Morgunblaðið - 29.01.1963, Page 22

Morgunblaðið - 29.01.1963, Page 22
22 MORGVISBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. janúar 1963 4,96 m ÞAÐ er nú skammt stórra högga á milli á sviði stangar- istökks. Finninn Nikula setti heimsmet innanhúss fyrir vikú síðan 4,92 m. Banda- ríkjamaðurinn Dave Tork ■ bætti það nokkrum dögum seinna í 4,93 m. Og nú um helgina stökk Formósumaðurinn Yang 4,96 m og er það mesta stangar- stökk sem stokkið hefur ver- ið, því íeimsmetið utanhúss \ er 4,94 (Nikula). Yang er tugþrautarmaður, varð m. a. annar á OL í Róm. Hann kemur mjög á óvart sem heimsmethafi í stangar- stökki. Honum gekk keppnin núna illa í byrjun, fór 4,57 m í þriðju tilraun, en síðan all- ar hæðir í 1. tilraun unz hann fór 4,96 í þriðju tilraun. Hann átti 3 tilraunir við 5 imetra en tókst ekki vel. Sig. Gíslason, KR, fær óblíðar móttökur hjá vörn Fram. Fram heldur forystunni en Víkingar standa bezt TVEIR leikir fóru fram I 1. deild á sunnudagskvöld og eftir þá hefur Fram forystu í deild- inni, en Víkingar standa þó bezt að vígi, með aðeins 1 stig tapað fram til þessa. Víkingar unnu Þrótt 25-22 og Fram vann yfirburðasigur vfir KR 33 gegn 24. VÍKINGUR — ÞRÓTTUR vissir um of gegn Þrótti og það svo að sigur liðsins virtist um tíma í hættu. Komust Þróttarar í 6 marka forskot, 13-9 um tíma en í hálfleik hafði Þróttur 1 mark yfir. Eftir það var úthaldið mjög þevrrandi hjá Þrótturum en Víkingar náðu þó aldrei veru- lega sterkum tökum á leiknum þó þeir ynnu örugglega með 3 marka mun. Víkingar hafa oft leikið betur en nú. Það er eins og liðið sýni annan og lakari svip, þegar mótherjinn er fyrir- fram talinn af veikara taginu. FRAM — KR Fram náði snemma undirtök- um í leik við KR og sýndu Framarar á köflum mjög skemmtilegan leik. Höfðu þeir öll völd á vellinum og mörkun- um rigndi. Urðu þau als 33 gegn 24. Leikurinn var prúðmannlega leikinn en aldrei verulega tví- sýnn eða spennandi, því yfir- burðir Framara voru miklir Víkingar voru sennilega sigur- Viðar og Lárus. (Ljósm.: Sv. Þorm.) SkreiÖarframleiðendur sigruöu í badminton Skemmtilegri firmakeppni lokið StÐASTLIÐINN laugardag voru háðir úrslitaleikir í firmakeppni Tennis- og Badmintonfélags Reykjavíkur. Var keppnin mjög tvísýn frá upphafi, enda var hún með forgjafarsviði til þess að jafna styrkleikamun kepp- endanna, og nokkra leiki þurfti að útkljá með aukalotu. Þau fjögur firmu, sem lengst komust voru þessi: Föt hf, Herradeild P. Ó., Samlag skreiðarframleið- enda, Heildverzlun Bjarna Þ. Halldórssonar. Tvö hin síðast- töldu sigruðu keppinauta sína og komust til úrslita. Fyrir S a m 1 a g skreiðarframleiðenda kepptu þeir Lárus Guðmunds- son og Viðar Guðjónsson, en fyrir Heildverzlun Bjarna Þ. Halldórssonar þeir Einar Jóns- son og Matthías Guðmundsson. í báðum liðum voru því gamal- reyndir kappar, þeir Einar og Lárus, en með þeim léku yngri menn í íþróttinni, báðir þó mjög efnilegir. í úrslitaleiknum reyndust þeir Lárus og Viðar sterkari og unnu fremur léttilega með 15:5, 15:5, og þar með hafði Skreiðarsam- lagið hlotið sigur í þessari skemmtilegu keppni, sem nokk- uð á annað hundrað firmu tóku þátt í. Tennis- og Badmintonfélagið er þakklátt þeim fyrirtækjum sem styrktu félagið í fjárhags- lega með þátttöku sinni. Ágóð- anum er fyrst og fremst varið til barna- og unglingastarfsem- innar, en einnig nýtur húsbygg- ingarsjóðurinn góðs af. Dregið hjá KR DRÉGIÐ hefur verið hjá borg- arfógeta í hlutaveltuhappdrætti KR, sem fram fór í Listamanna- skálanum síðastliðinn sunnu- dag. Upp komu eftirtalin númer: Nr. 7873: Ferð fyrir 2 til og frá Færeyjum með skipi. Nr. 1462: Úttekt fyrir krónur 1000,00 hjá HÁ. Nr. 2504: Úttekt fyrir krónur 1000,00 í Hellas. Handhafar ofanskráðra núm- era geta vitjað ávísana á vinn- ingana hjá Gunnari Sigurðssyni e/o Skipaafgreiðslu Jes Zimsen. (Birt án ábyrgðar). Sundmeistaramót Rvíkur í kvöld — og úrsSit í sundknattleik SUNDMEISTARAMÓT Rvík- leikur sundknattleiksmeistara ur fer fram í Sundhöllinni í mótsins, en mótið hefur staðið kvöld kl. 8,30 og er alls keppt að undanfömu. Keppa Ár- í II greinum karla, kvenna og mann A-lið og Ægir til úr- unglinga. Allmargir gestir ut slita og nægir Ármann jafn- an af landi taka þátt í mótinu tefli til sigurs í mótinu. Hef svo þama verður kjarai sund ur nýtt líf færzt í sundknatt- fólks okkar. Gera má ráð fyrir leiksíþróttina og án efa hafa að mest beri á Guðmundi margir áhuga á að horfa á Gíslasyni eins og á fyrri mót- þessa skemmtilegu íþrótt, sem um. talin er einna erfiðust allra í mótslok fer fram úrslita- íþrótta. — Utanrikisviðsk. Framh. af bls. 17. an frá Austur-Evrópulöndunum, jókst lítilsháttar frá dollaralönd- unum, en stórjóikst frá Vestur- Evrópu og öðrum frjálsgjaldeyr- islöndum, eða um 536 millj. kr. Sjávarútvegurinn og aðrar at- vinnugreinar hafa í auknum mæli keypt nauðsynjar sínar frá þessum löndum. Stækkun frílist- ans og hæfckun innflutninigskvót- anna hefur einnig átt verulegan þátt í aukningunni. Innflutning- ur bifreiða var gefinn frjáls haustið 1961, og frá ársbyrjun 1962 var bætt við frílistann hjól- börðum og slöngum, ljósaperuim, sjóklæðum, rafmagnsritvélum o. fl., og frá 1. apríl nokkrum fleiri vörutegundum. Loks hefur tolla- lækkunin í nóvember 1961 á vefnaðarvörum og ýmsum öðrum vörum haft áhrif í sömu átt. Minnkun innflutningsins frá Austur-Evrópu er einkurn fólgin í minni innflutningi á timbri, olíu og bifreiðum frá Sovétríkjunum og á skipum frá Austur-Þýzka- lendi. Þegar litið er á Vestur-Evrópu löndin ber mest á aukningunni frá Noregi (síldartunnur, vélar og tæfci), Svíþjóð (rafmagnsvél- ar, bifreiðar), Finnlandi (pappír og timbur), Bretlandi (flutninga tæki, sumningsolía og benzín, og Hollenzku Vestur-Indíum (olía og benzín). INNFLUTNIN GUR EFTIR VÖRUFLOKKUM. f eftirfarandi töflu er innflutn ingnum skipt í þrjá flofcka eftir notkun varanna. Skipting þessi getur ekki verið nema gróf, þar sem ekki er unnt að greina sund- ur mikilvæga vöruflokka. Elds- neyti er t.d. alit talið með rekstr- arvörum og meðal fjárfestingar- varanna eru ýmsar varanlegar neyzluvörur. Breytingar á vöru- flokkunum koma samt sæmilega skýrt fram. Neyzluvörur og hráefni til neyzluvöruframleiðslu ......... Rekstrarvörur ................ Skip og flugvélar ............ Aðrar fjárfestingarvörur ..... Veigamesta breytingin á sam- setningu innflutningsins er sú, að hlutfall fjárfestingarvaranna hækfcar, en rekstrarvaranna lækkar. Innflutningur fjárfest- ingarvara sýnir hækfcun um 244 millj. kr. og kemur hún aðallega fram á eftirtöldum vöruflokk- um: Timbur (um 17 millj. kr.), járn og stál (26 millj. kr.), rafmagns- vélar (47 millj. kr.), aðrar vélar (35 millj. kr.) og bifreiðir (73 millj. kr.). Helztu hækkanir að því er rekstrarvörurnar snertir, eru í trjá- og korkvörum( spón, síld- artunnum o.fl.) um 70 millj kr., áburði (25 millj.) hjólbörðum og slöngum (15 millj.), og pappir (7 millj. kr.). Hins vegar lækfcar inn flutningur á eldsneyti lítilshátt- ar. N eyzluvöruinnf lutningur inn hækkar um 134 millj. kr., eða rúm 17%. Helztu hækkanir i þessum flokki eru á kornvörum um 8 millj. kr., ávöxtum og græn meti (11 millj. kr.), tóbaki og áfengi (22 millj. kr.), vefnaðar- vörum (55 millj. fcr.) og skó- fatnaði (14 millj. kr.). VIÐHORFIN FRAMUNDAN. Þegar þjóðarframleiðsla og lauin taka örurn vexti, eins og átti sér stað á síðastliðnu ári, er hætt við, að ofþensla myndist i efnahagslífinu. Á síðustu tveim- ur áratugum hefur slík þróun iðulega leitt til rekstrarerfiðleika hjá útflutningsatvinnuvegimum og versnandi gjaldeyrisstöðu. Fyrr eða síðar hefur orðið að grípa til gagnráðstafana í ein- hverju formi. Að þessu sinni hefur betur tek izt til en oft áður. Sjávarútvegur inn var betur við búinn og verð á útflutningsafurðum fór hækkandi Með markvissri stefnu í pen- ingamálum og fj'ármálum tókst að sporna við ofþenslu. Aðgerð- ir seðlabanfcans fcomu i veg fyrir, að auknar gjaldeyristekjur hefðu í för með sér óeðlileg bankaút- lán og treystu góða gjaldeyris- stöðu, en hún er meginforsenda frjálsra utanríkisviðskipta og erlends lánstrausts. Greiðsluaf- gangur hjá ríkissjóði miðaði að sama marki. Útlán banka og sparisjóða jufc ust um 663 millj. kr. til nóvem- berloka sl. en á sama tíma juk ust spariinnlán um 527 millj. kr, og veltiinnlán um 288 millj. fcr. Innlánaaukniingin er því 152 millj. kr. umfram aufcningu út- lána. Jafnframt bættu bankar og isparisjóðir aðstöðu sína gagn- vart seðlabankanum um 392 millj. kr. og átti innlánabinding in mestan þátt í þvi. Afkoma. ríkissjóðs hefur verið góð á árinu, þó að rekstraraf- gangur hafi líklega ekki orðið I eins mikill og á fyrra ári. Eins Jan.—nóv. ’61 Jan.—nóv. '( mill. kr. % millj. kr. % 777 27.6 911 27,5 1029 36.5 1163 35.1 89 3.2 69 2.1 923 32.7 1167 35.3 og ástatt er, er nauðsynlegt, að ríki og bæjarféiörg stefni að ríf- legum greiðsluafgangi, sem lagð ur er fyrir, og stilli í hóf fjár- festingu sinni eins og frekast má verða, því að áhrifum bankakerf- isinseru takmörk sett. Hitt er ekki síður nauðsynlegt að hagsmunasamtök launþega og atvinnurekenda miði stefnu sina í kaupgjaldsmálum við það, að komizt verði hjá verðbólgu. Með því er unnt að tryggja jafnastan og öruggastan vöxt þjóðarfram leiðslu og þjóðartekna. Almenn kaupgjaldshækkun umfram aukn ingu framleiðsluafkasta leiðir ó- hjákvæmilega til rýrnunar á verð gildi krónunnar, en séu laun á sem flestum sviðum miðuð við af- köst, em horfur góðar á batnandí Ufskjörum landsmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.