Morgunblaðið - 29.01.1963, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.01.1963, Blaðsíða 14
14 MORGVNBLAÐIÐ ÞHðjudagur 29. janúar 1963 Olium þeim mörgu nær og íjær, sem veitt hafa okkur aðstoð með gjöfum og sýnt okkur vinarhug á annan hátt, vegna fráfalls eiginmanna okkar þegar m/b Helgi fórst, sendum við okkar innilegustu þakkir. Sérstakar þakkir sendum við Ásgrími Halldórssyni kaupfélagsstjóra, fyrir ómetanlega aðstoð. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Sigjónsdóttir, Steinunn Runólfsdóttir, Höfn, Hornafirði. Mitt innilegasta þakklæti til ættingja og viná nær og og fjær, sem heiðruðu mig á margvíslegan hátt á 70 ára afmæli mínu. — Kærar kveðjur. Einar Jóhannesson, Stykkishólmi. Röskur sendisveinn óskast hálfan daginn. Vinnutími frá kl. 1—5 e.h. Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h.f. Skúlatúni 6 — Sími 15753. Móðir mín og tengdamóðir ARNDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR lézt að heimili okkar Ruds Vedby-Apótek Danmark aðfaranótt sunnud. 27/1. Hrefna og Erling Lange Jensen. Maðurinn minn SVEINN BJARNASON frá Neskaupstað andaðist 26. þ. m. — Fyrir hönd vandamanna. María Hjálmarsdóttir, Köldukinn 30, Hafnarfirði. Maðurinn minn, RAGNAR GUÐMUNDSSON Hrafnabjörgum, Arnarfirði, andaðist í Landsspítalanum 27. janúar. Kristín Sveinbjömsdóttir. Dóttir okkar, HILDUR ÓLAFSDÓTTIR verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. þ.m. kl. 3 síðdegis. Margrét Ólafsdóttir, Ólafur Jensson. Eiginkona mín HULDA JÚLÍUSDÓTTIR Holtsgötu 13, verður jarðsungin fimmtudaginn 31. janúar kl. 13,30 eftir hádegi frá Dómkirkjunni. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minn- ast hennar er bent á Sjálfsbjörg Félag lcimaðra og fatl- aðar. Sveinn Elíasson. Maðurinn minn GUÐMUNDUR AXEL BJÖRNSSON vélsmiður, sem andaðist 21. þ. m. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 31. janúar kl. 114 e.h. — Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en þeim sem vildu minn- ast hins látna er bent á líknarstofnanir. Fyrir mína hönd, barna minna og annarra aðstand- enda. Júlíana Magnúsdóttir. Jarðarför föður okkar og tengdaföður ÓLAFS BRYNJÓLFSSONAR Ásenda 12, fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 30. þ. m. kl. 10,30 f. h. Brynjólfur Ólafsson, Kristrún Jónsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Gísli Jakobsson, Sigurður Ólafsson, Gyða Ingólfsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð við fráfall GUÐMUNDAR JÓNSSONAR Bakka. Jóna Guðmundsdóttir, Unnur og Kjartan Einarsson og dætur. Sigríður Pétursdóttir í BREIÐAFJARÐAREYJUM var löngum búsæld mikil og gnótt fanga til bjargræðis, ef ekki brast dugur og narðfengi að afla þeirra. Á síðastliðinni öld var efnahag ur þar betri og menning meiri, en annars staðar á landinu. Þar var aldrei sultur, og Móðaharð- indin gengu þar hjá garði. Þar voru afburða sjómenn og sjó- konur, sem reru til fiskjar, veiddu sel og fugl, nytjuðu egg og dún. Svefneyjar eru einar Breiða- fjarðareyja, og þar er Sigríður Pétursdóttir í heiminn borin 31. maí 1890. Foreldrar hennar voru Volgerðv Bjaritadóttir, bveðjo Fædd 14. desember 1870. Dáinn 16. janúar 1963. Ég kveð þig frænka, kvöldsól þín er hniginn nú komið er þitt hinnsta sólarlag. Á nætur hiimni stjarna björt upp stigin er stafar geislum fram á næsta dag. Því lífið vemíist alkærleikans eldi þótt hér ljúki síðasta jarðlífs kveldi. Við lifum í því ljósi er daprast eigi, það Ijós, er von og trú á Frelsarann, og þótt að okkur jarðlifs bölið beygi, þeim blessast allt er festir trú á hann, hann láti af náð, þér ljós sitt eilíft skína, þig leiði og blessi, og alla vini þína. Þín minning geymist hlý í vina hjörtum með hjartans þakkir fyrir liðinn dag. Þar er svo margt af gleðigeislum björtum sem glæða í hugum fagurt söngva lag. í friði drottins far á nýjar leiðir Guðs Föður náð þar hverjum skugga eyðir. Guðrún Guðmiundsdóttir •igjaiipny tuj Minning þau Pétur Hafliðason og Svein- sína Sveínsdóttir. Þau eignuðust mörg börn og var Sigríður hin fimmta af niu systkinum. Sigríður ólst upp á heimili foreldra sinna, unz hún var kom in á þroskaaldur. Vann hún, ung að aldri, öll venjuleg heimilis- störf, að sjómennskunni einni undanskilinni. Sigríður mun hafa verið inn- an við tvítugt, þegar hún kvaddi eyjarnar, til þess að fara í kvennaskólann á Blönduósi. Þar var hún við nám í tvo vetur, en var í kaupavinnu í Húnaþingi sumarið milli námsvetranna. Að loknu námi á Blönduósi gerðist hún farkennari á Barðaströnd í tvo vetur, en lét þá kennslu lok- ið í bili. Sigríði mun hafa leikið hug- ur á að sjá sig um í heiminum, og því tók hún sig upp og fór til Kaupmannahafnar. Þar dvaldi hún um tveggja ára skeið. Ekki átti fyrir Sigríði að liggja að ílendast í Danmörku. Nú var ferðinni heitið heim — til Reykja víkur, og þar kynntist hún mann inum, er varð eiginmaður henn- ar, Jóni skipstjóra Jóhannssyni. Þau giftust'10. okt. 1915 og reistu bú að Stýrimannastíg 6, og bjuggu þar æ síðan. Jón skip- stjóri lézt 9. okt. 1960. Þau hjón- in eignuðust tvö börn: Þor- björgu, búsetta í Reykjavík og Jóhann, garðyrkjubónda í Mos- fellssveit. Þá tóku þau í fóstur Sigríði Guðmundsdóttir, sem er systurdóttir Sigríðar. Jafnhliða því að sjá um heim- ilið á Stýrimannastíg 6, stundaði Sigríður handavinnukennslu í skólum hér í bæ um nær þrjátíu ára skeið, auk þess, sem hún var sívinnandi að áhugamálum sín- um, m.a. í kvennadeild Slysa- varnafélagsins, þar sem hún gegndi ábyrgðarstörfum um all- mörg ár. Þau hjónin áttu mjög fallegt heimili, sem Sigríður var ætíð að prýða og snyrta í hjáverkum sínum. Hinir fjölmörgu listmun- ir sem heimili hennar prýddu, báru vott um handbragð hús- freyjunnar og frábæran lista- smekk. Var það einkennandi fyr- ir hana að hún leitaðist ætíð við að þroska þennan hæfileika sinn. Sigríður Pétursdóttir var kona kynborin. Stórglæsileg á yngri árum, fas og framkoma tigin- mannleg, í hærra meðallagi á vöxt og samsvaraði sér vel. — Andlitið fölt og svipmikið, aug- un dökk og lifandi, óvenju fög- ur, oftast geislaði af þeim góð- leik og hlýju, en gátu orðið hvöss ef í harðbakkann sló. Örlát við gesí og gangandi. Sigríður var skapkona, tilfinningarík, en kunni þó vel með að fara. Það var mjög jafnsnemma, að Sigríður missti heilsuna og mað- ur hennar andaðist. Það sem þjáði hana nú, var þrálátur hjartasjúkdómur, sem að lokum var banamein hennar. Á síðastliðnu hausti veiktist hún enn, þá nýkomin frá hælis- vist í Danmörku, var flutt i Landakotssjúkrahús og þar and- aðist hún 18. jan. sl. Sigríðar verður saknað a£ mörgum, en þeir sakna hennar mest, sem þekktu hana bezt. Útförin fer fram í dag frá Fossvogskapellu. J. B. LOKAD í dag kl. 2—4, vegna jarðarfarar. Gleraugnasalan FÓK U S Lækjargötu 6 B. IJtgerðarmenn sem láta byggja fiskiskip, utanlands sem innan- lands ættu að æskja þess sérstaklega, að Mustad saumur eingöngu, sé notaður í skipið.— O. Mustad & Sön hafa framleitt skipasaum í ára- tugi, og hefur Mustad saumurinn fengið viðurkenn- ingu víðsvegar um lönd fyrir óbrigðul gæði. ©.Mwstta® & Stofnað 1832. Aðalumboð á íslandi 0. J0HNS0N & KAABER há

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.