Morgunblaðið - 07.04.1963, Side 8
8
M O R C 1’ V n T 4 »1 <9
Sunnudagur 7. apríl 1963
Starfsemin undirbúin
Stofnfundurinn samþykktl
drög að starfsáætlun, en frekari
ákvarðanir varðandi starfsemina
verða teknar af framkvæmda-
nefnd samtakanna á sérstökum
fundi í Vín innan skamms. A
þeim fundi mun einnig verða
ákveðið, hvar höfuðsetur samtak-
anna verður, rætt um ráðningu
framkvæmdastjóra o. fl. Öll að-
ildarríki æskulýðsráðsins eiga
fulltrúa í framkvæmdanefndinni,
einn hvert.
. ---• ..
. -v . . ■ 7
. ,, v?;r
W:; ■':;■v'
(WAY). WAY er sem kunnugt
er umfangsmestu og öflugus.u
æskulýðssamtök heims og taka
yfir 100 þjóðir þátt í marghátt-
aðri starfsemi þeirra, sem nær
yfir 5 heimsálfur.
I tengslum við WAY
Eðlilegt þótti, að hin nýju Ev-
rópu-samtök, sem að nokkru
leyti munu taka við af ráðgjafar-
nefnd WAY fyrir Evrópu, yrðu
áfram í tengslum við heimssam-
tökin. Nokkur skipulagsbreyting
var hins vegar nauðsynleg, þar
sem aðilar hins nýja samstarfs
munu ekki einungis verða þau
æskulýðssambönd í álfunni, sem
xveir runtruar heöan
Af íslands hálfu sátu stofn-
fundinn tveir fulltrúar frá Æsku-
lýðssambandi íslands (ÆSÍ),
heildarsamtökum íslenzkrar
æsku, Helga Kristinsdóttir og
Hörður Sigurgestsson. Gerðist
ÆSÍ stofnaðili hinna nýju sam-
taka, eins og áður var sagt. —.
Auk fulltrúa landssambands
æskulýðs í hinum ýmsu löndum
sátu stofnfundinn allmargir á-
heyrnarfulltrúar, þ.á.m. aðal.
framkvæmdastjóri World Assem-
bly of Youth, Svíinn David Wir-
mark og fleiri leiðtogar þeirra
samtaka; ennfremur m.a. fulltrú
ar frá Alþjóðasambandi ungra
sósíalista (IUSY), K.F.U.M,
(YMCA) og Evrópuráðinu.
Merkur áfangi •
Æskulýðsráð Evrópu (CENYC)
mun vera fyrstu heildarsamtök
evrópskrar æsku. Er stofnuu
ráðsins því tvímælalaust merkur
þáttur í þróun æskulýðssamstarfs
í álfunni og líklegt, að í kjölfarið
sigli mikil efling þess á næstu
árum.
BITSTJÓHAR: BlflGIH. ÍSL. GUNNAHSSON OG ÓLAfUR EGILSSON
Samjsndsráös oj
fuiitrúaráösfundur
SUS verúur 25. apríi
í SAMRÆMI við frestun Fundur SUS verður hald
Landsfundar Sjálfstæðis- inn í Valhöll og hefst kl.
flokksins til 25. apríl n. k. 10 f. h. 25. apríl og stendur
hefur stjórn Sambands fram eftir degi. Fundar-
ungra Sjálfstæðismanna menn munu snæða saman
ákveðið að fresta sam- hádegisverð. Landsfundur-
bandsráðs- og fulltrúaráðs- inn verður síðan settur um
fundi SUS til sama dags. kvöldið.
Æskulýðssamband íslands meðal
aðíla frá 12 þjóðum, sem undirrituðu
siofnskrána á fundi / Lundúnum
LAUGARDAGINN 23. marz
komu fulltrúar 14 þjóða sam-
an á fund í Lundúnum, til
þess að ganga frá stofnun
Æskulýðsráðs Evrópu (The
Council of European National
Youth Committees), en sam-
tök þessi hafa verið í deigl-
unni vun alllangt skeið.
Hin nýju samtök eru að veru-
legu leyti runnin undan rifjum
æskulýðssarobanda þeirra í álf-
unni, sem verið hafa aðilar að
Alheimssambandi æskunnar, þ.e.
World Assembly of Youth
aðild eiga að WAY, heldur og
nokkur hinna, sem utan haía
staðið — og væntanlega öll, áður
en lýkur. Mun hið nýja æsku-
lýðsráð verða ráðgjafaraðili
WAY og á ýmsan hátt halda við
það nánum tengslum, en á hinn
bóginn starfa að verulegu leyti
sjálfstætt að málefnum, sem ein-
göngu varða evrópska æsku.
Stofnskrá undirrituð
Á fundinum í Lundúnum var
gengið endanlega frá stofnskrá
samtakanna og hún að því búnu
undirrituð af fulltrúum 12 þeirra
fjórtán þjóða, sem fundinn sátu:
tóku hin tvö (Sviss, Ítalía) sér
frest, en munu væntanlega ger-
ast aðilar á næstunni. Þau rík-i,
sem undir stofnskrána rituðu,
eru: Austurríki, Belgía, Bret-
land, Danmörk, Frakkland, Hol-
land, ísland, Luxembourg, Nor-
egur, Svíþjóð, Tyrkland og
Þýzkaland. — Fyrsiti forseti hins
nýstofnaða Æskulýðsráðs Ev-
rópu var einróma kjörinn Heinz-
Georg Binder, formaður vestur-
þýzka æskulýðssambandsins.
Heimdallur sko5ar
Sementsverksmiðjuna
SÍÐASTL. laugardag efndi
Heimdallur, FUS, tii ferðar á
Akranes í þeim megintilgangi
að skoða Sementsverksmiðj-
una.
Var lagt af stað frá Reykja-
vík kl. 13,30 á iaugardag og
komið til Akraness um kl.
16.00. Var þá haldið í Sem-
entsverksmiðjuna, en þar
hafði Þór, FUS, á Akranesi
fengið afnot af salarkynnum
verksmiðjunnar og bauð félag
ið gestum frá Heimdalli, svo
og ungum Sjálfstæðismönn-
um í Vesturlandskjördæmi til
kaffidrykkju.
Valdimar Indriðason, form.
Fulltrúaráðs Sjálfstæðisféiag-
anna á Akranesi, bauð gesti
velkomna í nafni Þórs FUS.
Þá flutti Ásgeir Pétursson,
sýslumaður, formaður stjórn-
ar Sementsverksmiðju ríkis-
ins, ræðu. Að ræðu hans lok-
inni ‘flutti Bragi Hannesson,
bankastjóri, erindi um stór-
iðju á íslandi. Þá lýsti Jón
Vestdal, framkvæmdastjóri,
starfsemi verksmiðjunnar.
Bjarni Beinteinsson, formað-
ur Heimdallar, þakkaði heima
mönnum góðar móttökur og
síðan var þátttakendum skipt
í hópa og gengið um verk-
smiðjuna.
Um kvöldið sóttu þátttak-w
endur dansleik, er Þór, FLS
á Akranesi efndi til og að hon
um loknum var haldið til
Reykjavíkur.
Myndin, sem hér birtist, er
tekin af ferðalöngunum fyrir
utan húsakynni Sementsverk-
smiðjunnar.
Æskulýðsráð Evrópu stoínað