Morgunblaðið - 23.03.1963, Side 22
22
MORCVNBLAfílÐ
Laugaradagur 23. marz 1963
Bæjarbió: Ævintýri á Mallorca
MYND þesi er dönsk, tekin í
litum og Cinema Scope og er
fyrsta danska Cinema Scope-
myndin. Er efnisþráður mynd-
arinnar lítill sem enginn, en lögð
því meiri áherzla á að kynna
áhorfendum fegurð ævintýraeyj
unnar spænsku, Mallorca, sem
seiðir til sín árlega ferðalanga
svo milljónum skiptir, og um
leið að gefa áhorfendum nokkra
huigmynd um hvgrnig hópferðir
til helztu ferðamannalanda eru
skipulagðar og hvernig þeirra
verður bezt notið. Danir eru
snillingar í að skipuleggja sliík-
ar ferðir og gegnir furðu hversu
ódýrar þær eru þegar þess er
gæt að venjulega er innifalinn
í fargjaldinu allur viðurgern-
ingur á áfangastöðuim. — Mall-
orca er töfrandi fögur og lífið
þar litríkt og fjölbreytilegt og
því margt skemimtilegt sem fyr-
ir auga áh-orfandans ber. í mynd
þessari er mikið um gleði og
gott skap, enda kunna Danir
manna bezt að skemmta sér.
Spænsku senoriturnar, dökkar
og heitar, heilla hina ungu
dönsku menn, enda fer svo í
þessa-ri ferð, að einn Daninn
verður yfir sig ástfanginn af
spænskri dansmær og lýkur því
ævintýri m-eð hjóna-bandi. Ann-
ars er ekki rúm hér til þess að
rekja hér allt það sem á dag-a
ferðafólksins drífur í þessari
skemmtilegu ferð til Mallorca,
en þess má geta að það sér
meðal ann-ars nautaat og er auð-
séð að samúð þess er réttilega
öll með nautinu. Ýmsir þekkt-
ir leikarar danskir kom-a þarn-a
fram, svo sem Lise Ringheim,
Gunnar Lauring, Bendt Rothe
o.fl. o.fl.
í Ga-mla bíói hafa að undan-
förnu verið sýndar kvikmyndir,
sem Ósvaldur Knudsen hefur
tekið. Eru myndirnar þessar:
Fjallaslóðir, þar sem fyrir augu
áhorfandans ber stórbrotin ör-
æfafegurð íslands í dásamlegu
litskrúði, tign mikilúðu-gra fjall-
garða og vingjarnlegra gróður-
vinja með lækjarsitrum. Eldar
í Öskju, þar sem frábærlega vel
eru sýndar hinar miklu náttúru-
hamfarir, er glóandi hraunflóð-
ið steypist niður brattar hlíðar
með furðulegum hraða eins og
um straumþungt fljót væri að
ræða.. f>á er sýnd leit að barni
sem hvarf, er það var viðskila
leiksystkini sín úti í móum
skammt frá heimili sínu, en
fannst þó eftir alllangan tíma
óskadd-að og við beztu heilsu.
Er hér stuðzt við rauhverulegan
at'burð er gerðist fyrir nokkru
vestur á landi. — Síðast en ekki
sízt er sýnd mynd af Halldóri
Kiljan Laxness, meðal ann-ars er
hann veitir móttöku í Stokk-
hólmi bókmenntaverðlaunum
Nóbels, þegar hann kemur þaðan
hingað heim með Gullfossi, og
•au-k þess ýms atriði úr daglegu
lífi hans heima í Gljúfrasteini
og utan heimilisins. Er þeissi
mynd mjög skemmtileg og fróð-
leg. Heimili þeirra hjónanna er
fagurt og ber með sér að það
er byggt upp af fáguðum smekk,
sem hvergi sk-eikar.
Ósv-aldur Knudsen hefur unnið
þarna mikið og gott verk, er
hlýtur að hafa kostað mikið fé
og erfiði, enda mun hann hafa
unnið að gerð myndarinn-ar að
mestu eða kannski algerlega
einn. — Þessar athyglisverðu
myndir ættu sem flestir að sjá.
Vigfús Einarsson
Halldóra Einarsdóttir
— Þvl dæmist . . .
Frarnh. af bls. 20.
að koma fyrir til varnar þessu,
hefði dregið úr afleiðingum slyss
ins eða forðað því. Þá er enginn
öryggisútbúnaður á vélinni, sem
hindrar gangsetningu hennar á
meðan efra mótið er dregið út,
en slíkum útbúnaði á að vera
hægt að koma við.
Niðurstöður málsins urðu þær
sömu í Hæstarétti og í héraðs-
dómnum. Var talið, að holan í
gólfi verkstæðishússins, sem áður
er lýst,. væri brot á lögum um,
öryggisráðstafanir á vinnustöð-
um. Þá var og talið skv. ofan-
sögðu, að öryggisútbúnaði vél-
arinnar hefði verið áfátt.
Hinsvegar var jafnframt talið,
að stefnandi hefði ekki gætt
nægrar varkárni við starf sitt, en
hann hafði unnið lengi við mót-
unarvélina og þekkti vel til henn
ar og allar aðstæður á slysstað.
Var því talið hæfilegt, að Stál-
umbúðir h.f. bæru 3/5 hluta
tjónsins og stefnandi sjálfur 2/5.
Samkvæmt því þóttu bætur ti!
hans hæfilega ákveðnar kr.
102.672.00 ásamt vöxtum og kr.
27.000.00 í málskostnað fyrir báð
um réttum.
„Áður en varir ævisól hnígur,
og dimm er komin dauðans nótt“.
Hversu oft gleyma menn ekki
þessum hendingum sálmr.skálds-
ins í hópi vina og kunningja.
Ábyggilega hvarflaði ekki að
okkur þessar ljóðlínur á síðustu
jólum, er þau systkinin Einar og
Halldóra dvöldu á heimili okk-
ar og höfðu tekið báða jóla-
dagana til að hitta okkur en urðu
að snúa frá fyrri daginn vegna
ófæru á vegi. Kveðjustundin
hefði verið með öðrum blæ, ef
við hefðum vitað að þá vorum
við að kveðja vinkonu okkar í
síðasta sinn í þessu lífi. Það er
eitt af náðargjöfum þessa lífs að
vita ekki lengra en raun ber
vitni. Samt er þetta leiðin se-m
við öll eigum að fara, en hvert?
Það er spurningin mikla, sem
við fáum ekki svarað vafalaust
í þessu lífi. Þó líkaminn hverfi
lifir minningin um góðan mann
og göfuga kou, sem voru starfi
sínu vaxin í þessu lífi en bárust
lítt á.
Að kveldi síðasta jóladags varð
það slys á Fagradal sem seint
fyrnist þeim Austfirðingum, sem
um Skriður fara og þekkja alla
staðhætti, er bíll rann niður í
árgljúfrið með þeim afleiðingum
áð tveir af þrem sem í bílnum
létust, Halldóra Einarsdóttir
fljótlega eða strax en Vigfús
bróðir hennar tveim dögum síð-
ar, en bílstjórinn Einar bróðir
þeirra slapp einn en mikið meidd
ur.
Halldóra Einarsdóttir var
fædd 22. okt. 1902 að Bakkagerði
í Jökulsárhlíð, en Vigfús var
tveim árum eldri. Foreldrar
þeirra voru Bergljót Einarsdóttir
frá Arnheiðarstöðum í Fljótsdal
og Einar Sölvason fró Víkings-
stöðum í Vallarhreppi, var Berg-
ljót seinni kona Einars. Þau
systkinin misstu föður sinn 1907
þá í Fjarðarseli við Seyðisfjörð.
Þar höfðu þau hjón búið síðustu
ár ævi Einars. Leysist þá upp
heimilið og þessi sex systkini
dreifðust. Arið 1912, að 'm g minn
ir flutti Bergljót með þau Vig-
fús og Halldóru að Þingmúla í
Skriðdal til Margrétar dóttur
sinnar, sem þá bjó þar með
manni sínum, Óla Einarssyni.
Hjá þeim voru þessi sys-tkin
fram yfir fermingu, en fjarlægð-
ust svo aftur bæði, hann fyrir
fullt og allt úr hreppnum að
undanskildu einu og hálfu ári,
sem hann var í Hátúnum hjá
þeim Halldóru og Einari, en hún
um tíma en mun hafa komið
aftur í hreppinn fyrir 1930.
Vigfús heitnum kynntist ég
ekki nema sem unglingi lítið
eldri en ég og svo aðeins eitt
sumar sem fulltíða manni. Kom
hann mér fyrir sjónir em hægur
og yfirlætislaus maður, sem
vinnur verk sín í kyrrþey og án
allra auglýsinga enda sést það
bezt að hann var lengst af vinnu-
maður á sama bæ lengi vel.
Dvalarstaðir hans voru Fljóts-
dalur og Norðfjörður, ábyggi-
lega um 20 ár í hvorum hreppn-
um. Síðast var hann búsettur í
Fannardal og Neskaupstað um
allmörg ár. Sem unglingur mátti
hann ekki vamm sitt vita og ég
held að hann hafi haldið það út
lífið í gegn.
Halldóra Einarsdót-tir var aft-
ur lengst af í Skriðdal og unni
sveitinni og fólkinu af heilum
huga. Eins og áður er getið kom
hún aftur fyrir 1930, þá sem bú-
stýra Einars bróður síns að Há-
túnum og dvaldi með honum til
dauðadags, lengi þar og síðast í
Egilsstaðakauptúni, þar sem þau
áttu hús og fallegt heimili.
Mörg ár voru þessi systkini
nágrannar mínir og tel ég það
-sérstakt happ að hafa kynnzt
þeim. Halldóra heitin var svo
einstök manneskja í raun. Glað-
leg og prúð í framkomu og hafði
svo létt skap að hún tók ekki
mark á annarra þrasi. Hún vann
vel af mikilli trúmennsku verk
sín og gekk í hvað sem fyrir
kom. Þess vegna þurfti hún ekki
að taka tillit til mats annarra.
Hún hafði það á tilfinningunni
að þau væru vel af hendi leyst.
Ég held hún hafi aldrei hugsað
neitt um það, hvort verkið var
skemmtilegt eða ekki, heldur
um þörfina að koma því af.
Hún var í sannleika vinur vina
sinna. Kom tryggð hennar fram
í allri hennar framkomu og við-
móti. En nú er autt sætið. Heim-
ilið þeirra fagra ljóslaust og autt,
‘bróðirinn sem hún vann bezt
veikur, nýkominn úr sjúkrahúsi
og fóstursonurinn og fjölskylda
hans hnipin. En enginn má við
örlögunum. Aðeins minningin
lifir um konuna, sem alltaf var
‘hægt að leita til og aiúrei brást.
Sú minning verður þeim hjart-
fólgin sem mest hafa misst. Guð
blessi þig vina mín.
Geitdal 11. febr. 1963.
Snæbjörn Jónsson.
50 TEGUNDIR
ALLRAHANDA
BASIUKUM
DIRKISFRÆ
BORDSINNEP
CHILLIES
ENGIFER
ESTRAG0N
FINKULL MUIINN
HVITLAUKSMJÖL
HVITLAUKSSALT
KANILL MÚLINN
KANILL
KARDAM0MUR *nu.
KARDAMÓMUR
KARRÍ
KÓRÍANDRI
KÚMEN
LAUKSALT
LAUKMJÖL
MAJ0RAN
MÚSKAT
NEGULL
NEGULNAGLAR
PAPRIKA EDELSUSS
PIPAR HVITUR HEIll
PIPAR HVITUR MUliNN
PIPAR LANGUR
PIPAR SVARTUR Hllll
PIPAR. SVARTUR MUUNN
RÓSMARÍN
SELLERIFRÆ
SELLERÍSALT
SINNEPSFRÆ
STJ0RNUANÍS
TYMÍAN
HUNANG
fv SALVÍA »w*
anís MULINN
/ DILl »i«i
KRYDDVÖRUR
9 AVALT
BEZTAR
BRÚNKOKUKRYDD
CAYENNE-PIPAR
HUNANGSKOKUKRYDD
MÚSKATHNETUR
PIPARMYNTULAUF
SPÍRMYNNTULAUF
PÓMERANSBÖRKUR
RÚLLUPYLSUKRYDD
VANILLÍNSYKUR
„ÞRIDJA KRYDDIÐ"
CEYL0N KANILL
EFNAGERÐ REYKJAVIKUR H.F.
Hvítt: J. Averbach
Svart: M. Taimanov
Kóngs-indversk vörn
1. c4, g6; 2. d4, Bf6; 3. Rc3, Bg7;
4. e4, 0-0; 5. Be3, d6; 6. f3
6. —■ Rc6
Hvítur beitir hinu svonefnda
Samisoh afbrigði en gegn þeirri
uppbyggingu getur svartur snú-
i-t á margan hátt. Leikurinn,
sem Taimanov velur er hæst
móðins í dag.
7. Dd2 a6
8. 0-0-0
Djarfloga leikið, eins og nauð-
synlegt er í þessu afbrigði. Ró-
legra framhald er 8. Rge2 ásamt
Recl—b3.
8. — Bd7
Til greina kom hér 8. — He8
Margrét K. Andrésdóttir
Margrét var fædd 15. júlí 1877
og var því rúmlega 85 ára er
hún lézt, þ. 23. des. sl.
Margrét var vel gefin kona og
trúarsterk, hafði göfuga sál og
gott hjarta, þrekmikil og æðru-
laus, hvað sem að höndum bar.
Enda þurfti hún á því að halda,
því hún varð — eins og fátækl-
ingar yfirleitt á þeirn árum, —
að heyja harða lífsbaráttu. Þá
var ekki tekið mikið tillit til til-
finninga mæðranna, þegar verið
var að rífa börnin frá þeim.
Margrét varð að búa um árabil
í lítilfjörlegu bæjarhreysi með
barnahópinn sinn og takast á við
erfiðleika, sem fátæklingarnir
fóru sjaldan varhluta af. Þá hjálp
aði trúin á frelsarann henni, og
hennar sterka sál og styrka hönd
til allra nytsamlegra verka, því
aldrei féll henni verk úr hendi.
En það birtir öll él upp um síðir,
og svo var hjá Margréti. Það var
byggt sæmilegt hús 1928 en um
það leyti missti Jón maður henn
ar, heilsu og gat ekki staðið
straum af því, en þá voru börnin
að komast upp, og þá var það
Hannes sonur hennar, þá ungur
að árum, sem tók á sig húsið og
síðar var það endurbætt svo að
nú er það ágætt, og hafa þau
búið þar. Margrét átti óvenju-
lega góð börn, sem á allan hátt
iéttu henni lífið, eftir að maður
hennar dó-
Bræðurnir, Hannes, Jón og
Kristján, sáu um allt sem heimil-
ið þarfnaðist, en Ásta, dóttir
hennar, hugsaði um það að öðru
leyti og höfðu þau þennan hátt á
1 fjölda mörg ár. Það er leitun á
börnum, sem sýna foreldrum sín
um jafnmikla ræktarsemi og
fórnarlund og börn Margrétar
gerðu. Guð blessi þau fyrir það.
Nú er skarð fyrir skildi, þegar
þú ert farin, Magga mín, í 34 ár
höfum við verið nágrannakonur
og aldrei hefur borið skugga á
okkar kynni. Þú varst ávallt
glöð og kát hvað sem á gekk,
frjáls í hugsun og góðviljuð í
skoðunum, aldrei lagðir þú öðr-
um last til, og gerðir öllum gott,
bæði í orði og verki, sem að þín-
um dyrum komu. Hafðu hjartans
þökk fyrir allt, ég bið Jesús að
fylgja þér, hugstóra hetja, til
fundar við ástvini þína í sólar-
löndum æðri heima.
Blessuð sé minning þín.
Nágrannakona.
í því skyni að svara 9. Bh6
með Bh8.
9. Bh6! b5
10. h4
Með réttu hafnar hvítur peðs-
fórn svarts. Eftir 10. cxb5, axb5;
11. Bxb5 hefur svartur gagnsókn
með 11. — Ra5; 12. Bd3, Db8;
síðan til b4.
10. — e5
11. Bxg7 Kxg7
12. Rge2 Ra5(?)
Óheillavænlegur leikur. Betra
var að reyna að hamla á móti
sókn hvits með 12. — h5.
13. Rg3! Rxc4
14. Bxc4 bxc4
15. h5 De7
16. f4!
Með þessum leik opnar hvitur
línurnar gegn svarta kóngnum.
16. — Hab8
17. dxe5
Annar möguleiki var 17. fxe5,
dxe5; 18. hxg6, fxg6; 19. dxe5,
Dxe5; 20. Dh6f með ýmsum
sóknarmöguleikum. Textalpikur-
inn er ekki síðri.
17. — dxe5
18. f5 Hh8
Hvað ætti svartur að taka til
bragðs? Hvítur hótaði h::g og
Dh6. /
19. fxg6 .
Hér kom 19. h6f mjög sterklega
til greina, þar sem svartur verð-
ur að tefla með hrók undir.
19. — hxg6
20. Dg5 Db4
21. Hd2 Hb6
22. Hfl Hhb8
23. Dxe5
Vitaskuld ekki 23. Hxf6? Dxc3f!
23. — He6
24. Dxc7 Hb7
25. Df4 Bc6
26. hxg6 fxg6
27. Dg5 Rh7
Svartur á enga möguleika a
gagnsókn.
28. Rh5t Kh8
29. Dh6 De7
30. Rf4 Df7
31. Hfdl
Sennilega hefur Averbach veri8
í tímaþröng, því að öðrum kosti
hefði hann unnið einfaldlega
með 31. Hd8t, B©8, 32. Rxg6f!,
Hxg6 (32. — Dxg6; 33. Hf8t)
34. Hxf7 og vinnur auðveldlega.
31. — Hf6
32. Hd8t Be8
33. Rcd5 c3
örvænting.
34. Rxf6 cxb2t
35. Kbl gefið