Morgunblaðið - 13.01.1963, Page 22
22
Sunnudagur 13. januar 1963
MORG VNBL AÐ1Ð
DEFA-hreyfilhitari
með hitastilli er nauðsynlegur á allar vökvakældar
vélar. Gangsetning í köldu veðri verður örugg og
vélarslit minnkar verulega. — 2ja ára ábyrgð.
Örvarnar sýna hvernig upphitaður kælivökvinn
stígur frá hreyfilhitaranum og fer hringrás um
vélablokkina. Þegar kælivökvinn hefir náð því hita-
stigi, sem hitastillirinn er stilltur á, rofnar straum-
urinn, og óþarfa straumeyðsla er þannig útilokuð.
Þegar hitinn lækkar aftur niður fyrir innstillt hita-
stig fer kerfið sjálfkrafa í gang á ný, og svo koll af
kolli.
Smiðjubúðin
við Háteigsveg. — Sími 10033.
Sjötugur / dag:
Ólafur Bjarnason
verkstjóri
Nú skal skrifa um mætan mann
Mega verk hans sanna.
Allt sitt líf æ hefur hann
hylli notið manna.
ÓLAFTJR er fæddur og uppalinn
á Eyrarbakka, kominn af mann-
dóms- og sómafólki. Foreldrar
hans voru þau hjónin Guðrún
Sigurðardóttir og Bjarni Jóns-
son, er bjuggu allan sinn bústkap
á Eyrarba'kka. Bjami stundaði
aðallega sjóinn og alla algenga
landvinnu, eins og tíðkaðist á ævi
skeiði hans.
Ólafur ólst upp hjá foreldrum
sínum við trúrækni og þá gömlu
og góðu dyggð að vinna öll sín
störf af vandvirkni og samvizku
semi, og hafa þessir góðu kostir
fylgt honum trúlega langan strafs
dag, enda reynst honum hollt
vegnanesti.
Ólafur var bráðþroska og
fljótt þéttur á velli og þéttur í
lund, samfara ríkri sanngirni og
drenglund. Hann var því ekki
gamall er hann gekk að allri al
mennri vinnu, eða innan við ferm
ingaraldur. Hann lét aldrei sinn
hlut liggja eftir ef hann lenti í
hópi kappsamra og dugmikilla
drengja.
Árið 1916 kvæntist Ólafur Jenn
ýju Jensdóttur, ágætri og mikil
hæfri konu, eins og hún á kyn
til. Hún er fædd og uppalin á
Eyrarbakíka, eins og Ólafur, enda
munu hugir þeirra snemma hafa
leiðzt saman, fæðingarbyggð og
fósturjörð til blessunar.
Jenný hefur reynzt manni sín
um samtaka og þrekmikill föru
nautur. Það segir sig sjálft, að
oft mun hún hafa átt annasamar
stundir, því þau hjón hafa átt
ekki færri en 12 mannvænleg
börn og tvö fósturböm, er öll
komust á legg, og eru fyrirmynd
ar- og dugnaðarfólk.
Börn þeirra eru:
Bjarni, bifreiðarstjóri, kvæntur
Margréti Friðriksdóttur. Búsett á
Selfossi.
Sigurður, útvegábóndi, kvnæt-
ur Málfríði Matthíasdóttur. Bú-
sett í Vestmannaeyjum.
Ólafur, húsasmiður, kvæntur
Arndísi Þórðardóttur. Búsett í
Reykjavík.
Eggert, skipsmiður, kvæntur
Helgu Ólafsdóttur. Búsett í Vest
mannaeyjum.
Sigurður, dó innan við tvítugt.
Sigrún, gift Stefáni Jónssyni
bifreiðastjóra. Búsett á Selfossb
Margrét, gift Ragnari Böðvars-
syni. Búsett á Eyrarbabka.
Guðbjörg, gift Guðbirni Frí-
mannssyni, bifreiðastjóra. Búsett
á Selfossi.
Bryndís, ógift í Reykjavfk.
Guðrún, gift Herði Thoraren-
sen. Búsett á Eyrarbakka.
Sigríður, ógift í foreldrahúsum.
Áslaug, gift Halldóri Kristins-
syni. Búsett í Reykjavík.
Margrét, fósturdóttir, ógift í
heimahúsum.
Gunnar, fóstursonur, fluttur að
Selfossi.
Börn þeirra hjóna hafa fengið
í.arf frábæran dugnað og hæfi-
leika foreldra sinna. Þau hafa öll
komið sér vel fyrir og búa mjög
vel og munu gera garð sinn fræg
an. Það veitir Ólafi og Jennýju
ósegjanlega ánægju, eftir þrot-
laust strit og baráttu í önn hins
daglega lífs, að skiia þjóðfélag-
inu jafn nýtu og glæsilegu fólki,
sem börn þeirra eru.
Ólafur var verkstjóri hjá rík-
BIFREIÐAEIGENDUR
Frá upphafi hafa Samvinnufrygglngar
lagt megináherzlu á tryggingar fyrir
sannvirði, góða þjónustu og ýmiss-
konar frœðslu- og upplýsingasfarf-
semi.
f samrœmi við það hafa Sam-
vinnufryggingar ráðizt í útgáfu
bókarinnar,, Bíllinn minn'.' f hana
er hœgt að ?krá nákvœmlega
allan rekstrarkostnað bifreið-
ar í heilt ár, auk þess sem
f bókinni eru ýmsar gagn-
legar upplýsingar fyrir
bifreiðastjóra.
Bókin hefurþegar
verið send endur-
gjaidslaust, til allra
bifreiðaeigenda sem
tryggja bifreiðir sínar
hjá Samvinnutrygging-
um, en ef einhver hefur
ekki fengið hana vegna
bústaðaskipta, er hann vin
samlega beðinn að hafa sam-
band við aðalskrifstofuna og
mun bókin þá verða send í póstí
SAMVINNUTRYGGINGAR
Bifreiðadeild - Sími 20500
S AMVINNUTRYGGIN GAR
inu um 16 ára tímabil, m.a. flokks
stjóri við Flóaáveituna, vegalagn
ingar í Skaftafells- og Rangár-
vallasýslum og einnig við vörzlu
garða Markafljóts. öll verkstjórn
fórst Ólafi vel úr hendi og naut
hann trausts og virðingar þeirra,
sem með honum störfuðu. Hann
hafði raunhæfa þekkingu á starf
inu og meðfæddan hæfileika til
að stjórna.
Ólafur er ekki margmáll og
hugsar því meira. Gagnorður er
hann og rökfastur, ráðhollux
þeim, sem til hans leita, og vin-
um sínum er hann traustur og
einlægur. Loforð hans öll eru
fullkomlega áreiðanleg og standa
eins og stafur á bók. Ekki er að
efa, að traust það, sem hann hef-
ur áunnið sér meðal samferða-
manna sinna, hefur verið honum
meðbyr á lífsleið hans. ^
Þegar ekið er um þjóðvegl
landsins, hugsar maður gjarnan
með hlýjum og þakklátum huga
til þeirra manna, er störfuðu og
starfa að þeim þjóðnytjaverkum
— vegalagningum og vegavið-
gerðum.
Eitt sinn ók ég sem oftar á sól
björtum sumardegi um veg, er
Ólafur lagði. Hann var beinn og
fallegur. Það fór einstaklega vel
um okkur. Vagninn rann um ný
heflaðan veginn. Útsýnið var dá-
samlegt og við stönzuðum til að
njóta betur fegurðarinnar. Eyja
fjöllin k>ma manni til að horfa
hátt og líta yfirbragð þeirra með
hrifningu, er þau gnæfa í himin
blámann. Og þarna hafði náttúr
an sýnt Ólafi þann sóma, að
skreyta vegkantana með blágresi,
fíflum og sóleyjum. — Þennan
sama dag gekk ég með vörzlu-
garði Markafljóts. Fljótið féll1
með öllum sínum þunga á nokk
urn hluta varnargarðsins svona
til að reyna þol hans og nöldraði
sáran út í Ólaf, því frá ómunatíð
hafði það fengið að rása óhindrað,
hvert sem því sýndist.
Það hefur verið erfitt verk að
hlaða í alla þá ála, sem vatns-
miklir voru og straumþungir. Þá
hefur reynt á verkstjórn Ólafs
og dugnað þeirra manna, sem við
verkið unnu, því hvíldarlaust
varð að halda áfram, þar til áll-
inn var stíflaður.
Óiafur var langdvölum fjarri
heimili sínu. Þá hefur reynt á
þol húsfreyjunnar — ein með all
an barnahópinn — en hin trausta
skapgerð hennar og dugnaður
gerði henni fært að ráða fram
úr öllum erfiðleikum.
Það er ánægjulegt að koma á
hið snyrtilega heimili þeirra
hjóna. Þar mætir maður hinni
gömlu og góðu einlægni, er þau
hjónin eru svo samtaka í að auð
sýna hverjum sem að garði ber —.
og kalla má hjónaprýði. i
Ég veit, að þeir verða margir,
sem senda Ólafi hlýjar kveðjur
og árna honum og heimili hans
heilla á þessum merkisdegi í lífi
hans.
Vinir vilja þér í dag
þina verkstjóm þakka.
Þú vildir alltaf landsins hag
og líka Eyrarbakka.
, Nói Kristjánsson.