Morgunblaðið - 13.12.1962, Side 22
22
M Ó RGU N B L AÐ 11>
Fimmtudagur 13. des. 1962
Pr
Fatabreytingar
Breytum tvíhnepptum fötum í einhneppt. Þrengjum
buxur. — Getum afgreitt fyrir jól.
Klæðaverzlun BRAGA BRYNJÓLFSSONAR
Laugavegi 46. — Sími 16929.
Skrifstofustúlka óskust
Stúlka óskast til starfa á opinberri skrifstofu, aðal-
lega til símagæzlu og afgreiðslustarfa auk nokkurr-
ar vélritunar. Mánaðarlaun um kr. 4500,00 til kr.
5000,00. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 18. þ.m.
merktar: „Skrifstofa — 3133“.
Viðgerð á
Stálhúsgögnum
Getum ennþá bætt við okkur viðgerðum á stál-
húsgögnum. Höfum glæsilegt úrval áklæða. Gerum
gömul stálhúsgögn eins og ný.
ATH.: Við sækjum að morgni, afhendum að kveldi.
Allt vönduð vinna. — Hringið í síma:
36562 eða 24839
Stálstólar
Brautarholti 4.
Islendingur í nor-
rænt fótboltalið?
Á að leika gegn Evrópuliði
DANSKA knattspyrnusamhandið
(DBU) verður 75 ára 1964.
I tilefni af afmælinu hefur DBU
fengið leyfi Knattspyrnusam-
hands Evrópu til þess að láta
fara fram kappleik á milli úr-
valsliðs Norðurlandanna, annars
vegar, og úrvals úr hinum Evrópu
löndunum híns. Mun kappleikur
þessi fara fram í Kaupmanna-
höfn 20. maí 1964.
Ingimar
gegn
Liston?
EDWIN Ahlquist sem verið
hefur ráðamaður Ingimars
Johannssonar segir í þrótta-
blaði sínu „Rekord“ að hann
hafi boðið Sonny Liston 5
milljónir sænskra kr. ef
hann vilji mæta Ingimar í
Gautaborg næsta sumar.
Ahlquist segir frá því að
þeim Ingimar hafi verið
boðnar 800 þúsund dollarar
fyrir kvikmyndarétt af
leiknum og Ahlquist segir
að hafa megi mikið upp úr
leiknum ef hann verði flutt-
ur í sjónvarp gegnum Tel-
star — og geti þá allir
Ameríkubúar fylgst með
leiknum.
Danska knattspyrnusambandið
hefur farið þess á leit við Knatt-
spyrnusamband íslands (KSÍ), að
það bendi á væntanlega íslenzka
„kandidata" í Norðurlandaliðið
í síðasta lagi fyrir 1. október 1963.
Að vísu er keppnisdagurinn 20.
maí, ekki sem heppilegastur fyrir
íslenzka knattspyrnumenn, þar
sem þeir eru tæplega komnir í
æfingu svo snemma vors, en
f KVÖLD fer fram að Háloga-
landi „pressuleikur“ í handknatt
leik. Handknattleikssambandið
(landsliðsnefnd) hefur valið
„landslið“ og íþróttafréttamenn
hafa valið lið á móti. Má sannar-
lega búast við góðum ok skemmti
legum leik og án efa verður leik-
urinn spennandi og tvísýnn. Leik
kvöldið hefst kl. 8.15 og leika
fyrst FH og Á (nýbakaðar
Reykjavíkurmeistarar) í kvenna-
flokki. Síðan hefst aðalleikurinn
og eru liðin þannig:
Landslið: Hjalti Einarsson FH,
Karl Jónsson Haukar, Pétur
Antonsson FH, Einar Sigurðsson
FH, (fyrirliði), Gunnlaugur
Hjálmarsson ÍR, Ingólfur Óskars
son Fram, Hörður Kristinsson Á,
Ragnar Jónsson FH, Karl Jó-
hannsson KR, Karl _ Benediktsson
Fram og Matthías Ásgeirsson ÍR.
Pressulið: Þorsteinn Björnsson
Á, Guðm. Gústavsson Þrótti, Guð-
jón Jónsson Fram, Hilmar Ólafs-
son Fram, Pétur Bjarnason Vík-
K.S.Í. mun engu að síður hafa
vakandi auga fyrir þeim mögu-
leika oð koma ísl. knattspyrnu-
manni í úrvalslið Norðurland-
anna, þegar þar að kemur. Er
þess að vænta, að ísl. knattspyrnu
menn hafi þennan möguleika i
huga, er þeir skipuleggja æfingar
sínar á næsta ári.
Þess skal getið, að ákveðið hef-
ur verið að leita ekki til atvinnu-
knattspyrnumanna Norðurland-
anna, sem leika með liðum utan
heimalandanna.
ing, Kristján Stefánsson FH,
Birgir Björnsson FH, Hermann
Samúelsson ÍR, Rósmundur Jóns-
son Víking, Sigurður Einarsson
Fram og Viðar Sveinsson Hauk-
ar.
Leikurinn hefst kl. 8.15. — Á
undan verður leikur milli FH og
Á 1 kvennaflokki.
MOLaR
AÐ UTAN
DYNAMO Moskva lék jafn-
teflisleik við landslið Japana
í knattspyrnu í gær 2 mörk
gegn 2. í hálfleik höfðu Jap-
anir forystu 2—1.
LANDSLH) Svía í knatt-
spyrnu vann unglingalandslið
Japana með 4—0 í gær. í hálf-
leik stóð 1—0.
Pressuleikur í
kvöld kl. 8,15
atllt