Morgunblaðið - 13.01.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.01.1963, Blaðsíða 10
10 MOnCUNBZlBIB Sunnudagur 13. Januar 1963 1 NUNNAN KVIKMYNDIN „Nunnan", sem byggð er á samnefr bók eftir Kathryn Hulme, er sýnd í Austurbæjarbíói þessar mundir. Hróður kvikmyndarinnar barst til ís- lands löngu áður en hún var tekin til sýningar hér, hefur mikið verið um hana rætt á erlendri grund. má geta, að aðalleifckonan, Audrey Hepbxmi, telur sig aldrei hafa sýnt betri leik en þegar hún fór með verk nunnunnar. Klausturlif er lítt þekkt fyrirbrigði hér á landi og horfendur hafa því að vonum rætt mjög um kvikmyndarinnar. Sýnist þar sitt hverjum. Kom glöggt fram í samtölum, sem blaöamaður Morgunblaðs- ins átti við nofckrar tmgar stúlkur, sem flestar eru meyjar í menntastofnunum borgarinnar. Og .við gefum stúlkunum orðið: Hjartasorg lœknast Úr einu atriöi kvikmynðarinnar. Systir Luke bíður þess að hár færð í búning klaustursins. hennar verði klippt og hún ekki í klaustrum Kristín Waage, Rauðalæk 44, nemandi í 5. bekk Mennta- skólans: — Mér finnst kvikmyn^in mæla gegn klausturlífi og sjón armið læknisins aðalboðskap- ur hennar. En mér þótti húin vönduð og vel gerð, kannski ekki sú albezta sem ég hef séð, en þarna er ekki um að ræða glansmynd í sama dúr og rándýru bibilíumynd- imar, sem eiga að vera góðar vegna þess hve upptakan var dýr, en reynast ekki fimm aura virði. Ég verð að segja eins og er, að ég get ekki ímyndað mér að það sé guði þóknan- legt að lifa slíku lífi, sýna al- gert viljaleysi og auðmýkt. Myndin sýnir nunnurnar nán- ast sem skorkvikindi. Er ekki laust við að mér finnist regl- an að sumu leyti byggð á hreinum sadisma. Þótt þetta sé mín skoðun, er ekki þar með sagt, að hún sé rétt, og ég veit að margir eru á gagnstæðri skoðun, annars myndi enginn ganga þessa braut. Einhvern tíma hef ég heyrt því fleygt fram, að_ klausturslíf sé þægilegt líf, eins og það er kallað, ekkert veraldarvafstur, svo sem skattaáhyggjur, brauðstrit o.s.frv. Einnig hef ég líka ein- hvers staðar heyrt eða lesið, að þýðingarlaust sé að ganga í klaustur vegna hjartasorgar; það er óþarfi að flýja lífið vegna mæðu sem læknast af sjálfu sér — í flestum tilfell- um. Já, mér þykir þetta undar- legt líf, mjög undarlegt. Það mætti mikið ganga á svo ég gengi í klaustur. Erfiðast fynd ist mér að mega ekki hugsa sjálfstæða hugsun, eiga ekkert stolt og þurfa að auðmýkja mig sí og æ. Svo ætti ég erf- itt með að hafa taumhald á tungunni. En myndin töfrar fram hugs anir, sem fram til þessa hafa ekki þjakað hugann. Er guði þóknanlegra að liggja á bæn en láta eitthvað gott af sér leiða, t. d. hjúrkun, sem var æðsta köllun aðalpersón- unnar í myndinni? Til dæmis held ég að þær konur, sem eignast mörg böm (einhverjar verða að sjálfsögðu að halda við mannkyninu) hugsa vel um sín störf og eru góðar manneskjur, hljóti að finna náð hjá guði, þó þær liggi ekki alltaf á bæn og láti það trufla störf sín. Ég skil ekki hvers vegna stúlkan lærði ekki einfaldlega hjúkrunarstörf, þar sem hún virtist ekki vel fallin til bæna halds, en kannski hefur það ekki verið svona einfalt í þá daga. Það kemur glöggt fram, að hún finnur að nunnulífið er sjálfsblekking, faðir henn- ar og systkini finna það líka, en þau geta ekkert gert. Nunnumar, góðar og mildar, reyna að halda henni í klaustr inu, þó þær viti um baráttu hennar. Það vakti athygli mína, að abbadísin tárast, þegar nunnan yfirgefur klaustrið — af hvaða orsök- um? Kannski grætur hún yfir því að missa sál og góðan starfskraft, eða hún finnur að stúlkan er að gera rétt. Það öðlast ekki allir eilífan frið, sem sverja klaustursheitið. Tvö atriði kvikmyndarinnar snertu strengi mannúðarinnar í mér, það var atriðið í geð- veikrahælinu og holdsveikra- nýlendunni. Þau vom' afskap- lega vel og eðlilega tekin og ekki þröngvað upp á áhorf- endur, en engu að síður komst enginn hjá að sjá þau. Ósjálf- rátt hugsaði ég til Ben Hur kvikmyndarinnar, sem sýnd var hér ekki alls fyrir löngu; þar komu einnig fram holds- veikir menn. Þegar ég horfði á þá var ég að velta því fyrir mér, hvemig þeir fæm að smínka sig og þess háttar — atriðið snerti mig sem . sagt ekki. En ég þjáðist allt að því með, þegar ég horfði á atrið- ið á geðveikrahælinu og spurði sjálfa mig, hvort þarna væri ekki viðfangsefni að að glíma við. Eins og ég tók fram í upp- hafi, fannst mér myndin vel gerð og leikurinn afburðagóð- ur. Þetta er í annað sinn sem ég sé hana, í fyrra skiptið úti í London fyrir þremur árum, og spillti það ekkert ánægj- unni af áð sjá hana aftur. Kvikmyndin hlýtur að vekja alla til umhugsunar um líf, sem flestir hafa tiltölulega lítið hugsað um, að minnsta kosti hér á landi og í öðmm löndum mótmæ’-«ndatrúar. Klausturlíf ekki óeðli- legra en listamannalíf Auður Pétursdóttir, Laugar- nesveg 108, nemandi í 5. bekk Menntaskólans. — Þú ert guði þóknanlegur, ef þú rækir starf þitt vel, er aðalboðskapur myndarinnar, að mínu áliti. Ég er sannfærð um, að trúin veitir æðri styrk til starfa. Þar með er ekki sagt að viðkomandi þurfi endilega að ganga í klaustur eða vinna líknarstörf, þetta gildir jafnt um góða húsmóður, lögfræð- j.ng, jafnvel góða blaðamenn. Vinna samfara trúarstyrk hlýt ur að vera árangursríkari en ella, þó aðeins ef trúin er einlæg. Ég gæti vel hugsað mér að dvelja í klaustri um stundar- sakir og þroska mig andlega. Ég tel það mjög gagnlegt fyrri hvern og einn að dvelja með hugsunum sínum í einrúmi við og við. Sumir geta ekki án þess verið, þar á meðal ég. Og ekkert finnst mér klaustur líf óeðlilegra en t. d. lista- .mannalíf, eins og það birtist okkur í nútíð og forstíð; öfg- arnar eru þær sömu. En það hæfir ekki öllum. Hins vegar er mér það Ijóst, að klausturlíf er að mörgu leyti flótti frá lífinu, sumar flýja frá veraldlegum hörm- ungum, aðrar frá syndum sín- um og enn aðrar njóta þess að kvelja sig. Súru stundirnar eru oft sætastar eftir á, stend- ur einhvers staðar. Það er vitað mál að margir hafa mikla ánægju af því að þjást, og stundum gengur það brjál- æði næst. Því fólki geta klaustrin oft hjálpað. En stúlkur, sem ganga í klaustur, verða að hafa sér- staka skapgerð, sjálfsafneitun- in hlýtur að vera geysileg og þær verða að vera nógu sterk- ar til að láta ekki undan freist ingum umheimsins. Til þess að verða góðar nunnur verða þær að hafa köllun til þess, geta sætt sig við skilyrðis- lausa hlýðni og auðmýkt og fúsar til að varpa frá sér öll- um persónuleika. En svo við snúum okkur aftur að kvikmyndinni. Hún er einhver stórbrotnasta mynd sem ég hef séð til þessa, að undantekinni kvikmyndinni „King of Kings“, sem ég sá í Bandaríkjunum í fyrra. Kvik myndaframleiðendur ryðja sér nú braut inn á sögusvið biblíunnar í æ ríkara mæli og kvikmynda stórkostlegar sagn ir, sem þar er að finna. Mér finn aðalatriði myndar- innar ekki eingöngu hið erfiða og stranga líf nunnanna miklu fremur sýnir hún, að menn eiga að bera elsku til hvors annars og sýna öðrum skilning og samúð. Ég er t. d. ekki viss um, að Fortunati læknir hafi verið eins mikill trúleysingi og kom fram i myndinni, það er margt sem bendir til hins gagnstæða. En hann fékk nunnuna til að við- urkenna sannleikann um sjálfa sig: að hún væri of stolt, eins og faðir hennar, til að verða fullkomin ntmna, hún hugsaði of sjálfstætt og gæti ekki sýnt skilyrðislausa hlýðni. Hann á mikinn þátt í að systir Luke gat ekki stað- izt klausturlífið til lengdar. Ytri ven’,ur klaustur■ lifs koma aðeins fram Margrét Hansen, starfsstúlka á Ferðaskrifstofunni Sögu: — Ég hefi ekki lesið skáld- sögu Kathryn Hulme „Nunn- una“, sem byggð er á ævisögu „Systur Luke“. Hinsvegar er haft eftir söguhetjunni — sem enn er á lífi — í blaðaviðtali, að henni hafi þótt bókin bera þess vott, að höfundur hennar hafði ekki sjálfur kaþólskt við horf, og leitaði hún því um- sagnar sérfróðra manna um það, að ekki væri farið rangt með staðreyndir varðandi ýmiss atriði í klausturlífinu, áður en hún gaf leyfi til að gefa bókina út. — Þess má geta, að Kathryn Hulme hefur nú tekið kaþólska trú. Ég geri því ráð fyrir, að í bókinni sé ekki farið beinlínis með rangt mál, en hinsvegar verður að hafa í huga, að hér er um að ræða skáldsögu en ekki nákvæma ævisögu. Það sama er að segja um kvikmynd Zinnemanns, að því er mér virðist. Hann dreg- ur upp ágæta mynd af sálar- baráttu ungrar stúlku, sem reynir að beygja sig undir hinn stranga klausturaga, en gefst upp eftir margra ára klausturvist. Myndin greinir vel frá ýmsum ytri venjum klausturlífsins og er að þvi leyti fróðleg. Hún er vel gerð, hvergi væmin eða ósmekkleg, og virðist því í fljótu bragði sannfærandi. 0i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.