Morgunblaðið - 29.01.1963, Blaðsíða 2
2
MORCVTSBL 4 Ð1Ð
T»riðjudagur 29. janúar 1963
Kommúnistar í Þrótti beittu
sömu brögðum og í Bagsbrún
UM helgina fóru fram kosn-
ingar í tveimur verkalýðsfé-
Iögum, sem kommúnistar
hafa ráðið yfir. Svo virðist
vera, sem svipuð vinnubrögð
hafi verið viðhöfð í báðum
þessum félögum, og að stjórn-
endur þeirra beggja hafi gert
sig seka um mikla misnotkun
á valdi sínu. Hér í blaðinu
hefur verið skýrt frá þeim
lögbrotum og ofbeldisbrögð-
um, sem höfð voru í frammi
í Dagsbrún og hafa svipuð
brögð verið viðhöfð í Þrótti,
félagi vörubifreiðastjóra.
I»ar voru atkvæði, sem
greinilega voru greidd B-list-
anum, dæmd ógild. Þar var
einn stuðningsmaður B-list-
ans strikaður út af kjörskrá,
og þar voru tveir stuðnings-
menn A-listans settir inn á
kjörskrá og látnir greiða at-
kvæði, þrátt fyrir miklar
skuldir við félagið.
x-o-x
Nánari atvik að þessum brögð-
um eru sem hér segir:
1. Þegar verið var að telja
atkvæði á sunnudagskvöldið,
komu upp úr atkvæðakass-
anum þrjú atkvæði, sem
greinilega voru merkt B-list-
anum, þ. e. krossað hafði
verið við B. Hins vegar
hafði verið strikað yfir einn
frambjóðandann á listanum
á öllum þessum seðlum. Þessi
þrjú atkvæði voru umsvifa-
laust úrskurðuð ógild, enda
þótt þau fælu í sér beina yfir
lýsingu um vilja viðkomandi
kjósanda.
2. Þegar kosning hófst kom
í Ijós, að einn stuðningsmað-
ur B-listans hgfði verið kærð
ur út af kjörskrá. Sú kæra
var byggð á þeirri forsendu,
að viðkomandi maður ætti
ekki bifreið þá, sem hann
æki. Þessi maður skilaði
bæði afsali og öðrum gögn-
um um það, að hér var ekki
farið með rétt mál, en hann
fékk enga áheym og var
meinað að kjósa.
3. Tveir stuðningsmenn A-
listans skulduðu verulegar
upphæðir, bæði í stöðvargjöld
og önnur félagsgjöld. Þessum
mönnum voru gefin eftir
gjöld sín, svo að unnt væri
að koma þeim á kjörskrá.
Þessi eftirgjöf var alveg á-
stæðulaus og einungis gerð í
því skyni að afla kommúnista
stjóminni í Þrótti atkvæða.
4. Formaður Þróttar, Einar
ögmundsson, misnotaði hús-
næði Landssambands vöru-
bifreiðastjóra á mjög víta-
verðan hátt í kosningunum.
Notaði hann húsnæðið fyrir
kosningaskrifstofu A-listans.
5. Af hálfu A-listans var
hafður í frammi áróður á
kjörstað, en slíkur áróður er
með öllu bannaður í lögum.
Mættu ákveðnir stuðnings-
menn A-listans á kjörstað,
tóku kjósendur tali og reyndu
að hafa áhrif á það, hvemig
þeir greiddu atkvæði.
x-o-x
Þessi dæmi, sem hér eru
rakin, sýna, svo að ekki verð-
ur um villzt, að hér er að
verki sama hugarfarið og hjá
kommúnistum í Dagsörún,
sem hafa ekki hikað við að
falsa kjörskrár og hafa í
frammi hvers konar ranginði
til þess að tryggja sigur sinn
í kosningunum.
Sverrir Júliusson, form. LÍÚ, setur aðalfund sambandsins með
ræðu, vinstra megin við hann er Sigurður H. Egilsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ og hægra megin Jón Ámason alþm., er var
kjörinn fundarstjóri.
Aðalfundur LÍÚ hófst i gær:
Pólitísk misnotkun torveldaði
lausn síldveiðideilunnar
23. AÐALFUNDUR LÍÚ hófst í
gær með því, að form. Sverrir
Júiiusson, setti fundinn með ræðu
og mun hún síðar verða birt í
heild í Mbl. Á fundinum voru
mættir um 85 fulltrúar víðs-
vegar að af landinu og mun fund
urinn aðallegan fjalla um ástand
og horfur i sjávarútvegsmálum
auk venjulegra aðalfundarstarfa.
Látinna sjómanna og útvegs-
manna minnzt.
í upphafi máls síns minntist
Sverrir Júlíusson 25 íslenzkra
sjómanna, sem drukknað hafa
síðan síðasti aðalfundur var hald
inn, og ennfremur eftirtalinna út
vegsmanna, er látizt hafa:
Magnúsar Bergssonar, Vest-
Flugvélin á veginum milli Keflavíkur og Reykjavíkur. (Ljósm. Sv. Þorm.)
Flugvél sat föst á Hafn-
arfjarðarvegi
Morgunumferðin tafbist nokkuð
í gærmorgun festist fiugvél á
Hafnarfjarðarveginum hjá Silf-
urtúni og varð af því umferðar-
töf fram um kl. 10 um morgun-
inn. Verið var að flytja flugvél-
ina frá Keflavík til Slökkviliðs-
ins á Reykjavíkurflugvelli, sem
ætlaði að nota hana til æfinga.
Þarna var um að ræða gamla
orustuflugvél af gerðinni F-89,
sem búið var að leggja, og ætl-
aði varnarliðið að láta slökkvi-
liðið á Reykjavíkurflugvelli fá
hana til að brenna á æfingu. Var
lagt af stað með flugvélina frá
Keflavíkurflugvelli kl. 1.30 um
nóttina, eða eftir að siðasti áætl-
unarbíll kl. 12 úr Reykjavdk var
kominn suðurhjá. Skv. upplýs-
ingum frá Guðmundi Guðmunds-
syni, slökkviliðsstjóra á Reykja-
víkurflugvelli, gekk ferðin sæmi
lega, þó með nokkrum stönzum,
alla leið í Silfurtún, en þangað
var komið um 6 leytið um morg-
uninn. Varnarliðið sá um flutn-
inginn, en lögreglan á Keflavík-
urflugvelli fylgdi í Engidal, þar
sem Reykjavíkurlögreglan kom
á móts við flutningatækin, skv.
beiðni, og tók við fylgdinni.
Staurar stóðust á.
Ámóts við Silfurtún voru tveir
ijósastaurar utan við veginn,
hvor gegn öðrum, en annars stað-
ar standa sturar á misvixl. Milli
þessara staura er 10—12 m haf,
en það var heldur lítið fyrir
vængjahaf fiugvélarinnar, sem
sat þarna föst.
Þegar morgunumferðin byrj-
aði um veginn, varð að þessu
nokkur töf. Litlir bílar komust
þó hindrunarlítið undir vængi
vélarinnar, en strætisvagnar gátu
ekki komizt framhjá. Gekk fólkið
undir vænginn og skipti um
vagn, en hinir snéru við í sömu
átt og þeir komu. Tafðist fólk
því nokkuð til vinnu. Mjólkur-
bíll tafðist, en flestir komust ut-
an með flugvélinnL
Guðm. Guðmundisson sagði að
nú væri verið að taka sundur
vængina um hjólin, en þá verð-
ur vængjahafið ekki nema 8 m
og hægt að flytja vélina áfram.
Sagði hann, að Slöfckviliðinu á
Reykjavíkurflugvelli þætti leitt
að hafa á þennan hátt truflað
umferð um veginn og bæði þá,
sem fyrir því urðu, velvirðingar
á óhappnu.
Á undanhaldi
LEIKDÖMUR Sigurðar Gríms-
sonar um hið nýja leikrit Þjóð-
leikhússins „A undanhaldi" hef-
ur borizt blaðinu en varð vegna
þrengsla að bíða til miðvikudags.
— 7 piltar
iramhald af bls. 24.
Jeppinn, sem er rússneskur og
með blæjum, er stórskemmdur.
Kranabíll írá Vöku flutti hann
til Reykjavíkur.
Að beiðni lögreglunnar eru
nöfn piltanna ekki birt að svo
i stöddu.
mannaeyjum; Jóns Jörundssonar,
Keflavík; Fals Guðmundssonar,
Keflavík; Gísla Magnússonar,
Vestmannaeyjum; Skúla Thorar
ensen, Reykjavík og Arngríms
Fr. Bjarnasonar; ennfremur
minntist formaður Friðriks V.
Ólafssonar, skólastjóra Stýri-
mannaskólans, sem lézt á sl. ári.
Fundarmenn risu úr sætum sín
um í virðingarskyni við hina
látnu menn.
Afkoma bátaútvegsmanna og
sjómanna almennt góð.
Þá veik Sverrir Júlíusson að
þvi, að aflabrögð bátaflotans hafi
verið"lnjög góð, einkum síldar-
afHnn, en afli togaranna hins veg
ar mjög rýr; sala sjávarafurða
gekk mjög greiðlega og hafa
nokkrar hækkanir orðið á þeim
nema á lýsi, sem lækkaði mjög
mikið á árinu. Þá hefur afkoma
bátaútvegsmanna og sjómanna
verið almennt mjög góð á árinu,
en þó ærið misjöfn. Kvað hann
það allt of almennt, þegar rætt
væri um þessi mál, að mænt væri
á þá báta, sem mestan afla hefðu.
Benti hann á, að meðalhlutur há-
seta hjá einum útvegsmanni sl.
ár, sem á 4 báta, var 160.000 kr.
Pólitískt óbragð.
Þá rakti Sverrir Júlíusson síid
arsamningana sl. sumar og sagði
um þá m.a.:
„Viðræður þessar voru langar
og strangar og lyktaði þannig,
eins og mönnum er kunnugt, að
löggjafarvaldið varð að grípa inn
í og setja bráðabirgðalög um
gerðardóm. — — —
Þessi málalok í samningavið-
ræðum fulltrúa sjómanna og út-
vegsmanna eru báðum aðilum til
mikillar vansæmdar, því að þess-
ir aðilar eiga frekar en aðrar
stéttir að geta komið sér saman
um afraksturinn".
Kvað hann það hafa torveld-
að lausn málsins, að viss öfl
hafi keppt að því að gera málið
pólitískt í því skyni að klekkja á
ríkisstjórninni, en eigi skeytt um
hag þjóðarheildarinnar og þá,
sem afkomu sína áttu beint und
ir síldveiðunum. Hið sama mætti
segja um haustverkfallið, af því
hafi alla tíð verið pólitískt ó-
bragð.
Að lokinni ræðu Sverris Júll
ussonar var flutt skýrsla sam-
bandsstjórnarinnar fyrir liðið
starfsár, mjög yfirgripsmikið yf
irHt yfir hagsmunamál útvegs-
manna og hvernig þeim hefir
reitt af.
Því næst voru kosnar nefndir,
sem hinum ýmsu málum, sem
fram munu koma á fundinum,
verður vísað til: Fjárhags- og við
skiptanefnd, Allsherjarnefnd, Af
urðasölunefnd, Skipulagsnefnd
og Stjórnarkosninganefnd. Þess
ar nefndir voru kosnar eftir til-
lögum nefndanefndar, sem kosin
hafði verið í upphafi fundarins.
Samkvæmt yfirliti kjörbréfa-
nefndar eru kjörnir fulltrúar á
aðalfundi, en nokkrir aðrir út-
vegsmenn munu sitja fundinn.
Sigurður H. Egilsson, fram-
kvæmdastjóri las og skýrði árs-
reikninga sambandsins og Inn-
kaupadeildar þess, fyrir árið
1961.
í gærkvöldi fóru fram umræð
ur um skýrslu stjórnarinnar og
skiluðu fulltrúar hinna ýmsu
sambandsdeilda erindum umbjóð
enda sinna til aðalfundarins.
Úrslit Dagsbrúnarkosninganna
Völd kommúnista
byggjast á lögleysu
ÚRSLIT Dagsbrúnarkosning-
anna, sem fóru fram um sl.
helgi urðu þau, að A-listinn,
listi kommúnista, borinn
fram af stjórn og trúnaðar-
mannaráði, hiaut 1389 at-
kvæði, en B-listinn, sem bor-
inn var fram af lýðræðissinn-
um í félaginu, hlaut 630 at-
kvæði. Úrslit þessi sýna nær
óbreytt hluföll frá síðustu
stjórnarkosningu, en þá hlaut
A-listinn 1443 atkvæði en B-
listinn 693 atkvæði. Atkvæða-
mismunurinn í stjórnarkosn-
ingunum í fyrra var 750 at-
kvæði, en núna 759.
í Alþýðusambandskosningun-
um sl. haust fengu lýðræðissinn-
ar 649 atkvæði, en kommúnistar
1251 atkvæði. Frá þeim tíma
hefur stórlega fækkað á kjör-
skrám og kom glöggt fram í kosn
ingunum, að nær eingöngu
fylgismenn lýðræðissinna höfðu
verið strikaðir út.
Það, sem einkenndi þessar
kosningar, var fyrst og fremst
algjör samstaða kommúnista og
Framsóknarmanna, sem m.a.
kom glöggt fram í Tímanum
meðan á kosningunum stóð og
ennfremur margvísleg lögbrot
Dagsbrúnarstjórnarinnar varð-
Framh. á bls. 23,