Morgunblaðið - 21.02.1963, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.02.1963, Blaðsíða 20
20 MORGVNBLÁ9IB Hmmtudagur 21. febrúar 1962 PATRICIA WENTWORTH: MAUD SILVER KFMUR I HEIMSÓKN Hún gekk allt kring um húsið. í>ar var ekkert gluggatjald dreg- ið frá og enginn gluggi opinn. Hún gekk að framdyrunum og þrýsti á bjölluhnappinn. Enginn svaraði né kom til dyra. Frú Fallow fann sjálfa sig taka upp vasaklútinn og þerra hendur sínar. Það var heiðskírt veður og kalt, en þaer voru vot- ar af svita. Það var eins og þögnin í húsinu síaðist út — eins og — nei, hún vissi ekki, hverju það var líkt, en það fyllti hana óhug. Hún hringdi aftur og aft- ur, en þegar það ekki dugði, barði hún á hurðina, og það hefði n^egt til að vekja dauðan mann — að hennar eigin sögn. En enginn vaknaði og enginn kom. Hún tók því til fótanna og hljóp yfir í Hvítakofa. Hún var dauðskelfd á svipinn, þegar Rietta Cray kom til dyra, og' í næsta vetfangi var hún far- in að gráta og sagðist vera hrædd um, að eitthvað hefði komið fyrir Katríu Wetby. Og hvað ættu þær að gera í málinu. Það var Rietta, sem stakk upp ó að hringja í símann, en þegar ekkert svar kom í hann, fóru þau öll upp í Hliðhúsið, hún sjálf, Fanuy og frú Fallow. Það var Fancy, sem tók í Iæs- inguna og fann, að dyrnar voru ekki læstar. Samt var lykillinn í skráargatinu að innan. Þau gengu gegn um setustofuna og sáu, að Ijós var þar á lampanum og dregið fyrir gluggana. í birt- unni af því sáu þau ijósa hárið hennar Katrínar á einum sófa- púðanum. Hún var í innislopp og lá þarna í legubekknum, eins og hún væri sofandi. En hún var dáin. 45 XXXIX. Bíll lögregiustjórans kom upp að frámdyrunum hjg frú Voycey. March hringdi bjöllunni og spurði um ungfrú Silver, Og hon- um var vísað inn í setustofuna, þar sem hún og frú Voycey sátu við arininn. Cecilia Voycey sýndi af~ sér lofsverða tillits- semi. Hún heilsaði honum með handabandi, brosandi, en flutti sig því næst, ásamt reyfaranum, sem hún var að lesa, inn í borð- stofuna. þegar dyrnar lokuðust á eftir henni, sneri Randal March sér að ungfrú Silver og sagði: — Ég geri ráð fyrir, að þú hafir heyrt fréttirnar? Hún var með prjónana í kjölt- unni. Hun var nú búin með bol- inn af peysunni handa henni Jósefínu litlu en var að prjóna vinstri ermina, og prjónaði því með fjórum prjónum. Það small í prjónunum er hún svaraði: — Já, ég held nú það. Þetta er afskaplega óhugnanlegt. Hann skellti sér niður í stól- inn, sem frú Voycey hafði setið á. — Auðvitað hafðirðu alveg rétt fyrir þér. Eg veit ekki, hvernig þú ferð að þessu. Ég skal alveg játa, að ég var tor- trygginn — ■ en nú höfum við fengið vitnisburð frá símastúlk- unni. Hún hlustaði á miðviku- dagskvöldið og það, sem hún se.g- ir, er þetta. Hann tók upp vél- ritaða örk og tók að lesa upp- hátt: - „Ég var á vakt miðVikudags- kvöld frá klukkan sjö. Það var mjög rólegt, og fáar hringingar. Klukkan þrjú kortér í átta hringdi hr. Lessiter frá Melling- húsinu, til að spyrja, hvort ég gæti sagt honum heimilisfang hr. Lessiter aftur og bað um númer frú Welby, Og ég gaf honum samband. Það hefur verið mikið talað um hr. Lessiter í, Melling Ég hlusta ekki venjulega, en nú fannst mér ég skyldi gera það og heyra, hvað hann hefði að segja við konu eins og frú Welby. ...“ Hann leit upp úr blaðinu og sagði: —• Við fengum þetta nú ekki viðstöðulaust. Stúlkan var hrædd. Það var rétt eins og eitt- hvað lægi bak við þessar hlust- anir hennar — einhrver óvild í garð frú Welby. Veiztu nokkuð sem gæti verið ástæða til þess? Ungfrú Silver prjónaði í ró- legheitum. Svo sagði hún: — Já. Gladys Luker var áður eitthvað að dingla við son frú Grover í búðinni — það er ungi maður- inn, sem ég sagði þér frá, sem vinnur í skrifstofunni hjá hr. Holderness. Hann hefur undan- farið verið að viðra eitthvert vit- leysislegt skot í frú Welby. Hann hló. — Hvernig í ósköp- unum geturðu þefað annað eins og þetta uppi? Hún gaf frá sér einn þurra hóstann sinn. — Ráðskona vin- konu minnar er föðursystir Gladys Luker. Haltu áfram. —• Já, nú komum við að kjarn- anum.... Hvar var ég nú?.... Nú, hérna. „Mig langaði til að heyra, hvernig hann talaði við manneskju eins og frú Welby, og hann byrjaði nú alveg eins og við hr. Holderness: „Jæja, Katrín, ég hef fundið þetta minnisblað. Ég vissi, að það myndi gleðja þig að heyra það. Er það ekki?“. Ég vissi ekki, um hvað þetta snerist, en það var eins og hann væri dálítið ill- kvittnislegur. Og frú Welby virt- ist ekkert hrifin af því. Hún sagði: „Hvað áttu við?“, og hann svaraði: „Þú veizt víst mætavel, hvað ég á við. Það stendur hér svart á hvítu. Mamma hefur aldrei gefið þér neitt af þessum munum, heldur léði þér þá og þeir eru mín eign. Ef þú hefur selt þá, kæri ég þig.“ Frú Welby sagði: „Það mundirðu aldrei gera“, og hann svaraði: „Ekki vildi ég ráða þér til að treysta á það, Katrín mín. Ég á óupp- gerða gamla reikninga — og ég geri alltaf upp reikninga mína Ég var rétt áðan að hringja til hans Holderness gamla....“ Svo heyrði ég ekki meira, af því að þá kom önnur hringing. Klukk- an tuttugu mínútur yfir átta hringdi frú Welby til ungfrú Cray. Ég man nú ekki allt, sem hún sagði, en það snerist um það, að Lessiter væri búinn að finna minnisblaðið Og segði, að þessi húsgögn og aðrir munir hefðu bara verið að láni. Hún vildi fá ungfrú Cray til að segja hr. Lessiter, að móðir hans hefði verið minnissljó, svo að hún hefði ekki vitað, hvað hún var að gera.. en það vildi ung- frú Cray ekki. Frú Welby lagði fast að henni, en ungfrú Cray lét ekki undan. Frú Welby var orð- in afskaplega æst og rétt í lok samtalsins, sagði hún: „Jæja, ef eitthvað kemur fyrir, er það- þér að kenna. Ég er alveg frá mér“. Og svo hringdi hún af. Hann lagði blaðið frá sér. — Þetta er allt eins og þú hélzt, er það ekki? Og ef ég má segja það, þá finnst mér þú hafa gert ennþá betur — fléttað reipi úr sandi — og það sterk reipi. Mér finnst liggja Ijóst fyrir, hvernig þetta hefur gengið til. Katrín Welby gat ekki lengur haldið þessum prettum sínum til streitu, og hún mátti búast við kæru. Lessiter var hefnigjarnt illmenni og átti henni grátt að gjalda. Þegar hún svo fann, að hún gat ekki fengið Riettu til að bera henni vitni, fór hún í Mell- inghúsið til þess að biðja sér sjálf vægðar. En þegar þangað kom varð hún þess vör, að Less- iter var þar ekki einn. Rietta hafði farið skemmri leið og orð- ið á undan henni. Hún gæti hafa farið fram hjá Katrínu eða þá Katrín framhjá henni og svo beðið til að sjá, hver hefði verið á eftir henni. Það gæti gert grein fyrir fótsporunum í sý- rennurunnunum. Við höfum fundið skóna, sem þau eru eftir. Það er enn á þeim ofurlítið af leirnum, sem þarna er. aiUtvarpiö Fimmtudagur 21. febrúar 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Á frívaktinni": sjómanna« þáttur (Sigríður Hagalín). 14.40 „Við, sem heima sitjum" (Sig ríður Thorlacius). 15.00 Síðdegisútvarp. 17.40 Framburðarkennsla í frönsku og þýzku. 18.00 Fyrir yngstu hlustendurna (Margrét Gunnarsdóttir og Valborg Böðvarsdóttir). 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 19.00 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Af vettvangi dómsmálanna (Hákon Guðmundsson hæsta réttarritari). 20.20 Tónleikar: Flautukonsert 1 D-dúr eftir Telemann. 20.35 Talað mál og framsögn, fyrra erindi (Haraldur Björnsson leikari). 20.55 Organtónleikar: Fantasia sacrae eftir Gunnar Thyre- stam (Steingrímur Sigfússon leikur á Dómkirkjuorgelið). 21.10 Á vetrarsiglingu með Gull- fossi milli landa (Stefán. Jónsson fréttamaður sér um. dagskrána.) 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar (10). 22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið* eftir Fred Hoyle, IX. (Örn- ólfur Thorlacius). 22.40 Djassþáttur (Jón Múli Árna son). 23.10 Dagskrárlok. Föstudagur 22. febrúar 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 „Við vinnuna": Tónleikar 15.00 Síðdegisútvarp. 17.40 Framburðarkennsla í esper- anto og spænsku. 18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan": Guðmundur M. Þorláksson talar um meistara Jón Vida- lín. 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Erindi: Kvikmyndir og kvik* myndaeftirlit (Högni Egils- son blaðamaður). 20.25 Píanómúsik: Sergej Proko- jeff leikur eigin tónsmíðar. 20.35 í ljóði, — þáttur í umsjá Bald urs Pálmasonar. Herdís Þor- valdsdóttir les ljóð eftir Stef- án frá Hvítadal og Andréa Björnsson ljóð eftir Daví8 Stefánsson frá Fagraskógi. 21.00 Mozarttónleikar Sinfóníu* hljómsveitar íslands í Há« skólabíói, fyrri hluti. Stjórn- andi: Gustav König. Ein* söngvari: Irmgard Seefried. Einleikari á fiðlu: Wolfgang Schneiderhan. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. • 22.10 Passíusálmar (11). \ 22.20 Efst á baugi (Tómas Karls* son og Björgvin Guðmunds* son). 22.50 Á síðkvöldi: Létt-klassisk tónlist. a) Sænski barnakór* inn syngur I Saint Chapell# í París lög eftir Handel, Pal* estrina, Söderman, Thyre* stam o.fl., Erik Algárd stjórn ar. b) Lúðrasveitin Svanur leikur undir stjórn Jóns G, Þórarinssonar, 23.25 Dagskrárlok. ALLIAF FJÖLGAR YOLKSWAGEN V O R I Ð N Á L G A S T Eruð þér farin að hugsa til sumarferða? Er það þá ekki einmitt VOLKSWAGEN sem leysir vandann? PANTIÐ TÍMANLEGA VOLKSWAGEN er 5 manna bíll VOLKSWAGEN kostar aðeins kr. 121.525,00. VOLKSWAGEN er fjölskyldubill VOLKSWAGEN er vandaður og sígildur. VOLKSWAGEN er örugg fjárfesting. VOLKSWAGEN hentar vel íslenzkum vegum og veðráttu. VOLKSWAGEN er með nýju hitunar- kerfi. VOLKSWAGEN er þvi eítirsóttasti bíllinn. VOLKSWAGEN ER EINMITT FRAMLEIDDUR FYRIR YÐUR HEiLDVERZLUNIN HEKLA H F Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275. KALLI KUREKI -X ~ i< Teiknari: Fred Harman — Hvað er þetta? — Þetta er lásbogi, en það vantar á hann nýjan streng. Af hverju hefurðu strenginn svona digran? — Þetta er kanínuskinn og með þessu vopni má drepa vísund. — Ég skal finna eitthvert skotmark. — Við skulum reyna bogann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.