Morgunblaðið - 07.11.1962, Qupperneq 24
ÍRÉTTASÍMAR HBL.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
249. tbl. — Miðvikudagnr 7. nóvember 1962
I Kaupmannahöfn
Með hverri Faxa-flugferð til K.-
hafnar kemur MBL. samdægurs í
Aviskiosken, i Hovedibanegárden
Sjúklingar verða að bíða
Bjarni
flytur
Benediktsson
framsögu um
f GÆRKVÖLDI átti blaðið tal
við dr. Snorra Hallgrímsson pró-
fessor, yfirlækni handlækninga-
deildar Landsspítalans, og spurð-
ist fyrir um ástandið þar á sjúkra
búsinu vegna læknadeiiunnar.
Hann kvað hafa verið tiltölu-
lega rólegt að undanförnu. Yfir
læknar væru á stöðugri vakt og
það væri hægt að halda út
nokkra daga, en þó að sjálfsögðu
ekki nema takmarkaðan tíma.
Hins vegar gilti þetta ekki ein
asta fyrir yfirlækna og kandi-
datana, heldur biðu sjúklingar
eftir spítalaplássi. íslenzkir sjúkl
ingar væru hins vegar vanir því
að bíða eftir aðgerð, svo þeim
brygði ekki svo mjög við það,
hinsvegar ef vikurnar yrðu að
manuði’ ,i yrði ástandið afleitt.
Dr. Snorri sagði að kvaddir
hefðu verið til sérfræðingar í
nauðsynja tilvikum, svo sem svæf
ingalæknar, og væru það þeir
sömu, er starfað hefðu að þess
um verkum fyrir sjúkráhúsin,
áður en til uppsagnar kom, og
allt gengið vel.
Þetta leiddi hinsvegar til þess
að öll störf gengju hægar en við
eðlilegt ástand og auðvitað
leiddi þetta til stórvandræða, er
fram liðu stundir og ekki rætt-
ist úr.
Varðandi frétt þá, að málinu
væri vísað til Hæstaréttar, sagði
dr. Snorri. að það væri fyrst og
fremst lögfræðinganna að spá
nokkru um hve langan tíma það
tæki. Hins vegar kvað hann
þarna aðeins um úrskurð að
ræða og vonaðist til að Hæsti-
réttur yrði ekki lengi að afgreiða
það mál.
Sto! skelð-
kiukkum og
verðluunubikui
TVÖ innbrot voru framin í
Reykjavík í fyrrinótt, annað
í Háskólabíó en hitt í húsa-
kynni íþróttavallarins á Mel-
unum. í Háskólábíói var brot-
in stór ráða tvöföld, sem
kosta mun þúsundir króna.
Lítilsháttar var stolið af sæl-
gæti en engum peningum,
enda munu þeir ekki hafa ver-
ið til staðar.
Hitt innbrotið var framið á
Melavellinum. Voru tvær rúð-
ur brotnar í skrifstofu vallar-
stjóra. Hefur þjófurinn skorið
sig við þetta því blóðslettur
voru út um allt. Öll var að-
koma hin hrikalegasta á inn-
brotsstaðnum, skápar allir
brotnir upp í leit að pening-
um, sem ekki fundust. Stolið
var startbyssu, skeiðklukkum,
útvarpi og plötuspilara, og
loks verðlaunaði þjófurinn sig
fyrir afrekið og hafði á brott
með sér fagran verðlaunabik-
ar.
Lögreglan sagði í gærkvöldi
að þýfið allt væri fundið svo
og piltarnir, sem verknaðinn
frömdu.
Þorfinnur
karlsefni
tekinn af
stalli
ÞESSAR myndir eru teknaf,
önnur þegar verið er að brjóta
niður stallinn undir stytt-j
unni af Þorfinni Karlsefni
í hólma syðri Tjarnarinnar
en hin sýnir hvar styttan er
hafin á loft.
Lengi hefir staðið til að
flytja styttu Þorfinns. Fyrst
er að geta þess að listamað-l
urinn, Einar Jónsson mynd-j
höggvari höfundur verksins,
var ekki ánægður með stytt-
una þarna eftir að hún var
komin upp. Þó hafði hann
verið með í ráðum um stað-
setningu hennar. Var hann
fyrir lát sitt búinn að láta í
ljós þá ósk sína að hún yrði
flutt.
Mikil fyrirhöfn hefir verið
að taka styttuna niður. Er
ráðizt var í stækkun syðri
Tjarnarinnar, vegna fuglalífs
ins þar, þótti valið tækifæri
að flytja styttuna um leið.
Er hún nú komin í land úr
hólmanum og er í vörzlu
skrúðgarða bæjarins. Verk
þetta er framkvæmt sam-
kvæmt tilmælum Listaverka-
nefndar.
Einkum munu það þrír stað
ir, sem til greina koma að
staðsetja styttuna á. I fyrsta
lagi vestan í Öskjuhlíðinni, á
unum neðan hitaveitu- staðurinn. Þá hefir Laugar-
manna. Ennfremur svæðið ásinn og verið nefndur, en
komi til að stytta Leifs
heppna verði flutt er talið að
henni verði valinn staður þar.
rðaii Sjómannaskólans, á
ippunum vestan við Tóna-
), og þykir það líklegasti
T inem Sv bnrm
stjórnmálaviðhorfið
á Varðarfundi í kvöld
í KVÖLD kl. 20:30 efnir
Landsmálafélagið Vörður
til fundar í Sjálfstæðishús-
inu.
Bjarni Benediktsson,
dómsmálaráðherra, formað
ur Sjálfstæðisflokksins,
flytur framsöguræðu á
fundinum um umræðu-
efnið: Stjórnmálaviðhorf-
ið. —
Búast má við mikilli
fundarsókn, og er fólk
beðið að mæta tímanlega.
Bjúgabiti kæfir mann
ÞAÐ sviplega slys vildi til
uppi á Akranesi í fyraakvöld
að maður beið bana, er kjöt-
biti sat fastur í hálsi hans.
Nánari tildrög slyss þessa eru
þau að Gunnlaugur Jónsson bók
ari hjá fyrirtæki Haralds Böð-
varssonar & Co sat að snæð-
ingi á hótelinu á Akranesi. Bjúgu
voru á borðum. Stóð þá skyndi-
lega í honum biti af bjúga og
virtist þeim, sem með honum
voru, að honum hægðist aftur
og fór hann fram á snyrtingu
til þess að selja upp, að því talið
er. Þar hné Gunnlaugur niður og
gat sér ekiki bjöng veitt.
Var þá kallað á yfirlæikni
sjúkrahússins á Akranesi og
kom hann að nokkurri stundu
liðinni. Náði hann þegar bitan<>
um, er var mjöig stór, en lífs-
mark var þá ekki lengur með
Gunnlaugi. Var ekki heegt að
merkja hjartslátt. Þegar í stað
voru lífgunartilraunir hafnar
þar á hótelinu og súrefnistæiki
notað við þær. Síðar var Gunn-
laugur fluttur á sjúkrahúsið og
lífgunartilrawnum haldið áfram.
Eftir nokkurra klukkustunda til-
raunir var þeim loks hætt, er
fyrirsjáanlegt var að þær myndu
efeki bera árangur, að sögn Páís
Gíslasonar yfirlætknis, sem blað
ið átti tal við um þetta atvik
Gunnlaugur heitinn Jónsson
var veill fyrir hjarta og er tal-
ið að það hafi m.a. verið orsök
þess hvernig fór. Hann lætur
eftir sig konu og tvö uppkomin
börn.
Bæjarútgerðin í Hafnar-
firði tapar 50 millj. k-.
í SÍÐASTA tölublaði Ham-
ars í Hafnarfirði er skýrt frá
því, að tap Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar hafi numið 50 milljón-
um sl. hálft þriðja ár og skipt-
ist tapið jafnt milli áranna, 20
milljónir hvort árið um sig 1060
og 1001 og svo 10 milljónir
fyrstu sex mánuði þessa árs.
Hins vegar hefur bæjarútgerð-
in fengið 10 millj. kr. stynk frá
aflatryggingarsjóði. Endaniegu
uppgjöri undangenginna ára er
ekiki lokið, og er nú unnið að
því að ganga frá því, jafnframt
því sem. reynt er að finna rekstr
argrundvöll fyrir útgerðina og
Læknadeilan
STJÓRN BSRB samþykkti
einróma á iundi sínum í gær,
að fela lögmanni sínum að
kæra til Hæstaréttar úrskurð
Félagsdóms í læknamálinu,
en sá úrskurður féll á þá
lund, að Félagsdómur tók
ekki til greina kröfu um frá-
vísun málsins frá dóminum.
eru áætlanir þar að lútandi langt
komnar.
Leitarmenn við
Afangagil
BLAÐIÐ hafði í gær sam-
band við bílaradióið á Sel-
fossi og spurðist fyrir nm
hvernig leitarmönnum á Land
mannaafrétti gengi, þar sem
þeir eru í leitum á þremur
bílum, þar af einum með tal-
stöð. Mjög slæmt samband
var við bílana í gær, en þó
er vitað að þeir ætluðu sér
að hafa næturstað við Áfanga
gil vestan í Valafelli í nótt
sem leið. Allt var þá i lagi
hjá þeim, en þeir höfðu í fyrra
kvöld strandað við Hellis-
kvísl og gist í lcitarskálan-
um við Landmannahelli í
fyrrinótt. Ekki var vitað
hvort þeir höfðu enn fundið
fé það, er sást úr flugvél fyr-
ir helgina á þessum slóðum,
og sem þeir voru að leita að
í þessum leiðangri.
Gamla
BLÖNDUÓSI, 6. nóvember. —
í dag var gamla brúin á Blöndu
tekin af. Henni var lyft með
tjökkum rúma þrjá metra og síð
an var hún færð yfir á akbraut
nýju brúarinnar. Þar voru settir
undir hana meiðar úr þykkum
plönkum og síðan var hún dreg
flutt
in á tveimur jarðýtum spölkom
norður fyrir brúna, en þar verð
ur hún geymd í vetur.
Þetta er elzta brú landsins,
byggð 1897.
Nýja brúin var lokuð fyrir bíla
umferð í dag, en gangandi fólk
gat farið um hana. — Björn.