Morgunblaðið - 27.01.1963, Síða 12
y' MORCVNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 27. janúar 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson,
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakið.
FRAMSÓKN STYÐUR
KOMMÚNISTA
CJkýringin er sú, að það eru^
Sjálfstæðismenn, sem
stjóma þessum félögum, á-
samt undirlægjum sínum,
Alþýðuflokksmönnum. Þeir
Sjálfstæðismenn, sem valizt
hafa til forystu í þessum fé-
lögum, em þæg verkfæri
flokksstjómar Sjálfstæðis-
flokksins. „Línan“, sem þeim
er fyrirskipað að fara eftir,
er í stuttu máli þessi: Hrópið
hátt gegn heimskommúnism-
anum fyrir hverjar stjórnar-
kosningar, en haldið svo
alveg að ykkur höndunum í
kjarabaráttunni milli kosn-
inga“.
Menn halda að vonum, að
þessi orð sé að finna í komm-
únistamálgagninu, en svo er
ekki. Það er málgagn Fram-
sóknarflokksins, sem í gær
er að lýsa yfir stuðningi sín-
um við kommúnista í Dags-
brún og öðrum laimþegafé-
4ögum. Enn sem fyrr er sam-
vinnan svo náin milli Fram-
sóknarmanna og kommúnista
og málflutningur þeirra svo
samræmdur, að ekki gengur
hnífurinn á milli. Kommún-
istar reka kosningamar í
Dagsbrún að þessu sinni með
geysimikilli hörku, enda telja
þeir mikið í húfi, því að þeir
hafa að undanfömu tapað
verulegu fylgi í félaginu. Og
ekki stendur á Framsóknar-
mönnum að veita þeim
fyllsta stuðning.
En það er ekki nóg með, að
Framsóknarmenn og komm-
únistar boði út allt sitt lið til
að vinna í þessum kosning-
ingum. Jafnframt er rangind-
um og bolabrögðum beitt,
eins og fyrri daginn.
Þegar kosningar hófust í
gær fengu lýðræðissinnar
loks afhenta kjörskrá, þótt
lög Alþýðusambands íslands
kveði svo á, að kjörskrár
skuli afhentar tveim dögum
áður en kosningar hefjast. Á
þessa kjörskrá vantar auðvit-
að eins og áður geysimikinn
fjölda verkamanna í Reykja-
vík. Þar að auki kom það í
Ijós, þegar við fyrstu athug-
un kjörskrár í gær, að ýmis
nöfn voru þar vægast sagt
vafasöm.
Kommúnistar ætla sér
þannig sem fyrr að reyna að
halda völdum í Dagsbrún
með fullkomnum rangindum.
SAMNINGAR IÐJL
Tíminn víkur í gær að því
að Iðja hafi enn ekki
samið á sama veg og Dags-
brún og lætur að því liggja,
að það stafi af ódugnaði
stjómar félagsins. Sannleik-
urinn í því máli er sá, að
samningar milli Iðju og iðn-
rekenda hefðu getað tekizt
á undan Dagsbrún um það
sama og Akureyrarfélögin
sömdu um. Hinsvegar standa
enn yfir samningar um á-
kvæðisvinnutaxta Iðju, en
margir félagsmenn Iðju
vinna eftir ákvæðisvinnu-
taxta. Iðja vill fá sömu
hækkun á þessa taxta sem
aðra, en býðst til að gera
samning um vinnurannsókn-
ir og vinnuhagræðingu um
leið.
Iðja er eina verkalýðsfé-
lagið á landinu, sem kostað
hefur mann til að læra vinnu-
rannsóknir og vinnuhagræð-
ingu á þremur námskeiðum,
sem Iðnaðarmálastofnun ís-
lands efndi til. Formaður
Iðju sat þessi námskeið einn-
ig. Alþýðusamband íslands
sendi mann á fyrsta námskeið
ið en gafst síðan upp. For-
ystumenn Dagsbrúnar vita
ekki enn, hvað hér er um að
ræða og t.d. upplýsti formað-
ur Dagsbrúnar á Alþýðusam-
bandsþingi, að hann vissi
ekkert um þessi mál og við-
urkenndi, að ekki hefði verið
staðið á verðinum í þessum
málum sem skyldi. Hinsveg-
ar lofaði hann bót og betrun.
Mál þessi eru þó vel þekkt í
nágrannalöndunum, þar sem
30 ára reynsla liggur að baki,
þótt þróunin hafi fyrst og
fremst átt sér stað ífá styrj-
aldarlokum. Forysta Dags-
brúnar hefur sýnilega haft
um annað að hugsa síðustu
árin en það, sem fært geti
launþegum raunhæfar kjara-
bætur.
Á Alþýðusambandsþingi
var upplýst, að tilraunir
Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna með ákvæðisvinnu
hefðu fært viðkomandi laun-
þegum allt upp í 70% kaup-
hækkun, en talið var að
hækkunin væri um 30% að
meðaltali. Hér er auðvitað
um geysiþýðingarmikið kjara
bótamál að ræða.
Iðja vinnur einmitt að því
að fullkomna ákvæðisvinnu-
taxtana og Tíminn þarf áreið-
anlega ekki að hafa áhyggjur
af því að hagsmuna iðnverka-
fólks verði ekki gætt.
KOMMÚNISTA-
ORÐIÐ
17'ramsóknarmenn kvarta tíð-
* um undan því, að Morg-
unblaðið hafi komið á þá
UTAN UR HEIMI
Sá eini, sem skipt hefur
um hjarta í lifandi veru
EINS og skýrt var frá í frétt-
um fyrir skömmu býr í Dan-
mörku lítil stúlka, sem er
fædd með hjartagalla og get-
ur ekki lifað nema nokkur
ár, ef ekki reynist fært að
skipta um hjarta í henni.
Litla stúlkan heitir Anita Jen
sen og er þriggja ára. Eini
maðurinn í heimjnum, sem
hefur tekizt að skipta um
hjarta í lifandi verum, er rúss
neski læknirinn Demikhov.
Hann hefur skipt urn hjarta í
hundum o. fl. dýrum, en hann
hefur ekki ennþá gert til-
raun til þess að skipta um
hjarta í mönnum.
Deminkhov læknir og einn hunda þeirra, sem hann hefur
skipt um hjarta í. Hundurinn er á batavegi og læknirinn
fóðrar hann sjálfur.
hjarta í fullorðnum manni,
en ekki sagðist læknirinn vita
hvenær hann myndi gera til-
raun til þess að framkvæma
slíka aðgerð. Foreldrar Anitu
litlu bíða enn í óvissu, en
Demikhov heldur áfram til-
raunum sínum og ef til vill
tekst honum að bjarga litlu
stúlkunni.
Anita litla
Foreldrar Anitu litlu skrif-
uðu rússneska lækninum og
báðu hann um að reyna að
bjarga dóttur þeirra.
Demikhov svaraði foreldr-
unum og sagðist vera fús til
þess að framkvæma aðgerð á
dóttur þeirra. Þó sagðist hann
ekki vilja gera það fyrr en
sér hefði tekizt að skipta um
Demikhov, kona hans og dóttir hans á heimi þeirra i Moskvu.
kommúnistaorði. Sannleikur-
inn er þó sá, að þann „heið-
ur“ á Morgunblaðið ekki.
Hvenær sem kommúnistar
hafa þurft á liðstyrk Fram-
sóknarmanna að halda, t.d. í
verkalýðsfélögum, hafa hin-
ir síðamefndu hlaupið upp
til handa og fóta og barizt
við hlið kommúnista, til þess
að tryggja þeim sem mest
áhrif. Það er þess vegna fyrir
afstöðu Framsóknarflokksins
og málflutning Tímans, sem
kommúnistaorðið hefur kom-
izt á Framsóknarmenn. Það
eru þeir sjálfir og engir aðr-
ir, sem þannig hafa hagað
málflutningi, að lengur dylst
ekki hve náið samstarfið við
kommúnista er.
Framsóknarmenn lýsa því
að vísu fjálglega yfir, að þeir
muni ekki starfa með komm-
únistum í ríkisstjórn, þótt
þessir flokkar fengju meirl-
hluta á Alþingi, og þeir segja,
að „þjóðfylkingaráætlun“
kommúnista sé út í bláinn.
Auðvitað hljóta menn þó
að taka slíkar yfirlýsingar
með fullri varúð, meðan
Framsóknarmenn hlaupa und
ir bagga með kommúnistum
hvenær sem þeim liggur á,
eins og t.d. nú í kosningunum
í verkalýðsfélögunum.