Morgunblaðið - 24.01.1963, Side 13

Morgunblaðið - 24.01.1963, Side 13
Fimmtudagur 24. Janúar 1963 MORGVTS BL ÁÐIÐ 13 \ Robert Kennedy ræðir ferii Kennedys forseta bróður síns * Xr Einkaviðtal við dómsmálardðherrann, sem er viðstaddur, er allax meiri háttar ákvarðanir bandarísku stjórnarinnar eru teknar — Fyrri grein * BANDARÍSKA vikuritið „U.S. News & World Re- port“ birti í síðasta hefti viðtal við dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, Ro- bert Kennedy, bróður Bandaríkjaforseta. — Þar ræðir ráðherrann flest þau stórmál, bæði innan- ríkis- og utanríkismál, sem borið hefur á góma þau tvö ár, sem Kennedy, forseti, hefur verið við völd. Ritið telur sér sérstakan feng í því að birta þetta viðtal, þar eð fáar ákvarð- anir séu teknar í Hvíta húsinu, án þess, að dóms- málaráðherrann hafi fyrst verið kallaður þangað til skrafs og ráðagerða. Viðtalið er mjög langt, tekur yfir 12 síður, og verða hér aðeins birtir tveir kaflar þess. Fjallar sá fyrri,- er birtist hér í dag, um atburði síðustu tveggja ára, og er nokkurs konar heidaryfirlit, en sá síðari fjallar sérstaklega um innrásina við Svína- flóa á Kúbu og framtíð Castros, forsætisráðherra. Fara spurningar frétta- manna og svör dómsmála- ráðherrans hér á eftir: Hr. dómsmálaráðherra: — Hvað teljið þér þýðingarmest af því, sem hrundið hefur ver ið í framkvæmd þann tíma, sem Kennedy, forseti, hefur setið við völd? Sv.: Hlutur Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu hefur verið rétt ur. Fyrir tveimur árum var fólki, bæði hér í B.andaríkjun um og annars staðar, ljóst, hvað hr. Krúsjeff var að gera; hvert kommúnisminn stefndi. Eg held, að framtakssemin hafi verið þeirra megin. Hún kom greinilega í Ijós, er Sputnik var skotið á loft, en hann varð til þess að auka mjög hróður kommúnismans og Sovétríkjanna. Þeir sóttu þá á. Nú held ég, að því sé öfugt farið. Hvað hafa Bandaríkin gert til að snúa þróuninni sér í hag? Sv.: Það, sem við höfum gert til að auka hernaðarmátt okk- ar, hefur haft mikla þýðingu. Þá tel ég einnig, að afrek okk ar á sviði geimvísinda hafi haft áhrif. Þá leikur enginn * vafi á því, að stefna okkar í Kúbumálinu hafði sín áhrif. Hernaðarmáttur okkar er nú viðurkenndur um heim allan. Við eigum nú helmingi fleiri Polaris-kafbáta en áður, 75% fleiri Minuteman-flugskeyti, 16 herfylki í stað 11, sérhæfð ar deildir eru fjórum sinnum fleiri en áður, sérstakar ráð- stafanir hafa verið gerðar til að mæta undirróðursaðgerðum og skemmdarstarfsemi — allt þetta hefur haft áhrif. Iúka á Rússa? Sv.: Eg held, að þetta hafi haft áhrif á bandamenn okk- ar, Sovétríkin og kommúnism- ann. Hr. Krúsjeff hefur sjálf- ur talað um „tennur pappírs- tígrisdýrsins". Haldið þér, að þeir muni ná okkur í kaPphlaupinu fram- vegis? Sv.: Eg held, að þeir muni leggja mikið á sig í þeim efn- um, en það munúm við einnig gera. Við verðum að leggja að okkur. Allt þetta, sem ég hef minnzt á, hefur mikil áhrif á heims- málin í augum þeirra. Þeim finnst Bandaríkin vera veik fyrir. í upphafi litu þeir Kenne dy, forseta, sem ungan mann, sem ekki vildi beita her gegn Kúbu, eins og Krúsjeff myndi hafa gert, og gerði í Ung- verjalandi. Því töldu þeir sér óhætt að bjóða Bandaríkjun- um byrginn. Xeljið þér, að Krúsjeff hafi talið sér óhætt að sýna for- setanum frekju og ágengni? Sv.: Um tíma hefur hann tal ið sér það óhætt. Hefur sú afstaða breytzt núna? Sv.: Það er Ijóst, að fyrri skoðun Krúsjeffs er ekki leng ur fyrir hendi. Fyrir tveim- ur eða þremur árum, er Krú- sjeff fór héðan frá Bandaríkj- unum, líkti hann þeim við deyjandi, hrasandi og úrkynj- aðan hest. Eg held ekki, að hann sé lengur á þeirri skoð- un. Það er í okkar landi, sem við finnum lífskraft. Það er- um við, sem fáum nýjar hug- myndir. Eg held ekki aðeins, að ríkis stjórnin okkar hafi fundið sjálfa sig, heldur, að öll banda ríska þjóðin hafi gert það. Teljið þér, að Kúbudeilan hafi reynzt Rússum lærdóms- rík? Sv.: Eg held, að það ráði miklu, hvernig við var brugð- izt, því að þetta er í fyrsta skipti, sem valdaaðstaða, á- kveðni og kraftur þjóðarinnar og stjórnarinnar hefur lagzt á eitt. Þetta var erfiður tími, er það ekki? Sv.: Jú, það var mjög erfið- ur tími. Robert Kennedy ræðir við bróður sinn, forsetann. Er kjör- tímabil forsetans er hálfnað, telur dómsmálaráðherrann, að mikið hafi áunnizt — bæði heima fyrir og erlendis — en hins vegar álítur hann einnig, að mörg verkefni bíði úrlausnar. Hvað teljið þér merkustu á- fangana í innanríkismálum undanfarin tvö ár? Sv.: Mikið hefur áunnizt á efnahagssviðinu, þótt því sé ekki hægt að neita, að margt sé ógert. Það ríkti samdráttur — hann er úr sögunni, og fram vindan er ör. Það er athyglis- vert, hve stöðugt verðlag hef ur haldizt. Ýmis þeirra atriða, sem er að finna í nýju skatta- löggjöfinni, og hugsuð eru til að auka áhuga fyrirtækja á frekari fjárfestingu, auk frjáls ari ákvæða um afskriftir — endurbætur á tryggingalöggjöf inni, lágmarkslaun og ákvæði um húsnæðismál; lögin, sem sett voru um þjálfun atvinnu- lausra verkamanna og aðstoð við vanþróuð héruð — allt það, sem gert hefur verið á þessum sviðum og öðrum, hef ur verkað hvetjandi á efna- hagskerfið og hraðað þrpun- inni. Héfur kostnaðurinn verið of hár — I dölum? Sv.: Nei. Heildarframleiðsla okkar, þ. e. vörur og þjónusta — þjóðarframleiðslan brúttó, fjórða ársfjórðung sl. árs, svar ar til 562,5 milljarða dala, ár- lega. Hér er um að ræða um 12% aukningu á 21 mánuði. Sú staðreynd, að tekizt hef ur að draga úr óhagstæðum greiðslujöfnuði, er ánægjuleg. Hallinn var um 3.9 milljarð- ar dala, árlega, en er nú um 2 milljarðar. Hann þarf samt að lækka enn að mun. Hinsvegar eru um 6% sam- borgara okkar atvinnulausir, og við nýtum aðeins um 83% af framleiðslumætti iðnaðar- ins, svo að mikið þarf að gera. Efnahagsþróunin hefur því ekki verið eins ör og við gerð- um ráð fyrir, svo að mikið á- tak þarf að gera á þessu sviði. Við höfum nú rætt þann árangur, sem náðst hefur á undanförnum tveimur árum. Gætuð þér nefnt það, sem minnisvert er, vegna von- brigða, á þessum tíma? Sv.: Á sviði utanríkismála myndi ég fyrst og fremst telja, hve illa hefur gengið að ná nokkru samkomulagi um bann við tilraunum með kjarnorku vopn . . . Annars álít ég, að það verði að teljast vonbrigði, að við skyldum ekki gera meira á sviði menningarmála. Sviði menningarmála? Sv.: Já, okkur skortir nær 130.000 skólastofur. Með auk- inni fólksfjölgun, þá mun þörf in fara mjög vaxandi á næstu árum, nema því aðeins, að einstök ríki fái fjárhagsaðstoð. Vandamálið er hins vegar um fangsmeira. Það er alvarlegt, hve marga skortir nauðsynlega menntun, auk þess, sem skort ur er á sérmenntuðu fólki. Við þörfnumst átaks til þess að geta boðið öllum þá menntun, sem þeir geta fært sér í nyt, auk þess, sem við þurfum að bæta menntunina á öllum stig um hvers sviðs. Hvað um þá atvinnulausu? Sv.:.Eg myndi segja, að þrátt fyrir það, sem áunnizt hefur á því sviði, þá sé enn um að ræða mikið vandamál. Hvað vilduð þér segja um greiðsluhallann á fjárlögum? Sv.: Hann myndi hafa verið jafnaður, ef ekki hefði ríkt samdráttur í efnahagskerfinu, er Kennedy, forseti, tók við embætti, og ef ekki hefði verið lögð áherzla á geimvísindi og varnir. Svo lengi, sem við viljum auka framlög til þess- ara þátta — þið vitið, að við munum verja eins miklu fé til geimvísinda á fjárhagsárinu 1963, þ. e. um 2.4 milljörðum dala, og gert hefur verið á undanförnum 8 árum — þá munum við eiga í erfiðleikura með fjárlögin. Hafa ekki útgjöld til annarra hluta en varnarmála einnig farið vaxandi á seinustu einu til tveimur árum? Sv.: Eg held, að þetta sé nú ekki alveg rétt. Frá fjárhags- árinu 1961 og fram til 1963, þá hafa um % hlutar útgjalda- aukninga á fjárlögum átt rót sina að rekja til varnarmála og geimvísinda. Margir virð- ast ekki skilja þetta. Eru þetta skyld svið. Eru geimvísindi endilega það sama og vamarmál? Sv.: Jú — það em þau, a. m . k. að því leyti, er snýr að vörnum þjóðfélagsins. Hafa útgjöld til opinberra mála yfirleitt, farið vaxandi? Sv.: Jú, það er rétt. Þetta á líka við um ríkin og borgirn ar . . . önnur útgjöld fóru til marg- víslegra hluta, en upphæðim ar voru yfirleitt ekki háar. Það þarf að verja fé til smáfyrir- tækja, læknisrannsókna, vís- inda o. fl. hluta. Þessar gfeiðslur fara vax- andi með fólksfjölguninni, en verða þó að teljast fyllilega eðlilegar. Þess má geta, að þessar greiðslur eru tiltölulega lítill hluti heildarútgjada á fjárögum. Hins vegar reynum við að mæta aukningu á þess um sviðum með því að draga saman útgjöldin á öðrum svið- um — eins og t. d. við póst- þjónustu. Mynduð þér telja það til von brigða, sem þér hafið orðið fyrir, að A-Þjóðverjum skuli hafa tekizt að reisa múr í gegn um miðja Berlínarborg? Sv.: Jú, en ég var nú aðal- lega að hugsa um þá hluti, sem við höfðum náin afskipti af, og þar sem við höfðum að- stöðu til áð ráða gangi mála. Hins vegar held ég, að sú stað reynd, að þeir urðu að byggja vegg, hafl gert mönnum ljóst, hve veikum fótum kommún- isminn stendur. Heiminum er' ljóst, að þeir urðu að byggja vegg til þess að halda fólkinu kyrru í land- inu. Á ferðalagi mínu umhverf is heiminn komst ég að því, að vart er hægt að finna svar við þessari staðreynd. Komm- únistar segjast geta keppt við okkur á jafnréttisgrundvelli, en samt verða þeir að byggja múr til þess að fólk flýi ekki frá þeim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.