Morgunblaðið - 23.03.1963, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.1963, Blaðsíða 9
Laugaradagur 23. marz 1963 MORCVNBL 4Ð1Ð 9 Fréttabréf úr Holtum — Austurlandaför Framlad af bls. 6. sæla og fagra stund á þessum Ihelga stað við ána Jórdan, se'm við höfðum, eins og allir kristnir menn, heyrt getið um allt frá fyrstu bernsku. Fararstjóri okk- ar Ingólfur Guðbrandsson, las úr Heilagri ritningu urn Jóhann- es, sem ht>r flutti sínar áhrifa- miklu ræður, og um skírn Jesú. Þessi staður bjó yfir einhverj- um þeim unaði, sem talaði beint til hjartans, og ég fyrir mitt leyti hefði kosið að mega dvelj- ast þar lengur. En okkur var ekki til setunnar boðið, því degi var tekið að halla. Ég keypti mér lítið glas með Jórdanvatni, sem var til sölu á staðnum, en margir voru með flöskur og brúsa til þess að ná sér vatni úr ánni og flytja norður á ís- land. Ein flaskan hafði orðið (heldur full til þess að hægt væri að setja tappann í hana aftur, og stúlkan, sem átti flöskuna, aedaði að hella úr stútnum. En kristni Arabinn, sem með okkur var og ók bílnum, lagði flösk- Una á munn sér og drakk góð- ann sopa. Stúlkan leit á hann forviða, því henni leizt ekkert é vatnið til drykkjar, eins og það var á litinn, og ef til vill í því einhverjir gerlar. En Arabinn leit aftur á hana jafn- undrandi, að henni skyldi þykja nokkuð athugavert við það að drekka vatnið úr þessu blessaða fljóti. Við sá’um líka um leið og við vorum að fara, að Arabar komu á úlföldum að ná sér í vatn hinum megin árinnar, bæði karlar og konur. Þeir tóku vatn- ið í stóra geitarskinnsbelgi og drukku það hiklaust. Mjög er líklegt ,að Jesús hafi drukkið úr þessari á, og einnig Jóhannes ekírari, sem var þarna langvist- um. Það er líka sagt í Ritning- unni, að hann hafi haft engi- sprettur og akógai’hunang sér til* matar. Engisprettur koma stundum í stórhópum á þessar slóðir og eyðileggja þá gróður- inn. f»á kvað það ekki vera ó- algengt, að fólk leggi sér þær til munns. Ljón höfðust við áður fyrr meðfram Jórdan, en eru nú horfin með öllu. Hins vegar kváðu villisvín sjást þar ennþá og einnig hýenur og sjakalar. Við ókum burt frá skirnar- staðnum og fórum yfir Jórdan nokkru norðar. Þar liggur hún 378 metra undir sjávarmáli. Á þeim stað var það, að ísraels- menn gengu þurrum fótum yfir ána, þegar þeir sneru aftur heim til fyrirheitna landsins, og hér var það, að Elías spámaður sló skikkju sinni á vatnið, svo það skiptist í tvennt, og hann og Elísa gátu gengið þurrum fótum yfir. Það kvað koma fyrir stöku sinnum, að áin þorni upp um stundarsakir, sökum skriðufalla. En sá atburður getur orðið ó- gleymanlegur undir vissum kring umstæðum. Það er því allt, sem mælir með því, að Jóhannes, hinn nýi spámaður, hafi ein- mitt valið skírnarstaðinn hér í námd við þann stað, sem var löndum hans kær og minnisstæð- ur. Og hér var vað á Jórdan, og því miklar samgöngur milli Júdeu og landsins fyrir austan ána og auðvelt að komast í sam- band við ýmiss konar fólk. Við ökum upp úr E1 Ghor- dailinum- Gróðurrönd Jórdanar hverfur að baki. í huga mínum óma orð Jóhannesar, sem enn standa í fullu gildi: „Öxin er þegar reidd að rótum trjánna; mun þá hvert það tré, sem ekki ber góðam ávöxt upp höggvið og því kastað á eld“. Mykjunesi, 10. marz: — Það hefur löngum verið sagt, að Öskudagurinn ætti sér átján bræður (þ.e. hvað veðurfar snerti á föstunni). Nú var slag- veðursrigning á öskudaginn, en síðan hefur lítið rignt, svo að ef þetta á að rætast að þessu sinni á eftir að rigna drjúgt til páska. Sama veðurblíðan. Hér er alltaf sama veðurblíðan og langt síðan komið hefur jafn mildur vetur og nú frá jólum. Nú um alllangan tíma hefur verið frostlaust og hlýtt í veðri og klaki farinn að þiðna í jörð. Veg- ir hafa víða spillzt, eins og ætíð þegar klaka leysir og hefur nokkr um vegum verið lokað. Síðustu dagana hefur sigið úr og talið er að klaki sé ekki mjög mikill í jörð, því þótt allmikil frost hafi komið nokkrum sinnum í vétur, hefur það ekki staðið lengi hverju sinni. Sauðfé er nú víða létt á heyj- um, en margir gefa mikið kjarn fóður með beitinni. Má segja, að þetta komi sér vel, því víða voru hey í knappara lagi í haust. Hér er nú inflúenzan farin að herja og er orðin nokkuð út- breidd hér í Holtum og víðar í sýslunni. Nokkuð af fólki hefúr verið bólusett, en hafa sumir veikzt vegna þess að pestin var þegar komin, en nokkurn tíma þarf til að mynda ónæmið. Skap- ast miklir erfiðleikar ef heimilis fólk veikist allt samtímis, því sinna verður skepnunum. En nokkuð bætir hér um að tíðin er góð og gerir allt léttara við- fangs. Jarðhitinn að Laugalandi. Að undanförnu hefur verið bor að eftir heitu vatni að Lauga- landi. Var boruð ein hola rösklega 200 m djúp, en vatnið rösklega 50 gráðu heitt og magnið talið um 5 lítrar á sekúndu. Má þetta telja góður árangur og breytir veru- lega aðstöðunni að Laugalandi. Sennilegt er að þarna sé um all stórt jarðhitasvæði að ræða og verður að telja að þarna séu mik- il verðmæti í jörðu fólgin. Hverjar eru heppilegustu heyverkunaraðferðirnar? Nú hefur Búnaðarþing íokið störfum að þessu sinni Vafalaust hefur það afgreitt mörg stórmál, eins og vera ber, enda þótt ekki hafi farið ýkja mikið fyrir þeim í fréttum. Eitt mál er nú mjög aðkallandi fyrir bændastéttina að leyst verði eða skorið úr sem fyrst, en það eru heppilegustu heyverkunaraðferðir. Stundum hefur því verið haldið fram að hægt væri að verka allt hey sem vothey. Hér í Rangárvallasýslu mun nú vera einn bóndi, sem gef ur ekkert annað hey í vetur en vothey. Væru nú ekki tök á því fyrir Búnaðarfélag íslands að láta fara fram athugun á því, hvort þetta sé hægt, því um það eru mjög skiptar skoðanir meðal bænda og fleiri hér um slóðir, sem ekki telja það framikvæman- legt. En úr þessu þarf að fá skor- ið. Þetta er eitt þýðingarmesta málið til úrlausnar fyrir landbún aðinn í dag. Elzti íbúi Holtahrepps jarðsettur 9. þessa mánaðar var gerð frá Marteinstungu kirkjuútför elzta íbúa Holtahrepps, Sigurleifar Sig urðardóttur frá Lýtingsstöðum, en hún lézt að Elliheimilinu Grund 3. þ.m. Sigurleif var fædd 9. marz 1871. Giftist 1898 Jóm Þárðarsyni í Lýtingsstöðum. Þau bjuggu þar allan sinn búskap, en Jón lézt 1933. Þau eignuðust sex börn og eru fjögur þeirra á '{fs. Síðustu árin dvaldist Sigurleif á Grund og var nokkuð farin að íeilsu. ■ Þannig gengur lífsins saga. — Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Eftir vetur kemur vor og nú erum við að bíða eftir vorinu. — M. G. Eoðin þátttaka í keramíksýningu NÍUNDA alþjóða keramiksýning Kiln Klúbbsins í Washington verður haldin í Smithsonian Inst- ute þar í borg dagana 8. septem- ber þar til snemma í október 1963. Sýning þessi, sem haldin er annað hvert ár, er sótt af listaunnendum úr öllum ríkjum Bandaríkjanna auk ýmissa landa víðsvegar um heim. Tveir íslenzk ir listamenn tóku þátt í sýning- unni árið 1961, og er keramik gefinn kostur á þátttöku. Aðeins listamönnum hér á landi nú enn nútíma listmunir koma til greina. og skulu þeir vera sem hér grein ir: a) leirmunir (þ.á.m. mósaik og tígulsteinn) b) glerungur c) gler d) keramik höggmyndir. Vegna 'hættu á skemmdum er mönnum ráðlagt að senda ekki mjög verðmæta muni. Upplýsingar í sýningarskrá er greini nafn listamanns tegund leirmuna og tryggingarverðmæti (í dollurum), verða að hafa bor- izt Smithsonian Institute, Was- hington D. C. eigi síðar én 1. ágúst n.k. Fréttatilkynning frá Upp- lýsingaþjónustu Bandaríkjanna). 4 LESBÓK BARNANNA Berfel Thorvaldsen 7. Thorvaldsen beið og beið, — en enginn kaup- andi gaf sig fram. Budd- an var orðin tóm, og heim ferðardagurinn hafði ver- ið ákveðinn. Farangurinn var kom- inn niður í ferðatöskurn- ar og flutningsvagninn beið við dyrnar. Það var aðeins beðið eftir þýzk- um listamanni, sem ætl- aði að slást í förina. En hann gat ekki kom- izt þennan dag, og ferð- inni var frestað, þangað til daginn eftir. Fyrir Thorvaldsen reyndist sú þjóðinni svo að ekki var eftir nema fámennir hóp- ar bænda og þúaliðs hér, og þar á einángruðum svæðum. Marl var einn þeirra. Eitt sinn fánn hann bók í rústum nokkrum, og hvort sem þið trúið því eða ekki, er það eina bók- in, sem hefur fundist eft- ir stríðið.“ frestun verða seytján ár. Rikur Englendingur var nýkominn til Róm. Hann hafði fengið sér leið sögumann, sem skyldi sýna honum borgina. Ein mitt þennan dag, hug- kvæmdist leiðsögumann- inum að sýna Englend- ingnum vinnustofu Thor- valdsens. Þar stóð Jason, og Eng- lendingurinn varð svo hrifinn af styttunni, að hann greiddi Thorvaldsen 5900 krónur fyrir að fá hana höggna út í marm- ara. „Ég skil,“ hrópaði Diok. „Bók dr. Perrys. Frum- atriði stærðfræðinnar." „Marl tók bókina heim með sér og af henni lærði hann flatarmálsfræði al- gebru og rúmmál. Ekki leið á löngu, þar til hann fór að kenna öðrum. Brátt var hann orðinn leiðtogi þjóðarinnar. Þetta var hin eina vísindalega þekking, sem til var, og það var ekki að undra, þótt mik- ið þætti til hennar koma.“ „Því miður lét Marl ekki hér staðar numið. Hann fór að líta á sig sem spám.ann. Hann var ó- spillur, velviljaður mað- ur og hafði aðeins góðan tilgang með öllum þeim reglum, sem hann setti. Orð hans voru lög. Hann var hinn fyrsti af „For- ingjunum", þótt stjórn- endurnir væru ekki kall- aðir svo, fyrr en löngú seinna. í huga Marls var stríð- ið afleiðing vélanna. Þess vegna bannaði hann að búnar væru til vélar í nokkurri mynd. Það mátti gera einföld verk- færi en ekki hjól, enda var hringurinn hið æðsta stærðfræðilega tákn og þess vegna heilagur. Boð skapur hans var sá, að maðurinn ætti að halda sig að moldinni, sá og uppskera, ala kýr, kind- ur og svín og nota allar tómstundir sínar til að sökkva sér niður í stærð- fræði. Ef boðskap Marls hefði verið hlýtt á þann hátt, sem hann ætlaðist til, mundi margt betur fara.“ „En þeir hafa búið til vélar,“ sagði Dick. Framhald næst. Ráflning úr síðasta blaði. á krossgátu í síðasta blaði. Lárétt: 1. ýsa; 5. Elís; 6. ál.1; 7. kú; ás; 9. ÍR. Lóðrétt: 2. selur; 3. áll 4. ís; 5. fóðrar; Áki; 8. át. L árg. if- Ritstjóri: Kristján J. Gunr.arsson •R 22. marz 1963 MARÍAN.'A og rigningin RAUÐ regnkápa! Ný, rauð stígvél! Og spáný rauð regrrhlif með hvít- um deplum! Þetta hékk allt inni í klæðaskápnum hennar Maríönnu og beið eftir rignjngunni. En það kom bara engin riging. Á hverjum degi skein sólin glatt og fólk sagði hvað við annað: „En hvað veðrið er ann- ars yndislegt." Marjönnu fannst aftur á móti, að þetta væri hreint ekkert yndislegt veður. Hún vildi fá rigningu, reglu- lega úrhellisrigningu, það var það, sem hún vjldi. Mamma hennar hafði haft steikta kjúklinga til kvöldverðar, og Marianna var svo heppin, að fá óskabeinið í sinn hlut. Hún var ekki í neinum vafa um, hvers hún ættj að óska sér. Hún óskaði sér þess, að á morgun færi að rigna. Eftir matinn fór Mar- ianna upp í herbergið sitt og horfði út um glugg-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.