Morgunblaðið - 29.01.1963, Blaðsíða 4
4
MORGU N BLAÐ1Ð
Bókhald
Tökum að okkur bókhald
og uppgjör. Getum bætt
við nokkrum fyrirtækjum.
Bókhaldsskrifstofan Þórs-
hamri við Templarasund. ]
Sími 24119.
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng- |
urnar. Seíjum æðardúns-
og gæsadúnssængur — og
kodda af ýmsum stærðum.
Dún- og fiðurhreinsunin
Kirkjuteigi 29. Sími 33301.
Permanent litanir
geislapermanent, — gufu ]
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastíg 18 A - Sími 14146 j
Blý
keypt hæsta verði.
Ámundi Sigurðsson
málmsteypa, Skipholti 23.
Sími 16812.
Miðstöðvarketill
Miðstöðvarketill 8—10
fermetra með tilheyrandi
hitatækjum til sölu. Sími
1762Ö.
Tauþurrkari (dryer)
stærri gerðin Westhing-
hoause til sölu. Sxmi 17625.
Kona með tvö böm
óskar eftir ráðskonustöðu.
Upplýsingar í síma 17736.
Loðnunót
óskast til kaups eða leigu.
Uppl. í síma 23810.
Vörubílstjóri óskast
í Laugarneshverfi. Reglu-
samur heimilisfaðir situr
fyrir. Aldur óskast tekin
fram. Tilboð leggist inn á
afgr. Mibl. fyrir fimmtu-
dagskvöld merkt: „17—
6483“.
Bókahilla og bækur
til sölu. Upplýsingar í
síma 15778, eftir kl. 19.
Ung hjón
óska eftir tveggja herb. |
íbúð í Reykjavík eða ná-
grenni, fyrirframgreiðsla
kemur til greina. Uppl. í
sima 35288.
Til leigu
stór stofa með borðstofu
útskoti og aðgangi að eld-
húsi. Fyrirframgreiðsla
Uppl. í síma 12633, eftir
kl. 20.
Óska eftir að taka
sölutum á leigu. Tilb.
merkt: „Söluturn 6484“,
sendist afgreiðslu Mbl.
fyrir föstudag.
Barngóð kona
óskast á heimili, þar sem i
húsmóðir vinnur úti. —
Herbergi getur fylgt. Uppl.
í síma 37044.
íbúð óskast
Ung reglusöm hjón óska
eftir 2 herb. íbúð. Uppl. i
síma 17528.
Lát mig heyra miskunn þina að
morgni dags, því aS þér treysti ég,
gjör mér kunnan þann veg, er ég á
að ganga, þvi að til þín hef ég
sál mina (Sálmur 143).
í dag er þriðjudagur 29. janúar.
29. dagur ársins .
Árdegisflæði kl. 7:57.
Síðdegisflæði kl. 20:23.
Næturvörður vikuna 26. jan-
úar til 2. febrúar er í Ingólfs
Apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði
vikuna 26. janúar til 2. febrúar
er Páll Garðar Ólafsson sími
50126.
Læknavörzlu í Keflavík hefur
í dag Arnbjöm Ólafsson.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 eJi. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur era opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
Orð lífsins svarar 1 síma 10000.
Helgafell 59631307 IV/V 2.
n EDDA 59631297 — 1.
BMR 1-2-20-FH-FR.
FRETIIn
Kvenfélag Neskirkju. Fundur verS-
[ ur í kvöld kl. 8.30 í félagsheimilinu
Félagsvist og kaffi.
ÁRSHÁTÍÐ. Eskfirðinga og Reyð-
firðinga verður haldin laugardaginn
2. febrúar að Hlégarði. Þátttaka til-
kynnist í síma 36200 og 38232.
ANGLIA: Á næstunni verður stofn
aður bridgeklúbbur innan félagsins
Anglia. I>eir meðlimir félagsins, sem
áhuga hafa á þátttöku, eru beðnir
að hafa samband við frú Dóru Briem,
á miðvikudag kl. 1—2 eii. í sima
38226.
Náttúrulækningafélag Reykjavíkur:
Fundur verður í Náttúrulækninga-
| félagi Reykjavíkur, miðvöcudaginn
30. janúar kl. 8,30 síödegis í Guðspeki-
félagshúsinu, Ingólfsstræti 22. Dr.
I Melitta Urbancic flytur ernidi: Um
hunangið. Gunnar Kristinsson syng
ur einsöng við undirleiik Gunnars
Sigurgeirssonar. Á eftir verður veitt
heilsute með hunangsbrauði og heil-
hveitikökum. Félagar fjölmennið, ut-
anfélagsfólk velkomið.
Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur
fund i samkomusal Iðnskólans (Vita
tígsmegin) miðvikudag 30. jan. kl.
20,30. Dr. Björn Sigurbjörnsson ílyt-
ur erindi með myndum: „Akrar í
auðnum íslands". Fleiri skemmtiat-
riði. Konur, vinsamlega fjölmenið. —
Stjórnin.
Ljósmæðrafélag islands heldur
skemmtifund miðvikudaginn 30. jan
ér hefst kl. 8,30 e.h. að Hverfisgötu
21. Kvikmynd, gamanvísur. (ath. kvik
myndin hefst kl. 9.) Allar Ijósmæður
velkomnar. Fjölmennum. — Skemmti
nefndin.
Kvenfélag Neskirkju. Fundur verð
ur þriðjudaginn 29. janúar kl. 8,30
e.h. í félagsheimilinu. Félagsvist og
kaffi.
Sjómannastofan Hafnarbúðum er op
in alla daga og öll kvöld. Oskilabréf
til sjómanna má . vitja þangað.
»É 'Æiúi
Loftleiðir h.f.: Eiríkur rauði er
væntanlegur frá London og Glasgow
kl. 23:00. Fer til NY kl. 00:30.
Hafskip h.f.: Laxá fór frá Akranesi
25. þm. til Skotlands. Rangá er í
Rvík.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannhafnar kl. 08:10 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Ísafjarðar, Sauðárkróks og
Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Isafjarðar, Húsavíkur, og Vestmanna-
eyja.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell átti að
fara í gær frá Seyðisfirði áleiðis til
Gdynia og Wismar. Arnarfell er í
Rotterdam. Jökulfell er væntanlegt
til Cloucester 30. þ.m. frá íslandi.
Dísarfell fer í dag frá Hamborg til
Grimsby og Reykjavíkur. Litlafell er
í Rvík. Helgafell er í Aabo. Hamra-
fell er í Rvík. Stapafell er væntan
legt til Manchester á morgun.
H.f. Eimskipafélag íslands:
Brúarfoss er á leið til Dublin og NY
frá Rvik. Dettifoss fór fra Hafnarfirði
10. þ.m. til NY. Fjallfoss er á leið tU
Rvíkur frá Ventspils. Goðafoss fór frá
Keflavík í bærkvöldi til Bremerhaven.
Gullfoss fer í dag frá Kaupmannahöfn
til Leith og Rvikur. Lagarfoss er á
leið til Rvíkur. Reykjafoss kom til
Antwerpen í gær. Selfoss er í NY.
Tröllafos6 fór i gær frá Avonmouth
til Hull, Rotterdam, Hamborgar og
Esbjerg. Tungufoss fór í gær til Hull
og Rvikur frá Avonmouth.
H.f. JÖKLAR: Drangajökull er vænt
anlega á Akranesi i dag, fer þaðan
til Cuxhaven, Bremerhaven, Hamborg
ar og London. Langjökull fer til Rvík
ur í kvöld og þaðan til Clouchester og
Camden. Vatnajökull er á leið til
Grimsby, Calais og Rotterdam.
Skipaútgerð rikisins: Hekla er j
Vestfjörðum á suðurleið. Esja er
Rvik. Herjólfur fer frá Vestmanna
eyjum kl. 21.00 i kvöld t»l Rvíkur
J>yrill er í Rvík. Skjaldbreið er í Rvík
Herðubreið er í Rvík,
Þriðjudagur 29. janúar 1963
—»------------------------—
Benni á barnum '1
Sumir eru að segja að okkar
siðferðið sé gallað.
En aðrir segja ekki bops
þótt um það gætu fjallað.
Svo er um hann Benna hérna
á bamum fyrir handan.
Hann kveðst ei vilja karpa nm það,
þótt kjafti hann allan fjandann.
Það er kannski að kenna þvi
að kom ein löggu-tuðra
á barinn til hans Benna eitt kvöld
í bleðlum hans að snuðra.
Og kauðinn taldi að grúsk sitt hefði
gefið það til kynna,
að svindil Benna á gini og vodka
gæti verið minna.
En Benni við því brást sem aðrir
beztu landsins synir.
Hann sagðist bara verðlagt hafa
vinið eins og hinir.
En hætt er við að bágleg verði
Benna eftirtekja.
eftir þetta þras og snuður.
Já, þvilík bölvuð frekja!
Og nú mun Benni verða að selja
sjónvarpið og Fordinn.
Og ósköp hæpið að bann geti
oftar gefið „lordinn".
Já, sumir eru að segja að okkar
siðferði sé bogið.
Og mér finnst eins og mörgu hafi
meira verið logið.
Brandur.
Úr safni Einars Þórðarsonar frá
Skeljabrekku.
etta votta þeir sem bezt
þjálfa tal og muna,
að þeir hafi hátta mest
heiðrað ferskeytluna.
Er hún þjóðleg alltaf ný
áþekk skrýddri brúði,
stakan rétta reifuð i
ríms og stuðla skrúði.
Hugnæmt efni, háttur dýr
hagleik birti taman.
Frumleg hugsun frjáls og skýr
fara þyrfti saman.
(Guðfinna orsteinsdóttir: Ferskeytlan)
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Guðrún Ósk Sig-
urðardóttir frá Bæ í Lóni og Þórir
Oddssson húsgagnasmiður Greni
mel 17.
Síðastliðinn laugardag opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Ester
Frimann Eiríksdóttir Heiðargerði
96 og Örn Ingvarsson, Njálsgötu
34.
Síðbstliðinn laugardag opin-
beruðu trúlofun sína Málfríður
Jónsdóttir Mjóuhlíð 14 og Bragi
Eiríksson, Njálsgötu 49.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína Ingibjörg Andrésdóttir
snyrtidama Lynigbrekku 19.
Kópavogi og Rögnvaldur Har-
aldsson, lögregluþjónn Stóra-
gerði 6, Reykjavik.
Nýlega haJa opinberað trú-
lofun sína Erla Gunnarsdóttir,
Hörpugötu 12, og Þórður Guð-
mrundsson, Mávahlíð 44.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Nína Guðleifs Miklu
braut 70 og Kristinn Engil'berts-
son Skúlagötu 74.
—♦
80 ára afmæli átti í gær
Carl Bartels, úrsmíðameist-
ari, Nýlendugötu 22.
Carl hefur stundað úrsmíð-
ar og verzlað með úr og skart-
gripi hér í borg í meira en
65 ár. Átti hann fyrst verzlun
við Laugaveginn, en verzlaði
síðar lengi í Veltusundi, við
Lækjartorg, og í Ingólfsstræti.
JUMBÓ og SPORI
Teiknari J. MORA
Júmbó athugaði vandlega, hvort
Spori gengi nógu eðlilega. Gakktu
nú ekki of hratt, sagði nann í aðvör-
unartóni, enginn má fara að hugsa
um það, hvert við erum að fara.
— Þú hefur rétt að mæla, svaraði
Spori, en hvernig lízt þér á þá hug-
mynd að taka strætisvagninn?
— Stórkostlegt, og þegar við erum
kommr út úr þessu óláns þorpi, er
okkur vonandi óhætt.
— Það vildi okkur þó til happs, að
við gátum losað okkur við koffortin,
sagði Spori. En hann sagði það einu
andartaki of snemma, því að nú kom
lafmóður maður hlaupandi á eftir
þeim og hrópaði: — Afsakið, herrar
mínir, en þér hafið gleymt koffort-
unum yðar í kaffisölunxú.