bók, sem
nefnist: „Verkalýðurinn og þjóð-
félagið".
Hannes Jónsson, félagsfræðing
ur, forstöðumaður stofnunarinn-
ar tjáði fréttamönnum, að þetta
væri fyrsta bókin í áformuðum
bókaflokki, sém hefði kjörOrðið:
„Bækur, sem máli skipta“. í bók
þessari eru fræðilegar og hag-
nýtar greinar eftir Dr. Benjamín
Eiríksson, Hákon Guðmundsson,
Hannibal Valdimarsson, Hannes
Jónsson og Hjálmar Vilhjálms-
son, og byggist efni bókarinnar
á athugunum í efnahags- og
verkalýðsmálum. Kvað Hannes
bókina mundu vera góða hand-
bók fyrir forystumenn atvinnu-
rekenda og leiðtoga verkamanna
og annarra launþega. Bókin Jpst-
ar 150 krónur.
— Indland
Framhald af bls. 1.
Ladakh héraði og telur ráðuneyt
ið, að Kínverjar undirbúi árás á
flugvöllinn.
Pekingstjórnin mótmælti í dag
við Indverja, að þeir hefðu gert
sprengjuárásir á kínverska her-
menn á landamærum Kína og
Kasmír. Kváðu Kínverjar þolin
mæði sína á þrotum og sögðu, að
þeir myndu neyðast til að svara í
sömu mynt, ef Indverjar létu
ekki af sprengjuárásunum.
Fréttastofan Nýja Kína skýrði
frá þessu í dag og sagði, að Ind
verjar drægju saman mikið lið
við Casul í Ladag og ætluðu að
ráðast inn á kinvérskt lands-
svæði.
— Kúba
Framhald af bls. 1.
1 heilum
Kúbanskir útlagar í Florida
halda því fram, að eldflaugar,
sem nægi til að gereyða hálfri
Amerlku, séu geymdar í hellum
á Kúbu. Skýrði fyrirliði útlag-
anna, Fernando Gracia Chacon,
frá þessu í yfirlýsingu, er hann
gaf út í Washington í dag. —
Einnig hafði hann það eftir
stúdentasamtökum, sem andsnú-
in eru Castro og hafa aðsetur í
Miami, að byggðar hafi verið
tvær eldflaugastöðvar neðan-
jarðar á Kúbu.
Enn hefur ekki verið tilkynnt
hvenær viðræðum þeirra Castros
og Mikoyans lýkur og engin til-
kynning hefur verið gefin út um
þær. Telja heimildir, að Castro
og Mikoyan geti ekki náð sam-
komulagi um ýmis alþjóðamál.
Mikoyan heimsótti í dag tvö
sovézk fiskiskip í höfninni í
Havana og sagði við það tæki-
færi, að Kúbubúar gætu alltaf
reitt sig á aðstoð sovézkra sér-
fræðinga við fiskveiðar.
— íþróttir
Framhald af bls. 22
maðurinn við sjálfan sig er hanfl
staulaðist, ómeiddur þó, niður
’brekkuna.
Fyrir eindregna hvatningu Óla
í Skíðaskálanum og góðvilja
ihans aíð lána fréttamanninum
önnur skíði hélt hann á ný út í
brekkuna, en nú var haldið
skemimra á brattann og ekki
reynt að feta í fótspor snilling-
anna. Liðið var að kvöldi og tími
til hvíldar noikkra stund. Endað
var með því að fara á ný út í
brekku er ljós höfðu verið tendr
uð og síðan heim í skála og í gufu
bað, að endingu snæddur kvöld-
verður, áður haldið var í bæinn
eftir dásamlega helgi.
Nýir skíðaskór, skíði og stafir
dönsuðu fyrir augunum. Hingað
verðum við að kcwnast sem fyrst
aftur, var heitstrenging kvölds-
ins. vig.
Duglegir unglingur
eðu krukkur
óskast til að bera MORGUNBLAÐIÐ
í þessi hverfi í borginni:
Sörlaskjól Miðtún