Morgunblaðið - 03.01.1963, Page 10

Morgunblaðið - 03.01.1963, Page 10
10 MORGUNBLAÐIb Fimmtudagur 3. januar 1963 Veður bezt á Is- landi um áramótin IVSenn ocj skepnur farast beggja vegna hafsins — IV/Besta óveður í Bretlandi síðan 1881 — Þyrlur og hermenn hjálpa nauðstöddum — Hvað er að frétta? — Ég get ekkert sagt í fréttum, ég er að drepast új - kulda. Á þessa leið hófst í gær samtal Mbl. við blaðamann sinn, Elínu Pálmadóttur, sem stödd er í London á heimleið frá Nígeríu. — Er mikill snjór í Lon- don? spurðum við. — Það gengur alltaf á með hryðjum, svaraði Elín. í Evxópu að undanförnu. Sagði hann að kuldinn næði nú alllangt suðureftir, eða allt suður að Pyreneafjöllum. Frost væri í N-Frakklandi, svo og í N-Þýzkalandi og norður eftir. Jónas kvað (horfur fyrir ei- lítið kólnandi veðri hér heima, en stilltu þó. Skóhlífar seljast upp En á meðan íslendingar heilsuðu nýju ári í bezta veðri, blés óbyrlegar fyrir öðrum. í Bretlandi er talið að ........... ............................. . ., Hér sjást unglingar Ieika sér á isilögðu fljóti. Myndin var tekin 38. desember, nærri Kaub í V-Þýzkalandi. Áin er Rín. Sigling- ar hafa nær lagzt niður á fljótinu. — En það er kuldinn sem er að sálga manni. Annars er mikill snjór allstaðar hér í Suður-Englandi og þeir eru að grafa fólk úr fönn hefi ég heyrt. Menn ösla snjóinn í vaðstígvél- um og samgönguerfiðleik- ar eru miklir. Ég vildi að ég væri komin heim í hlýj- una, sagði Elín að lokum, og raunar ekki að ástæðu- lausu, því að á daginn hef- ur komið að veður hefur verið hezt á norðurhveli jarðar á íslandi nú um ára- mótin, en beggja vegna Atlantshafs hefur gengið á með stórhríðum, fólk og peningur farizt og sam- göngur teppzt. Jónas Jakobssön, veðurfræð ingur tjáði Mbl. í gær að veður hér hefði verið óvenju stillt að undanförnu miðað við árstíma. Orsökin til þessa væri sú að háþrýstisvæði hefði verið yfir Grænlandi, Grænlandshafi og íslandi. Á Grænlandi hefði verið meira frost en á íslandi en hér hef- ur verið veður blítt um há- tíðarnar og úrkoman nær engin. Mun sjórinn hafa mild- að veðurfarið hér við land. Jónas sagði að kuldinn í V-Evrópu að undanförnu hefði komið með meginlands- lofti norðan og austan úr álfu, en því fylgdi mikill kuldi. Við jaðar kalda loftstraumsins, þar sem hann kemst í snert- ingu við hlýrra Og rakara loft, verður mikil snjókoma. Kvað Jónas þetta vera skýringuna á hinum miklu kuldum og snjókomu sem verið hafa viða ekki hafi sett niður meiri snjó síðan 1881, en það ár var mældur 15 feta djúpur snjó- skafl í Oxford Circus. Brezka útvarpið greindi £rá því á ný- ársdag að ástandið væri þann- ig, að margar helztu skóverzl- anir í London hefðu selt upp birgðir sínar af skóhlífum. Á norðvesturströnd Bandaríkj- anna hefur ástandið verið litlu betra, og þar hefur kingt niður snjó. Hér á eftir fara fregnir af ástandinu beggja vegna Atl- antshafs, sem Mfol. bárust i einkaskeyti frá AP í gær. Menn og skepnur farast London, 2. janúar (AP). Versti bylur, sem komið hefur í Bretlandi, í nærfellt Iheila öld, hefur orðið 17 mönnum að bana til dagsins í dag, og hundruðum skepna víðsvegar um Bretlandseyjar aðfjörtj óni. Á austurströnd Bandaríkj- anna hefur geisað versti byl- ur, sem þar hefur komið í 10 ár. Dregið hefur saman í skafla, allt að 6 m háa. Vind- hraði hefur nálgazt það, sem gerist í fellifoyljum. 20 manns hafa farizt í veðri þessu á austurströnd Bandaríkjanna og í New York gerðist það, að dráttarbátur sökk á Long Island sundi og fórust með honum 9 menn. Þyrlur brezka flughersins, svo og hermenn, hafa verið kvaddir til þess að koma vist- um til þeirra staða, sem verst hafa orðið úti í veðrinu, en mörg þorp hafa einangrazt vegna snjóa. Tvær helztu bif- reiðasmiðjur landsins hafa orðið að hætta framleiðslu. Þá hafa fylgt í kjölfar óveð- ursins stórfelldar rafmagns- truflanir, sem ekki hafa bætt ú skák. í DartmOor hafa hundruð kinda og hesta farizt í óveðr- inu. Brezki flugherinn gerði þegar I stað ráðstafanir til iþess að koma fóðri til þeirra skepna, sem eftir lifðu, en einn þyrluflugmannanna sagði að lokinni flugferð, að fjöldi skepna væri þegar dauður og mörg hundruð hefði fennt. Allt að 8 m háir skaflar hlóðust upp víðsvegar um landið. Ekki hefur verið um að ræða svo alvarlegt ástand af völdum veðurs síðan vet- urinn 1881. Þótt bylurinn hafi nú staðið í heila viku, spáir brezka veðri í veðurstofan kvöld. Fólksflutningabíll rennur aftur á bak niður brekku, eftir að hafa mistekizt að komast upp hana, vegna hálku. Myndin var tekin milli jóla og nýárs í Middlesex í Englandi. óbreyttu 10.000 snjóplógar Þrátt fyrir, að bylurinn geisi enn í Bretlandi, hefur heldur hlýnað í veðri á megin landinu, sem í heila viku hef- ur búið við heimskautaveðr- áttu. Talið er, að sloti óveðri þessu ekki brátt, kunni þessi vetur að verða hinn versti, sem sögur fara af. _ Tveir menn létust af völd- um veðurofsans í Bretlandi í dag, er þeir voru að moka snjó af götum, en áður höfðu allmargir farizt, tepptir í bíl- um sínum, eða á járnbrautar- stöðvum. Matvæli, lyf Og hjálpartæki hafa verið send til fjölmargra þorpa í Devon. Um 10.000 snjóplógar starfa nú af fullum krafti við að halda opnum samgönguæðum, og í dag gerðist það, að einn plóganna ruddi leið gegnum fjölmarga feiknastóra snjó- skafla, við landamæri Skot- lands. Erindið var að flytja barnshafandi konu í sjúkra- hús, þar sem hún fæddi barn- ið klukkustundu síðar. Talsmaður brezka flughers- ins sagði í dag: „Hjá okkur ríkir neyðarástand 24 tíma á sólarhring. Við fljúgum um allt landið til þess að bjarga fólki, sem er kalið og nær dauða en lífi af kulda, og koma því í sjúkrahús. Stórhríð í USA Heldur fer nú hlýnandi í veðri á austurströnd Banda- ríkjanna, en í gær æddu þar um ískaldir vindar, og hita- mælar í New York sýndu allt að frost. Vindhraðinn komst upp í 130 km á klukkustund. í Maineríki geisaði versti bylur, sem þar hefur komið sl. 10 ár, og allt að 83 cm þykk snjóbreiða lagðizt yfir landið. í dag hefur samt lítil eða eng- in úrkoma slóðum. verið á þessum Flugvélin hér á myndinni rann til á hálku á flugvelli í Rotterdam, er hún var að lenda 28. des. Flugvélin steyptist síðan yfir sig. 18 farþegar voru með vélinni, en engan mun hafa sakað. — Flugmennirnir lokuðust inni í flugmannsklefanum, og náðust ekki strax út. — Má það teljast mildi, að ekki skyldi eldur brjótast út, en þá hefði vafalaust farið ver. Ástandið í Evrópu Hér fer á eftir yfirlit um ástæður helztu borga í Evrópu í dag: í París var lítilsháttar rign- ing Og þoka og hitastig fór hækkandi. Frá Róm berast þær fregnir, að skýjað sé um mestalla Ítalíu og fari hlýn- andi í veðri. Þoka tafði ferðir flugvéla í Milano. í Berlín var kyrrt veður og bjart, en 10 stiga frost var þar á hádegi. í Hamborg var einnig 10 stiga frost. í Vínarborg féll mikill snjór í nótt, og leiddi af því mikla umferðarörðugleika í Brússel var talsvert frost og mikil hálka á götum. Þar var búizt við frekari snjókomu í kvöld. í Stokkhólmi var frost, en himinn heiður og mikið látið af skíðafæri. Frá Amsterdam berast þær fregnir, að mörg þorp í Hol- landi séu einangruð vegna 'snjóa, og hafa mjólkurflutn- ingar víða lazt niður af þeim sökum. Heldur fór kólnandi í veðri þar í kvöld. í C slo var bjart veður og í Norður- Noregi var veður tiltölulegá stillt. Mesta frost í Noregi var 25 stig. í Trysil. Norska veður stofan segir, að desembermán- uður í Noregi hafi verið hinn kaldasti síðan 1915. í Belgrad var rigning í dag, og í Moskvu var 18 stiga frost og í Moskvu er áin í klaka- böndum. Leggur Eyrarsund? Fréttir herma einnig, að kuldarnir í Evrópu séu í þann veginn að loka siglingaleið- um á Eystrasalti og Kattegat og talin er hætta á því, að ísinn muni söðva fiskveiðar úti fyrir vesturströnd Sví- þjóðar. Þeir svartsýnustu ótt- ast einnig, að Eyrarsund muni leggja aftur í ár. í Malmö hef- ur verið opnuð sérstök skrif- stofa til þess að undirbúa gagnráðstafanir, ef sjó heldur áfram að leggja fyrir suður- strönd Svíþjóðar. Talið er þó, að ástandið sé ekki komið á hættulegt stig. ísinn nær nú 5—6 sjómílur út fyrir vestur- ströndina, en er ekki þykkur, og hindrar ekki siglingar haf- skipa að ráði. Hins vegar geng ur fiskibátum erfiðlega og fjöldi báta hætti í dag við að reyna að veiða í Kattegat. Frá Kaupmannahöfn hafa siglt ísbrjótar og sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að flytja matvæli til ýmissa smáeyja. í Kaup- mannahöfn var 14 stiga frost í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.