Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 10

Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 10
10 MORCUNBL AÐIÐ Laugaradagur 23. tnarz 1963 Núverandi stjóm Málaraféiiag3 Reykjavíkur talið frá vinstri: Hjálmar Jónsson, varaform., Mignús H. Stephensen, gjaldkeri, Lárus Bjarnfreðsson, form., Ingi M. Magnússon, vararitari og Leifur Ólafsson, ritari. Málarafélag Reykjavíkur 35 ára MÁLARAFÉLAG Reykjavíkur var stofnað 4. marz 1928 og voru stofnendur 16 að tölu. Fyrsta stjórn félagsins var þannig skip uð. Albert Erlingsson formaður, Hörður Jóhannesson ritgri og Ágúst Hákonsen gjaldkeri. Varastjórn: Óskar Jóhannsson, Georg Vilhjálmsson og Þorbjörn Þórðarson. Félagið átti örðugt uppdráttar fyrstu árin, það var ekki fyrr en árið 1933 sem félaginu tikst að gera samninga um kaup og kjör sem var fyrsta raunverulega viðurkenningin á tilverurétti þess sem stéttarfélags. Síðan hefur félagið farið vaxandi. Það á nú meðal annars fulltrúa í próf- nefnd í málaraiðn, fulltrúa í Iðnráði, auk þess sem félags- menn hafa gegnt fjölmörgum trúnaðarstöðum innan verka- lýðshreyfingarinnar. Nú eru félagsmenn um 130. Fél. hélt upp á afmaelið með fjölmennu hófi í Þjóðleikhúskjall aranum að kvöldi hins 4. marz. — Vargur Framhald af bls. 8. þau í auðn sums staðar. Þá minn- ist Sigurður á „langvinnt og hroðalegt dauðastríð" sem „strych in“ hefur í för með sér fyrir þá fugla, sem gleypa eitrið. Get ég af eigin sjón borið um að mislangt er það. Til dæmis hjá hrafni og svartbak. Svartbakur- inn deyr svo að segja strax og hann hefur gleypt eitrið og ligg- ur þá oftast á eiturstað. Dauða- stríð hrafnsins stendur mun leng- ur yfir. Veit ég vel að það muni kvalafullt fyrir fuglinn. Ég veit líka að þú Sigurður munir oft hafa séð dýrbitna kind með brudda snoppuna upp undir augu og kannski að öðru leyti hel- særða eftir refinn. Ég tel að hún líði ekki minni kvalir en fugl- árnir sem gleypa eitrið, eða hvað segir þú um það? Sauðkindin er þó handgengnari okkur mönnunum en refurinn og ránfuglarnir, og ætti því ekki að vera minni meðaumkvum með henni hjá okkur en þeim fyrr- töldu, eða finnst þér það? Við eyjaskeggjar ferðumst lítið um fastalandið að jafnaði. Tvisv- ar hefi ég þó á ferðalagi verið sjónarvottur að því er örn flaug með unglamb í klónum fyrir Gils- fjarðarbotni. Skal ég ekkert um það segja hve miklum unglamba- dauða örninn kann að hafa vaJd- ið og veldur enn. Um það eru efa- iaust flestir bændur mér fróð- ari En heyrt hefi ég margar sög- ur sagðar um lambadráp arnar- ins. Nei, góðir hálsar, þið sem keppið nú að því að svipta varp- bændur stærsta möguleikanum til útrýmingar varginum úr varp- löndunum með strangari löggjöf en nú gildir í þessum efnum, stór. hækkuðum sektum og jafnvel „tugthúsi", athugið hvað þið eruð að gera. Ég held að þetta sé ekki heppileg aðferð til varnar ern- inum, „kóngi fuglanna“ sem kall- aður er, sem við ógjarnan viljum að verði aldauða. Vigur, 14. marz 1S63 Bjarni Sigurðsson. Forhitarar Smíðum allar stærðir af forhiturum fyrir hitaveitu. Vélsmiðjan Kyndill Sími 32778 Raddir Akurnesinga geymdar á segulbandi Akranesi, 15. marz. HÉR fer á eftir bréf sóknar- prests okkar Akurnesinga, séra Jóns M. Guðjónssonar á Kirkju- hvoii, um mál, sem mér þykir merkilegt. Það hefir sögulegt gildi að geyma á seguibandi mál- far og raddblæ Akurnesinga um miðbik 20. aldar og hafa til sam- anburðar fyrir eftirkomendurna. — Oddur. Bréf séra Jóns Raddir á segulbandi. „Fyrir nokkrum árum kom mér í hug, að æskilegt væri, að radd- ir manna á Akranesi yrðu varð- veittar fyrir framtíð. Um það leyti fór ég af stað með hug- mynd mína, fór til manna og bað þá að segja stuttan þátt inn á stálþráð (segulbandið var þá ekki komið til sögunnar hér heima). Þeir, sem ég náði til, tóku erindi mínu vel. Um 20 menn töluðu inn á þráðinn. Auk einstaklinga var vígsla nýja barnaskólans 1950 öll tekin upp. Að beiðni minni tók útvarpið að sér að flytja raddirnar yfir á segulband, þar sem stálþráðar- tæki mega teljast úr sögunni og varla finnanleg. Sumir þeirra, sem töluðu inn á þráðinn, eru horfnir okkur, t. d. Ólafur Fin- sen, héraðslæknir o. fl. Mér er nú mjög í mun, að gengið sé í það að taka upp á segulband raddir sem allra flestra í bænum. í mín- um huga er hér um merkilegan hlut að ræða og frá mörgum hlið- um. Það er vissulega fjársjóður fyrir bæjarfélag og hverja byggð að eiga og mega varðveita raddir þess fólks, sem þar hefur lifað og starfað og mótað gang sögunn- ar á sínum stað, sameiginlega, en þó hver einstakur með „sitt“, að einhverju leyti ólíkur öllum öðr- um. Ég sendi þér þetta bréf, sem og mörgum öðrum á Akranesi, með þeim tilmælum, að þú ljáir ofangreindu stuðning. Það, sem til er ætlazt, er, að þú takir saman stuttan þátt um eitthvað, sem þér býr í huga, og talir hann inn á bandið, þegar komið verð- ur með það heim til þín. Hæfilegt er, að hver þáttur taki um 3—5 mín. Æskilegt er, að efni þátt- anna snerti á einhvern hátt þessa byggð, starf þitt hér t. d., eða á annan hátt. Þó er það ekki nauð- synlegt. Einhver atburður þér minnisstæður á hér vel heima. Og margt fleira má sér benda á. Val- ið er frjálst. Þátturinn má ein3 vel vera í samtalsformi, þ. e. einn spyr og þú svarar á þann veg, sem í hugann kemur. Sum- um kann að láta það betur en að að festa á biað og lesa upp. Aðal- atriðið er, að ná sem allra flest- um og á sem eðlilegastan hátt. Á undan hverjum þætti verður viðkomandi kynntur með örfá- um orðum. Ég bið þig vinsam- legast að svara þessu bréfi, ef þú vilt verða við tilmælum mín- um, og það hið allra fyrsta. Líður þá ekki á löngu, að þú verðir lítils háttar tafinn með sjálfu segulbandinu. Með trausti og vinsemd. Jón M. Guðjónsson“. LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANN\ 3 „Það er bezt að vera alveg viss“, hugsaði Mari anna með sér, teygði sig út um gluggann og sagði: „Láttu rigna, litla stjarna, litla stjarna.“ í því sá hún nýmán- ann gægjast upp yfir krónu gömlu eikarinnar. „Ég ætla að vera alveg viss um, að það rigni á morgun“, sagði hún við sjálfa sig, „og þess vegna er bezt, að ég biðji mán- ann líka að uppfylla ósk mina.“ Svo hneigði hún sig þrisvar fyrir mánanum og ókaði sér rigningar á morgun. Strax og Marianna vaknaði daginn eftir hljóp hún fram úr og leit út um gluggann. En það var engin rígning. Sólin skein jafn glatt og hún hafði gert síðustu dagana „Mamma, mamma, kall aði Marianna og_ hljóp niður stigann. „Eg bað óskabeinið, stjörnuna og nýmánann að gefa mér rigningu, en samt heidur sólin áfram að skína. Af hverju fer aldrei að rigna?“ „Á ég að segja þér nokkuð, Marianna," svar aði mamma hennar, „rign ingin kemur, þegar hún á að koma, en aldrei ann ars. Það er sama hvað mikið þú óskar og óskar, það fer ekki að rigna fyr ir því.“ Þá varð Marianna leið og settist á tröppurnar fyrir utan dyrnar. Hún horfði á fólkið, sem-átti leið framhjá. Einn af þeim var pósturinn. „Góðan daginn, Mari- anna,“ sagði hann. „Finnst þér ekki veðrið indælt í dag?“ „Nei,“ svaraði anna, „ég vildi heldur fá rigningu í stað- inn.“ „Segðu þetta ekki,“ sv svaraði pósturinn, „þá yrði ég rennvotur við að bera út öll bréfin/ Og hann hélt glaðuráfram og blístraði fjörugt lag. Handan götunnar opn- aði Stína frænka dyrnar og kallaði til Mariönnu: „Góðan daginn, Mari- dásamlegt í dag!“ „Nei,“ svaraði Mari- anna, „ég vildi miklu heldur, að það væri rign- ing.“ „Segðu það ekki,“ svar aði Stína frænka, ,,ég ætla einmitt að þvo í dag og þvotturinn minn þorn ar ekki, ef hann fer að rigna.“ Framhald næst. Mari- mikla rfSTURI! TVÖ LISTAVERK KOLBRÚN Jóhannsdótt- ir, 4 ára, Reykjavík, send ir okkur þessa skemmti- legu teikningu. Þar sem engar skýringar fylgdu mydinni, verður hver að segja sér sjálfur, hvað hún á að tákna, enda fer bezt á því (sjá mynd til vinstri). Og hér er svo önnur mynd, sem systir hennar, LAUFEY, 5 ára, sendL (myndin efst til vinstri), Hún var fallega lituð og vel upp byggð, en því miður koma litirnir ekki fram í prentuninni. Les« bókin þakkar þessum ungu listakonum fyrir myndirnar og sendir hvorri þeirra 50 krónur. David Severn; V/ð hurfum inn í framtíðina „Já, svo kom stríðið og grandaði allri þeirri menningu, sem við höfð um tileinkað okkur. Það er ekki vitað með vissu, hvenær það brautzt út, en talið, að það hafi ver- ið við lok tuttugustu og þriðju aldar,“ „Hvernig varð svo þetta nýja England til“, spurði ég. „öll þessi stærðfræði, vélaleysi og þetta frum- stæða líf?“ Það var á dögum Marli fyrir fjögur hundruð níu- tíu og sjö árum. Á þeim tíma var engin fræðileg þekking til. Engar vís- inda- eða.' listastofnanir höfðu lifað kjarnorku- stríðið af. öll slík þekk- ing var löngu gleymd. Smáskærur milli ætta og flokka, þar sem að lokum var bariztmeð mjögfrum- stæðum vopnum, voru nú að mestu hættar. Stríð sóttir höfðu að mestu eytt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.