Morgunblaðið - 29.01.1963, Qupperneq 1
24 síður
50 árgangur
tbl. — Þriðjudagur 29. janúar 1963
Prentsmíðja Moejnmblaðsíns
Frakkar sianda
gegn aðild Breta
— þannig er afstaðan eftir fund
ráðherranefndar EBE í gærkvöldi
Brússel, 28. jan. — AP-NTB
RÁÐHERRANEFND Efna-
hagsbandalagsins kom sam-
an í Brússel í kvöld, til að
ræða, hvort haldið skyldi á-
fram samningaumleitunum
við Breta um aðild þeirra. —
Fundurinn hófst síðla dags,
og hafði þá tvisvar verið
frestað.
Er hann hafði staðið um
hríð, var gert fundarhlé. Var
það um kl. 8 í gærkvöldi eft-
ir ísL tíma. — Fundarmenn
komu saman um klukku-
stundu síðar. Þá þegar var
ljóst, að afstaða Frakka til
aðildar Breta var óbreytt.
Fréttamaður NTB-frétta-
stofunnar skýrði frá því í
gærkvöldi, að ljóst væri af
ummælum fundarmanna í
hléinu, að Couve de Murville,
utanríkisráðherra Frakka,
væri enn andvígur því, að
viðræðum við Breta yrði
haldið áfram.
Skömmu fyrir miðnætti í
nótt var tilkynnt, að hlé hefði
verið gert á umræðum í ráð-
herranefndinni, en hún
myndi koma saman í fyrra-
málið. Arangur hafði enginn
náðst.
Fer 22
hringi
L.BROY Gordon Cooper verð
ur næsti geimfari Bandaríkj
manna. Frá þessu hefur verið
skýrt í Washington, og því
jafnfamt, að hann muni fara
22 hringi umlhverfis jörðu 2.
1 april nk.
Talið er, að geimíerðin
muni taika a.m.k. sólarhring,
e.t.v. allt að 34 tíma. Gerðar
verða ýmsar tilraunir, sem
ekki hafa verið gerða í fyrri
geimferðum Bandarikjamanna
og mun einkum verða reynt,
hverja hæfileika menn hafa
til nákvæmrar stjórnar geim
fara. Miða þær að því að
ganga úr skugga um, hvern-
ig láta mætti trvö geimför hitt
ast, eins og vera mundi, ef
setja ætti saman rannsóknar
stöð úti í geiminum.
Að loknum fundinum í gær-
kvöldi létu nokkrir ráðherra
þeirra, sem tekið hafa þátt í um-
ræðunum, í ljós álit sitt.
• Luns, utanríkisráðherra
Hollendinga, sagði, að útlitið
væri mjög slæmt, og gæti hann
vart séð, að nokkrar líkur væru
til þess, að Bretar fengju aðild.
• Spaak, utanríkisráðherra
Belga, sagði, að segja mætti að
vísu, að einhver árangur hefði
náðst, en þó ekki sá, er gæfi
neina sérstaka von um frekari
árangur.
• Almennt álit fréttamanna
ér á þann veg, að líkur fyrir að-
ild Breta séu nú næstum engar
— þótt ekki sé hægt að segja, að
kraftaverk gæti ekki gerzt.
Á fundinum mun m.a. hafa
verið rætt um tillögu V-Þjóð-
verja, sem gengur út á það, að
ráðherranefndin skuli taka að
sér milligöngu í viðræðunum við
Breta, og, að gerð verði sérstök
skýrsla um viðræðurnar jýð þá,
fram til þessa. Talið er, að
skýrslan myndi ekki liggja fyrir,
fyrr en að 4 vikum liðnum. Þyk-
ir tillagan ekki ganga nógu
langt, og felur reyndar ekki ann-
að í sér, en að ekki verði þegar
í stað hætt viðræðum, eins og
Frakkar vilja.
Við því var búizt fyrr í kvöld, j§
að fundur ráðherranefndarinnar
myndi standa í alla nótt, en sú
skoðun reyndist ekki rétt.
Þá skoðun höfðu menn m.a.
dregið af því, að í allan dag
stóðu viðræður milli ráðherr-
anna innbyrðis. M.a. átti Shröd-
er, v-þýzki utanríkisráðherrann,
ákafar viðræður við de Murville.
Stóðu þær í tvær klukkustundir,
en hafa bersýnilega verið árang-
urslausar, eins og aðrar tilraunir g
til að fá Frakka til að breyta
um skoðun.
Alþingi kemui
snmon í dog
í DAG kemur Alþingi s-aman að
nýju eftir hlé það, sem varð á
störfum þess yfir hátíðirnar.
Verður fundur í sameinuðu
þingi og hefst á venjulegum
fundartíma kl. 1.30.
Verkfallið í New York olli
Eimskip miklu fjártjóni
Selfoss og Dettifoss tetjast — rœtt við
Óttar Möller, forstjóra
VERKFALL hafnarverkamanna
í New York leystist sl. fimmtu-
dag, 24. janúar, en það hófst 23.
desember. Tvö skip Eimskipafé-
lags íslands eru nú stödd í New
York og hefur Morgunblaðið rætt
við Óttar Möller, forstjóra E. í.,
um erfiðleika þá, sem verkfallið
hefur valdið félaginu. Óttarr
sagði m.a.:
— Vegna verkfallsins hafa skip
hundruðum saman stöðvast í
New York. Mikil þrengsli eru í
höfninni og öngþveiti.
— Selfoss hefur verið þar frá
11. janúar og enn er ekki víst,
hvenær hann kemst burtu. Þó
er gert ráð fyrir því síðari hluta
næstu viku.
— Unnið er nú að losun á Sel-
fossi en aðeins með 50% afköst-
um. Tvö gengi vinna í skipinu,
en þau geta verið fjögur.
— Dettifoss var væntanlegur
til New York í gær og verður
ekki byrjað á honum fyrr en
Selfoss hefur verið losaður.
— í öngþveiti því, sem skapazt
hefur, er reynt að jafna hafnar-
9 PóEariskaibátar
á N-Htlantshaii
verkamönnunum niður á skip-
in. Allir vilja fá skjóta afgreiðslu
öllum liggur á.
— Það sem næst liggur fyrir er
að reyna að koma áætluninni aft
ur í lag. Hvernig það gengur fer
þó eftir því, hversu vel losun og
lestun Selfoss og Dettifoss geng
ur. Það sézt ekki fyrr en í næstu
viku.
WASHING. .ON, 28. jan. — AP.
Frá því hefur verið skýrt í Was-
hington, að Bandaríkin hafi nú
að staðaldri 9 kafbáta, búna
Folaris-eldflaugum, á N-Atlants-
hafi. Séu þeir staðsettir þannig,
að þeir geti hvenær sem er skot-
ið eldflaugum inn fyrir landa-
mæri Sovétrikjanna.
10. kafbáturian af þessari gerð
mun brátt láta úr höfn.
Frá þessu hefur verið skýrt
vegna þeirra kafbáta, sem til
stendur að senda til Miðjarðar-
hafsins. Leggja sérfræðingar á-
herzlu á, að ekki megi rífa niður
Jupiter-.eldflaugastöðvar á Ítalíu
og í Tyrklandi, fyrr en Miðjarð-
arhafsflotinn er fullbúinn.
Enn ráð-
ist að
Stalín
Moskva, 27. janúar — AP
Andrei I Yermenenko, mar-
skálkur, er var yfirmaður
Rauða hersins við Stalingrad
(nú Volgagrad), er bardagar
stóðu þar sem hæst á stríðsár
unum, hefur birt grein í
„Pravda“ þar sem hann ræðst
harkalega á Josef Stalin. Seg
ir hann einvaldinn, fyrrver-
andi, hafa verið lélegan her-
stjórnanda, er lítt hafi kunnað
til verka.
„Hefðu ekki aðrir komið til,
þá hefði ver farið“, segir Yer
menenko. Fremstan í hópi
þeirra, er þá dugðu bezt, segir
marskálkurinn hafa verið Krú
sjeff, forsætisráðherra. Megin
efni greinarinnar er lof um
arftaka Stalins, sem sagður er
vel að sér í herstjórnarlist —
eins og fleiru.
— Það er eins með þetta verk-
fall og önnur, líka þau sem verða
hér heima, að áhrif þeirra eru að
koma í ljós löngu eftir að þeim
er lokið.
— Áætlunarferðir fara úr skorð
um og það er undir fjölmörgum
atriðum komið, hvernig gengur
að koma þeim í rétt horf aftur.
— Það má því vera augljóst, að
tjón Eimskipafélagsins verður
geysimikið, auk erfiðleikanna,
sem skapazt hafa.
— Síðasta skipið frá okkur fyr
ir verkfallið komst burtu daginn
fyrir það, eða 22. desember. Það
mátti því litlu muna, að það
skip yrði í New York allt verk-
fallið og tjón Eimskip enn meira.
Fjallfoss í isnum við Kotka í í
Finnlandi. — Sjá fréttabréf 7
frá Helga Hallvarðssyni á bls. 1
10. (Ljósm.: Guðbjartur Ás-1
geirsson). (
Tveir togarar
seldu í gær
TVEIR islenzkir togarar seldu
afla sinn erlendis í gærmorgun.
Geir seldi í Cuxhaven 153 tonn
íyirr 134 þúsund mörk .
Þormóður goði seldi í Grims-
by 154 tonn fyrir 9.898 sterlings
pund.
Stokkhólmur, 28. jan — NTB
SAS og austurríska flugfélagið
AUA hafa tekið höndum saman,
er varðar flug til Mið-Austur-
landa. Er ætlunin að ná betri
sætanýtingu, en bæði félögin
hafa flogið með fáa farþega að
undanförnu.
T ilraunabann
talið líklegt
Talið, að um />oð kunni að semjast, áður en
afvopnunarráðstefnan kemur saman 12. feb,
New YorJc, 28. jan. — NTB-AP
FRÁ því var skýrt hér í dag,
að mjög mikið hefði miðað í
samkomulagsátt um bann við
tilraunum með kjarnorku-
vopn, á fundum þeim, sem
brezkir, bandarískir og sov-
ézkir fulltrúar hafa átt með
sér að undanförnu.
Er nú talið vel hugsanlegt,
að samkomuiag kunni að
nást áður en afvopnunarráð-
stefnan sezt aftur á rökstóla
12. febrúar.
Bandaríski ambassadorinn 1
Moskvu, Foy D. Kohler, kom I
dag tdl V-Þýzkalands, á leið sinni
til Bandaríkjanna. Vestra mun
hann ræða við ráðamenn um
tveggja vikna skeið. — Kohler
ræddi við Gromyko, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, á laug-
ardag, og er ekki talið ólíklegt,
að hann kunni að hafa í fórum
sínum nánari skilaboð, varðandi
tilraunabann.
Kohler neitaði því samt við
komuna til V-Þýzkalands, að
hann hefði í fórum sínum sér-
stakt bréf frá Krúsjeff, forsætds-
ráðherra, til Kennedys, forseta.