Morgunblaðið - 27.01.1963, Síða 8

Morgunblaðið - 27.01.1963, Síða 8
8 MORCXlNB'l AfHÐ < Sunnui3agur 27. Jan'úar 1963 V MYNBIM <y röl l l t Nýgift FYRIR þremur árum var sú nýbreytni tekin upp í Dagbók Morgunblaðsins að birta myndir af nýgiftum hjónum. Mseltist þetta af- ar vel fyrir og birtast nú nær daglega ein eða fleiri brúðkaupsmyndir í Dag- bókinni. Við flettum Morgunblaðinu þrjú ár aftur í timann og rák umst á fyrstu brúðkaupsm.ynd ina þriðjudaginn 9. febrúar 1960. Undir henn stóð: „Sl. laugardag voru gefin saman í hjónaband af sr. Þorsteini Björnssyni ungfrú Margrét husbygging framundan — Nú eru börnin orðin fcvö, sagði Friðrik, og húsbygging efst ádagskrá. — Já, samsinnti frúin, það dugar ekki annað en koma sér upp húsi. kin og það yngsta yngra en eldri sonur okkar. Eg á ekki nema þrjú systkin og þau eru á svipuðum aldri og'ég, svo ég hef aldrei haft neitt með ungbörn að gera fyrr. — En það er verst með þvottinn. því ekkert þvottahús er í hús inu og verð ég að þvo í eld- húsinu. ik Ágúst er alinn upp í Hafn- arfirði, stundaði nám á Eiðum og lauk prófi frá Samvinnu- skólanum 1958, og hefur síð- ustu fjögur árin unnið við bókhald hjá Trygging hf., og unir þar vel hag sínum. Mar grét er fædd og uppalin í Miðstræti 8a, átti fyrst heima á neðstu hæðinni, en hefur smámsaman flutt sig hærra og hærra eftir því sem aldurs talan hækkaði, og búa þau hjónin nú í þremur herbergj um á efstu hæð hússins. Hjóna bandið hefur fært þeim tvo efnilega syni, þau eru í hús- byggingaihugleiðingum, eiga fjölmörg tómstundaáhugamál og fara á hverju sumri í síld norður til Siglufjarðar. Friðrik Agúst og Margrét Ljósm. Mbl. Sv. Þ. Börnin orðin tvö- — Þið eigið líklega ekki heimagengt á kvöldin? 1 — Allt læt ég það nú vera, það eru allar hendur á lofti, þegar við þurfum að bregða okkur út. 1 — Tengdaforeldrar mínir i búa á neðstu hæðinni, sagði , Friðrik til útskýringa. En það er annars skemmtilegt, að ég 1 sá þau fyrst fyrir þremur mán ' uðum, þvi þau hafa búið í , Kanada undanfarin ár. — Nei nei, ég tek ekki undir tengda mömmusögurnar, bætti hann við, kíminn á svip, það þarf að taka þær rækilega til end urskoðunar. — Hvað gerið þið ykkur helzt til gamans? — Fyrst er það nú bridge. Eg var í klúbb með skóla- félögum mínum og spiluðum við í Breiðfirðingabúð. — En ■ ég gekk í klúbbinn og hann lognaðist út af, skaut Margrét inn í. — Svo er það skáikin. Eg tefldi töluvert á mínum yngri árum og komst í meistara- flokk Hafnarfjarðar eitt sinn Þá hætti ég. -— Eg hef adldrei lagt I skákina, sagði Margrét. — Loks má geta þess, að ég leik badminton einu sinni til tvisvar í viku. En áhuga- málin eru mörg, kannski allt of mörg. — Og á sumrin höld um við hjónin norður í land í síldarvinnu. ég hef gert það í fjöldamörg ár og get ekki hugsað mér að hætta því, Síldarvinna er hressandi og 1 gefur gott í aðra hönd. Veitir i víst ekki af, ef húsbyggingar- ' j draumurinn á að rætast. / Helgi Valur klappaði saman Iófunum þegar blossarnir komu frá myndavélinni. Stóri bróðir var pínulítið feiminn. Guðmundsdóttir og Friðrik Ágúst Helgason. Heimili þeirra er að Miðstræti 8a.“ Nokkrum kvöldum síðar sátum við í stofu ungu ijjón- anna- við Miðstræti 8a. Synir þeirra tveir, Guðmundur Við- ar, 2ja ára og Helgi Valur, níu mánaða, voru sofnaðir fyrir góðri stundu, frúin renndi upp á könnuna og bar fram rjómapönnukökur og fleira góðgæti og húsbóndinn sat í hægindastól, reykti og hvíldi sig eftir önn dagsins Áður en lengra er haldið er rétt að kynna húsráðandur of urlitið fyrir lesendum. Friðr- — Þið eruð kannski þegar byrjuð? — Nei, svo langt er það nú efcki komið, anzaði Friðrik Við eigum lóð í Silfurtúni, en erum hálfsmeyk um að ein- býlishús reynist okkur ofviða a.m.k. enn sem komið er. Eg gekk því í byggingarsamvinnu félag í vetur, og vonumst við til að geta hafið byggingu í sumar. — Er ekki erilsamt á dag- inn með tvö smábörn? spyrj- um við frúna. — Elkki svo mjögi sagði Margrét. Annars er Friðrik miklu lagnari við krakka en ég, ehda á. hann fimm syst- Hun með prjónadellu — hann með híladellu 10. febrúar 1960 birtist brúð kauj>smynd af Auði Sveins- dóttur, Erlendssonar, hrepps- stjóra, Álftanesi og Gunnari Guðmundssyni. Jónassonar. Þegar við litum inn til þeirra hjóna að Barónstíg 57 var húsbóndinn nýkominn heim úr vinnunni. Húsmóðir in ,fyrrverandi símastúlka á Morgunblaðinu, tók okkur með virktum og tæplega tveggja ára sonur þeirra, Guð mundur, vappaði um gólfið og leit stórum augum á þenn an ókunna gest. — Skelfing er langt síða-n við höfum sézt, heilsuðum við Auði. þú ert steinhætt að koma niður á blað. — Já, það er alltaf nóg að gera heima fyrir, svaraði hún stússast í eldihúsverkunum, þvo og allt þetta- venjulega. — Þú fórst í húsmæðra- skóla eftir að þú hættir á Morgunblaðinu? — Já, ég hætti haustið 1959 og settist í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Fyrst eftir að ég gifti mig vann ég nokfcra tíma á dag hjá Ábreiðum hf. en hætti því þegar sonurinn fæddist í apríl 1961. — Hafið þið allaf búið hér á Barónstígnum? — Nei, fyrsta árið áttum við heima í Þverholti 20. — Ferðu ekki oft í fjalla- ferðir með manninum þínum? — Nei, ég hef ekki ennþá farið með honum, svaraði hún en ég i»í tvisvar farið með tengdaföður mínum og mall- að ofan í ferðalangana. Mín bezta skemmtun er annars að sitja heima í róleg- heitum og prjóna. Eg er víst með prjónadellu, eins og það er kallað. En maður- inn er i’fcta með bíladellu. — Er ekki alltaf nóg að gera hjá þér? Við beinum Nýgift spurningu okkar til húsbónd ans, sem vinnur hjá föður sín um við bifreiðaakstur og bif- vélavirkj un. — Jú, allt árið um kring. í fyrramálið fer ég í áætlun arferð til Hólmavíkur og verð tvo daga í ferðinni. Það er annars einkennilegt, að Hólma vík er eina þorpið á Vest- fjörðum, sem er í stöðugu vegasambandi við aðra hlufca landsins yfir vetrarmánuðina. Við förum þangað einu sinni í viku á vetrum, en tvisvar á sumrum. Það er alltaf gaman að koma til Hólmavíkur. Um leið og bíllinn rennur í hlað hópast að krakkar og full- orðnir til að taka á móti far þegum og spyrja eftir pakka. — Er ekki starfið tilbreyt- ingarríkt? Framh. á bls. 6. Auður, Gunnar og Guðmundur sonur þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.