Morgunblaðið - 29.01.1963, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.01.1963, Qupperneq 20
20 MORGVNBLAfílÐ Þriðjudagur 29. janúar 1963 PATRICIA WENTWORTH: MAUD SILVER KEMUR I HEIMSÓKN Meðan hún var að bíða eftir sambandinu, fór hún að segja við sjálfa sig, að þetta væri nú bjánaskapur af henni að vera að hringja upp, en ef til vill slyppi hún frá afleiðingum af því, vegna þess, að hún hitti ekki á hann heima. En það yrði hann, ef hann væri í hádegisverði, en svo var líka allt eins vel til, að hann kæmi ekki heim í mat. Hann gæti líka allt eins vel ver- ið hér á ferðinni, ef Drake full- trúi, sem var undirmaður hans, hefði verið búinn að gefa skýrslu sína. Einhver tók símann hinumeg- in. Randall March sagði halló. Rietta roðnaði upp í hársrætur. Hversvegna í ósköpunum hafði hún nú farið að hringja hann upp? Skárri var það nú bjána- skapurinn! Hún heyrði sína eig- in rödd segja, með djúpum og rólegum tón: — Er þetta þú, Randal? — Hann svaraði vingjarnlega, eins og það gleddi hann: — Rietta? Roðinn hvarf úr kinnum henn ar. Hún hugsaði: Hann er þá ekki búinn að frétta af því — það var ágætt. Hún sagði: — Það var bara nokkuð, sem mig langaði að spyrja þig um. Það er um hana ungfrú Silver, vinkonu þína. Þú veizt, að hún er sem stendur hjá henni frú Voycey, sem er gömul skóla- systir hennar.... — Já, þetta var ég búinn að heyra. Hefurðu hitt hana? Já, hún er alveg einstök, finnst þér ekki. — Jú, Randal. En hversu fær er hún í sinni grein? Hann hló. — Alveg fyrsta flokks, vertu viss! Nei, það er annars ekki rétta orðið. Hún er eins og kennari í bekknum og við eins og krakkabjálfar við hliðina á henni. Rietta hélt áfram og röddin varð dýpri og dræmari: — Er þér alvara með þetta? — Já, fyllsta alvara. Er eitt- hvað að? — Já, heldur betur. Hún sneri yfir í frönsku, til vonar og vara. — James Lessiter var myrtur í gærkvöldi. — Já, þetta hef ég heyrt, en ég hef bara ekki fengið skýrsl- una ennþá. Rietta Cray sagði: — Og ég er helzt grunuð um það. Hún sleit samtalinu. xxra. Randal March leit upp úr vél- rituðu örkunum, sem hann hafði verið að lesa. Hann las þær til enda, athugasemdalaust, þangað til hann hafði lokið við þá síð- ustu, en þá sagði Drake fulltrúi: — Jæja, þarna hafið þér það eins og það leggur sig. Því verð- ur ekki neitað, að ungfrú Gray liggur undir sterkum grun. March brosti. — Góði maður minn, þetta er eins og hver önn- ur vitleysa. Ég hef þekkt ungfrú Cray síðan ég var krakki. Hún gæti bókstaflega ekki rotað nokkurn mann með eld- skörung. Drake rétti úr sér. Nú, svona átti að fara með hann. Stétta- rígurinn gaus upp I honum, beizkur eins og saltvatn. Kann hafði þekkt hana síðan hann var krakki — þessvegna var það ó- hugsandi, að hún væri sek! Það var meiri samábyrgðin hjá þessu fólki! Þunna nefið á hon- um varð ennþá þynnra, er hann sagði: — Já, þetta er alltaf sagt, þangað til sannleikurinn kemur í ljós. Morðinginn er alltaf eins og annað fólk, þangað til hann hefur snöruna um hálsinn. Randall Mareh var maður skapgóður, eins og margir eru, sem njóta góðrar heilsu og góðr- ar samvizku, en þarna gat hann ekki stillt sig um að verða dá- lítið vondur. Hann varð hissa á því sjálfur. En sem betur fór gat hann stillt sig um að láta á því bera og endurtók aðeins fyrri fullyrðingu sína. — Það er óhugsarilegt, að ungfrú Cray gæti framið morð. Drake varð ennþá aumari á svipinn. Nú líktist hann mest soltnum ref. — Það, sem við verðum fyrst og fremst að leita að, er sann- anir. Ef þér viljið aðeins líta betur yfir þessar skýrslur, mun- uð þér sjá, að ungfrú Cray hefur góða og gilda ástæðu til verksins. Hún var trúlofuð hr. Lessiter fyrir eitthvað tuttugu árum. Hún segist sjálf hafa slit- ið trúlofuninni, en hún neitar að færa fram ástæðua til þess, og þarna er almennt álitið, að hon- um hafi farizt ódrengilega við hana. Ég segi ekki, að neinar sannanir séu fyrir því, að hún hafi borið kala til hans, en þó væri það vel hugsanlegt. Og svo kemur hann heim eftir öll þessi im Um næstu mánaðamót þarf Morgunblaðið að ráða unglinga eða rosk ið fólk til að bera blaðið til kaupenda við þessar götur í borginni: Njálsgöfu — Miklubraut — Fjólu- & Sóleyjargölu — Hvassaleiti — Austurbrún JPlorgMttWafiiíi s>>»> 2-24-so — Ég fer ekki með þig héðan út fyrr en þú hefur lært að segja: „Góðan daginn, amma“. ár Og veit ekki aura sinna tal. Þá komum við að viðburðunum í gærkvöldi Hr. Carr Robertson neitar að láta hafa neitt eftir sér. Það er mínu áliti, freklega grun samlegt. Ég skyldi ekki fárast um það ef hann væri eldri. Það er eðlilegra fyrir fullorðið fólk að vera varkárt, en það ar ekki eðlilegt hjá ungum manni. Þvert á móti mjög grunsamlegt. Hann veit eitthvað, sem hann er hræddur um, að geti litið illa út, annaðhvort fyrir sjálfan hann eða ungfrú Cray, og þessvegna þegir hann eins og steinn. En lítið þér á framburð ungfrú Bell. Af honum framgengur greini- lega, að hr. Robertson hefur þot- ið úr með hurðaskellum, eftir að hafa séð myndina af hr. Lessiter í myndablaði og nafnið hans undir. Ég hef komizt að því, að þeir tveir höfðu aldrei sézt, en í sama bili sem Robert- son sér myndina, kannast hann við hana og þýtur út. Nú er því fleygt þarna, að kona Robert- sons hafi strokið til Frakklands meðan maður hennar var í Þýzkalandi, en enginn vissi með hverjum hún hafði strokið. Þá losnar Robertson úr herþjónust- unni og kemur heim. Snögglega kemur konan hans heim aftur og er þá orðin veik. Maðurinn, se hún strauk með, hefur skilið við hana allslausa. Robertsön tekur við henni og hjúkrar henni, og hún deyr....það eru eitthvað tvö ár síðan. Og svo heyrir maður, að hann hafi ein- sett sér að komast að því, hver maðurinn hafi verið, sem dró konuna á tálar. Frú Fallows, sem vinnur hjá ungfrú Cray, hefur einhverja sögu að segja um einhverja mynd. Segist hafa heyrt RobertsOn segja frænku sinni, að hann mundi þekkja manninn, ef hann sæi hann, af því að Marjorie — það var kon- an hans — hafi átt mynd af honum. Nú þetta ev vitanlega eins og hvert annað bæjarslúður — en það kemur bara heim við söguna. Ef við nú komum aftur að framburði ungfrú Bell, og þá sjáum við, að Robertson er ekki fyrr þotinn út úr dyrunum, en ungfrú Cray þýtur út um hinar dyrnar. Hún grípur fyrstu yfir- höfnina, sem hún festir fingur á — og það vill svo til, að frændi hennar átti hana — og fer upp KALLI KUREKI * * Teiknari: Fred Harman — Svo að þú ætlar þér að drepa menn, sem þú hefur aldrei augum iitið. Mér verður blátt áfram flök- urt af tilhugsuninni. — Nei, bíddu rólegur, það varst alls ekki þú, sem ég hafði í huga — og ég Dið afsökunar og bið þig um að gleyma þessum mistökum mínum. — Jæja, ég tek afsökun þína til greina, og þá er aðeins eftir að. í Melling-húsið, og þar heyrir frú Mayhew Lessiter segja henni af erfðaskránni, sem hann gerði, henni í hag, þegar þau voru trú- lofuð forðum, þar sem hann á- nafnar allar sínar eigur Henri- ettu Cray. Og hún heyrir hann segja: „Ef Carr hinn ungi myrð- ir mig í kvöld, erfir þú dá- laglega upphæð“. Drake þagn- aði nú og fannst rökin, sem hann hafði fært fram, áhrifa- mikil og knýjandi. Randall March sagði aðeins: — Jæja þá? — Jæja, þá, mér þykir eng- inn vafi á því leika, að ástæðan til þess, að tmgfrú Cray fór að hlaupa upp til Lessiters hafi ver ið sú, að hún vildi vara hann við því, að hanri gæti orðið fyrir einhverju ofbeldi af hendi Rob- ertsons. Randall March brosti vin- gjarnlega. ajlltvarpiö Þriðjudagur 28. janúar. 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp . 13.00 „Við vinnuna": Tónleikar. 14.40 „Við, sem heima sitjum" (Sig ríður Thorlasius). 15.00 Síðdegisútvarp. 18.00 Tónlistartími barnanna (Guð- rún Sveinsdóttir). 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Einsöngur í útvarpssal: Jón Sigurbjörnsson syngur; Fritz Weisshappel leikur undir á píanó. 20.20 Þriðjudagsleikritið: „Tiginn skjólstæðingur" eftir Sir Art- hur Conan Doyle og Michael Hardwick. — Leikstj. Flosi Ólafsson. 21.00 Frá tónlistarhátíðinni í Reckl- inghausen. 21.15 Erindi: Kirkjan og þjóðfél- agið (Auður Eir Vilhjálms- dóttir cand. theol.). 21|.40 Tónlistin rekur sögu sína; VI. þáttur: (Þorkell Sigur- björnsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög irnga fólksins (Guðný Aðalsteinsdóttir). 23.00 Dagskrárlok. 16250 VINNINGAR! Fjórði hver miði vinnur að meðaltali! Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur. Lægstu 1000 krónur. Dregið 5. hvers mánaðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.