Morgunblaðið - 27.03.1963, Page 23
MiSvfkudagur 27. marz 1963
MORGUNBLAÐIÐ
23
„Ég er aðgerðarlaus og
veit ekkerf lengur"
segir bandariska skáldið Ezra Pound harns; sálar’ sem hafi s5hkt
Ezra Pound, segist nú vera
kominn á aldur efans og vera
hræddur um að hann hafi .
haft rangt fyrir sér allt sitt á-
líf. Vegna þess, að Pound hef- "
ur glatað trúnni á sjáifan sig,
hefur hann lagrt hið fræga
verk sitt, „Cantos“ (kviður)
á hilluna og segir, að hann
muni aldrei ljúka við það.
í>etta kom fram í viðtali,
sem bókmenntagagnrýnandi
tímaritsins „Epoca“ í Mílanó,
Garzia Livi, átti við Pound í W
Feneyjum fyrir skömmu. f við
talinu segir Pound, sem-nú er
77 ára, m.a.:
„Ég skrifa ekíki lengur. Ég
er aðgerðarlaus. Einhver
drungi er yfir mér og það
eina, sem þróast með mér er
matgræðgi og leti.“
Orð Pounds og hinn aug-
ljósi biturleiki hans í garð
sjálfs sín, sýnir hina miklu
breytingu, sem orðið hefur á
honum frá því að hann sneri veikrahælinu sagðist hann
áftur til Ítalíu fyxir fimm ár- hafa verið heilbrigður allan
um. Þessi hvassyrti gáfumað- tímann, sem hann dvalctist
ur, sem dvaldist í Ítalíu á ár- þar, og skömm.u eftir komuna
um síðari heimsstyrjaldarinn- til Ítalíu sagði hann: „Það er
ar, sneri þangað aftur 1958, hvergi hægt að lifa í Banda-
eftir að hafa verið 12 ár í ríkjunum nema á geðveikra-
fangelsi og á geðveikrahæli í hælum.“
Bandaríkjunum. Pound var Livi skrifar, að Pound sé
fangelsaður sakaður um fas- ekki lengur sá persónuleiki,
isma, en 1958 leysti Banda- sem hann var. Hann horfi að-
ríkjastjórn hann undan ákær- eins á heiminn með augum
unni. sálar sem geri sér ekki leng-
Þegar Pound bom af geð- ur grein fyrir vandamálum
Ezra Pound.
sér niður í hinn dapurlega
visdóm, sem sé undanfari
endalokanna.
Gagnrýnandinn hefur eftir-
farandi orð eftir skáildinu:
„Ég bef alltaf haft rángt fyrir
mér — og spillt öllu, sem hef-
ur komizt í snertingu við mig.
Mér er nú ljóst, að ég veit
ekkert lengur og ég kynntist
of seint þessari óvissutilfinn-
ingu manns, sem þekkir að-
eins mistök sín.“
Fyrir tveimur árum sagði
Pound vinum sínum, að hon-
um fyndist hann eiga skilið
Nóbelsverðlaun fyrir skáld-
skap sinn. Sagði hann stjóm-
málalegar ástæður valda því,
að sér hefði ekki verið sýnd-
ur þessi heiður. Pound sagð-
ist þá hafa lokið 113 kviðum
af hinu fræga verki sínu,
„Cantos“ og gerði ráð fyrir
að skrifa sjö til viðbótar.
Skömmu eftir að Pound sagði
þetta, fékk hann aðkenningu
af hjartaslagi, og nú hefur
Livi það eftir skáldinu, að
„Cantos“ verði aldrei fullgert.
„Ég er orðinn ólæs bók-
menntamaður,“ hefur Livi
eftir Pound, sem áður var
svo fullur eldmóði. „Ég er
ekki fær um að hugsa. Ég
finn aðeins hina truflandi ó-
vissu. Ég get. ekki lengur
skýrt kjarna hugsana minna
með orðum. Ég vildi gjarnan
gefa skýringu, en allt er svo
erfitt og tilgangslaust.“
— Frami
Framhald af bls. 24.
þeitn sömu mönnum, sem setið
hafa í stjórn félagsins undanfarin
ár undir forystu Bergsteins Guð-
jónssonar. í sjálfseignarmanna
deild koma svo fram tveir and-
Btöðulistar, annar í nafni fram-
6Óknarmanna og hinn frá komm-
únistum. Þessir listar eru að
nokkru leyti skipaðir sömu
mönnum, líkt og þessir flokkar
gerðu sl. haust til fulltrúakjörs á
þingi ASÍ. Fengu kommúnistar og
framsóknarmenn þá nokkrum at
kvæðum fleira samanlagt á lista
BÍna en lýðræðissinnar. Stjórn A1
þýðusambandsins úrskurðaði síð
an að heimilt væri að leggja at-
kvæði listanna saman og á þann
hátt fengu þessir samstarfsflokk
ar kosna fulltrúa á Alþýðusam-
bandsþing. Þessa veiðibrellu
þjóðfylkingarmanna þurfa Frama
félagar að varast, minnugir þess,
að liklegt er að þessi leikur verði
leikinn aftur ef þessum mönnum
tekst að fá svipaða aðstöðu og
í haust.
í launþegadeild er þessi brella
ekki notuð af þjóðfylkingarmönn
um. Þar bjóða þeir fram einn og
eama lista og fara í engu í felur
með samstarfið.
A-listi lýðræðissinna í Sjálfs-
eignarmannadeild er þannig
ekipaður:
Formaður:
Bergsteinn Guðjónsson, Bú-
staðavegi 77, HreyfilL
Varaformaður:
Jakob Þorsteinsson, Sigluvogi
16, B.S.R.
ftitari:
Narfi Hjartarson, Bollagötu 3,
Bæjarleiðir.
Meðstjórnendur:
Sófus Bénder, Hrísateig 15,
Borgarbilstöðin.
/f. Gestur Sigurjónsson, Lindar-
götu 63, Hreyfill.
Varastjórnendur:
Kristján Þorgeirsson, Heiði við
Kleppsveg, Borgarbílstöðin.
Guðmundur Ámundason,
Snorrabraut 30, Hreyfill.
Trúnaðarmannaráð:
Guðjón Hansson, Laugarnes-
vegi 60, Hreyfill,
Jens Pálsson, Sogavegi 94,
B.S.R.
Einar Helgason, Ljósvallagötu
10, Borgarbílstöðin.
Hörður Guðmundsson, Skip-
holti 10, Bæjarleiðir.
Varamenn í Trúnaðarmannaráð:
Skúli Skúlason, Sltipasundi 12,
Hreyfill.
Karl Þórðarson, Úthlíð 16,
Hreyfill.
Endurskoðandi:
Tryggvi Kristjánsson, Meðal-
holti 5, Hreyfill.
Varaendurskoðandi:
Þorvaldur Þorvaldsson, Langa-
gerði 124, B.S.R.
A-Iistinn í launþegadeild:
Formaður:
Styrmir Þorgeirsson, Njálsgötu
10, Landleiðir.
Varaformaður:
Haraldur Sigurðsson, Baróns-
stíg 39, Steindór.
Ritari:
Björn Sigurðsson, Þórsgötu 8,
Landleiðir.
V arastj órnendur:
Sigurjón Einarsson, Barmahlíð
52, Borgarbílstöðin.
Kristinn ísaksen, Barmahlíð 54,
Bæjarleiðir.
Trúnaðarmannaráð:
Matthías Einarsson, Garðastr.
47, Steindór.
Loftur Jónsson, Bókhlöðust. 6B,
Steindór.
Einar Steindórsson, Sölfhóls-
götu 10, Vestfjarðaleið.
Sigtryggur Guðmundsson,
Rauðalæk 44, Norðurleið.
Varamenn í Trúnaðarmannaráð:
Jóhannes Ellertsson, Hofsvalla-
götu 17, Vestfjarðaleið.
Bjarni Guðmundsson, Ytri-
Grund, Landleiðir.
Endurskoðandi:
Samúel Björnsson, Eskihlíð 12,
Landleiðir.
Varaendurskoðandi:
Einar J. Jónsson, Fífuhvamms-
yeg 15, Steindór.
Framafélagar, aldrei fyrr hefur
verið gerð svo lævis árás á sam-
tök ykkar af kommúnistum og
stuðningsmönnum þeirra. Svarið
þessari árás með því að fylkja
liði tU baráttu fyrir sigri lýðræð
issinna og tryggið með því áfram
haldandi sókn samtakanna tii
betri kjara undir forustu hins
reynda formanns ykkar Berg
steins Guðjónssonar.
Arnessýsla
Aðalfundur FuIItrúaráðs Sjálf
stæðisfélaganna í Árne^sýslu
verður haldinn föstudaginn 29,
marz í fundarsal Landsbanka-
hússins, Selfossi, og hefst kl. 21.
Akureyri
Sjál£stæðisféla.g Akureyrar
heldur fund í kvöld kL 20.30 í
Landsbankasalnum. Þar verða
kosnir fulltrúar á landsfund
Sjálifstæðisflokksins. Einnig
verður rætt um gatnagerð í
bænum, en framsögu þar hefuir
Stefáu Stefánsson, verkfræðing
Er Bidault á leið til
Suður - Ameríku ?
Munchen og Lissábon, 26. marz.
— NTB-AP —
G E O R G E Bidault, fyrrum
forsætisráðherra Frakklands,
er farinn frá Þýzkalandi og
er talið, að hann hafi í hyggju
að fara til Suður-Ameríku.
Hann kom til Portúgal í nótt
ásamt einkaritara sínum, und-
ir fölsku nafni, og er ókunn-
ugt um dvalarstað þeirra. —
Fyrsta flugvélin frá Portúgal
til S-Ameríku átti samkvæmt
áætlun að fara kl. 22 í kvöld.
Það var fyrst síðdegis í dag,
að upplýstist, að Bidault væri í
Portúgal. Hann hafði komið
þangað ásamt einkaritara sínum
kl. 2.05 í nótt með flugvél frá
KLM. Bidault ferðaðist undir
nafninu Maurice Rene Auberger
og einkaritarinn, Guy Ribeaud,
kallaði sig Paul Offrey.
Ekki er vitað, hvert þeir héldu
Sjópróf í Eyjum
Vestmannaeyjum, 26. marz:
I dag fóru fram sjópróf vegna
slyssins er Erlingur IV sökk,
Ekkert nýtt kom fram, sem ekki
hefur verið skýrt frá í blaðinu
M.a. komu fyrir réttinn sjómað
urinn, sem verst var haldinn og
skipstjórinn, en þeir eru báðir
orðnir hressir. — Bj. Guðm.
Togararnir
í GÆR lönduðu tveir togarar
í Reykjavík, Þorsteinn Ingólifs-
son um 170 lestum og Fylkir
nm 190 lestum. Þeir höfðu báð
ir verið við Austur Grænland,
þar sem nokkrir af íslenzku tx>g-
urunurn eru nú við veiðar.
Almennur
Vökufundur
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, efnir til fundar í kvöld
kl. 20,30. Fundurinn verður hald
inn uppi í Nausti.
Á fundinum mun Þór Vilhjálms
son, borgardómari, flytja erindi,
sem hann nefnir „Vandamál lýð
ræðisins".
Vökumenn eru hvattir til að
fjölmenna.
frá flugvellinum í Lissabon.
Lögreglan þar staðfesti, að menn
með þessum nöfnum hefðu kom-
ið til landsins og vegabréf þeirra
hefðu verið skoðuð, en engan
hefði grunað hverjir væru þar á
ferð.
Haft er eftir áreiðanlegum.
heimildum í Múnchen og Lissa-
bon, að Bidault muni aðeins hafa
skamma viðdvöl í Portúgal og
halda síðan áfram ferð sinni, að
öllum líkindum til Suður-Amer-
íku. Annars getur hann dvalizt
eins lengi og haryi lystir í Portú-
gal, meðan lögreglan kemst ekki
á spor hans, því að franskir ríkis-
borgarar þurfa ekki vegabréf til
að dveljast í Portúgal.
Hinsvegar herma sömu fregn-
ir, að Bidault verði ekki heimil-
að að setjast að í Portúgal og
halda áfram andróðursstarfsemi
gegn frönsku stjórnarvöldunum.
— Eggert
Framíh. af bls. 1.
hræddur um að síldin fari að
koma „og hann er allur í síld-
inni“.
Guðmundur fer utan á sunnu-
dag til að ganga frá samningum
og með honum stýrimaður og 2.
vélstjóri á bátnum, en skipstjór-
inn, 1. vélstjóri og matsveinn eru
þegar komnir út með konur sín-
ar, „til að láta þær skemmta sér“,
sagði Guðmundur. „Annars geta
þeir víst helzt skemmt þeim núna
með því að láta þær vaða snjó-'
inn. Skipstjórinn er búinn að
hafa sína hjá sér í sex vikur. Þeir
geta aldrei konulausir verið þess
ir sjómenn. Við þessir gömlu
hefðum nú sagt að nóg væri af
konum þarna í Svíþjóð“, bætti
Guðmundur við og hló.
En Sigurpáll leggur sennilega
af stað frá Gautaborg eftir miðja
næstu viku og verður líklega 4
sólarhringa á leiðinni, því hann
gengur vel, á að ganga 12 mílur
á klst.
Tveir aðrir bátar smíðaðir.
Sigurpáil er fyrsta skipið sem
skipasmíðastöðin í Marstrand
smíðar fyrir íslendinga, en búið
er að semja um smíði tveggja
annarra, að því er blaðið hefur
fregnað að utan. Á annar að fara
til Bolungarvíkur eign Einars
Guðfinnssonar, og hinn til Sand
gerðis og á hann eigandi Guð
bjargar frá SandgerðL
Gamli bærinn á Gili í Svartárdal, sem brann. Elzti hluti hans var frá 1925___30.
(Ljósm. Thorvald Imsland).
Fólkið á
Cili býr í
Húnaveri
í GÆR átti blaðið stuitt sím-
tal við Erlu Hafsteinsdóttur hús-
freyju á Gili í Svartárdal, en
bærinn á Gili brann ofan af fólk
inu á s unn udagsk völdrð.
Hún sagði að bærinn hefði
hrunnið ótrúlega fljótt, en fólk-
ið samt komizt auðveldlega út
um gliugga með þrjú börn, og
varð engum meint af. Fólkið sat
í stofu og var að hlusta á útvarp,
en olíulampi var í eldlhúsinu,
og sagði Erla að hann væri það
eina, seim hefði hugsanlega get-
að valdið brunanum. Litlu var
bjargað úr búsinu, en þó ofur-
litl'u af innanstokksanunum.
Fjöldskyldan er nú í Húna
veri hjá mágkonu Erlu, en karl-
menmirnir, Friðrik maður henn-
ar og Björn tengdafaðir hennar
ganga fram að Gili til gegninga,
en það er stutt leið.
Aðspurð um ihvað nú yrðL
svaraði hún því að líklega yrði
farið í að reisa bæinn aftur sem
fyrst. Elzti hluti bæjarins á
Gili var frá því um 1825-30 og
elzti bær i Húnavatmssýslu.
f