Morgunblaðið - 28.02.1963, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 28. febrúar 1963
JUORCVNBLAÐIÐ
Leikhús æskunnar,
Shakespear e -
í Tjarnarbæ
Júlia og fóstran
UNGT fólk hér í borg og áhuga-
samt um leiklist, stofnaði 30. maí
».l. leikfélag, sem hlaut nafnið
^Leikhús æskunnar". Naut félag-
ið aðstoðar og fyrirgreiðslu
Æskulýðsráðs og borgaryfirvald-
ánna og fékk inni í Tjarnarbæ.
Stofnendur voru 30, en nú munu
íélagsmenn vera 70 talsins. Fyrsta
verkefni félagsins var Herakles
og Agiasarfjósið eftir Dúrren-
matt og var það sýnt í haust. Fé-
lagið hefur nú fært út kvíarnar
*neð því að stofna innan vébanda
sinni fjórar nýjar starfsdeildir
þ. e.: Leikbúningadsáld, leiktjalda
deild, förðunardeild og leikbók-
menntadeild. Ber þetta ánægju-
legan vott um starfsgleði og dugn
að þessa unga fólks og er þess að
vænta að borgarbúar sýni að þeir
kunni að meta þessa heilbrigðu
•tarfsemi þess og leggi því lið
með góðri aðsókn að leiksýning-
Um þess.
Nú hefur félagið ráðist í það,
tmdir stjórn Ævars R. Kvarans,
að sýna þætti úr þreimur leikrit-
um Shakespeares: Rómeó og
Júliu í þýðingu Helga Hálfdánar
Bonar, Macbeth í þýðingu Matt-
híasar Jochumssonar og Hinrik
IV. einnig í þýðingu Helga. Hér
hefur því ekki verið ráðist á garð
inn þar sem hann er lægstur, en
ekki verður annað sagt en að vel
hafi tekizt, eftir atvikum, undir
öruggri 1 eiðsögn leikstjórans.
Hlýtur það að hafa verið mikið
vandaverk að setja á svið með
ungum og óreyndum leiikurum,
jafn erfið viðfangsefni og hér er
um að ræða og ná svo góðum
árangri er raun ber vitni. AUs
koma þarna fram 16 leikendur
auk kynnis og fara tveir þeirra
með tvö hlutverk. Hér eru ekki
tök á því að gera grein fyrir öðr-
uim hlutverkum en þeim sem
veigamest eru og gera mestar
kröfur til leikendanna.
í Rómeó og Júlíu mæðir mest
á þeim, sem fara með titilhlut-
verkin, en það eru þau Arnar
Jónsson og Þórunn M. Magnús-
dóttir. Arnar stundar leiknám í
leikskóla Þjóðleikhússins og virð-
ist það nám hafa borið skjótan
og góðan árangur, því að hann
fór furðu vel með þetta vanda-
sama hlutverk. Framsögn hans
var skýr og greini’leg, röddin
mjög þægileg og hreyfingar hans
mjúkar og léttar. Arnar leikur
einnig Falstaff, í Hinriki IV., hið
veigamikla og skemmtilega hlut-
verk, og gerir því hin ágætustu
skil. Er mér tjáð að Arnar hafi
tekið bæði þessi hlutverk að sér
í forföllum annars, með mjög
stuttum fyrirvara. Má mikið
vera ef þessi ungi leikari á ekki
eftir, er fram líða stundir, að
láta mikið til sín taka á leiksvið-
inum. — Leikur Þórunnar M.
Magnúsdóttur í hlutverki Júlíu,
sem er vandasamt og gerir miklar
kröfur til leikandans, var áferðar-
góður, en nokkuð hikandi, sem
ekki er tiltökumál um óreyndan
kynning
leikara í slíku hlutverki. Ýmis-
legt í Ieik hennar virtist mér þó
athyglisvert og benda til þess að
hún geti með þjálfun og þroska,
orðið góður liðsmaður í þjónustu
Þalíu. Jón Ingvarsson fór og lag-
lega með hlutverk Merkútíós vin-
ar Rómeós. Athyglisverður var og
leikur Sigríðar Gunnlaugsdóttur
í hlutverki fóstrunnar.
í Macbeth, var sérstaklega at-
hyglisverður leikur Oktaviu
Stefánsdóttur í hinu stórbrotna
hlutverki frú Macbeth. Var fram-
sögn hennar mjög skýr og leikur
hennar með góðum tilþrifum,
borinn upp af töluverðum skap-
hita og góðum skilningi á þessari
metnaðaróðu og kaldrifjuðu
hefðafrú. Leikur Péturs Einars-
sonar í hlutverki Macbeths var
ekki eins öruggur og ég hafði
búist við eftir þeim orðstír, sem
hanii hefur getið sér fyrir leik
sinn í „Ástarhringnum" í Iðnó
fyrir skömmu. Einkum naut
textinn sín ekki vel í framsögn
hans. Ætti að vera hægt að bæta
úr þvL
Ég hef að framan minnst á leik
Arnars Jónssonar í hlutverki
Falstaffs í Hinriki IV. Af öðrum
hlutverkum þar má nefna Hinrik
prins, sem Erlendur Svavarsson
leikur. Hlutverkið „gefur“ ekki
leikandanum jafn mikið og Fal-
staff, en Erlendur er snotur prins
og gerir hlutverkinu að öðru leyti
dágóð skil. Vin prinsins, Ponsa,
lekiur Magnús Ólafsson. Hlut-
verkið er ekki mikið, en Magnús
fór sæmilega með það.
Kynnir kvöldsins var Þorsteinn
Geirsson og leysti það verk af
hendi með miklum myndarbrag.
Leikmuni gerði leiktjaldadeild
L. Æ. undir forustu Sveinbjarnar
Matthíassonar. Búningar eru
fengnir að lóni hjá Old Vic leik-
húsinu í London, og félagið fékk
fjárhagslega aðstoð British Coun
sils til sýningarinnar.
Áður en sýningin hófst flutti
leikstjórinn Ævar R. Kvaran er-
indi um Shakespeare, en að leiks-
lokum ávarpaði s.r Bragi Frið-
riksson, framkv.stj. Æskulýðsráðs
leikendurna og þakkaði þeim
fyrir vel unnið starf.
Það er vissulega lofsvert að
þetta unga fólk skuli hafa valið
til sýningar kafla úr þeim önd-
vegisverkum heimsbókmennt-
anna, sem hér er um að ræða þó
það ráði ekki við þau sem þjálf-
aðir leikarar, og færi betur að
aðrir sem halda uppi leiksýning-
um á þessum sama stað væru
eins vandir um val á viðfangs-
efnum sínum.
Húsið var þéttskipað áhorfend-
um er tóku leiknum afburðavel.
Sigurður Grímsson.
Báfur til sölu
Vélbáturinn Vinur E.A. 80 er til sölu nú þegar.
Báturinn er 9 tonn að stærð, smíðaður árið 1961.
Allar nánari uppl. gefa
Sverrir Sveinbjömson sími 49, Dalvik.
og. Valdimar Óskarsson sími 69, Dalvík.
A Selfossi verður til sölu
RITSAFN
Jóns Trausta
8 bindi í rexinbandi
Ritsafnið hefir nú verið endurprentað, og í tilefni af
90 ára afmœli höfundar
verður Ritsafnið selt í dag og á morgun fyrir aðeins
EITT ÞÚSUND KRÓNUR
Kaupfélag Árnesiaga
Selfossi