Morgunblaðið - 03.01.1963, Síða 9
Fimmtudagur 3. janúar 1963
MORGUNBLiÐIÐ
9
B.v. Ingólfur Arnarson á siglingu.
Svið og rófustappa
íil að fagna nýju ári
* ■
Aramótaspjall við tvo togaraskipstjóra
MORGUNBLAÐIÐ átti í
gær símtal við tvo togara-
skipstjóra sem eru á veiðum,
og voru um áramótin, til að
komast að raun um, hvernig
nýju ári er fagnað um borð
hjá togarasjómönnum. Símtöl
in fara hér á eftir:
— Er þetta skipstjórinn á
Agli Skallagrímssyni?
— Já, það er hann.
— Við erum að forvitnast
um áramótin hjá ykkur um
borð, voru nokkur hátíðahöld?
— Nei, þetta var eins og
venjulega. I»að er ekikert
hægt að gera. Vaktir ganga
fyrir sig eins og aðra daga.
— Þið hafið ekki skotið
upp neinum rakettum?
— Nei, það er harðbannað.
— Einhvem dagamun hafið
þíð þó gert ykkur?
— Ja, það var betri matur.
— Hvaða hátíðamatur var
það?
— Þvi er ég búinn að
gleyma. Eg held það hafi ver-
ið svið með rófustöppu.
— Hvar eruð þið að veið-
um?
— Út af Vestf jörðum og höf
um verið úti 11 daga.
— Hvemig ganga veiðam-
ar?
— Það er ekkert fiskirí.
Ekkert að hafa.
— Siglið þið með aflann?
— Já, við förum líklega til
Þýzkalands.
★
Þessu næst átti Morgunblað
ið tal við skipstjórann á Ing-
ólfi Arnarsyni, Sigurjón Stef-
áoisson:
— Var nokkuð sérstakt um
að vera hjá ykkur um ára-
mótin?
— Nei, það var bara gott
veður og ekkert fiskirí.
— Skipshöfnin hefur ekki
safnazt saman til að fagna
nýju ári?
— Það var verið að vinna
og vaktir eins og venjulcga.
— Þið hafið þó fengið há-
tíðamat?
— Jú, eins og alltaf er. Við
fengum svið og hangikjöt.
— Þið hlustið á útvarpið á í
miðnætti? /
— Það gerðum við. Heyrð- J
um klukkurnar. I
— Hvar eru þið núna?
— Á Halanum. Fórum út 3.
í jólum, en fiskirí er ekkert.
Að lokum bað Sigurjón
skipstjóri fyrir nýárskveðjur
til vina og ættingja í landi.
45 íslenzk málverk
sýnd í Leningrad
ÍSLENZK málverkasýning
verður opnuð í Leningrad í jan-
úarmánuði. Ekki hefur opnunar-
dagurinn enn verið ákveðinn.
Sýnd verða 45 málverk eftir
Kjarval, Jón Stefánsson og Ás-
grism Jónsson, 15 eftir hvern
þeirra.
Það voru Rússar sem buðu til
eýningarinnar og völdu málar-
ana. Valtýr Pétursson, Sigurður
Sigurðsson og dr. Selma Jóns-
dóttir vöidu hins vegar málverk-
in.
Þeim Jóhannesi Kjarval og
Ragnari Jónssyni var boðið til
að fara til Rússlands vegna sýn-
ingarinnar, en þeir gátu ekki
komið því við.
í þeirra stað fara þau dr.
Sekna Jónsdóttir og dr. Gunnlaug
ur Þórðarson,
Sýningin verður opnuð í Len-
ingrad, en fer síðar til Moskvu.
Söfnunarfé
úthlutað
ÚTHLUTUNARNEFND sjóslysa-
söfnunarinnar 1961—1962 hefur
fyrir nokkm lokið störfum. Út-
hlutað var kr. 2.8 millj. í 55 staði
og hefur féð verið sent hlutaðeig
endum eða afhent þeim fyrir
milligöngu sóknarpresta eða yfir
valda á viðeigandi stöðum. Mun
ríkisstjórninni afhent greinargerð
um úthlutunina, ásamt þar að lút
andi gögnum, þegar kvittanir
hafa borizt viðtakendum til nefnd
arinnar.
Þessi mynd var tekin suður í Þjóðminjasafni á gamlársdag,
þegar þeim Guðmundi Daníelssyni, Þorsteini Jónssyni frá
Hamri og Jóni Óskari voru veittir styrkir úr Rithöfundasjóði
Ríkisútvarpsins. Frá vinstri: Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarps-
stjóri, Jón Óskar og Þorsteinn Jónsson frá Hamri. Guðmundur
Daníelsson gat ekki verið viðstaddur athöfnina.
Þiír rithöfundar hljótu styrki
— Skipskista
Framh. af bls. 1.
danskir blaðamenn, og hafa
þeir skýrt frá aðkomunni,
sem var vægast sagt óhugn-
anleg. Hins vegar er það at-
hyglisvert, að frá því segir,
að fundizt hafi á eyjunni
skipskista eða ferðakista, ís-
lenzk. Um þetta segir svo í
greininni (18. des.):
„— sólin myndar mynstur á
gamalli skipskistu, en á hana
hefur íslenzki fáninn verið mál-
aður“. — Síðan segir frá því, að
er lyft hafi verið kistulokinu,
hafi þar komið í ljós línstakkur,
ullarpeysa og lítið veski, sem í
var danskur 10 króna seðill, gef-
inn út 1945, og löngu ógildur.
Engum getum geta dönsku
blaðamennirnir að því leitt,
hvernig þessi seðill, frá stríðs-
lokum, var þarna koininn í ís-
lenzkri kistu, í húsi, sem undan-
farið hefur verið í. eyði, á Tristan
da Cunha.
Um aðkomuna á eyjunni seg-
ir, að hún hafi verið heldur ó-
hugnanleg. Þar var aragrúi af
rottum, stórum og grimmum.
Svo grimmar voru þær, að þær
króuðu af kött og átu. Þá munu
villtir hundar hafa leikið laus-
um hala, og m.a. fannst hræ af
asna, sem þeir höfðu etið.
Eins og fyrr segir, þá vilja
margir, eða flestir af íbúum eyj-
arinnar, sem dvalizt hafa í Bret-
landi, nú snúa heim. Atkvæða-
greiðsla í hópi þeirra, sýnir
þann vilja, en hún fór fram fyr-
ir nokkru síðan.
Ekki eru nánari fregnir um
það, hvort af því muni verða, en
lýsing sú á ástandinu á eyjunni,
sem gefin er í danska vikurit-
inu, bendir til, að það verði ekki
vandkvæðalaust.
— U Thant .. .
Framih. af bls. 1.
sinn til móts við Tshombe, en
síðar á U Thant að hafa sagt, að
þessi bón Tshombes yrði ekki
gerð. Ef hann héldi ekki þegar
í stað til Elizabethville myndu
liðssveitir SÞ taka Jadotville, en
þær sækja nú fram eftir veginum
milli Elizabethville og Jadotville
og eiga skammt eftir ófarið til
borgarinnar.
Fregnir frá Salisbury í S-Rod-
esíu herma, að Tshombe hafi
skorað á hersveitir Katangahers,
sem staddar eru í Jadotville, að
verjast til síðasta manns. Einnig
hótar hann að láta eyðileggja mik
ilvægt raforkuver í Jadotville áð
ur en liðssveitir SÞ nái borginni
á sitt vald, en koparnámur í
grennd við borgina fá rafmagn
frá orkuverinu.
Á leiðinni til Jadotville hafa
fjórir menn úr liði SÞ fallið
Fregnir frönsku fréttastofunn-
ar AFP herma, að forsætisráð-
herra sambandsstjórnarinnar í
Leopoldville, Cyrille Adoula hafi
sent SÞ skeyti og mótmælt því að
Tshombe verði heimilað að snúa
aftur til Elizabethville án þess
að sambandsstjórnin samþykki
það. Adoula minnir á það, að
þegar Tshombe hafi dvalizt í N-
Rodesíu hafi hann lýst því yfir,
að hann hygðist skipuleggja
skæruhernað gegn Sameinuðu
þjóðunum og sambandsstjórn-
inni. — Sagði Adoula, að sam-
bandsstjórnin teldi sig hafa full-
an rétt til þess að grípa til ráð-
stafana gegn því, að Tshombe
komi hótun sinni í framkvæmd.
Robert Gardiner, yfirmaður
liðssveita SÞ í Kongó, hefur lýst
því yfir, að hann muni segja af
sér, ef Tshombe snúi aftur til
Elizabethville án þess að hafa
áður tryggt það, að liðsmenn SÞ
geti ferðast óáreittir um Katanga.
Tilkynnt hefur verið í sknf-
stofum námufélagsins Union
Miniere í Briissel, að félagið
sendi tvo sérfræðinga til Leopold
ville í kvöld til þess að ræða við
sambandsstjórnina um tæknileg
atriði varðandi skiptingu tekna
af námum félagsins í Katanga
milii fylkisins og annarra hluta
Kongó.
Á GAMLÁRSÐAG var veittur
styrkur úr Rithöfundasjóði Ríkis
útvarpsins til þriggja rithöfunda.
Voru það þeir Guðmundur Daní-
elsson, Þorsteinn Jónsson frá
Hamri og Jón Óskar. Hlutu þeir
15 þús. kr. hver.
Kristján Eldjárn, formaður
stjórnar Rithöfundasjóðs Ríkis-
útvarpsins, afhenti rithöfundun-
um styrkinn. Skýrði hann frá því
við það tækifæri, að þetta væri
í sjöunda skipti, sem styrkir eru
veittir úr sjóðinum, og hefðu alls
tíu rithöfundar fengið styrki úr
honum. Venja er að veita styrk-
ina seinasta dag ársins. Hærri
upphæð hefur ekki verið veitt
áður úr þessum sjóði.
Dregið hjá Karla-
kór Reykjavíkur
DREGIÐ VAR í bílhappdrætti
Karlakórs Reykjavíkur á skrif-
stofu borgarfógeta á þriðja dag
jóla. Upp kom miði nr. 5248.
BaSletskóIinn Laugavegi 31
Kennsla hefst á ný
mánudaginn 7. janúar.
Reykjavík
Barnaflokkar fyrir og
eftir hádegi.
Dag og kvöldnámskeið
fyrir konur.
Hafnarfjörður
Kenndur verður á vegum
skólans ballet fyrir börn
í Sjálfstæðishúsinu í Hafn-
arfirði.
Upplýsingar og innritun fyrir nýja nemendur
í síma 24934 daglega kl. 3—6.
Skrifstofum okkar
verður lokað í dag frá hádegi vegna jarðarfarar
ÞORSTEINS ÓLAFSSONAR.
Ólafur Gíslason & Co hf.
Vegna jarðarfarar
ÞORSTEINS ÓLAFSSON stórkaupmanns verður
skrifstofa okkar lokuð í dag 3. janúar.
*
C i ?sson Sl Lorange
Klapparstíg 10, Heildverzlun.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar.
G. Helgason S Melsted hf.
Sendisvdnn óskast
Hf. Eimskipafélag íslands