Morgunblaðið - 29.01.1963, Blaðsíða 24
/6d
HIBYLAPRYÐI HF
Hallarmúla slml 38 177
23. tbl. — Þriðjudagur 29. janúar 1963
Vandlátir velja
78 ára kona bíöur
bana í bílslysi
Okumaðurínn réttindalaus
BANASLYS varð í gærkvöldi
á Miklubraut, skammt austan
Miklatorgs. Þar varð 78 ára göm-
ul kona fyrir bifreið. Hún lézt
nokkrum tímiun síðar á Landa-
kotsspítala.
Tildrög slyssins eru þau, að
bifreið kom ecEtir Miiklatorgi og
beygði austur Miiklubraut. Göm-
ul kona, sem var að ganga suður
yfir götuna varð fyrir framenda
bifreiðarinnar.
Hún barst nokkurn spöl með
bifreiðinni og þegar hún stanz-
aði lá konan milli framlhjólanna.
Um það bil sem slysið varð
kom lögreglubifreið eftir Miklu-
braut að austan. Kallað var á
sjúkrabifreið þegar í stað, og
flutti hún gömlu konuna þegar á
Slysavarðstofuna og síðar á
Landakotsspítala.
Um kl. 10 í gærkvöldi lézt
gamla konan. Hún býr í Reykja-
vik. Að beiðni lögreglunnar er
nafn hennar ekki birt, þar sem
ekki hafði tekizt að ná í alla að-
standendur hennar.
ökuskilyrði voru sæmileg um
það bil sem slysið varð. Ökumað.
urinn kvaðst ekki hafa séð til
konunnar fyrr en hún var fast
við framenda bifreiðarinnar.
Ökumaðurinn er aðeins 16 ára
gamall, og hefur því ekki öku-
réttindi. Hann hafði fengið bif-
reiðina lánaða hjá föður sínum.
Faðirinn tjáði lögreglunni, að
pilturinn hefði fengið bifreiðina
lánaða í því trausti, að hann
hefði réttindamann til að aka
henni.
/epp/ úf af veginum í Svínahrauni:
7 menntaskóla-
piltar slasast
RÚSSNESKUR jeppi fór út
af veginum í Svínahrauni um
kl. 18 í gærkvöldi. f honum voru
7 menntaskólapiltar úr Reykja-
vík, sem voru á leið heim úr
skíðaferð. Þeir slösuðust allir
meira eða minna, og tveir voru
fluttir á sjúkrahús.
Slysið varð með þeim hætti, að
jeppabifreiðinni R-10096 var ek-
ið eftir þjóðveginum í Svína-
hrauni á leið til Reykjavíkur.
Skammt vestan við Skíðaskál-
ann í Hveradölum mun jeppinn
hafa runnið til í hálkunni og út
fyrir vinstri vegarbrún. Að sögn
ökumanns mun hraðinn hafa
verið 60—70 km á klukkustund.
Jeppinn rann á hliðinni ca. 10
metra niður brattann, en kast-
aðist þá á vinstri hliðina og snér-
ist jafnframt til, þannig að fram
endinn vissi að veginum.
Jeppinn rann svo áfram þannig
Sjálfstaeðiskvennafélagið Hvöt
hefur hlutaveltu í Listamanna-
skálanum n. k. sunnudag, þann
3. febrúar. Vill stjóm félagsins
hvetja allar Sjálfstæðiskonur til
að gera hlutaveltuna sem glæsi
legasta með því að safna sem
beztum munum.
Upplýsingar gefur Gróa Péturs
dóttir, öldugötu 24 (sími 14374),
María Maack, Þingholtsstræti 24
Kristín Magnúsdóttir, Hellusundi
7 (sími 15768), Guðrún Jóns-
dóttir Skaftahlíð 25 (sími 33449),
Sigurbjörg Runólfsdóttir, Heiðar
gerði 74. (sími 34436). Má koma
munum á hlutaveltuna til þeirra
eða í Listamannaskálann á laug
ardag.
á vinstrí hliðinni, þar til hann
lenti á grjóthrygg og hentist upp
á hann og kom niður á hjólin.
Auk ökumanns voru í jeppan-
um 6 piltar, nemendur í 4. og 5.
bekk Menntaskólans úr Reykja-
vík, að sögn lögreglunnar. Þeir
voru að koma úr skíðaferð.
Fyrstir á slysstaðinn voru Jón
Ólafsson, Laugardælum, Flóa, og
Þórir Ólafsson, læknir, Laugar-
ási, Biskupstungum.
Piltarnir voru allir meira og
minna slasaðir, og reyndu þeir
Jón og Þórir að aðstoða þá eftir
mætti. Sumir piltanna. a.m.k.
voru fluttir í Skíðaskálann í
Hveradölum, meðan beðið var
eftir lögreglu og sjúkrabifreið
frá Reykjavík.
Piltarnir voru allir fluttir í
Slysavarðstofuna og gert að
meiðslum þeirra, en tvo þurfti
að flytja í Landsspítalann. Hinir
voru fluttir heim frá Slysavarð
stofunni.
Framlh. á bls. 2
fyrir neðan.
(Ljósm.: Jón Víðis)
Bíll valt í brekku og urð
Bóndi litt meiddur úr flakinu
LÁTRUM, 27. jan. — f gær valt
bíll í Bjamgötudal og gereyði-
lagðist, enda mun hann hafa
oltið í urðinni um 30 m. Bíl-
stjórinn slapp með skrámur og
telja þeir sem séð hafa aðstæð-
ur það ganga kraftaverki næst,
því hann lá krepptur uppi undir
gólfinu á bílnum á hvolfi, með
benzinið flóandi.
Vegurinn niður á Rauðasand
um Bjarngötudal er mjög bratt-
ur með mörgum beygjum, og því
stórhættulegur á hvaða tíma sem
er, ef eitthvað út af ber, ekki
sízt að vetrinum.
Tryggvi Eyjólfsson, bóndi á
Lambavatni, var í gær að aka
niður dalinn á Landrover jeppa
sínum. Er hann kom að neðstu
bygjunni, skipti hann bílnum
niður, því þar var lítilsháttar
snjór. Er niður úr beygjunni
kom, skipti hann bilnum upp
aftur, því auður vegur var fram-
undan. Tryggvi kvaðst varla
hafa verið búinn að gefa upp
kúplinguna, þegar hann hafði
ekki lengur vald á bílnum.
Skipti það engum togum að bíll-
inn fór út af og valt niður hlíð-
ina.
í klemmu undir gólfinu
Ekki er Tryggva ljóst hvort
það var af ásettu ráði eða til-
viljun að þegar bíllinn tók
fyrstu veltuna, kastaði hann sér
undan stýrinu niður á gólfið,
hugsandi um það eitt að láta
fara sem minnst fyrir sér og
halda sér fast. Vildi það honum
til lífs, því þegar bíllinn stöðv-
Tryggvi Eyjólfsson
aðist vissu hjólin upp. Húsið og
húddið voru svo samanbarin að
þau þrengdu að Tryggva, þar
sem hann lá uppi undir fólfinu.
Tryggvi var með fullri rænu,
þegar bíllinn stöðvaðist, þrátt
fyrir þung högg á höfuðið. Varð
því fljótlega ljós eldhættan,
sem stafaði af benzíni er flóði
úr benzíngeyminum yfir hann
og heita vélina. Kvaðst hann í
hálfgerðu ofboði hafa rifið sig
út úr flakinu þótt honum og
öðrum sé varla skiljanlegt með
hvaða hætti það mótti verða.
Framhjól sprakk
Tryggvi sem var einn í bíln-
um má heita ómeiddur og taug-
ar hans í lagi, en með skrámur
hér og þar. Telja þeir sem hafa
séð flakið og aðstæður það
knaftaverk eitt að hann skyldi
sleppa lifandi, því bíllinn hafði
oltið 30 metra 1 urðinni og er
hann talinn ónýtur.
Framh. á bls, 23
SVFÍ hefur bjarg-
að 6281 manni
Á MORGUN, 29. janúar, eru lið- forustumanna í Fiskifélagi ís-
in 35 ár frá stofnun lysavarna-
félags íslands. Það var stofnað
29. janúar 1928 fyrir forgöngu
Heilfrystitæki sett í Narfa
Samið um árssölu í Englandi
Akranes
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi
halda fund á Hótel Akranesi
fimmtudaginn 31. janúar n.k.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun
Akranesbæjar 1963 og önnur
mál.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn hafa fram-
sögu um málin á fundinum.
BV. NARFI fór aðfaranótt
mánudags áleiðis til Englands
og Þýzkalands. í þessari ferð
verða sett í hann, fyrstan ís-
lenzkra togara, frystitæki,
sem hægt verðxu: að heil-
frysta aflann í á miðum úti.
Samið hefur verið um fasta
sölu í Bretlandi til eins árs,
og er verðið ‘IV-i sinnum það,
sem fæst á íslenzkum mark-
aði.
Guðmundur Jörundsson, út-
gerðarmaOur, kvaddi biaðamenn
á sinn fund sl. sunnudag og
skýrði þeim frá þessum fyrir-
huguðu framkvæmdum.
Guðmundur kvað togararekst-
ur okkar hafa verið byggðan á
miklu aflamagni á fjarlægum
miðum. Nú hefði afli brugðizt,
og því glímdu alldr útgerðar-
menn við spurninguna, hvað
hægt væri að gera til björgunar
þessari atvinnugrein. Fyrst og
fremst væri hugsað um það,
hvernig ná mætti sem mestu
verðmæti úr þeim litla afla,
sem fengist.
Aður en ákveðið var að gera
fyrirhugaðar breytingar á bv.
Narfa, kvaðst Guðmundur Jör-
undsson hafa kynnt sér rækilega,
hvað nágrannaþjóðir okkar væru
að gera í þessum efnum, eink-
um Bretar og Þjóðverjar, og
hefði nú undirbúningur að þess-
um framkvæmdum staðið í hálft
annað ár.
Fullvinnsla um borð
veldur vonbrigðum
Erlendis hefði víða verið lagt
inn á þá braut að hefja vinnslu
um borð í togurum, einkum
stærri togurum og skuttogurum.
Framh. á bls. 6.
lands, og Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Ægi í Reykjavík
og félagið var stofnað vegna
hinna mjög tíðu sjóslysa. í til-
efni af afmælinu fékk blaðið í
gær eftirfarandi upplýsingar hjá
Henry Hálfdánarsyni, skrifstofu-
stjóra:
í þessi 3'5 ár hafa 780 menn
drukknað með skipum sem fór-
ust, 86 farizt við skipströnd, 223
við að falla útbyrðis á rúmsjó,
328 drukknað við land með ýms-
um hætti, 39 beðið bana af
meiðslum við sjóvinnu og 257
beðið bana vegna hernaðarað-
gerða. Alls eru þetta 1712 manns
og er þetta skv. skrá hjá Slysa-
varnafélaginu.
Aftur á móti hefur verið bjarg
að samtals 6281 manni frá sams
konar hættum á sama tíma eða:
3130 úr strönduðum skipum, 936
úr skipum sem hafa farizt, 178
úr brennandi skipum, 406 frá
drukknun við land, 1442 frá
völdum hernaðarátaka, og 187
frá öðrum voða á sjó, árekstrum.
o. s. frv.
Tók Henry fram að í rauninni
mætti bæta þarna við ölluin
þeim þúsundum sem björgunar-
og eftirlitsskip hafa komið til
hjálpar, en þau hafa veitt lö—16
þús. sjómönnum mikilsverða að-
stoð á þessu tímabili.