Morgunblaðið - 07.04.1963, Page 11
Sunnudagur 7. apríl 1963
MORCVN BL AÐIÐ
11
Myndin var tekin á sýslumannssetrinu í Vík og sýnir hina þrjá
nýju embættismenn. Talið frá vinstri: Vigfús Magnússon hér-
aðslæknir, Einar Oddsson sýslumaður og Páll Pálsson sóknar-
prestur. (Ljósm.: Brandur Stefánsson, Vík)
Nýir embættismenn
Skaftafellssýslu
Opin bréf til þjónandi
presta og preláta
ÞAÐ mun ekki koma oft fyr-
ir, heyrir víst til hreinna und-
antekninga, að þrjú aðalemb-
cetti sama héraðs losni á einu
og sama árinu. — Þetta gerð-
ist samt í Vík í Mýrdal á sl.
ári er sóknarpresturinn, sr.
Jónas Gíslason, fékk ársorlof
og aðstoðarprestur kom í
hans stað. Héraðslæknirinn,
Haraldur Jónsson, sagði af
sér eftir aldarfjórðungsdvöl
með Mýrdælingum. Loks
losnaði svo embætti sýslu-
manns við andlát Jóns Kjart-
anssonar.
1 tilefni af þessum miklu
mannaskiptum skulu nokkur
orð látin fylgja mynd þeirri,
sem hér birtist af hinum nýju
embættismönnum.
Héraðslæknlrinn
Um héraðslæknisembættið sótti
er.ginn, er það var auglýst laust
til umsóknar. -Var þá ráðinn í
það, um eins árs bil, ungur
læknakandidat úr Reykjavík.
Hann heitir Vigfús Magnússon,
tæplega þrítugur, stúdent frá
MR 1953, kand. med. 1961. For-
eldrar hans eru hjónin Sólveig
Guðmundsdóttir og Magnús Vig-
fússon, byggingam. í Reykjavík.
Hann er kvæntur Fanneyju
Reykdal og eiga þau 3 börn.
Ungi læknirinn kann ágætlega
við plássið og fólkið. Og fólkið
spyr: Verður hann lengur en
þetta eina ár, sem hann er ráð-
inn? Um það er ekki gott að
segja. Hann kveðst vilja fara
eítir -þessu einfalda en ágæta
ráði eins kollega síns: „Þú skalt
ekki vera svo lengi að fólkið fái
leiða á þér“,
. r— Starfsskilyrðin?
■! — Ekki góð, en þau standa til
bóta. Allir hafa fullan hug á að
úr þeim verði bætt eftir því sem
kostur er. T.d. er nauðsyn á, að
fá ný röntgentæki í stað þeirra,
sem eru orðin gömul og ónot-
hæf. Þau þurfa að vera til í
hverju læknishéraði.
:
Sýslumaðurinn
í Tvö mikilmenni, sem unnu lífs
Btarf sitt í Skaftárþingi voru
báðir úr Skagafirði. Okkur
Skaftfellingum er því alltaf vel
Við Skagfirðinga og eigum þeim
mikla þökk að gjalda fyrir það,
að þeir gáfu okkur bæði sr. Jón
Steingrímsson og Svein Pálsson.
Nú höfum við fengið yfirvald
úr Skagafirði, því að eftirmaður
Jóns Kjartanssonar er Einar
Oddsson, fæddur í Flatatungu í
Skagafirði 20. apríl 1931. Þar
búa foreldrar hans, þau Oddur
Einarsson og Sigríður Gunnars-
dóttir. Einar varð stúdent frá
MA 1953 og kand. jur. 1959. Að
loknu prófi varð hann starfsmað-
ur útflutnihgssjóðs og fulltrúi
hjá bæjarfógeta á ísafirði um
tíma. Síðustu þrjú árin var hann
fulltrúi hjá borgardómaranum í
Reykjavík, unz hann tók við
sýslumannsembættinu 1. febrúar
sl. —.
Kona hans er Halla Þorbjörns-
dóttir úr Reykjavík. Hún lauk
læknaprófi á^'ið 1961 og hefur
nú nýlega fengið almennt lækn-
ingaleyfi.
Hinn nýi sýslumaður hefur
ekki enn hitt marga af sýslubú-
um og hann hefur heldur ekki
enn séð mikið af sínu víðlenda
lögsagnarumdæmi, sem hann
verður að ferðast um bæði á bíl-
um og flugvélum, er hann fer í
þingaferðir. En honum segir vel
hugur um að kynnast þessu hér-
aði „mikilla sanda og mikilla
sæva“ og íbúum þess.
Presturinn
Prestinn, sr. Pál Pálsson,
þarf ekki að kynna Skaftfelling-
um. Hann er einn í ættum Síðu-
presta og á hér frændur og
frænkur á öðrum hvorum bæ.
sonur Fáls yfirkennara Sveins-
sonar og konu hans, Þuríðar
Káradóttur. Hann er fæddur í
Reykjavík 26. maí 1927, stúdent
1949, kennarapróf 1955, kand.
theol. 1957. Með námi sínu var
hann kennari í Gagnfræðaskól-
anum við Lindargötu frá árinu
1951 og var trúnaðarmaður
Kennarafélagsins í skólanum-
síðustu árin.
Sr. Páll er sá eini af þessum
nýju embættismönnum Mýrdæl-
inga, sem undirritaður hefur náð
tali af og það fyrsta sem berst í
tal er þetta:
— Hvort fellur þér nú betur
að vera kennari eða kennimað-
ur?
— Þetta er að mörgu leyti
samofið. Ég stundaði mikið
kennslu í Reykjavík og það
geri ég hér líka. Kenni allmikið
við unglingaskólann hér í Vík.
Mér finnst það geta mæta vel
GERA má ráð fyrir, að þeir, sem^
koma til kirkju til þess að taka’
þátt í guðsþjónustu, en ekki að-
eins fyrir forvitnissakir, óski
þess, að hinar kirkjulegu, helgu
athafnir fari sem virðulegast
fram og í sem fyllstu næði þann-
ig, að þær hafi tilætluð áhrif á
söfnuðinn. Alla jafna mun þessu
og þannig farið um hinar al-
menrni messur. Öðru máli er að
gegna um flestar fjölmennustu
messur ársins, þegar fermingar
fara fram.
Ég man ekki hvenær sá ósiður
bélt innreið sína hér í Reykjavík,
að foreldrar risu úr sætum sín-
um, þegar barn þeirra staðfesti
skírnarheit sitt. Líklega hefur
það verið nálægt 1930, ef til vill
litlu fyrr. Þessi ósiður hefur
breiðzt út og spannar væntan-
<£>-----—-------------------
í Vestur-
farið saman, og ekki svo gott að
gera upp á milli. Margir prestar
hafa verið miklir kennarar og
góðir fræðarar. Ég vona að
þjóðin eigi eftir að eignast marga
slíka í framtíðinni, ekki síður en
hingað til. Annars hlýtur hver
prestur fyrst og fremst að vera
minnugur þess, sem hann hét á
sínum vígsludegL
— Við prestarnir kvörtum
mikið yfir lítilli kirkjusókn og
tíðum messuföllum. Tekur þú
undir þær kvartanir?
— Þetta er sjálfsagt nokkuð
misjafnt eftir því hvar er á land-
inu. Mín reynsla er nú ekki löng
í prestsskapnum eins og þú veizt.
En ekki hef ég þurft að kvarta
enn sem komið er. Ég vil segja
það, að lítil kirkjusókn þarf ekki
eingöngu að vera prestinum að
kenna, frekar en góð kirkjusókn
er ekki einungis honum að
þakka. Það sem er mest áríðandi
er að samhugur og samstarf sé
gott milli prests óg safnaðar.
Báðir þurfa að finna til sinnar
ábyrgðar — söfnuðurinn ekki
síður en presturinn. Prestsstarfið
er nefnilega meira en það, sem
menn sjá og heyra í kirkjunni.
Presturinn á að vera þjónn Orðs-
ins bæði í kirkju og utan. Þá er
grundvöllurinn fenginn fyrir því
að hann umgangist sóknarbörnin
svo sem honum ber að gera, þ.e.
„fagni með fagnendum og gráti
með grátendum".
— G. Br.
Sovétríkin noita
Berlín, 3. apríil (NTB)
SOVÉTRÍKIN neituðu í dag að
viðurkenna réttmæti mótmæla af
breskri hálfu, vegna skothríðar
í lofti nærri Berlín, á flugvél
jprezks sjónvarpsmanns. Ný mót
mæli munu senn afhent.
HINN 14. marz s.l. var undir-
ritaður í Washington lánssamn-
ingur milli Framfarastofnunar
Bandaríkjanna (AID) og Fram-
kvæmdabanka íslands, að tilhlut
an ríkissjórna íslands og Banda-
ríkjanna, um lán til Fram-
ltvæmdabankans, sem notað verð
ur til þess að styrkja íslenzkt
atvinnulíf með lánum til þýðing-
armikilli framkvæmda. Sam-
lega .smám saman allt lanr"\ ef
ekki verður hamlað á móti. Og
nú erú það ekki aðeins foreldr-
arnir, sém rísa úr sætum, heldur
og, ef til eru: amma, afi, systkini
og önnur skyldmenni, og nánir
kunningjar eru teknir að slæð-
ast með. Þannig getur það orðið
upp undir 20 manns, sem rís í
einu úr sætum. Það er óþarfi hér
að lýsa öllum þeim ys og þys,
marri og skrjáfi, sem þessu brölti
fylgir það þekkja allir, er verið
hafa við fermingarathöfn hér í
Reykjavík, en hér kemur enn
alvarlegri. hlutur til sögunnar:
Þessi afkvæma- eða ættingja-
sýning dregur að sér athygli þá,
sem á að beinast að hinni helgu
athöfn við altarið. Kirkjugestir
sftúa sér í allar áttir til að fylgj-
ast naeð hinum fjölþættu sýn-
ingum.
Flestum mun finnast skírnin
einhver fegursta athöfn innan
kirkjunnar. Þá stendur allur
söfnuðurinn upp í einu, síðan er
allt hljótt, og athyglin beinist
óskert að athöfninni. SvO var það
og við fermingu, á meðan allur
söfnuðurinn sat kyrr á bekkjum
sínum.
Hinn áður nefndi siður, sem
ég nefndi hér ósið, hefur lík-
lega verið tekinn upp í þeim
góða tilgangi að gera fermingar-
athöfnina hátíðlegri (sbr. skírn-
arathöfnina, sem óneitanlega er
hátíðlegri, síðan söfnuðurinn
fór að standa upp), en hér hefur
algerlega verið skotið framhjá
markinu. Þessar ættingjasýning-
ar raska svo helgi fermingarat-
hafnarinnar, að þær geta naum-
ast kallazt annað en helgispjöll,
sérstaklega í stórum, fjölmenn-
um kirkjum, þar sem fólk þekk-
ist ekki. í sveitakirkjum er þetta
að sjálfsögðu ekki eins áberandi.
Þar þekkjast allir, svo að for-
vitnin grípur ekki eins um sig.
Ef til vill dettur einhyerjum í
hug, að vel færi á því, að allur
söfnuðurinn stæði, meðan ferm-
ingarathöfnin fer fram (sbr.
skírnarathöfnina), en slíkt
mundi sennilega gera vont verra,
þagar fermingarbörnin eru mörg.
Tíminn verður það langur, að
söfnuðurinn, sérstaklega roskið
fólk, endist ekki til þess að
standa kyrrt í sömu sporum.
Eg hefi um nokkurt skeið vak
ið máls á þessum fjölskyldusýn-
ingum við marga leikmenn og
noikkra presta, þar á meðal einn
þjónandi hér í Reykjavík. Allir
þessir hafa, undantekningarlaust,
verið mér sammála um, að hér
þurtfi að verða breyting á.
Að sjálfsögðu væri fyrirhafnar
laust fyrir hina þjonandi presta
að kveða þennan ósið niður með
nokkrum aðvörunarorðum á
undan fermingarathöfn. En mér
er ekki grunlaust um, að það
sé einhver geigur í þeim, hverj-
um fyrir sig, að hefjast handa.
Og ef svo er, þá virðast samtök
þeirra í millum vera eina úrræð
ið.
Úr því að ég fór af stað með
þetta mál, þykir mér rétt að
kvæmt samningnum lána Banda-
ríkin íslandi, í ísl. krónum, kr.
61.0037.550. Lánið er til 20 ára,
afborgunarlaust í 3 ár og með
4% vöxtum. Lánið er veitt af
fé því, er stjórn Bandaríkjanna
eignast hér á landi samkvæmt
samningi milli hennar og ríkis-
stjórnar íslands varðandi kaup
hinnar síðarnefndu á landbúnað-
arvörum í Bandaríkjunum sam-
kvæmt bandarískum lögum þar
drepa á fleiri kirkjusiði. Eg ferð
ast nokkuð víða um land &
hverju sumri og hefi því fengið
tækifæri til að vera hér og þar
við messur og aðrar kirkjulegar
athafnir. Að sjálfsögðu fylgja
prestarnir yfirleitt handbókinni
nákvæmlega, svo langt sem hún
nær, og jafnlengi eru kirkjusið-
irnir hinir sömu, en síðan getur
brugðið á ýmsa vegu.
Einhverju sinni var drepið á
það í útvarpinu (ef til vill af
Guðmundi Jónssyni, söngvara),
að prestar notuðu breytilegar
þýðingar af bæn bænanna. Fað-
ir vorinu. Eg er einn þeirra, sem
þykir þessi fjölbraytni bæði ó-
þörf og óviðkunnanleg. Jafnvel
þó að þýðingamar kunni að
vera allar jafngóðar og fara jafn
vel í munni, þá virðist viðkunn-
anlegast, að einungis ein þýðing,
bænarinnar sé viðurkennd og
notuð í þjónustu kirkjunnar. Til
breytingar geta verið góðar, en
þær eru ekki ávallt jafn við-
eigandi.
Við jarðarfarir eru notaðar
ýmiss konar venjur, eftir sveit-
um og landshlutum. Það er
vandi að dæma um alger smekks
atriði, sérstaklega ef þau snérta
viðkvæm mál. Hér skal því að-
eins vikið að einu jarðarfarar-
atriði, sem mér virðist, að bezt
fari á aðeins einn veg. Þegar
kista er borin í kirkju hér í
Reykjavík, er henni snúið í hálf
hring um leið og hun er sett nið
ur við kórinn. Höfuðgaflinn snýr
þannig að altarinu og presturinn
flytur ræðu sína, bænir og bless
unarorð við höfuðgafl hins látna.
Form þessarar athafnar hefi ég
hvergi séð betra. En utan Reykja
víkur hefi ég séð önnur form
er mér þykir verr fara, t.d. þeg
ar fótagafl kistunnar er látinn
vita að altarinu. Þó þykir mér
enn óskemmtilegra, þegar kistan
er sett til bliðar við gráturnar,
höfðagaflinn snýr að söfrnuðinum,
en í kring um kistuna sitja að-
standendur hins látna og loka
sem næst hringnum, ef þeir
hafa fjölmenni til.
Eg var eitt sinn líkmaður, þar
sem svona. var farið að. Eg gerði
tilraun til þess að fá kistunni
snúið þannig, að fótagaflinn
sneri að söfnuðinum. Það brá
fyrir undrunarsvip yfir fáfræði
minni, og ég var upplýstur um
það, að kistan ætti að snúa gegnt
austri eins og í kirkjugarðinum.
Þá má minna á hinn breyti-
lega texta, er prestar nota, þeg
ar þeir „kasta rekunum“. Er
slík tilbreytni smekkleg eða
æskilag?
Hér verður ekki drepið á
fleira, en ég leyfi mér hér með
að skora á virðulega þjónandi
presta og preláta, að þeir taki til
athugunar, hvort ekki sé ástæða
til að endurskoða og samræma
siðareglur íslenzku kirkjunnar.
Ásgeir L. Jónsson
Mao fer hvergi
Peking, 3. apríl (AP-NTB)
TALIÐ er nú fullvíst, að Mda
Tse tung muni ekki þekkjast
boð Krúsjeffs, um að koma til
Moskvu, til að ræða vandamál
þau, sem hæst hafa borið, í sam-
skiptum Sovétríkjanna og Kína.
Er því haldið fram í Kína, að
Mao vilji ekki fara úr landi.
Engar nánari skýringar eru þó
gefnar.
að lútandi (Public Law 480).
Á síðastliðnu ári veittu Banda-
ríkin íslandi samskonar lán að
fjárhæð kr. 56.534.775. Þessa dag-
ana er verið að ganga frá lánveit
ingum af fé því til Fiskveiða-
sjóðs og Stofnlánadeildar land-
búnaðarins. Er Fiskveiðasjóði
lánað kr. 29.000.000 og Stofn-
lánadeild landbúnaðarins kr.
19.000.000.
61 millj. kr.framkvœmda-
lán frá Bandaríkjunum