Morgunblaðið - 27.03.1963, Page 6
6
MORCVNBL AÐIÐ
Miðvikudagur 27. marz 1963
HEIMILISTÆKI
BRÆÐURNIR ORMSON
Yesturgötu 3.
Sími 11467.
©PIB1
COPEHHAGíH
Vii)j
Hóiasveinar í kynnis-
ferö á Akureyri
Helmingur nemenda úr kaupstöðum
Akureyri, 25. marz.
SEXTÁN Hólasveinar gistu Ak-
ureyri á laugardaginn ásamt
skólastjóra sínum, Árna Péturs-
syni, og Yigfúsi Helgasyni, kenn-
ara, og frú hans. Voru þeir í
náms- og kynnisfeið til þess að
skoða kúabúið að Galtalæk og
tilraunastarfsemi í Gróðrarstóð-
inni á Akureyri.
Fréttamaður MdI. hitti Árna
Pétursson skólastjora snöggvasl
að máli, þar sem ferðalangarnir
voru að skoða hið nytízKuIega
mjaltakerfi í fjósinu að Galta-
læk og virtu fyrir sér 40 þrifleg-
ar kýr og töflur um afurðir
þeirra við leiðsögn og skýringar
Árna Jónssonar, tilraunastjóra.
— Eru margir nemendur í
Hólaskóla í vetur, Árni?
— Þeir eru alls 19, þar af eru
3 í eldri deild.
— Eru þeir ekki flestir norð-
lenzkir bændasynir?
— Það er nú svo undarlegt, að
um helmingur nemendanna er
úr kaupstöðum, ekki sízt úr
Reykjavík. Þess verður heldur
ekki vart, að Norðlendingar sæki
skólann fremur en menn úr öðr-
um landshlutum. Við höfum til
dæmis haft marga Árnesinga,
Austfirðinga og Yestfirðinga.
Nemendur úr Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslum eru sj aldgæfastir í
Hólaskóla.
— Þurfa kannski ekki að sækja
vit í önnur héruð?
— Ekki voru það mín orð.
Annars er einkennilegt, hve
bændasynir, sem ætla að leggja
fyrir sig búskap, eru tómlátir
um að afla sér þekkingar og
fræðslu um búvísindi og búnaðar
störf. Þetta þykir þó nauðsynlegt
í öðrum lönáum. Og sérskóla-
ganga þykir líka nauðsynleg hjá
öðrum stéttum, sem gegna sízt
mikilvægari eða ábyrgðarmeiri
störfum en bændur. Búnaðarskól
arnir veita að vísu engin réttindi
að loknu námi, en miklu vildi ég
þó heldur ráða til mín búfræðing
en ólærðan mann í búnaðarfræð-
um, væri ég bóndi og ætti á báð-
um völ. Bóndi, sem sótt hefur
búnaðarskóla, stendur líka miklu
betur að vígi við búrekstur sinn
en hinn, sem þess hefur farið á
Ferðamenn
Fylgist með því, sem ger-
ist heima á Fróni. Með
hverri flugferð Faxanna
til Kaupmannahaf nar, nú
fjórum sinnum í viku,
kemur Morgunblaðið sam
dægurs í ,-Aviskiosken í
Hovedbanegárden**.
mis. En það er eins og metnað-
inn vanti. Svo þykir mörgurn
ungum manni nægum tíma fórn-
að til undirbúnings líf-inu, þegar
hann hefur verið í héraðsskóla í
tvo eða þrjá vetur.
— Er nú ekki áhuginn á bún-
aðarnámi samt heldur að glæð-
ast?
— Það vona ég, a.m.k. hafa
þegar borizt nokkrar umsóknir
um skólavist næsta vetur.
— Er þetta fyrsta kynnisferð
ykkar í vetur?
— Nei, við höfum farið eina áð-
ur, en þá aðeins um Skagafjörð.
Ég býst varla við, að þær verði
fleiri en þessar tvær á þessum
vetri.
— Hvað ætlið þið að skoða
aðallega núna?
— Við fórum nú gagngert til
að sjá þessa starfsemi, sem Árni
Jónsson stjórnar hér, og hlýða á
það, sem hann hefur að segja
Hólamenn á Galtalæk.
okkur um hana til fróðleiks. Svo
er þetta náttúrlega skemmtiferð
í aðra röndina.
Við kveðjum þá Hólamenn,
þar sem þeir hverfa inn undir
hin hákrýndu tré Gróðarstöðvar-
innar í fylgd lærifeðra sinna og
leiðsögumanns. — Hlý sunnan-
golan bærir lim bjarkanna, þó að
enn sé enginn vórilmur úr jörð.
— Sv. P.
Hólamenn í garði Gróðrarstöðvarinnar á Akureyri.
(Ljósm.: Gunnl. P. Kristinsson)
Aðalfundur
Félags ísL
náttúrufræðinga
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
náttúrufræðinga var haldinn dag
ana 26. febrúar og 7. marz. Á þess
um fundi var lögum félagsins
breytt og starfssvið þess mjög auk
ið. Hingað til hefur félagið ein-
ungis starfað sem hagsmunafélag
fyrir þá náttúrufræðinga, sem
vinna við rannsóknastofnanir
þjónustu ríkisins.
Félagið á nú að vera fræði-
legur vettvangur allra þeirra, sem
lokið hafa háskólaprófi í ein-
hverri grein náttúruvísinda, og a
því að gegna svipuðu hlutverki
fyrir náttúrufræðinga og Verk
fræðingafélag íslands gegnir fyrir
verkfræðinga.
Stjórn félagsins var öll endur
kjörin, formaður er Dr. Björn Sig
urbjörnsson, erfðafræðingur.
Meðlimir félagsins eru 50 tals
ins.
Aðalfundur
Krabbameins-
félags Reykja-
víkur
Nýlega var aðalfundur Krabba
meinsfélags Reykjavíkur haldina
í hinu nýja húsnæði krábba-
meinsfélaganna að Suðurgötu 22.
Formaður félagsins, Bjarni
Bjarnason læknir, flutti sikýrslu
félagsstjórnar frá liðnu ári. Eins
og að undanförnu hefur það ver-
ið aðalviðfangsefni deildarinnar
að sjá um fjáröflun, og í því
skyni voru haldin þrjú happ-
drætti á árinu, og varð nettó-
hagnaður af þeim tæpl. 400 þús.
kr. Vegna margra aðkallandi
verkefna, mun deildin leggja á-
herzlu á frekari fjáröflun á þessu
ári. Lagðir voru fram endurskoð-
aðir reikningar félagsins og þeir
samþykktir.
Bjarni Bjarnason
Stjórnina skipa nú: Formaður
Bjarni Bjarnason, læknir; ritari
dr. med. Gísli Fr. Pedersen yfir-
læknir; gjaldkeri Ólafur Bjarna-
son, dósent; meðstjórnendur: frú
Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunar-
kona; Jón Oddgeir Jónsson full-
trúi; Hans R. Þórðarson, stór-
kaupmaður og Sveinbjöm Jóns-
son, hæstar.lögmaður.
• Ekki munað
heldur munuð
„Góuþræll" skrifar:
„Ég hjó eftir því, þegar ég
sat við útvarpstækið síðastlið-
ið sunnudagskvöld, að maður
einn var látinn segja í leik-
þætti: „Æ koma mein eftir
munað“. Þetta spakmæli er
sótt til Sólarljóða, en rangt
eftir haft í leikþættinum. Vis-
an, sem þetta er í, er í þeim
kafla Sólarljóða, er lýsa heim-
sókn í „kvölheima", þ.e. hel-
víti. Hún er þannig:
Allar ógnir
fær þú eigi vitat,
þær, sem helgengnir hafa;
sætar syndir
verða at sárum bótum;
æ koma mein eftir munuð.
Höfundur leikþáttarins rugl-
ar hér saman tveimur orðum,
kvenkynsorðinu munuð og
íkarlkynaorðinu imunaður.
Nema það hafi átt að vera fynd
ið, að láta mánninn vitna vit-
laust í Sólarljóð?
— GóuþrælF'
• „Barnagaman“
og Hótel Saga
„Húsmóðir“ skrifar:
„Þér ætti ekki að bregða við
þótt enn ein : „húsmóðirin“ í
borginni bregði sér á leik og
skrifi þér, því að svo virðist,
sem þú sért helzta athvarf
þeirra, er þurfa að létta af sér
áhyggjum, kvarta eða nöldra
yfir einhverju. Ég skrifa þér
reyndar ekki í neinum upp-
reisnarham, heldur langar mig
til þess að þakka þeim ágætu
aðiljum, sem á sunnudögum
standa fyrir barnaskemmtun
þeirri í Háskólabíói, er kallast
„Barnagaman", og koma á fram
færi tillögu þar að lútandi.
Skemmtunin „Barnagaman“
er miðuð við unga krakka, sem
hafa ekkert á bíó að gera og
þurfa raunar engar skemmtanir
aðrar en heilbrigðan leik. En
þau eru þó oft eirðarlaus á
jsunnudögum, vegna þess að
þeim finnst hann eiga að vera
í einhverju frábrugðinn öðrum
dögum og þykir tæpast viðeig-
andi að velta sér í sandinuiji
eða sulla í pollum.
Þeir aðiljar, sem að Barna-
gamni standa, hafa sýnt það í
verki, að foreldrar geta treyst
þeim til þess að ýta heldur
undir uppeldi þeirra en grafa
undan því.
En það var ekki ætlun mín
að prédika hér. Hitt er annað
mál, að mig langar að korna
því á framfæri, að þeir,' sern
standa fyrir einhvers konar
skemmtan á Hótel Sögu á
sunnudögum, — eins og til
dæmis Musica Nova, sem nélt
þar bráðskemmtilega tónleika
síðastliðinn sunnudag, — miði
hana við barnaskemmtunina 1
Háskólabíói. Væri svo gert,
gætu hjón, sem ekki hafa ,inn-
byggða“ barnfóstru, tekið sér
far í Vesturbæinn, komið ung-
unum sínum fyrir í öryggi og
góðu atlæti, meðan þau sjálf
brygðu sér í Sögu. í góðu veðrj
er svo upplagt fyrir fjölskyld-
una að fá sér frískt loft í lung-
un og labba t. d. niður að sjón-
um og skoða þá margbreytni
í húsagerðarlist íslendinga,
sem blasir við augum á Ægis-
síðunni, ýmist til yndis eða
óhugnaðar".