Morgunblaðið - 24.11.1962, Síða 2

Morgunblaðið - 24.11.1962, Síða 2
MOHGTJTSBLÁÐIÐ Laugardagur 24. nóv. 1962 wít Nú fer hver að verða siðastur að sjá hina athyglisverðu málverkasýninigu Valtýs Péturssonax » Listamannaskálanum. Hefir verið góð aðsókn og margar myndir selzt eða 17 talsins. Á morgun er síðasti dagur sýningarinnar og eru því síðustu forvöð að sjá hana. Nýir varaforsætisráð- herrar Sovétríkjanna Moskva 23. nóv. (NTB). DIMITRI Polianski og Aleksand- er Sjelepin hafa verið tilnefndir varaforsætisráðherrar Sovétríkj- anm, segir í dag í fréttum frá TASS. Genadij Voronov hefur verið útnefndur forsætisráðherra í, sjálfu Rússlandi. Voronov var áður varaformaður í stjómmála- nefnd rússmeska kommúnista- flokksins (politbyrá). Miðstjórn kommúnistaflokks- ins samþykkti í dag allar tillög- ut, sem fram komu hjá Krúsjeff, forsætisriðherra Sovétríkjanna, sl. mánudag. Þar lagði hann m.a. til, að komið yrði á fót tvenns konar flokksnefndum í hverju ríki fyrir sig. Skal önnur sjá um öll mál, er lúta að iðnaði, en hin skal fjalla um mál landibúnaðar- ins. Tikynnt var í Moskvu i dag að Krúsjeff hefði haldið raeðu í dag, siðasta daginn, sem mið- stjórnin heldur fund sinn. Verð- ur ræða hans birt á morgun, laugardag, ásamt samþykktum miðstj órnarinnar. Fimm ræðumenn tóku til máls í dag, og ræddu einkum framleiðsluvandamálin. Einn ræðumanna benti á að Sovét- ríkinn hefðu mikla möguleika í efnaiðnaði, en réðst hins vegar á þær ríkisstofnanir, sem með þau mál fara. H. Solokov, aðalritari þeirrar nefndar, sem fer með öll mál, er lúta að nýrækt, sagði í ræðu sinni, að komframleiðsla á þess- um svæðum hefði verið miklu minni, en reiknað hefði verið með. Sagði hann framleiðslu þar hafa verið 5,2 milljónir tonna, en hún þyrfti að vera a.m.k. 13 milljónir. Launamál sjómanna til umræðu í Noregi Oslo, Harstad, 23. nóv. (NTB). FRÁ þiví var skýrt í Oslo í dag, að athuganir hefðu leitt í Ijós, að lágar tekjur fiskimanna hefðu leitt til slíkrar fækkunar í stétt- inni, að margir bátar lægju nú aðgerðarlausir. Er því haldið fram, í sérstakri skýrslu, sem tekin hefur verið saman af norskum hagfræðing- um, að þetta geti haft hinar al- varlegustu afleiðingar fyrir land- ið, þar eð efnaliagur þess byggist öðru fremur á fiskveiðum. Er bent á, að eina leiðin til að koma þessum málum í viðun- andi horf, sé að auka opinibera aðstoð við fiskimennina. Fréttir frá Harstad í dag herma, að fullt^úar útgerðar- manna í N-Noregi hafi komið saman til fundar með fulltrúum norska sjómannasambandsins. — Péturs Guðjohn- sens minnzt Á fiimimtudaginn kemur, þann 29. nóv. n.k. eru liðin 150 ár frá fæðingu Féturs Guðjahnsens organleikara Dómkirkjunnar, en hann var fyrsti organleikari kirkjunnar frá 1840-1877. Hann beitti sér fyrir því að orgel var keypt til Dómkirkj- unnar 1840 og var brautryðjandd hins nýja kinkjusöngs hér á landi Með kennslu sinni í organleik og söngkennslu við lærða skól- ann hafði hann mikil áíhrif á sönglíf landsins um sína daga og síðan. Þessara tímamóta verður minst við árdegismessu í Dómkirkj- unni á morgun. — Indland Framh. af bls. 1. Indverska stjórnin hefur sett ritskoðun á öll símskeyti, sem fara milli Indlands og Kína. Þá hefur verið ákveðið, að hver ein- asti opinber starfsmaður, sem fer frá varðstöð, geti átt á hættu að verða rekinn. í Nýju Dehli er byrjað að grafa skurði, sem auð velda eiga íbúunum að leita skjóls, ef til loftárása kæmi. Eftir því, sem segir í fréttum frá Peking, þá mun Chen-yi, ut- anríkisráðherra Kína, hafa beint þeim tilmælum til indversku stjórnarinnar, að hún gefi sem fyrst svar við því, á hvern hátt hún hyggist bregðast við tillög- um Kínverja. - SAS Framh. af bls. 1. manna SAS, voru á þann veg, að lögð væri sérstök áherzla á fyrirvara af hálfu SAS. Fyrir- varinn gildir til 15. desemlber, þar sem samþykktir IATA verða að vera einróma. Verði ekki tekin ákvörðun fyrir þann tíma, verður enginn far- gjaldasamningur á vegum IATA í gildi eftir 1. apríl 1963. Nerdrum sagði, að hann hefði áihyggjur af loftferða- samningum Noregs við önnur lönd, ef samstarfið innan IATA rynni út í sandinn. Nokkrir blaðamenn sögðu á fundinum, að engu væri lí'k- ara, en það væri ætlun SAS að brjóta Loftleiðir á bak aft- ur og halda síðan áfram með að hafa há fargjöld á Atlants- hafsleiðinni. Þessu neitaði Nerdrum algerlega. Vel upplýstir aðilar segja hins vegar, að hæpið sé, að nota DC7C vélar á Atlants- hafsleiðinni, þar sem kostnað- ur við rekstur þeirra sé tvisvar sinnum meiri en við DC6, sem Islendingar nota. 1 lok fundarins komu fram þau ummæli Nerdrums, að SAS hefði ekki beðið um að stjórnir Noregs, Svfþjóðar og Danmerkur skerist í leikinn. Þá barst í dag sú fregn, að yfirmaður Ítalíudeilclar SAS, Johannes Nielsen, hefði feng- ið það að verkefni að sam- ræma áætlanir um flug yfir Norður-Atlantshaf. Mun þar fyrst á dagskrá, á hvern hátt SAS eigi að mæta samkeppni Loftleiða. í viðtali Karl Nilsson, aðal- forstjóra SAS, við TT-frétta- stofuna, segir, að „íslenzka vandamálið“ krefjist svo mik- ils tíma, að nauðsynlegt sé að fá sérstökum manni það verk- efni. Um Loftleiðir sagði Nilsson m. a. þetta: „Ég hef eðlilega ekki enn gert það upp við mig, á hvern hátt bezt sé að leysa Loftleiða-vandamálið, en persónuleg skoðxm mín er sú, að betra væri að komast að einhvers konar lausn, í stað þess, að frjáls samkeppni verði tekin upp í Atlantshafs- flugi. Norska fréttastofan NTB segir um málið í dag (með tilvísun til viðtals Nilssons yið TT): Forstjórinn var á þeirri skoðun, að SAS myndi taka stóran hóp farþega frá ' Loftleiðum, ef félagið tekur upp samkeppni á þessu sviði. — Síðan ræðir fréttastofan um málið með eigin orðum á eftirfarandi hátt: Eftir það, sem TT hefur sagt, þá verður að ganga út frá því, að reyn- ist ómögulegt að koma á sam- komulagi við Loftleiðir — og þar við bætist, að frjáls sam- keppni verði tekin upp yfir Atlantshafið —- þá muni verða gripið til annarra ráða til að gefa SAS tækifæri til að keppa á þessum markaði. Slík ráðstöfun gæti verið í því fólgin að segja upp loft- ferðasamningunum við ísland. Það er opið spursmál, til hvers það myndi leiða í nor- rænni samvinnu, ef Noregur, Sviþjóð og Danmörk segja upp þessum samningum. TT hafur upplýst, að sænska samgöngumálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið hafi tekið að ræða mál SAS og Loftleiða. Hafi þar verið til umræðu hærri aflalhlutur sjómanna á síldveið- um, það er á þeim skipum, sem nota kraftblökk. Benda fulltrúar sjómanna á, að þótt blökkin kosti um 200.000 norskar krónur, þá sé hægt að fækka áhöfn úr 20—22 í 12. Enginn árangur mun hafa orð- ið af fundinum, enn sem komið er a. m. k. Edward B. Lawson Edword B. Lowson, fyrrvernndi sendiherrn, lótinn LÁTINN er í Bandaríkjun- um Edward B. Lawson, fyrr- verandi sendiherra Bandaríkj anna hér á landi. Banamein Lawsons, sem var 67 ára, var hjartabilun. Lawison gegndi mörgum á- byrgðarmiklum emibættum á starfsamri ævi. Hann var hag fræðilegur ráðunautur banda- ríska sendiráðsins í Ankara frá 1945-47. Hér á landi dvald ist hann á árunum_ 1949-1953, en hvarf þá til ísrael, þar sem hann gegndi starfi sendi herra fram til 1959. Ári síðar dró hann sig í hlé frá opin- berum störfum. Mr. Lawson var fæddur í Newport, Tennessee. Hann lagði stund á utanrikismáll I og tók próf í þeirri grein það | an 1925. j Hann kynnti sér einnig sér . staklega hagfræði oig við- skiptamál og starfaði mikið I að þeim málum á vegum | Bandaríkjastjórnar. i Hann ferðaðist víða á veg- um ýmissa stofnana, m.a. í I S-Afríku, Téikkóslóvakíu, | Bretlandi, S-Ameríku og víð- i ar. Mr. Lawson gat sér mjög I gott orð, þegar hann var hér | og eignaðist fjölda vina. j Varnarræða Björns Jónssonar ráðherra gefin út a 50 dra ddnaxdægri hans f DAG eru liðin 50 ár frá dán- ardægri Björns Jónssonar, ráð- herra og á þessu ári 85 áur frá því hann stofnaði ísafoldarprent- smiðju. í tilefni þessa gefur ísa- foldarprentsmiðja út í dag varn arræðu þá, er Björn flutti á Al- þingi 24. febrúar 1911 við um- ræður um vantraust á ráðherra. Bókin er prentuð 1 300 eintök- um. Pétur Ólafsson, forstjóri ísa- foldar, skrifar nokkrar skýringar og gerir í stuttu máli grein fyr- ir ýmsum þeim málum, er þá voru efst á baugi og komu við sögu, er vantraustið var bor- ið fram. Pétur segir m.a.: „Þegar Björn Jónsson flutti varnarræðu sína á Alþingi vakti má'lflutningur hans mi'kla athyigli um land aiit. Var til þess tekið hve vígreifur hann mætti andstæðingum sín- um og hve skörulega hann flutti mál sitt. Var Björn þó af léttasta skeiði, orðinn 64 ára gamall, hafði stjórnað blaði sínu „ísa- fold“ í 35 ár, svo að það þótti ta'ka öðrum blöðum fram og þar við bættist að hann hafði ekki verið heUsuhraustur hin síðustu misseri. Björn andaðist hálfu öðru ári eftir að hann lét af ráðherrastörfum.“ Eyjaf jörður sé tvö dýralælmisumd. M A G N Ú S • Jónsson, Friðjón Skarphéðinsson, Karl Kristjáns- son og Bjartmar Guðmundsson hafa lagt fram frumvarp á Al- þingi þess efnis, að Eyjafjarðar- umdæmi verði skipt í tvö dýra- læknisumdæmi, þar sem algjör- lega ófullnægjandi sé að hafa einn dýralækni í þessu umdæmi. „Hefur um nokkurt skeið ann- ar dýralæknir verið starfandi i umdæminu, en þar sem dýra- læknalögin gera ekki ráð fyrir nema einum lækni í hverju um- dæmi, hefur ekki verið talið heimilt að greiða honum laun úr ríkissjóði. Eru því starfsskilyrði þessa læknis með öllu óviðun- andi, en héraðsdýralæknirinn telur sig ekki geta gegnt starfl sínu, ef þessi læknir verði að hverfa á brott“. /* NA /5 hnitar ✓ SV 50 fmúfor X Sn/óiomo • úii 17 Skúrír K Þrumur W/,*z, KuUaakil V Hifoakd H Hmi t UM hádegið í gær vorum við á hæðarhryigg, miilli lægð ar við Jan Mayen og annarr- ar yfir Labrador og Davíðs- sundi. Er búizt við að ves ari lægðin valdi þíðviðri h' á landi nú um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.