Morgunblaðið - 22.11.1962, Side 23
Fimmtudagur 22. nóv. 1962
VORGUNBT4ÐIÐ
23
■Ma
úrskurö ríkisstjórna
Norðurlandanna
um að SAS skuli hefja flug með
lækkuðum fargjöldum
MORGUNBLAÐIÐ skýrði
frá því í gær að Povl
Westphael, einn af ritstjór
um Berlingske Tidende í
Kaupmannahöfn, hafi rit-
að grein í blað sitt um
deilu 'SAS við Loftleiðir.
Útdráttur úr greininni
birtist í blaðinu í gær, en
greinin í heild fer hér á
eftir í lauslegri þýðingu.
Stjórn SAS kemur í dag
(20. nóv.) í fyrsta skipti sam
an til fundar með samstarfs-
félögum sínum hjá SWISS-
AIR í Ziirich. Á morgun held-
ur stjórnin venjulegan stjórn
arfund í Ziirich. Er þetta í
fyrsta skipti sem yfirstjóm
Norðurlandaflugfélagsins held
ur slíkan fund utan Norður-
landanna.
Ástæðan fyrir því að þetta
er gert er ekki sú, að vanda-
málin, sem rædd yerða á
stjórnarfundinum, séu í sam-
bandi við fundinn með SWiss
AIR, heldur eingöngu sú stað
reynd að stjórnin er saman-
komin í Zúrich til að ræða við
Svisslendingana, og þess
vegna eins gott, meðan allir
eru þar saman komnir, að
framlengja dvölina um fundar
daginn. k
Það er ýmislegt, sem bendir
til þess að þetta geti orðið
mjög viðburðaríkur stjórnar-
fundur. Ástæðan er sjónarmið
in varðandi samkeppnisaðstöð
una við íslenzka
Loftleiðir.
fíugfélagið
• MÓÐURSYKI.
Þessi hálfgerða móðursýk
isspenna hefur komið í ljós í
yfirlýsingu, sem gefin var í
Bandaríkjunum, um að „SAS
mun verða gjaldþrota" ef ekki
reypist unnt að stöðva Loft-
leiðir, og einnig í orðrómi um
að sænskt einkafjármagn að
upphæð 80 milljónum sænskar
krónur verði tekið út úr flug-
vélasamsteypu Norðurland-
anna, ef ekki er unnt að stöðva
þessa samkeppni á Atlantshafs
leiðinni.
• VILJA VERÐUGA
SAMKEPPNI.
Gætnari raddir innan
stjórnar Norðurlandaflugfé-
lagsins koma fram með hóg-
værari og skynsamlegri sjónar
mið. í>ær taka skýrt og ótví-
rætt fram að ekki sé óskað
eftir því að „kæfa“ Loftleiðir,
og heldur ekki að grípa til
neins þess ráðs, sem á ein-
hvem hátt gæti litið út sem
„hefndaraðgerðir".
Það, sem óskað er eftir, er
að skapa möguleika fyrir SAS
til að koma á samkeppni við
Loftleiðir á jafnréttisgrund-
velli. Þetta mætti gera með
„government order“, sameig-
inlegum úrskurði stjóma Norð
urlandanna um að hefja flug
með lágum fargjöldum jafn-
hliða þotufluginu. í þessum
ferðum yrðu notaðar þær
DC-1C vélar, sem SAS á, og
ætti leiðin að liggja Kaup-
mannahöfn — Osló — Syðri
Straumfjörður — New York,
þrjár ferðir í viku yfir vetur-
inn, en daglegar ferðir á sumr
in. Fargjöld á þessari leið
verði á hverjum tima sam-
keppnisfær við lægstu far-
gjöld Loftleiða.
• ASTÆÐAN FYRIR
ÓDÝRU
FARGJÖLDUNUM.
Ástæðan fyrir því að Loft
leiðir geta flogið yfir Atlants-
hafið fyrir 1000 kr (danskar)
lægri fargjöld, er sú, að félag
ið er ekki aðili að IATA, sem
ákveður öll fargjöld vest-
rænna flugfélaga, og gerir á-
ætlanir um skipulagningu flug
ferðanna samkvæmt samkomu
lagi aðildarfélaganna, sem háð
er samþykki allra félaganna.
Með því að halda sig utan
IATA, og með því að nota
flugvélar, sem reikningslega
er búið að afskrifa — á sama
hátt og skrúfuvélar SAS —
geta Loftleiðir notað sér af
þeim hlífiskildi, sem bindur
IATA félögin við fargjalda-
ákvarðanir, sem ekki má
brjóta nema viðkomandi
félag gangi úr alþjóðasamtök
unum.
• LOFTLEIÐIR NEITA.
í opinberum viðræðum í
Bandaríkjunum lögðu banda-
rísk yfirvöld eftirfarandi þrjár
tillögur fyrir Loftleiðir:
1. Innganga í IATA sam-
tökin.
2. Fækkun flugferða til
Bandaríkj anna.
3. Hækkun fargjalda til
samræmis við fargjöld
IATA á Norður Atlants-
hafsleiðum.
íslendingarnir höfnuðu öll-
um tillögunum.
• PAN AM I VANDA.
Pan American World Air-
ways, sem á flugmálaráðstefn-
unni í Bandarikjunum fylgdi
kröfu SAS um lækkun far-
gjalda með skrúfuvélum, hef-
ur dregið sig í hlé, senni-
lega vegna stjórnmála og hern
aðarlegra áhrifa með tilliti til
bandarísku flugstöðvarinnar í
Keflavík. SAS stendur nú eitt
um að greiða atkvæði gegn far
gjaldataxta IATA, en mál
þetta verður tekið fyrir á
IATA fundi eftir mánuð.
• „GOVERNMENT
ORDER“.
Undanfarið hefur Norður-
landaflugfélagið reynt að
koma á framfæri óskum um
ríkisstjórnarúrskurð um að
það skuli hefja flugferðir með
lágum fargjöldum til að mæta
ósanngjarnri samkeppni, sem
aðeins verður svarað með slík-
um ráðstöfunum. Ef SAS hef
ur flugferðir með lágum far-
gjöldum samkvæmt „gover i-
ment order“, brýtur félagið
ekki reglur IÁTA, og getur tek
ið upp samkeppni við Loftleið
ir á jafnréttisgrundvelli.
• LEIGJA VÉLAR HJÁ
DÖNUM.
Sagt hefur verið að ís-
lenzka flugíólagið hafi á þessu
ári selt farseðla fyrir 6 millj.
krór. r í Danmörku, 8 milljóu-
ir í Noregi og 4 milljónir í
Svíþjóð. Þar við bætist ef til
vill enn hærri upphæð í Banda
ríkjunum.
Loftleiðir hafa sem stendur
fjórar vikulegar ferðir Lux .».i
burg — Reykjavík — New
York, sem ekki taka beinlínis
farþega frá SAS, heldur frek
ar frá öðrum evrópskum og
bandarískum félögum, sem
halda uppi ferðum á þessari
leið.
Fimm sinnum í viku hafa
Loftleiðir ferðir frá Norður-
löndum, þar af eru þrjár ferð-
ir Hamborg — Kaupmanna-
höfn — Oslo — Reykjavík —
New York.
íslendingarnir nota DC-6B
flugvélar, og þegar flugvéla-
floti þessa ötula litla félags
hefur verið til viðgerðar 1
Stavanger hjá flugvéla- og
skipatúegðarmanninum Lud-
vig Braathen, sem er einn af
stuðningsmönnum Loftleiða,
að minnsta kosti góður ráð-
gjafi, hefur félagið tekið á
leigu aukavélar hjá Nordair,
Flying Enterprise eða hjá
hinu nýja félagi Tjære-
borgarprestsins, Sterling Air-
ways.
• LITLA, ÁHRIFARÍKA
FÉLAGIÐ.
Loftleiðir á jafnstóran
flugflota og danska leiguflug-
félagið Nordair, það er fimm
DC-6B vélar, og alls starfa
350 manns hjá félaginu, eða
70 starfsmenn fyrir hverja vél,
en hjá SAS eru nærri 200
starfsmenn fyrir hverja vél.
Nordair hefur aðeins 80 starfs
menn, en skýringin á því er
einfaldlega sú að við Ieigu-
flug þarf ekki jafn fjölmennan
starfshóp og við fastar áætl-
unarferðir.
Scanair, dótturfélag SAS,
getur ekki snúið sér að Ame-
ríkuflugi í samkeppni við
Loftleiðir, því félag þetta hef-
ur aðeins leyfi til fjögurra
lendinga í Bandaríkjunum á
ári. Eina lausnin, ef SAS á að
mæta Loftleiðum og yfirtaka
eitthvað af milljónatekjum ís-
lendinganna á heiðarlegum
samkeppnisgrundvelli, er að
komij verði á flugferðum með
lágum fargjöldum samkvæmt
ríkisstjórnarúrskurði.
Á hluta af flugleiðum Loft-
leiða, þ.e. leiðinni milli ís-
lands og Evrópu, verður félag
ið að fylgja fargjaldaákvörð-
unum IAT- vegna samkeppn
innar við hið opinbera is-
lenzka flugfélag, Flugfélag ís-
lands (Icelandcúr), en það er
á leiðinni milli Reykjavíkur
og New York, sem félagið get
ur sjálft ákveðið fargjöldin og
fær þessa ágætu samkeppnis
möguleika, er hafa gert Loft-
leiðir að áhyggjuefni ekki að-
eins SAS, heldur evrópskra -g
banJarískra Atlantshafsflug-
félaga.
— ASÍ jbing
Framhald af bls. 2.
lagsdómur hefði afnumið félaga-
frelsið, gera ætti ASÍ að við-
undri og samsafni félaga, ríkis-
fyrirtæki eins og í fasistaríkjum.
Þá talaði Hermann Jónsson frá
Vestmannaeyjum, sem sagði
þingfulltrúa nú hafa dvalizt í
dýrum hótelum í 3 daga, án þess
að þingið hefði gert annað en
karpa um fánýta hluti. Væri
þetta að kenna nokkrum leiðtog-
um verkalýðsins í Reykjavík,
sem eyddu tíma manna utan af
landi í þras.
Óskar Hallgrímsson tók næst-
ur til máls og lýsti vonbrigðum
sínum vegna afstöðubreytingar
og stefnuhringls Guðmundar
Björnssonar frá Stöðvarfirði. —
Hann hefði látið bóka sértaklega
eftir sér á sambandsstjórnarfundi
ASf, að hann vildi láta fara að
lögum, en nú vildi hann svipta
fulltrúa LÍV atkvæðisrétti. — f
dómi Félagsdóms, sem Guðmund
ur þættist vilja fara eftir, væri
tekið fram, að veita ætti LÍV
full og óskert réttindi. Hann og
aðrir ættu ekki að láta samninga
um vegtyllur í næstu ASÍ-stjórn
rugla réttlætisvitund og dóm-
greind sína.
Þá tók Guffmundur Björnsson
til máls. Sagði hann Félagsdóm
ekki hafa sagt orð um það, hve
marga fulltrúa LÍV ætti að
senda á þingið. Dómurinn segði,
að LÍV ætti að gana í ASÍ, en
annað ekki.
Næstir töluðu Jón Nikulásson
og Eggert G. Þorsteinsson. Mæltu
þeir gegn þeim, er vildu synja
LÍV atkvæðisréttar. Þá talaði
Hannibal Valdimarsson um það,
Ihverjir væru atvinnurekendur
og hverjir ekki. Affalbjörn Arn-
grimsson frá Þórslhöfn, sagðist,
sem Framsóknarmaður, vera lít-
ill vin ilhalds og krata, en þó
teldi hann ekki rétt að loka
neinn úti. Var hann meðmæltur
óskertri aðild LÍV. Var hann eini
Framsóknarmaðurinn, sem lýsti
því yfir, að hann færi þannig „út
af línunni“. — Næstur tal-
aði Árni Ágústsson, sem lovað
LÍV vera komið inn, þótt at-
kvæðisréttinn skorti og að lok-
um Sigurður Stefánsson frá Vest-
mannaeyjum og Hannes Bald-
vinsson frá Siglufirði.
Mælendaskrá hafði verið lokað
áður, svo að fleiri gátu ekki tek-
ið til máls.
Var nú gengið til atkvæða um
tvær tillögur, sem fram höfðu
komið. Var sú fyrri frá Óskari
Hallgrímssyni um að taka bæri
kjörbréf fulltrúa LÍV gild. Hin
var á þessa leið:
, „Þar sem kjörhréfanefnd hefur
ekki fyrr en í morgun haft tæki-
færi til að rannsaka þau gögn,
sem kjörbréf fulltrúa LÍV eru
byggð á, svo sem meðlimaskrár
sambandsfélaga LÍV, lög sam-
bandsfélaganna og LÍV, né held-
ur haft neina aðstöðu til að
kanna lögmæti fulltrúakjörsins
að öðru leyti, og slík rannsókn
myndi taka langan tíma og úti-
lokað, að henni yrði lokið á
þessu þingi, vísar þingið þess-
um gögnum til væntanlegrar
sambandsstjórnar til rannsóknar
og samþykkir að veita fulltrú-
um LÍV þingsetu með málfrelsi
og tillögurétti.
Kristinn B. Gíslason, Eðvarð
Sigurðsson, Jón Bjarnason, Jón
Sn. Þorleifsson, Guðmundur
Björnsson, Björgvin Sigurðssön".
AtJkvæði voru greidd sam-
tímis um tillögurnar. og skyldi
sú, sem fleiri atkvæði fengi jal-i
framt fella hina.
Nafnakall var viffhaft, og hlaut
tUIaga Óskars 151 atkvæC , en
tillaga sexmenninganna 177 at-
kvæffi.
Eftir atbvæðagreiðsluna um
kjörbréf LÍV var tekin fyrir eft
irfarandi tillaga frá Framscknar
mönnum og komn.únistum:
„28. þing Alþýðusambands fs-
lands mótmælir harðlega dómi
þeim, sem 3 af 5 dómendum Fé-
lagsdóms kváðu upp þann 12.
þ.m. í máli LÍV gegn Alþýðusam
bandi íslands.
Með dómi þesum er stefnt að
'því að svipta Alþýðusamband ís
lands þeim skýlausa rétti, sem
öllum frjálsum félagasamtökum
ber, þ.e. að ákveða sjálf hverjir
séu meðlimir þeirra á hverjum
tíma.
Þingið telur að þessi dómur,
sem á sér engin fordæmi í ís-
lenzkri réttarfarssögu, eigi
hrvorki stoð í lögum né heil-
forigðri réttarvibund.
Um leið og þingið lýsir undr
un sinni yfir og mótmælir þess
um einstæða stéttardómi varar
það við þeirri ógnun, sem slfk
misbeiting dómsvaldsins, sem
hér hefur átt sér stað, er við
öll frjáls félagasamtölk í landinu
og heitir á alþjóð að standa vörð
um grundvallarréttindi þeirra".
Effvarff Sigurffsson mælti fyrir
tillögunni og sagði, að hún væri
í beinu framhaldi við LÍV-málið,
en skoðanir manna um það hefðu
komið skýrt í ljós og því myndi
hann ekki hafa mál sitt langt og
skoraði svo á þingheim að sam-
þykkja tillöguna einróma.
Pétur Sigurðsson kvaddi sér
hljóðs. Mótmælti hann eindregið
tillögunni í heild og kvað orða-
lag hennar fáránlegt.
Benti hann á, að samkvæmt
lögum ættu allir rétt á því, að
vera meðlimir stéttarfélaga og
sambanda, sem hefðu hag af því
starfs síns vegna. Kvað hann úr
slitin um kjörbréf LÍV svipta
verzlunarmenn þeim rétti sem
þeim bæri samkvæmt lögum. Að
lokum lagði hann til, að tillagan
yrði felld.
Síðasti ræðumaður um tillög-
una var Hrafn Sveinbjarnarson.
Hann sagði, að LÍV hefði verið
dæmt inn í ASÍ af pólitískum á
stæðum, ekki þýddi að tala neinni
tæpitungu um það.
Vitnaði Hrafn í Odysseifskviðu
og kvað hafa verið reynt að koma
Trojuhesti inn í Alþýðusamband
ið. „Mér er sama, hvort hermenn
eða verzlunarmenn velta út úr
kviði Trójuhestsins í því skyni
að eyðileggja samtökin“, sagði
hann og fór svo nokkrum orðum
um dóm Félagsdóms í mótmæla
skyni.
Atkvæði voru greidd um tillög
una með handauppréttingu. Hún
var samþykkt með 180 atkvæð-
um gegn 102. Klöppuðu framsókn
armenn og kommúnistar ákaft yf
ir þessum úrslitum. Fjölmargir
andstæðingar ASf-stjórnarinnar
höfðu yfirgefið salinn, þegar at-
kvæðagreiðslan fór fram.
Máifundanámskeiffiff
heldur áfram í Valhöll í kvöld
kl. 8, og koma þá saman fyrsti
og þriðji hópur, en leiðbeinend-
ur þeirra eru þeir Guðmundur
H. Garðarsson og Birgir ísl.
Gunnarsson.
Nýir félagar
Hafið samband við skrifstof-
una í Valhöll (sími 17102) og
kynnið ykkur einstaka liði fé-
lagsstarfsins.
Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagiff Edda
KóPavogi, gengst fyrir handa-
vinnukvöldi í Sjálfstæffishúsinu,
Borgarhólsbraut 6, Kópavogi í
kvöld kl. 21.
Hver sá þjófinn?
UM IIÁLF sexleytið sl. föstu-
dag lagði maður einn bíl sínum
á bifreiðastæðinu á Hótel íslands
lóðinni við Aðalstræti. Var ein
hurð bílsins ólæst á meðan eig
andinn brá sér frá í 10 mónútur
eða svo. Er hann kom til baka
var búið að stela dýruim kjól
úr bílnum, og er ekki talið ó-
líklegi. að unglingar hafi verið
þar að verki. Kjóllinn er svartur
með gylltu belti og röndum. Þar
sem umferð er aikil á bílastæð
inu á þessum tíma dags er trú-
legt að eimhver hafi orðið þjófn
aðarins var. Ef svo er eru. við-
komandi beðnir að gera rann-
sóknarlögreglunni aðvart.
1956 ekki 1958
PRENTVILLA slæddist inn í
frétt frá fundi neðri deildar í
blaðinu í gær, þar sem Hannibal
Valdimarsson lagði m.a. til að
herinn færi tafarlaust úr landi
„samkvæmt skýlausri samþykkt
Alþingis frá 28. marz 1958, sem
enn er í fullu gildi“. Átti að
standa 1956.