Morgunblaðið - 13.01.1963, Blaðsíða 20
20
MOKCUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 13. januar 1963
PATRICIA WENTWORTH: »
MAUD SILVER
KPMIIB I HEIMSÓKN
Henry jánkaði þessu. — Nei,
það er hann sennilega ekki.
Hann virðist hafa grætt mikið.
Það er mynd af honum í ein-
hverju blaðinu. Hann kveðst
vera nýbúinn að hrinda af stað
einhvrju gróðafyrirtæki. Ég verð
að athuga, hvort ég get haft
nokkuð út úr honum í orgelsjóð-
inn okkar.
Hurðin skall í á eftir honum,
en þessir hurðaskellir voru einn
af þeim ávönum Henrys, sem
minntu síður á engil en eitthvað
annað, — en einmitt í sama vet-
fangi hringdi síminn inni í borð-
stofunni. Um leið og Rietta fór
til að svara í símann, tók hún
eftir, að Carr rétti út höndina,
til að ná í eitt myndablaðið.
Hún lokaði hurðinni, tók sím-
ann og heyrði röddina í Katrínu,
ráma og skjálfandi.
— Er þetta þú, Rietta?
— Já. Hvað er að? Það er eins
og þú....
— Ef það væri nú ekki annað
en það.... Hún þagnaði, eins og
tekið væri fyrir kverkar henni.
— Hvað er að, Katrín?
Hún var farin að verða alvar-
lega hrædd. Þetta var svo gjör-
ólíkt Katrínu. Hún hafði þekkt
hana í meira en fjörutíu ár og
aldrei hitt á hana svona. Þegar
eitthvað var í ólagi, var Katrín
vön að láta það eins og vind um
eyru þjóta. Jafnvel dauði Ed-
wards Welby hafði í hennar aug-
um verið ónærgætnin ein en alls
ekki sorgarefni í venjulegum
skilningi. Og allsleysið, sem á
eftir kom hafði alls ekki hindrað
hana í því að fá sér sorgarklæðn-
að af smekklegustu og dýrustu
tegund. Rietta hafði hlustað á
ásakanir hennar og kvartanir..
En hér var eitthvað annað um að I
vera.
—■ Rietta..það er þetta, sem
við vorum að tala um. Hann
hringdi mig upp.... hann hef-r
fundið þetta andskotans minnis-
blað. Mildred frænka hlýtur að
hafa verið viti sínu fjær. Það
var skrifað skömmu áður en hún
dó. Þú veizt hvað hún var gleym-
in.
— Var hún það? Tónninn í
Riettu var þurrlegur.
72
Síminn skalf af hneyksluninni
í Katrínu. — Þú veizt ósköp vel,
að hún var það. Hún gleymdi
bókstaflega öllu!
— Þér þýðir ekkert að fara að
biðja mig um að vitna það, þv£
að það get ég ekki. Hvað stendur
í þessu minnisblaði?
— Það stendur, að þetta hafi
allt verið lánað. Hún hlýtur að
hafa verið vitlaus!
— Eru hlutirnir nefndir á
nafn?
— Já. Og það er það bölvað-
asta við þetta allt. Ég get ekki
skilað þeim, eins og þú veizt —
og það held ég, að hann viti líka.
Það er það, sem ég er svo hrædd
við, að hann vit, það — og ég
veit að hann hefur ánægju af
því. Hann hefur einhverja óbeit
á mér, þó að ég viti ekki ástæð-
una til þess. Rietta.... hann
sagðist hafa snúið sér til hr.
Holderness.
— Holderness fer aldrei að ýta
undir hann að vekja hneyksli.
— Nei, en hann getur heldur
ekki haldið aftur af honum. Það
getur yfirleitt enginn, þegar
James hefur tekið eitth'vað í sig
— það veizt þú eins vel og ég.
Það er bara eitt í þessu, Rietta..
að ef þú færir til hans.. ef þú
vildir bara segja honum, að hún
mamma hans hafi aldrei getað
munað nokkurn hlut, deginum
lengur....
Rietta svaraði hörkulega:
— Nei!
— Rietta!
— Nei, Katrín, það vil ég ekki.
Og það kæmi heldur ekki að
neinu gagni þó að ég gerði það..
því að bæði hr. Holderness og
læknirinn, að nú ekki maður
nefni Mayhewshjónin og frú
Fellows — vita mætavel, að frú
Lessiter var fullkomlega með-
vitandi gjörða sinná. Ég vil ekki
fara að Ijúga neinu um það.
Það varð dauðaþögn. Þegar
hún hafði staðið í heila mínútu,
sagði Katrín: — Jæja, þá verður
hvað sem ske kann, þér að kenna.
Ég er í fullkominni örvæntingu!
XII.
Þegar Rietta kom aftur inn í
hina stöfuna, stóð Carr Robert-
son þar. Hugur hennar var upp-
fullur af samtalinu við Katrínu
— því sem hún sjálf hafði sagt
og því, sem Katrín hafði sagt, og
því sem James Lessiter kynni að
taka fyrir. En þá sá hún framan
í Carr og allar þessar hugsanir
hurfu samstundis. Eitt blaðið sem
Henry Ainger hafði komið með,
lá opið á borðinu Nú stóð hann
yfir því með höndina á því og
benti á það, með hvern vöðva í
andlitinu strengdan, en eldur
brann úr augunum. Fancy stóð
við hlið hans, með galopinn
munninn Og laut fram, dauð-
hrædd.
Rietta gekk til hans og nefndi
nafn hans. Þegar hún snerti
handlegginn á honum, var það
eins og að koma við stálstöng.
Hún leit þangað sem hann benti
Og sá þá myndina af James
Lessiter, sem hann hafði verið
svo hreykinn af — þessa sömu,
sem hún hafði séð hjá Katrínu,
kvöldinu áður.
Carr sagði og röddin var lítið
hærri en hvísl:
— Er þetta James Lessiter?
— Já, svaraði Rietta.'
Carr talaði enn í þessum sama
rólega tón og sagði:
— Þetta er maðurinn, sem ég
hef verið að leita að. Maðurinn,
sem tók Marjorie frá mér.
Þarna hef ég fundið hann!
— í guðs bænum, Carr!
Hann sneri sig lausan og stik-
aði út úr stofunni. Hurðin skellt-
ist í og síðan útihurðin. Hann
heyrðist stika eftir hellunum
úti á stígnum og svo skall hliðið
aftur.
Fancy sagði eitthvað, en
Rietta vildi ekki gefa sér tíma
til að hlusta á það. Hún greip
gamla regnkápu í ganginum og
þaut siðan út um bakdyrnar
gegnum garðinn og út um hlið-
ið, sem lá að Melling-húsinu.
Hún kom einhvernveginn hand-
leggjunum í ermarnar og hljóp
svö áfram. Hversu mörgum
sinnum hafði James Lessiter
beðið hennar í skugga þessara
sömu trjáa!
Án þess að loka á eftir sér
hliðinu, hljóp hún gegnum
skógarblettinn og yfir á auðu
jörðina handan við hann. Fætur
hennar þekktu þarna hverja
þúfu, svo hún þurfti ekki neinn-
ar birtu við.
Hún þaut í gegnum runnana
og út á brautina og stóð þar
kyrr, til þess að ná andanum og
hlusta. Ef Carr væri á leið í
húsið, hlaut hann að koma þessa
leið. Hann gat ekki verið kom-
inn undan þar sem hann varð
að fara miklu lengri leið en hún
hafði farið. Hún hlustaði og
heyrði sinn eigin andardrátt og
hjartslátt, en þegar því sleppti,
aitltvarpiö
Sunnudagur 13. janúar .
8.30 Létt morgunlög.
9.20 Morgunhugleiðing um músik:
Árni Kristjánsson talar um
hávaða.
9.35 Morguntónleikar.
11.00 Messa í Laugarneskirkju
(Presfur: Séra Garðar Svav-
arsson. Organleikari: Krist-
inn Ingvarsson).
12.15 Hádegisútarp.
13.15 Tækni og verkmenning: XI.
erindi: Steinsteypa (Stefán
Ólafsson byggingaverkfræð-
ingur).
14.00 Miðdegistónleikar:
a) Fiðluleikur í útvarpssal:
Béla Detreköy leikur són
ötu fyrir einleiksfiðlu eft-
ir Béla Bartók.
b) „Wesendonck-söngvar“ eft
ir Richard Wagner (Eileen
Farrell syngur með Fíl-
harmoníusveitinni í New
York; Leonard Bernstein
stjórnar).
c) Konsert fyrir píanó og
hljómsveit eftir Arthur
Bliss (Trevor Barnard og
hljómsveitin Philharmon
ía í Lundúnum leika: Sir
Malcolm Sargent stjórn-
ar).
15.30 Kaffitíminn: — (16.00 Veður-
fregnir).
a) Óskar Cortes og félagar
hans leika.
b) Burl Ives syngur lög eft-
ir Irving Berlin.
16.30 Endurtekið efni:
„Tilbúið undir tréverk": At-
riði úr áramótaþætti Svavars
Gests.
17.30 Barnatími (Anna Snorradótt
ir):
a) Framhaldsleikritið „Ævin
týradalurinn“ eftir Enyd
Blyton; V. og síðasti hluti
Steindór Hjörleifsson býr1
til flutnings og stjórnar.
b) Sígildar sögur: „Robin-
son Crúsó“ eftir Daníel
Defoe, í þýðingu Stein-
gríms Thorsteinssonar; 8,
lestur.
18.20 Veðurfregnir.
18.30 „í birkilaut hvlldi ég: Gömlu
lögin sungin og leikin.
Tilkynningar. — Fréttir og
íþróttaspjall.
20.00 Spurt og spjallað I útvarpsal.
— Þátttakendur: Gísli Hall-
. dórsson verkfræðingur, Jónas
Guðmundsson skrifstofustjóri
Magnús Már Lárusson próf-
essor og Sverrir Kristjánsson
sagnfræðingur. Stjornandi:
Sigurður Magnússon.
21.00 Sitt af hverju tagi (Pétur Pét-
ursson).
22.00 Fréttir og veðurfr. — 22.10
Danslög. — 23.30 Dagskrálok.
Mánudagur 14. janúar.
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Búnaðarþáttur: Ásgeir L. Jóns
son ráðunautur talar um
framræslu mýra.
13.35 Við vinnuna: Tónleikar.
14.40 Við sem heima sitjum: Jó«
hanna Norðfjörð les úr ævi-
sögu Grétu Garbo (5).
15.00 Síðdegisútvarp.
17.05 Sígild tónlist fyrir ungt fólk
(Reynir Axelsson).
18.00 Þjóðlegt efni fyrir unga hlust
endur (Stefán Jónsson rit-
höfundur).
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Lög úr
kvikmyndum.
19.00 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir.
20.00 Um daginn og veginn (Ingólf
ur Kristjánsson rithöfundur),
20.20 Sellótónleikar: Janos Starker
leikur. vinsæl lög, við undir-
leik Geralds Moore.
20.40 Spurningakeppni skólanem-
enda (5): Gagnfræðaskólinn
við Lindagötu og Vogaskól-
inn keppa. Stjórnendur: Arni
Böðvarsson cand. mag. og
Margrét Indriðadóttir.
21.30 Útvarpssagan: — Felix Krull
— eftir Thomas Mann; XXI.
(Kristján Árnason).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Hljómplötusafnið (Gunnar
Guðundsson).
23.00 Skákþáttur (Ingi R. Jóhanns
son). — 23.35 Dagskrárlok.
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði virmur.að meðaltafil
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur*
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
Orðsending til íbúa við
Árbæjarbl. og Selás
HAFSTEINN ÞORGEIRSSON, Árbæjarbletti 36,
befur tekið að sér að vera umboðsmáður Morgun-
blaðsins fyrir Árbæjar- og Selásbletti. Tekur hann að
sér dreifingu og innheimtu blaðsins þar í byggðinni.
Til Hafsteins skulu þeir snúa sér er óska að gerast
áskrifendur að Morgunblaðinu og fá það borið heim.
Enn sem komið er hefur Hafsteinn Þorgeirsson ekki
síma og mun því afgreiðsla Morgunblaðsins, sími
22-4-80, einnig annast móttöku áskrifenda.
í ráði er að hin skipulega dreifing Morgunblaðsins
hefjist í Árbæjar- og Selásbyggð hinn 15. jan. næstk.
mörpsuM&Míb
KALLI KÚREKI —- iK — 'K — Teiknari; Fred Harman
*— Þokkaleg tilraun að tarna, Halli síður. Hefur þú eitthvað að segja nú Nú ætla ég að komast að raun um
u minn, þótt hún mistækist engu að að síðustu? það, hvort ég hafi gleymt að nota
A meðan sveiflaði Halli kaðlinum. kaðalinn.