Morgunblaðið - 03.01.1963, Side 11

Morgunblaðið - 03.01.1963, Side 11
Fimmtudagur 3. janúar 1963 MORCVNBLAÐIÐ H Þessi mynd var tekin frá Vaðlaheiði á nýjársnótt og sýnir flugeldana yfir Akureyrarbæ, þegar nýja árið hélt inngöngu sína. Ljósmynd: K. Hallgr. ElJur I tré- smíðaverk- stæði ■ Eyjum Tjón talið mjög mikið VESTMANNAEYJUM, 2. jan.: — Eldur kom upp um kl. 4,30 í trésmíðaverkstæði Smiðs h.f. við Strandgötu. Húsið er mjög stórt, 2 hæðir og ris. Kom eldurinn upp í lakkher- bergi í rishæð hússins, þar sem geymd eru mjög eldfim lökk. Eldurinn varð mjög magnaður á Isamri stundu. Slökkviliðinu tókst að ráða niS urlögum eldsins á rúmum klukku tíma. Nehru segir baráttunni við Kínverja ekki lokið Aldrei rólegri ára- mót á Akureyri AKUREYRI, 2. jan.: — Áramótin fóru fram í yndislegu veðri á Akureyri, heiðskíru og björtu, en nokkru frosti. Um 20 brennur voru tendraðar víðsvegar á auðum svæðum í bæn um og safnaðist þangað fjö-ldi fólks, einkum börn og unglingar. Á miðnætti var mikið um flug eldaskot og einnig var þá tendr að ártalið 1963 með kyndlum í Vaðlaheiði. Að sögn lögreglunnar eru þetta einhver rólegustu áramót, sem sögur fara af hér. Örfáir ungling ar munu hafa verið teknir með ólöglegar sprengjur eða kínverja, en ölvun var sáralítil og á mið- nætti hafði lögreglan ekki þurft að hafa afskipti af neinum ölvuð um manni. Ekkert var um slys eða árekstra en einn flugeld.ur lenti í gegn um glugga, en skemmdir urðu litlar. — St. E. Sig. Tiltölulega rólegt var hjá lög- reglunni í Hafnarfirði um ára- imótin. Þó urðu nokkur skríls- læti á nýjársnótt eins og verið hefur sl. 4-5 ár, aðallega í fyrra. U-m 50 unglingar á fermingar- aldri söfniuðust saman með há- reysti í miðbænum og uUu ýms- um spjöUum. Skutu þeir alls konar sprengjum í allar áttir, en ekki er vitað til þess, að slys hafi orðið af. Kveikt var í kassa á gatnamótum Linnetsstágs og Strand'götu, og varð að kveðja sl ökikviJiðið á vettvang, til þess að kætfa bálið. öskutunnur voru dregnar út úr húsaportum og Nýársbrenna á Vífilsfelli Á gaml aárskvöld fóru nokkrir Armenningar og menn úr Jökla- fólaginu með Guðmundi Jónas- syni upp á Vífilsfell og héldu þar áramótabrennu. Sumir fóru með Guðmundi úr Reykjavík á tveim ur bílum, en Ánmenningar, sem dvöildust í sikála sínum í Jósetfs- dal, komu á móts við þá. All- bált var að klífa fjallið, en veð- ur með atfbrigðum gott. Þegar upp var komið, var tendraður eldur í olíuvættum hjólbörðum og tveimur sjö mínútna svitf- blysum skotið á lotft. Vörpuðu þau undarlegum bjarma á fjöll- in. — Útsýni var ágætt; sást til Vestmannaeyja, um Suðurnes, niður á Stokkseyri og Eyrar- bakka og upp á Akranes. — Fyr- ir no'kkrum árum var sams kon- ar för íarin á Vífilsfell á nýj- ársnótt, en þá Skali á éL Túnis 2. jan. (NTB) Yfirvöldin í Túnis tilkynntu 1 dag, að bönnuð hefði verið um stundarsakir útgáfa blaðs komimúnistaflokks landsins, 6em gefið er út á arabísku og vinstrisinnaðs blaðs, sem eefið er út á frönsku. Nýju Delhi, 2. jan. (NTB-AP) NEHRU, forsætisráðherra Indlands, sagði á fjöldafundi í Nýju Delhi í dag, að hvorki Indverjar né aðrir mættu líta svo á, að baráttu Indverja við Kínverja væri lokið, þó að vopnahlé hefði verið á landa- mærunum að undanförnu. — Sagði forsætisráðherrann, að Indverjar væru vel á verði og myndu halda áfram að draslinu dreitft á göturnar. 4-5 tonna bátur var dreginn upp úr fjöru og settur fyrir framan Ráð- húsið á Strandgötu, en síðan dreg inn allt suður undir Lækjarbrú. Nokikrum sinnum var ekið á hann, og skemmdist byrðingur- inn nokkuð. Skúli Thoraren- sen látinn SKÚLI THORARENSEN, fyrr- verandi útgerðarmaður og bóndi, lézt aðfaranótt 1. janúar, rúm- lega sjötugur að aldri. Skúli var þekktur útgerðar- maður og starfaði mikið í sam- tökum útgerðarmanna. Hann hafði einnig með höndum um- fangsmikinn búrekstur. vera á verði, þannig að Kín- verjar gætu ekki komið þeim aftur á óvart með árás. Sagði Nehru, að árás Kínverja á Indverja hefði fyrst og fremst skaðað Kínverja sjálfa og kín- verska menningu. Líkti Nehru Asíu við tjörn og sagði, að Kína væri eins og krókódíll, sem lægi í tjörninni og reyndi að gleypa smærri fiska. — Ég er ekki í vafa um það, sagði Nehru, að Indverjar muriu bera sigur af hólmi. Við óskuðum ekki eftir stríði, við vorum neyddir til þess að berjast og við erum reiðubúnir að verja föðurland okkar hvað sem það kann að kosta. Kínverjar hafa misskilið ósk okkar um friðsam- lega sambúð, þeir hafa álitið, að þar sem Indverjar óskuðu eftir friði, myndu þeir láta kúga sig, en það er ekki rétt og tilraunir Kínverja til þess að kúga okkur hafa mistekizt hrapallega, sagði Nehru að lokum. Á GAMLÁRSDAG kl. 1'5 var Bárður Daníelsson, verkfræðing- ur, að fljúga yfir Reykjavík. Skauzt þá flugeldur allt í einu upp rétt til hægri handar við vœng flugvélarinnar. Hefði hann getað kveikt í flugvélinni, af hann befði lent í henni. Bárður Chou En Lai þakkar rikjunum sex Chou En Lai sagði í Peking í dag, að hann vonaði, að Indverj- ar myndu fáanlegir til þess að hefja samningaviðræður við Kín- verja innan skamms. Þakkaði hann Asíu- og Afríkuríkjunum sex, sem komu saman til við- ræðna um landamæradeilu Ind- verja og Kínverja í Colombo í fyrra mánuði. Indónesía var eitt ríkjanna, sem þátt tók í fundinum og nú er Subandrio, utanríkisráðherra Indónesíu, kominn til Peking til þess að ræða niðurstöður Col- ombofundarins við ráðamenn þar. Frú Bandarnaike, forsætis- ráðherra Ceylon, hefur dvalizt í Peking í þrjá daga og átt við- ræður við Pekingstjórnina um niðurstöður Colombofundarins. Engar fréttir hafa borizt af við- ræðunum. lenti sikömmu síðar, og hefur Mbl frétt, að engar einkaflugvélar hafi farið á loft eftir það, vegna þessarar hættu, en annars fljúga einkaflugmenn ekki yfir Reykja vík eftir að Isvölda tekur á gamlárskveld vegna flugelda- hættu. Þessa fallcgu mynd frá áramótunum í Vestmannaeyjum sendi ljósmyndari Morgunblaðsins í Eyj- um, Sigurgeir Jónasson, okkur. Ólæfi / Hafnarfirði Er hægt að skjóta flugvél- ar niður með fluge!dum? Mjög mikið tjón hefur orðið. Þakið er mjög brunnið og hang- ir uppi að einhverju leyti. Einn- ig mun hafa eyðilagst eitthvað af dýrum lökkum, spón, tekki og öðru dýru timbri. Ekki er mönnum kunnugt um, hver eru eldsupptökin. Mikil ölvun í Kópa vogi um áramótin MIKIL ölvun á almannafæri átti sér stað í Kópavogskaupstað nú um áramótin, en engin slys urðú á mönnum, svo teljandi séu. Dansleikur var haldinn í Félags ’heimilinu, og þurfti lögreglan að fjarlægja þaðan nokkra menn en lítil meiðsl urðu á mönnum. — Táragas Framh. af bls. 24. margir ófriðlegir, enda ölvun a?l mikil. Laust fyrir kl. 2 um nótt ina rýmdi lögreglan göturnar í næsta nágrenni stöðvarinnar með táragasi eins og fyrr segir og sveit lögregluþjóna með kylfur fór út úr stöðinni; Ekki kom til neinna átaka, en margir þeirra yngstu, sem þarna voru, hypj- uðu sig þá heim, og varð rólegra á eftir. Upp úr því þynntist hóp- urinn á götunni mikið og ekki dró til neinna tíðinda eftir það. Frá kl. 8 á gamlárskvöld til kl. 6 morguninn eftir skrifaði lö'g- reglan 70 skýrslur um ölvun. Voru 38 teknir í vörzlu, en 32 var ekið heim til sín. Milli kl. 6 og 8 að morgni nýársdags var lögreglan svo kvödd til 8 heim- ila í bænum til þess að binda endi á slagsmál og jafna ágreining, sem upp hafði komið meðal fólks sem enn sat þá við drykkju. Frá morgni gamlársdags til morguns nýársdags leituðu 150 manns aðstoðar á slysavarðstof- unni. Um kvöldið var þar lög- regluþjónn á vakt til að halda uppi lögum og reglu í biðstof- unni, því meirihluti þeirra, sem þá komu þangað, var undir áhrif um áfengis, misjafnlega milkið. Var gert að tveimur fótbrotum og einu handleggsbroti um kvöldið og í öll skiptin var um ölvað fólk að ræða. Tvær sprengingar í miðbænum á gamlárskvöld voru áberandi mestar. Önnur sprakk á horninu við Reykjavíkurapótek og fékk ungur piltur málmflís úr sprengj unni í fótlegg sinn. Var gert að sárinu í Slysavarðstofunni. All- margir brenndust og hlutu meiðsl af völdum kínverja og smyglaðra og heimatilbúinna, blysa og flug elda. Þá bar það til tíðinda að morgni nýársdags, um kl. 7, að hringt var til lögreglunnar innan úr Efstasundi og gert viðvart um mann, sem sást þar utan dyra — og skaut sá úr riffli. Þegar lög- regluþjónar komu á staðinn voru þrir vegfarendur búnir að ná af honum rifflinum, héldu mannin- um og biðu hjálpar. Hafði mann inum ekki unnizt tími til að vinna neitt tjón, hafði þó skotið nokkrum skotum upp í loftið. Tók lögreglan bæði manninn og vopn ið í sína vörzlu. Þetta var það helzta, sem gerð ist, sagði Erlingur Pálsson. Þetta var 43. gamlárskvöldið, sem ér er með lögreglunni — og ég man ekki svona gott veður á gamlárs- kvöld, sem nú. Mjög fátt fólk var líka úti við í miðbænum miðað við það, sem áður var — og eru það fyrst og fremst brennurnar, í úthverfunum, sem því valda. En fólk spyr gjarnan um ólæti í miðbænum — og maður hefur á tilfinningunni, að almennt telji fólk það eina verkefni lögregl- unnar á gamlárskvöld að hafa auga með óróáseggjum í Austur- stræti. En þetta er aðeins brot af okkar verksviði. Það er nú orðið svo stórt og umfangsmikið, að lögreglan er orðin of fámenn. Lög reglunni er ætlað að sinna öllu milli himins og jarðar og við þurfum því meiri mannafla. Við þyrftum líka að geta launað þá betur, annars fáum við ekki góða menn, sagði Erlingur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.