Morgunblaðið - 21.02.1963, Qupperneq 17
Fimmtudagur 21. febrúar 1963
*A ( t;, w i í j ¥l ' ' V O il
MORCVNBLAÐIÐ
Sigurður Benjamínsson
málmsteypumaður
F. 13. febr. 1908. D. 13. febr. 1963
í DAG fer fram frá Fossvogs-
kirkju útför Sigurðar Benjamíns
sonar rhálmsteypumanns, en hann
lézt snögglega á heimili sínu 13.
þ.m. á afmælisdaginn sinn, er
hann varð 55 ára.
Sú einkennilega tilviljun, að
lát Sigurðar skyldi bera upp á
afmælisdag hans, minnir mig ó-
þægilega á eitt síðasta samtal
okkar, er hann kom heim til
mín fyrir um það bil tveim vik-
um. í>á barst talið m.a. að hjarta
sjúkdómnum, sem hann þjáðist
af og lét hann þá þau orð falla,
að svo væri nú komið heilsu
hans, að hann væri hvergi örugg
ur að lifa næsta afmælisdag sinn.
Lát Sigurðar kom engan veginn
á óvart og var hann sjálfur fyrir
löngu búinn að gera sér grein
fyrir að hann myndi ekki eiga
langt eftir.
Sigurður stundaði erfiða vinnu
sem steypumeistari í Járnsteyp-
unni, en þar hafði hann unnið í
liðlega 30 ár. Vegna heilsubrests
hefði kannske mátt segja að
hann hefði átt að velja sér létt
ara starf síðari árin. Hins vegar
var hann þannig skapi farinn að
hann kunni lítt að hlífa sér og
reyndi ávallt í starfi að afkasta
jafnmiklu og yngri menn, þótt
þrotinn væri af þeirri snerpu er
til þurfti. Mátti oft heyra það á
honum síðasta árið, að hann yrði
að leggja alla orku fram til þess
að geta uppfyllt þær kröfur, er
hann gerði til sjálfs sín. Það eru
orðnir sjaldgæfir menn, sem hafa
þennan hugsunarhátt að leggja
sig alltaf fram til þess að gera
það bezta, jafnvel þótt með því
ofbjóði þeir heilsu og kröftum.
Sigurður var hagleiksmaður og
átti til þeirra að telja. Faðir hans |
var Benjamín Jónsson oftast
nefndur Benjamín í Hamri og
flestum eldri Reykvíkingum
Jcunnur og talinn mesti hagleiks-
maður. Faðir Benjamíns var Jón
Þórarinsson, er hér rak smiðju
Jengi um aldamótin og var tal-
inn góður smiður, en hann var
dóttursonur Jóns Andréssonar frá
Öxl, er var þjóðhagasmiður.
Móðir Sigurðar var Guðlaug
Árnadóttir, systir Árna heitins
Árnasonar fyrrum meðhjálpara
við Dómkirkjuna.
Ævistarf Sigurðar varð steypu
smíði og við þau störf vann
hann eins lengi og kraftar ent-
ust. Fáum dögum áður en Sigurð
ur lézt varð hann fyrir því óhappi
að handarbrjóta sig við vinnu,
vegna þess að hann ætlaði sér
verk er var tveimur ætlað. Galt
hann þar oÆurkaþpe, en það var
eins og hugboðið um fáa hérvist
ar daga hefði rekið hann áfram
við vinnuna.
Sigurður vinur minn var eink-
ar heilsteyptur maður og trygg-
ur vinur vina sinna. I>að lyndis-
einkenni, sem mér fannst tákn-
rænast fyrir hann var hinn
sterki vilji hans á því að vera
aldrei neinum skuldugur. Munu
flestir, sem einhver kynni höfðu
af honum, kannast við þetta.
Skipti þar ekki máli hvort um
peningamál var'að ræða eða ann
að. Greiði skal á móti greiða
koma var kjörorðið. Hitt skipti
minna máli hvort hann fengi laun
að það, er hann gerði öðrum vel.
Við hjónin munum sakna vinar
í stað. Allt frá því er við stofn
uðum heimili hefir Sigúrður ver
ið tíður aufúsugestur hjá okkur.
Og börnin okkar munu sakna
hans, því svo var honum farið að
börn hændust að honum eins og
yfirleitt góðum mönnum, enda
næm fyrir því er inni fyrir býr.
Sigurður var greindur vel og glað
lyndur og bjó yfir góðri frásagnar
gáfu. Við munum öll minnast
góðs vinar og óteljandi ánægju-
• stunda með honum á kyrrlátum
kvöldstundum, er hann heimsótti
okkur á undanförnum árum.
Kveðjur okkar og barnanna
fylgja honum yfir landamærin
til eilífs lifs.
Sigurður giftist 4. apríl 1930
eiginkonu sinni Súsönnu Páisdþtt
ur. Þeim varð ekki barna auðið.
Heimild til að
selja eyði jörðina
Lækjarbæ
JÓN Pálmason hefur lagt
fram á alþingi frumvaip þess
efnis, að ríkisstjórninni sé heim-
ilt að selja eyðijörðina Lækjarbæ
í Fremri-Torfustaðahreppi, Vest
ur-Húnavatnssýslu, Sigurgeir
Jonatanssyni bónda að Skeggja
stöðum í Fremri-Torfustaða-
hreppi fyrir það verð, sem ákveð
ið er samkvæmt mati dóm-
fcvadd.ra manna.
SKIÐI - SKAUTAR
ASKSKÍÐI fyrir fullorðna frá kr. 579.
ASKSKÍÐI fvrir börn frá kr. 98.;:—
SKÍÐASTAFIR frá kr. 144 —
SKÍÐI með plastsóla frá kr. 2047.—
SKIÐAABURÐUR
TOKO
í úrvali.
SKÍÐA-
ÚLPUR
SKÍÐA-
GLERAUGU
STAKIR
GORMAR
SKIÐASLEÐAR
SKÍÐASKÓR
margar gerðir
frá kr. 549.—
SKAUTAR: HOCKEY og LIST.
Sportvöruverzlun
BÚA PETERSEN
Bankastræti 4 — Símar 20313 og 20314.
Árið 1942 lézt Lára, systir Sig-
urðar, eftir barnsburð. Tóku þau
hjón son Láru, er var látinn
heita I>árus eftir móður sinni.
Þennan dreng ólu þau upp sem
eigið barn og gerðu eins vel við
hann og þeim var auðið. Það
var ein mesta ánægjustund í lífi
Sigurðar, síðari árin, er Lárus
lauk stúdentsprófi sl. vor. Lárus
reyndist Sigurði hinn bezti sonur
og var gagnkvæm vinátta þeirra
í milli, Votta ég þeim mæðgin-
um einlæga samúð mína við frá
fall Sigurðar.
Kristján Jónsson.
GARÐAR GÍSLASON H F
115.00 BYGGINGAVÖRUR
HVERFISGATA 4-6
^ÍRROJi-
SKYRTAN 1
er heimsfrœg gœðavara
• Ermalengd við allra hæfi.
• Fullkomið snið.
• Nákvæmt mál.
• ÚrvaJs efni og vinna.
Fást nú hjá:
Herrabúðin. Vesturveri Verzl. Geysir
Herrabúðin, Austurstræti 'Aðalstræti.
OSTAKYNNING
i dag og á morgun
OSTA OG SMJÖRBÚÐIN
Snorrabraut 54