Morgunblaðið - 19.01.1963, Side 2
MORCVlsm 4ÐIÐ
Laugardagur 19. jáiíuar 1963
Fimm ungir Borgfirðingar lentu í hrakningum uppi í óbyggðum i vikunni. Gistu J»eir m.a. i
snjóhúsum þrjár nætur í röð. Hér sést inngang urinn eða munninn í fyrsta húsið, sem þeir
reistu, og annar farkosturinn af tveimur gægist fyrir hornið. — Sjá frásögn og myndir á hls. 10.
(Ljósm.: Guðni Sigurjónsson)
Hlutaskipting samkvæmt
kjarasamningum frá 1958
LÍÚ tapar tveimur málum í Félagsdómi
Viðræöum frestað
um aðild Breta að EBE
f GÆR voru kveðnir upp i Félags
dómi dómar í tveimur málum,
annars vegar máli ASÍ vegna
▼erkalýðs og sjómannafélags
Miðneshrepps gegn LÍÚ og hins-
Engin end-
urnýjun
að sinni
EKKI er gert ráð fyrir að
Flugfélagið endurnýi véla-
kost sinn til innanlandsflugs
á þessu ári. Flugfélagið íhug-
ar nú samt meira en áður
hvaða úrræði yrðu heppileg-
ust, sagði örn O. Johnson á
fundi með blaðamönnum í
gær. í sumar munum við enn
sem fyrr nota Douglas DC-3
vélarnar okkar á innanlands-
leiðum, þrjár talsins. Enn-
fremur eina Skymastervél og
millilandavélarnar eftir því
sem þörf verður. Hann sagði
m. a., að í sumaráætlun væri
gert ráð fyrir því, að Viscount
færi eina ferð í viku til ísa
fjarðar.
vegar í máli Farmanna- og fiski
mannasambands íslands gegn LÍÚ
hvorttveggja vegna reiknings-
skila frá síldveiðum á sl. sumri,
þ. e. a. s. hvort reikningsskil
skyldi gera við sjómenn á mb.
Hrönn samkvæmt kjarasamningi
frá 13. júní 1958 með breytingum
15. maí 1959, eða eftir ákvæðum
gerðadómsins frá í sumar.
Dómur féll á þá leið, að í gildi
væri samningurinn frá 1958 og
skuli því reikningsskil vera gerð
samkvæmt honum en ekki gerðar
dómi.
í máli Farmanna og fiskimanna
félags fslands gegn LÍÚ var á-
greiningur um hvort reikna
skyldi hlut stýrimanns og vél-
stjóra, ákveðið margfeldi af há-
setahlut, miðað við hlut háseta
samkvæmt kjarasamningnum frá
1958 eða gerðardómi frá í sumar.
Dómur féll á þá lund að þar sem
í gildi væri kjarasamningur
milli háseta og LÍÚ frá 1958
skyldu kjör yfirmanna fara eftir
þeim samningi en ekki gerðar-
dómi.
Á mánudaginn mun væiitan-
lega falla dómur í Félagsdómi
vegna reikningsskila við yfir-
menn í Hafnarfirði frá síldveið-
unum í sumar. Er ágreiningur um
hvort miða eigi kjör þeirra við
gerðardóminn eða eldri ákvæði.
Þá hefur enn einu reiknings-
skilamáli verið skotið til Félags-
dóms. Stendur málið milli skips-
hafnar í Ólafsvík og útgerðar-
mannafélagsins á staðnum. Á
skipi þessu voru 12 menn en
samkvæmt skráðri stærð þess
við ráðningu mannanna, skyldi
aflahlut skipt í 11 staði. Við end
urskráningu á stærð skipsins í
vertíðarlok féll skipið 1 þann
flokk skipa, þar sem útgerðar-
mönnum er heimilt að skipta
hlutnum í 12 staði. Vilja útgerðar
menn því skipta í 12 staði en á-
höfnin krefst þess að ekki verði
skipt nema í 11 staði. Ekki er
vitað hvenær mál þetta verður
tekið til flutnings í Félagsdómi.
Félagsdóm skipa Hákon Guð-
mundsson, hæstarréttarritari, for-
seti, Einar Arnalds, yfirborgar-
dómari, Gunnlaugur Briem, ráðu
neytisstjóri og hæstarréttarlög-
mennirnir Einar B. Guðmunds-
son og Ragnar Ólafsson.
Havana, 1. jan. (AP).
Sendiherra Vestur-Þýzka-
landis í Havana hélt heimleiðis
í dag frá Kúbu. Hefur sendi-
ráðinu nú verið lokað. Vest-
ur-þýzka stjórnin sleit stjórn-
málasambandi við Kúbu í síð
ustu viku vegna þess að
Castró-stjórnin viðurkenndi
stjórn A.-Þýzkalands.
Briissel, 18. jan (NTB) —
SamnLngum um aðild Breta að
Efnahagsbandalagi Evrópu hefur
verið frestað i tíu daga. Hefjast
þeir að nýju 28. þ. m. Ekki eru
þó miklar horfur á því að sam-
komulag náist milli Frakklands
annarsvegar og hinna aðildar-
ríkjanna hinsvegar um skilyrði
fyrir inngöngu Bretiands. En
þessi tíu daga frestur verður not
aður til að reyna að ná innbyrð-
is samkomulagi aðildarríkjanna.
Parísarblaðið Le Mondé hefur
það eftir de Gaulle forseta í dag
að sá dagur muni koma að Bret-
land fái fulla aðild að Efnahags-
bandalaginu, en þá verði hann
Veitist enn að
kvenfólki
SL. MIÐVIKUDAGSMARGUN,
um átta leytið, veittist maður að
14 ára gamalli telpu, sem var á
leið til vinnu sinnar, og stytti
sér leið yfir lóðina, þar sem hin
nýja lögreglustöð er að rísa af
grunni. Atferli mannsins var
kært til rannsóknarlögreglunnar,
og talið er að hér sé um að ræða
sama mann, sem að undanfömu
hefur áreitt kvenfólk á svipuð-
um slóðum, en enn er ófundinn.
Tveir þjófar
UNDIR MORGUN í fyrrinótt var
brotist inn í nýlenduvöruverzlun
Silla og Valda að Freyjugötu 1.
Skömmu síðar voru lögreglumenn
á eftirlitsferð í bíl í nágrenninu
og veittu þá eftirtekt tveimur
unglingspiltum, sem höfðu tösku
meðferðis. — Kom á daginn að
í töskunni vom vörur, sem pilt
arnir viðurkenndu að hafa stolið
úr verzluninni.
Línubátar beita
Akranesi, 1. jan.
Ásmundur og Skipaskaigi róa
með línu er gefur. Nú spáir hann
albhvössu. í dag er regndrungi
og 3 vindstig af sauð-austan.
Búist er við að 5 bátar láti
beita línuna á morgun: Sæfaxi,
Svanur, Fram, Sigurfari og
Reynir.
Nú er fjórði dagurinn, sem
ný ýsa hefir ekki fengist í fisk-
búðurn bæjarins.
Trillur eru hættar róðruim og
flestar komnar í naust. — Oddu-r.
Stokikihóimi, 18. jan. (NTB).
Alls hafa 130 börn fæðst
vansköpuð í Svíþjóð vegna
neyzlu mæðranna á thalido-
mid-lyfi. Af þeim eru þegar
50 látin. Auk þess er talið
að uon 40 fullorðnir, sem tek-
ið höfðu lyfið í lengri tíma,
hafi beðið varanlegt líkam-
legt tjón af völdurn þess.
hættur sem forseti Frakklands
Talsmaður frönsku stjórnarinnar
sagði í París í dag að de Gaulle
hefði gefið Couve de Murville, ut
anríkisráðherra, sem er aðalfull-
trúi Frakklands við umræðurnar
í Brússel, fyrirmæli um að halda
fast við öll skilyrði Rómair-sátt-
málans, og ekki taka til greina
neinar undanþágur varðandi að-
ild Breta.
Vafasamt er talið að samkomu-
lag náist meðal aðildarríkjanna.
Frakkar hafa látið í ljós að frest-
unin á viðræðunum þýði raun-
verulega að þeim sé lokið, en hin
aðildarríkin halda því fram að
samningum verði haldið áfram
eftir tíu daga.
Mýnesbóndinn
sækir um bæ jar-
stjórastöðu
EINAR BJÖRNSSON, bóndi 1
Mýnesi, aðalmaður Mýneshreyf-
ingarinnar, lagði í gær inn um
sókn um bæjarstjórastarfið á
Seyðisfirði. Er það eina umsókn
in um það starf, þar eð Gunnþór
Björnsson hefur dregið sína um-
sókn til baka, eins og áður hefur
verið frá skýrt
Vörubíl-
stjórar í
Keflavík
hefja
vinnu-
stöðvun
í NÓTT er leið boðuðu
vörubílstjórar í Keflavík
vinnustöðvun á fiskveiðilbáta
þar á staðnum vegna ósam-
komulags um afgreiðslu bát-
anna.
Þannig háttar fál, að útgerð
arfyrirtæki eiga eigin bíla til
afgreiðslu bátanna, en hafa
á hendi fyrirgreiðslu margra
báta hvert, og komi þeir allir
inn í senn, þurfa fyrirtæljin
að leita til vörubílastöðvar-
innar á staðnum um hjálp.
Vörubílstjórar fara hins
vegar fram á að fiá útlhlutað
ákveðnum bátum við af-
greiðslu þeirra.
Um þetta stendur deilan,
sem vísað hefir verið til
Vinnuveitendasambandis ís-
lands og starfar það nú að
lausn hennar.
^m~ m~ m~
\SNA 15 hnútar 1 s SV 50 hnútor K SnjHama t úii '•••** 7 Skúrir y/ÆKasn- Kutíoskit HHmt 1 K Þrumur '////„all ^ HitatM L LmfS 1
HÆÐIN fyrir suðaustan land
er ennþá mjög sterk og kyrr-
stæð, mun það valda áfram-
haldandi kuldum í Vestur-
Evrópu.
Suðlæg átt og hlýtt var um
allt land, en skammt út af
Vestfjörðum var NA-átt með
snjókomu. Lægðin fyrir suð-
vestan land var kyrrstæð og
hæðin fyrir norðan land vax-
andi.