Morgunblaðið - 13.01.1963, Page 11
Sunnudagur 13. Janúar 1963
M OnGJlWntA&lÐ
11
1 >essvegna er haett við, að
margir, sem ekki hafa neina
þekkingu af eðli klausturlífs-
ins, fái rangar hugmyndir um
það, er þeir sjá þessa mynd,
þar sem hún leggur mjög ríka
áherzlu á það neikvæða, án
þess að gera hinu jákvæða-
nægileg skiL
— í>að vill svo til, að mér
hlotnaðist nýlega erlendis að
sjá aðra mynd um klaustur-
líf — „The Dialogue og the
Carmelites", Sú mynd er gerð
af leikstjóranum Philippe
Agostini með aðstoð Dominik-
anaprestsins og rithöfundar-
ins Bruckberger, eftir hand-
riti franska skáldsins George
Bernanos; hlaut hún „Grand
Prix“ á kvikmyndahátið í
Cannes og mikið lof gagnrýn
enda, mótmælaenda sem
kaþóiskra. Hún skýrir á raun-
sæan hátt frá daglegu lífi 17
Karmelsystra, gleði þeirra og
sorgum, gamni og alvöru. í>ar
er hvergi sneitt framhjá erfið-
leikunum, en þeir eru skoðað-
ir ljósi þeirrar trúarsannfær-
ingar og köllunar, sem gefur
mönnum styrk til að horfast
í augu við þá. — Vildi ég óska,
að landar minir fengju þráð-
lega tækifæri til að sjá þá
mynd og bera hana saman við
„Nunnuna'*.
nunnanna
ekki minna en okkar
Svanhildur Sigurðardóttir,
Ægissíðu 26, nemandi 4. bekkj
ar verzlunardeildar Hagaskól-
ans:
— Kvikmyndin er heillandi,
©g get ég ekkert sagt annað en
fallegt og gott um hana, sér-
staklega hreif hin mikla fórn-
arlund ungu nunnunnar mig.
Ég hef nú ekki mikið velt því
fyrir mér hvernig klausturlífið
væri í raun og veru, en þó
datt mér aldrei í hug að regl-
urnar væru jafn strangar og
kom fram í kvikmyndinni.
Áhrifamestu atriðin voru,
að minum dómi, þegar aðal-
persónan var að taka ákvarð-
anir. í>að voru hinar stóru
stundir. Persónulega er ég
þeirrar skoðunar að það krefj-
ist mikillar sjálfsafneitunar að
gerast nunna og ekki á allra
færi. Mér finnst skiljanlegra,
að þeir sem verða fyrir miklu
áfalli í lífinu, leiti sér hugg-
unar í klaustrum en þeir, sem
lífið brosir við. Það er galli
á myndinni, að fortíð stúlk-
unnar, áður en hún gekk í
klaustrið, var ekki rakin; þá
hefðu ákvarðanir hennar
kannski verið skiljanlegri.
í>ú spurðir, hvort ég geti
hugsað mér að ganga f klaust-
ur. Þeirri spumingu svara ég
neitandi sennilega af því ég
hef ekki verið alin upp til
þess. Ég yrði að sjálfsögðu
hissa, ef móðir mín tæki upp
á því að banna mér að drekka
vatn milli mála og krefðist
þess, að ég ásakaði mig í tíma
og ótíma fyrir smáyfirsjónir,
en ef ég hefði verið vanin við
það, geri ég ráð fyrir að mér
þætti það eðlilegt. Ég hugsa
að það sé hægt að venjast
klaustursreglunum eins og
öllum öðrum lífslögmálum,
sem við búum við.
En eitt er ég sannfærð um
eftir að hafa séð þessa mynd,
og það er að stúlkur, sem
ganga í klaustur, eiga ekki í
minna sálarstríði en við, sem
fyrir utan múrana stöndum,
nema síður sé.
Rangt að brjóta
lögmál náttúrunnar
Krsitín Sveinsdóttir, Hagamel
2, nemandi í 3. bekk Verzl-
unarskólans:
Kvikmyndin „Nunnan“, sem
um þessar myndir er sýnd í
Austurbæjarbíói, er góð í heild
sinni fremur langdregin, eink-
um fyrri hlutinn, en til þess
að skilja ástæðuna fyrir því,
að systir Luke sagði sig úr
reglunni verður hann að vera
svona ítarlegur.
Um klausturlífið hafði ég
gert mér litlar hugmyndir,
áður en ég sá myndina, en
taldi, að þangað leitaði eink-
um fólk, sem þörf hefði fyrir
einveru af sálrænum orsökum
eða þá fólk, sem einhverra
hluta vegna vildi leggja á sig
refsingu með því að ganga í
kl&ustur.
Til þess að vera fær um
•ð geta lifað hinu stranga
klausturlífi tel ég, að mann-
eskjan þurfi að vera guð-
hrædd og gædd miklum and-
legum styrk og þrautseigju.
Það er hægar sagt en gert að
segja skilið við öll þau lífs-
þægindi, sem manneskjan hef-
ur vanizt.
Nunnurnar virtust mér
óhugnanlega ópersónulegar og
allt að því ómannlegar. Að
inniloka sjálfan sig og drepa
þannig hluta sálar sinnar tel
ég algjörlega rangt. Maðurinn
er félagslyndasta veran á jörð
unni og þess vegna mundi ég
segja, að þetta væri að brjóta
lögmál náttúrunnar — lífsins.
Nokkuð fannst mér vanta
á að taka myndarinnar væri
nógu áhrifarífc, t. d. þegar
nunnan vinnur heit sín, sem
eiga þó að vera það mikil-
vægasta.
Somkomni
Hjálpræðisherinn.
Sunnudagur kl. 11, helg-
unarsamkoma. Kapt Andréa-
sen talar.
Sunnudagaskóli kl. 2. kl. 8,30
hjálpræðissamkoma. Ofursti
Jansson talar. Mánudag kl. 4.
Heimilasambandið. Norsk
foreining hjá deildarstjóran-
um Hringbraut 37, miðviku-
daginn kl. 8,30.
Velkomin.
Fíladelfía.
Almenn samkoma kl. 8,30.
Æskufólk talar: 5 stúlkur og
5 piltar. 2 stúlkur hafa sam-
leik á fiðlur. Einsöngur, tví-
söngur.
Allir velkomnir.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 63. og 65. tbl. Lögbirtingablaðsins
1962, á hluta í húseigninni nr. 31 við Skaftahlíð, hér
í borg, eign Guðbjargar Guðmundsdóttur, fer fram eftir
kröfu Hafþórs Guðmundssonar hrl. á eigninni sjálfri
fimtudaginn 17. janúar 1963, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Hárgreiðslustofa
í fullum gangi til sölu. Hárgreiðslustofan er á góðum
stað við Laugaveg. Þeir sem hafa áhuga á málinu,
gjöri svo vel og leggi nafn sitt inn á afgreiðslu
blaðsins merkt: „Hárgreiðslustofa — 3884“.
HANSA-glugga
tjöldin
eru frá:
Opið alla daga
Kalt borð með úrvals
réttum á hádegi í dag.
héUl 5A^A
BÍLAR!
Höfum kaupendur á biðlista
að nýjum og nýlegum bílum.
[HAHSAÍ
Laugavegi 176. Sími 3-52-52.
Camla bílasalan
Rauðará, (Skúlagötu 55)
Sími 15812.
Enn er því tœkifœri til að gera
góð kaup í Cuðrúnarbúð
á Klapparstígnum
Og svo til þess að þóknast viðskiptamönnum
er gefinn
af öllum nýjum vörum í búðinn.
— Það er stór verzlunardagur á mánudaginn. —
er á Klapparstíg 27.