Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 24. janúar 1963 MORCVTSBLAÐIÐ :5 Idflaugar fluttar Kaupmannahöfn, Aþena, 23. jan. NTB. KUNNGERT var við hirðina í Aþenu í dag, að Anne Marie, prinsessa í Danmörku, og Konstantin, krónprins í Grikk landi, hefðu opinberað trúlof- un sína. Prinsessan er 16 ára, en krónprinsinn 23 ára. Jafn- framt var frá því skýrt, að þau myndu veða gefin saman í hjónaband á næsta ári. Krónprins Crikkja og dótiir Danakonungs trúlofast Anne Marie og Konstantin munu verða gefin saman að ári Skömmu eftir að tilkynn- ingin hafði verið gefin út í Aþenu, var skýrt frá trúlofun inni í Kaupmannahöfn, og var þar tekið fram, að dönsku konungshjónin hefðu gefið samþykki sitt. t dönsku fréttatilkynning- unni sagði m.a.: „Það er okk- ur mikii gleði, að geta lýst því yfir, að yngsta dóttir okkar, Anne Marie, hefur trúlofazt giríska krónprinsin- 'im“. Tilkynningin var undir- rituð af konungshjónunum. Skömmu áður en tilkynning- in var gefin út, lögðu grísku konungshjónin af stað flug- leiðis frá Aþenu, og er tal- ið, að þau muni halda til Kaupmannahafnar, en þar er krónprinsinn nú. Konstantin er einkasonur og hefur getið sér gott orð, m.a. sem íþróttamaður, en hann hlaut gullverðlaun á OL. frá Tyrklandi — segir utanrikisraðherra landsins — Polariseldflaugar i stað Júpiterflauga — Tilraunaveiðar F'ramhald af bls. 24. Um borð í Heidelberg er 22 manna áhöfn og skipið mun svipað í svifum við síldveiðar og Hallveig Fróðadóttir er talin vera og því ekki hentugt til þess ara veiða. Hér eru ennfremur stödd norsku skipin Endra Dyrþy og Anna G. frá Bergen, sem send eru hingað á vegum norska rík- isins til vetrarsíldveiða í tilrauna skyni. Endra Dyrþy er búið kraft- blökk svipað og íslenzku síld- veiðiskipin enda á stærð við hin stærstu þeirra. Anna G. er hins- vegar nokkru stærra og er búið síldartrolli. A» UNDANFÖRNU hafa ver- ið talsverð brögð að því að stærri fyrirtæki hér í bæ bjóði starfsfólki sínu á leiksýning- ar í Þjóðleikhúsinu. Ýmis fyr- irtæki hafa til dæmis pantað tniða á Pétur Gaut allt frá 50—100 miðum í einu. Á síð- ustu sýningu leiksins buðu tvö fyrirtæki starfsfólki sínu á sýninguna. Einnig virðist leikurinn vera mikið sóttur af fólki, sem býr í nágrenni Reykja- víkur, og koma að jafnaði einn eða fleiri langferðabílar nr.eð fólk langt að til að sjá þessa vinsælu sýningu. Á myndinni eru ðerdís Þor- valdsdóttir og Gunnar Eyjólfs son i hlutverkum sínum. Skipin fóru á veiðar í fyrsta sinn hér í gær en án árangurs. Gert er ráð fyrir að þau verði hér að veiðum fram um miðjan febrúarmánuð, eða til febrúar- loka og ef afli gefst mun hann verða ísaður um borð, en Als Algery, skipstjóri á Endre Dyrþy sagði að þeir gerðu ráð fyrir að geta haft síldina um borð í skip- unum sem svaraði 15 dögum. Síð an yrði siiglt með aflann til Noregs. Nót Endra Dyróy er 215 faðma löng og 68 faðma djúp. Síldartrollið í Anna G. er sett upp í Noregi og hefur verið reynt þar með misjöfnum árangri að sögn skipstjórans, Rolf Solsvik. Hann taldi skip sitt tæplega nægilega kraftmikið til þess að geta haft full not af trollinu. — vig. Arikara, Washington, 23. jan. — (NTB-AP) — UTANRÍKISRÁÐHERRA Tyrklands, Feridun Cemal Erkin, skýrði frá því í dag, að innan skamms myndi verða hafizt handa um að flytja burt eldflaugar frá Tyrklandi ,og yrðu allar eld- flaugastöðvar þar lagðar nið- ur. Sagði hann, að í stað eld- flauga á landi, myndu fram- vegis koma kafbátar, búnir Polariseldflaugum. Því yrðu framvegis engar eldflaugar, er borið gætu kjarnorkuvopn, á tyrknesku landi. Fregnir frá Washington herma, að ekki hafi tekizt að fá staðfestingu á þessum fréttum. Talsmenn bandarísku stjórnar innar sögðu hins vegar í dag, að undanfarið hefðu staðið yfir viðræður milli ráðamanna vestra og ráðamanna ýmissa NATÓ- ríkja um endurskipulagningu varna bandalagsins. Yrði ekki skýrt frá viðræðunum, fyrr en þeim væri lokið. í fréttum frá Ankara í dag, kom einnig fram, að landvarna- ráðherra Tyrklands, Alhami Sancar, hefði skýrt frá því á þingi, að yfir stæðu nú viðræð- ur um að fjarlægja Júpíter-eld- flaugar og taka í þeirra stað upp Polaris-eldflaugar. Skv. óstaðfestum fréttum frá Ankara, segir einnig, að er þess- ar breytingar fari fram, muni Tyrkir fá meira af venjulegum vopnum. — Bruninn Síldin fryst sem dýrafóður EINI báturinn héðan, sem síld fékk í nótt, var Skírnir. Fékk hann 100 tunnur. Heldur voru síldarnar smáar, aðeins 10—25 cm. langar. öll var hún hrað- fryst sem dýrafóður. Laust eftir hádegi í dag voru allir síldarbátarnir á heimleið og kom sá síðasti kl. 3. Talsverður stormur var þá kominn af suð suðaustri, 4—5 vindstig. Framh. af bls. 24. Fólkið fór á næsta bæ við Borg, Birkihlíð, svo að segja á nærklæðunum, því að enginn tími eða tök voru á að bjanga neinu af fatnaði, nema einhverju sem var í herberginu, er farið var út um. Frá Birkihlíð var náð til slökkviliðsins í Egilsstaðá kauptúni um síma, og var þá klukkan langt gengin í átta um morguninn. Var þegar farið af stað með slökkvibílinn ásamt nokkuð mörgum mönnum héðan. Var þao um kl. 9, sem bíllinn var kominn á staðinn, en þá var húsið brunnið og allt fallið nema skorsteinninn. Þá var nokkur eldur kominn í fjósið, en fljótlega tókst að ráða niðurlögum hans. Fjósið skemmd ist talsvert, en hlaðan og heyið slapp alveg. Mun það því að þakka, hve veðrið var stillt. TRÓÐU VOTHEYI í HLÖÐU- GÆTTINA. Margir menn úr Skriðdal komu á staðinn, og má geta þess, að þeir gripu til þess snjallræðis^ að hlaða votheyi í hlöðudyrnar, og e.t.v. hefur það orðið til þess áð koma í veg fyrir að eldur kaemist í hlöðuna. Eldurinn í fjós inu var slökktur með vatni, sem borið var að. Eldurinn kom upp á neðri hæð hússins, en ekki er enn víst um, orsakir hans. Fólkið hefur orðið fyrir til- finnanlegu tjóni í þessum bruna, en ekki er mér kunnugt um vá- trygigingu. — Ari Björnsson. BT ræðir afstöðu Flugfél- ags íslands innan IATA Telur atkvæðagreiðsluna þaulhugsað herbragð Einkaskeyti til Mbl. Kawpmannahöfn í gær. D A N S K A blaðið B.T. skýrir frá því í dag, að at- kvæðagreiðslan innan Al- þjóðasambands flugfélaga, IATA, um það, hvort leyfa skuli flug yfir Atlantshaf- ið á lágum fargjöldum með skrúfuþotum, hafi verið síðasta hindrunin, sem yfirstíga þurfti, áður en SAS lcitaði samþykkis viðkomandi ríkisstjórna til flugsins. Bendir blaðið á, að jafnvel bandaríska stjórnin gangi sjaldan í berhögg við IATA. Þá telur B.T. það mjög at- hyglisvert, að Flugfélag ís- lands skyldi ekki greiða at- kvæði gegn því, að lægri far- gjöld yrðu leyfð, en eitt „nei“ atkvæði hefði nægt til þess að binda endi á áætlun SAS. Telur blaðið skýringuna vera þá, að atkvæðagreiðslan hafi verið þáttur í þaulathug- uðum undirbúningi IATA til að leysa vandamálið. Hefði eitt félag greitt atkvæði gegn fargjaldalækkun ,hefði verið hægt að telja það ábyrgt fyr- ir þeirri fargjaldastyrjöld, sem þá hefði getað hafizt, og hefði e.t.v. leitt til hruns fjöl- margra flugfélaga. Segir að síðustu í grein blaðsins, að augsýnilegt sé, að ekkert flug félag hafi viljað taka á sig slíka ábyrgð. Rytgaard.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.