Morgunblaðið - 03.01.1963, Síða 13

Morgunblaðið - 03.01.1963, Síða 13
Fimmtudagur 3. JaníSar 1963 MORCTllKBLAÐIÐ 13 Ár mestu velsældur íslenzku þjóðurinnur Áramótaræða Ölafs Thors, forsætisraðherra ÓVÍÐA eru stjórnmálin jafn ofarlega á baugi meðal almenn- ings sem hér á landi. Kr ekki nema gott eitt um það að segja ijafn mikið sem á veltur fyrir þjóðfélagsþegnana, að vel og vit- urlega sé á þeim haldið. Þessi mikli áhugi leiðir þó oft til öfga. Oannig eru stjórnmálamennirn- ir ýmist gerðir að ofurmennum, sem ekki mega vamm sitt vita, að öðru leyti en þá helzt því, að vera hæfilega hlutdrægir fylgi- fiskum áínum til framdráttar, eða þá hins vegar taldir mein- gallaðir valdastreitu- eða jafn- vel misindismenn, sem í engu megi treysta. Fer þá oftast eftir (því, hvort menn lýsa sánum mönn um eða andstæðingunum. Milli þessara öfga eru helzt þeir, sem lítill slægur þykir í. Meðal ann- ars af þessum ástæðum er það stjórnmálamönnum hollt að temja sér snemma að láta sig lofið jafnt sem lastið litlu skipta. Hitt væri svo áreiðanlega til mikilla bóta, að allir, sem við opinber mál fást, reyndu að verðskulda að um þá mætti segja svipað því, sem merkur erlendur blaðamað- ur nýlega sagði við mig um blað sitt, en ummæli hans voru eitt- (hvað á þessa leið: „Auðvitað hefur blað mitt ekki ævinlega á réttu að standa, en það segir aldrei annað en það, sem það veit sannast og réttast“. • Með þessu fororði ætla ég að leitast yið að svara þeirri spurn- ingu, sem mörgum er nú efst í huga. Hefur viðreisnin tekizt eða ek:?i? Ég leiði að þessu sinni hjá mér að rökstyðja það, sem flest- ir, sem með stjórttmálum fylgj- ast, þó vita að er mín skoðun, að þegar núverandi stjórn tók við völdum stóðu sakir í efna- hagsmálum íslendinga þannig, að ekkert vit var í að freista ann- arra úrræða en þeirra, sem til var gripið. Ég skal heldur ekki að þessu sinni skipta sökinni á því að svo var komið sem kom- ið var, milli flokka og manna, ftxeldur láta nægja að segja, að af þvi getur enginn flokkanna og heldur enginn þeirra manna, isem stýrt hafa förinni hviítþvegið Ihendur sínar, enda þótt hvatir manna, kunni að hafa verið ólík- ar Og sakir séu misstórar. Ég ætla engan að hefja til skýj- anna, og heldur engan að sak- fella, heldur aðeins að reyna að varpa Ijósi á þetta flókna mál, rannsaka þau gögn, sem nú liggja fyrir, og athuga, hvort ekki megi draga ályktanir af reynslunni, sem verða mætti að liði í fram- tíðinni. • ■ Ég skal strax kveða upp úr með það, að í vissum aðalefnum (hefur viðreisnin tekizt betur en björtustu vonir stóðu til. Hins vegar játa ég hispurslaust, að enn hefur ekki tekizt að ráða niðurlögum verðbólgunnar, enda þótt rétt sé, að þjóðin standi í dag betur að vígi en fyrir þrem- ur árum til að fást við hana. En takist ekki að sigrast á verð- (bólgrmni, gleypir hún fyrr eða síðar ávexti þess, sem bezt hefur tekizt .Er þá unnið fyrir gýg, og beinn voði fyrir höndum. • Um það sem bezt hefur farið ur hendi, minni ég á örfáar töl- ur, sem segja meira en mörg orð. Á ég þar við gjaldeyrisstöðu bankanna og sparifjáreignir lands manna. Þegiar viðreisnin bófst var það eitt þyngsta áhyggjuefni manna, að ísland myndi þá og þegar lenda í greiðslulþrotum, þjóðinni til skammar og skaða. Bankarnir skulduðu þá erlend- is 216 millj. króna. Um síðustu mánaðamót var þessi skuld greidd að fullu, en í stað hennar komin 1010 millj. kr. inneign. Gjaldeyrisstaðan hef- ur þannig batnað um hvorki meira né minna en 1226 millj. kr. frá upphafi viðreisnarinnar. Þetta segir sína sögu. Hér sem víðar eru peningamir afl þeirra hluta, sem gera skal. Það er þessi bætti hagur þjóðarinnar í við- skiptunum við útlönd, sem því ræður, að innflutningsverzlunin er nú frjáls með þeim einu tak- mörkunum, sem leiða'af viðskipt unum við jafnkeypislöndin, og það er láka þessu breytta andliti út á við, sem við eigum það að þakka, að fjárhirzlur umheims- ins hafa opnazt íslendigum að nýju, eftir margra ára bið okkar utan dyra. Þarf ekki að fjölyrða um, hver fengur lánstraustið er fámennri þjóð, sem á sér jafn- mörg óleyst verkefni og jafn rík- ar ónotaðar auðlindir, sem ís- lendingar eiga. • Varðandi spariféð, — hið ytra tákn um mátt þjóðarinnar til að fást við ný verkefni, — get ég þess, að í febrúarlok 1960 námu allar innistæður landsmanna í bönkum og sparisjóðum landsins 1825 millj. króna. Þær voru um síðustu mánaðamót 3287 millj. króna. Aukningin er þannig 1462 millj. króna, eða með öðrum orð- um, íslendingar hafa frá upphafi viðreisnarinnar aukið spariféð sitt um nærri því jafn háa upp- hæð, eins og þeir áður höfðu nurl að saman frá landnámstíð og fram á þennan dag. • Hvað þessa höfuðþætti áhrær- ir, tala staðreyndirnar enga tæpitungu. Fram að þessu er sú saga miklu skemmtilegri en leyfilegt var að vænta. íslending- ar mega ekki láta sögulokin verða sorgleg, en í þeim efnum ræður þjóðin sjálf mestu, enda þótt aflabrögð, * verzlunarárferði og fleira komi þar líka við sögu. • Ég kem þá að hinni óráðnu gátu, þ.e.a.s. hvort takast megi að stöðva sig á þeirri ðheilla- braut sífelldra hækkana kaup- gjalds og verðlags á víxl, sem við höfum búið við síðustu tvo áratugina. Þetta er hin mikla spurning. Er hægt að stöðva sig eða er það ekki hægt? Á því veltur mikið og meira en hér skal rakið. • Þegar rætt er um verðbólguna manna á meðal, kveður alltaf við sama tóninn, að við séum á villigötum. En nú spyr ég; úr því að allir virðast sammála um þetta megin- atriði, hvernig stendur þá á því, að vaðið er áfram í villu og svíma. Já, í villu og svíma. Er það nú ekki einmitt svarið? Er ekki á- stæðan fyrir því, að menn stöðva sig ekiki á þessari óheillabraut, einmitt sú, að reynslan er ekki spurð ráða? Sama sagan hefur endurtekið sig æ ofan í æ. Allir, sem öðluð- ust trúnað launþega, hafa sett metnað sinn í að gera sem hæst- ar kröfur á hendur atvinnurek- endum. Atvinnurekendur svara oftast því sama, að þeir séu einskis megnugir. Þá er leitað til ríkisins, um greiðslu af almanna- fé á því, sem á milli ber. Stund- um hefur það verið gert, en stund um ekki. Oft er þá beitt verk- fallsvopninu, og venjulega éru sögulokin hin sömu, kauphækk- anir í einu formi eða öðru, fyrst ein stéttin, síðan fylgja allar hin- ar í kjölfarið. Oftast leiðir þetta kjarabætur án blóðtöku verkfalla og þverrandi gildis gjaldmiðils- ins. Við skulum leita svars í þeim gögnum, sem við nú höfum eign azt um reynslu okkar sjálfra í þessum efnum. Það vill nú þannig til, að á því ári, sem nú er að enda, hafa í fyrsta sinni verið birtar ítar- legar skýrslur um þróun þjóðar- búskaparins á árunum 1945-1960 Eru þessar skýrslur birtar 1 riti svo fljótlega til lækkunar á gengi krónunnar, hvort sem það er við- urkennt með formlegri breytingu strax eða ekki. Þá étur hækkað verðlag strax alla kauphækkun- ina, og þá sjá allir, að til einskis var barizt. Menn fá einungis fleiri og smærri krónur. Laun- þegar eru þá að engu bættari. Ekkert hefur skeð annað en, að sá skuldugi hefur hagnazt en sparifjáreigendur tapað. • En svo kemur fyrir, að kaup- hækkanirnar leiða ekki til gengis fellingar og þá hækkar verðlagið minna en kaupið, þannig að laun þegarnir fá einhverjar raunhæfar kjarabætur. Þetta ruglar menn í ríminu, og hvetur að órannsök uðu máli til að tefla djarft í kaupkröfunum. Ný sókn er hafin. í þetta skipti leiðir hún kannski eingöngu til nýrrar gengislækk- unar, og hefur þá sigur kröfu- gerðarmanna enn einu sinni snú- izt upp í ósigur krónunnar, þvert gegn þeirra eigin vilja. Þannig gengur þetta skref af skrefi og alltaf minnkar krónan með öllum þeim geysialvarlegu afleiðingum og óréttlæti, sem það hefur í för með sér, og hér skal ekki rakið. • Nú vaknar sú spurning, hvort ekki sé mögulegt að tryggja laun 1 þegunum ítrustu raun/hæfar Framkvæmdabanka íslands „Úr þjóðarbúskapnum“ og sýna þró- un þjóðarframleiðslu, þjóðar- tekna, neyzlu og fjárfestingar á þessu tímabili. Bráðabirgðaút- reikningar, sem ennþá hafa ekki verið birtir, hafa einnig verið gerðir fyrir árin 1961 og 1962, þannig að yfirlit er nú til um allt timabilið eftir styrjöldina. í þessum skýrslum felst mikill og margvíslégur fróðleikur, sem hægt er að draga margvíslegar, gagnlegar ályktanir af. Þar má meðal annars sjá eftir hvaða leið um viðreisnin hefur náð jákvæð um árangri á ýmsum sviðum, og einnig gefa þær ýmsar bending- ar um framtíðina. Ég get ekki gert svo miklu máli skil að þessu sinni, en ræði það eitt, sem varp ar Ijósi á þá spurningu, er ég áð an bar fram. • Sú uppbygging atvinnulífsins, sem framkvæmd var í styrjaldar lokin og fyrst eftir styrjöldina, reyndist ekki nægileg til þess að viðhalda þeim þjóðartekjum, sem náðst höfðu á styrjaldarárunum og því síður til að auka þær. Staf aði þetta af tvennum ástæðum: I fyrsta lagi var mikið afla- leysi á árunum 1949—1952. í öðru lagi féllu íslenzkar út- flutningsafurðir í verði, jafn- framt því sem verðlag á inn- flutningsvörunum hækkaði. Af- leiðingin varð sú, að á árinu 1952 hafði hrein þjóðarframleiðsla ekk ert aukist frá því sem hún hafði verið 1945. Þjóðinni hafði hinsveg ar fjölgað verulega á þessum ár- um og kom þess vegna minna í hlut hvers og eins, — þjóðarfram leiðslan á mann hafði lækkað um nærri 14%. Slæmt verzlunarár- ferði varð þess svo valdandi að verðmæti þjóðarframleiðslunnar þjóðartekjunar voru um 19% lægri á mann en 1945. Á árinu 1953 verða tímamót. Þá uxu bæði þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur mikið, og hefur sú þróun haldið áfram síðan, fyrst með miklum hraða, síðan' hægara. Árið 1962 verða þjóðar- tekjur á mann orðnar 21% hærri en þær höfðu verði árið 1945, og 5% 'hærri en þær höfðu verið árið 1958. Það er því óhætt að fullyrða það, sem raunar hver maður, sem hér þekkir til, getur sannfærzt um með eigin augum, að velmeg un íslezku þjóðarinnar hefur aldrei verið meiri en hún er nú. • En þá mun verða spurt, hvort þetta þýði það, að velmegun al- mennings á íslandi hafi aldrei verið meiri. Hvort það geti ekki verið, að aukning þjóðartekn- anna hafi fyrst og fremst lent hjá atvinnufyrirtækjunum eða ein- iwerjum tiltölulega litlum hópi manna, og kjör alls almennings (hiafi versnað, eða að minnsta kosti ekki batnað. Við þessari spumingu er ekki hægt að finna svar í þeim út- reikningum Framkvæmdabank- ans, sem ég hef gert grein fyrir. Á hinn bóginn eru til athuganir á meðaltekjum kvæntra manna í helztu launastéttum landsins, þ.e. verkamanna, iðnaðarmanna og sjómanna. Þessar athuganir eru •byggðar á skattaframtölum og ná til áranna 1948—1961. Þær sýna, að atvinnutekjur hafa fylgt þjóðartekjunum á mann mjög náið. Þær hafa hækkað þeg ar þjóðartekjurnar hafa hækk- að ,og nokkurn veginn í sama hlutfalli, sem þýðir þó að sjálf- sögðu ekki, að kjör einstakra hópa innan launastéttanna hafi ekki getað breytzt verulega í samanburði við aðra hópa. Þetta er sá lærdómur, sem lesa má út úr okkar eigin skýrslum um þróun þjóðarbúskapar okkar frá stríðslokum, og sömu sögu segir reynsla annarra þjóða. Það er vöxtur þjóðarteknanna sem meginmáli skiptir fyrir lífs kjör almennings í landinu. • Þetta er kjarni málsins. Af því leiðir, að athygli beinist að því, hvernig hver einstakling ur geti stuðlað að því, sem bezt, að sá vöxtur verði sem mestur. Hvernig samtök launþega og at- vinnurekenda geti stuðlað að þessu sama, og hvað ríkisvaldið sjálft getur gert. Það er mín skoðun, að fram- bak, þekking og dugnaður hvers einstaklings skipti mestu máli í þessum efnum, þegar allt kemur til alls. En hinu má þó ekki gleyma, að samtökin og ríkisvald ið skapa einstaklingnum þau skil yrði, sem hann starfar við. Þessi skilyrði geta verið þess eðliá, að einstaklingurinn, hvort sem hann er atvinnurekandi eða launiþegi, fái notið sín sem bezt, og starf hans verði öllum til sem mestra heilla. En skilyrðin geta líka ver ið þannig, að einstaklingurinn fái ekki notið sín og starfsemi hans beinist í þær áttir, sem eru þjóðarheildinni síður heillavæn- legar. Mig langar til að atihuga í þessu ljósi nokkuð nánar stefnu og að- gerðir bæði hagsmunasamtak- anna og ríkisvaldsins á undanförn um árum, og vil þá fyrst minnast á hagsmunasamtökin. Þessi sam tök standa árlega í samningum sín á milli og viðræðum og samn ingum við ríkisvaldið. Ef þessir samningar og viðræður fjölluðu um það, hvað væri hægt að gera til að greiða fyrir aukningu fram leiðslunnar, þannig að grund- völlur skapist fyrir sem mestum bata lífskjaranna, þá væri ekki Framh. á bls 14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.