Morgunblaðið - 11.04.1963, Síða 22

Morgunblaðið - 11.04.1963, Síða 22
I 22 M O R C V /V B 1.4 Ð 1 O Fimmtudagur 11. apríl 1963 Mikil veöurhœð en lítið tjón ÍSAFIRÐI, 10. apríl. — Minna tjón varð á Vestfjörðum í of- Viðrinu en búast hefði mátt við. í gærmorgun var blíðskaparveð- ur á ísafirði, en um 10 leytið skall á norðan stormur með mikl um ofsa og bylur hefur nú verið hér á annan sólarhring. En snjó hefur lítið fest, aðeins skafið á stöku stað. Veðurhæð er mikil. Frostið í morgun var 15 stig, sem er mesta frost, sem hér hefur verið í vetur og nokkur undan- farin ár. Netabátar voru flestir á sjó á Vestfjörðum og allir á Breiða- firði. Komust þeir klakklaust til hafnar eða í landvar og varð ekkert að hjá þeim, þótt sumir yrðu að halda sjó eða liggja í vari fram til morguns. Línubátar voru yfirleitt grunnt á Steinbít og urðu margir að fara frá lóð- unum. Einar Þveræingur og Mummi voru á sjó með línu og Hinrik Guðmundsson með -et. Einar fékk hnút á sig laust fyrir klukk an 14 í gær um 4 mílur norð- vestur af Barða. Fyllti bátinn að aftan og lagði sjórinn inn skjól- boðin ofan á öldustokknum bak- 'borðsmegin. Þar sem hnúturinn reið yfir bátinn kom mikill sjór á bátinn og leit fremur illa út. 'Skipstjórinn sendi út neyðar- skeyti og gúmbáturinn var hafð- ur til taks, en enginn sjór komst niður í bátinn og rættist úr þessu. Bátsverjum gekk illa að ná sambandi við aðra, því bát- urinn var mjög ísaður og slæmt samband á talstöðinni. Leið dá- lítil stund þar til aftur heyrðist 'til hans. Varðskipið María Júlía var á Önundarfirði og lagði þegar af stað og hafði samband við aðra báta. Þorlákur og Hrönn frá ísa- firði héldu til aðstoðar og fleiri hátar. Um kl. 14.30 komst allt I lag og Einar gat náð sambandi við bátana og komst síðar hjálp- artaust til Flateyrar, lítið brot- inn, nema skjólborðin bakborðs- megin. Hinrik lá í vari í nótt, en trillu bátarnir, sem lagt höfðu af stað 'í gærmorgun sneru vi8. Einar Þveræingur og Mummi lögðu lít- ið og náðu báðir línunnl. Á Bolungarvík urðu 4 línu- hátar að skilja eftir 5~30 bala af línu, samtals 60 bala, en gekk að öðru leyti vel og komust allir í höfn. Heiðrún fór til Patreks- fjarðar, Þorlákur skar á línuna á Skálavík, til að aðstoða Einar Þveræing og fann síðan ekki lín- una afur. Einar Hálfdáns fór í morgun suður á Bréiðafjörð að huga að netunum. Frá Súðavík voru tveir á sjó. Annar lagði ekki, en Trausti tap- aði 15 bölum af línu. Allir bátar af Suðureyri voru á sjó og komust 3 heim. Tveir 'fóru til Patreksfjarðar. Þingeyr- ar bátar lögðu ekki allt og misstu lítið af Jínu. í veðrinu mun hafa skafið fullt í traðirnar á veginum yfir Breiðdalsheiði, sem ruddur var um helgina. MASSEYFERGUSON „E-llXI FULLKOMNASTUR HAGSTÆÐAST ÚTRÚNAÐUR VERÐ ★ 44 ha. dieselvél gerir alla vinnu létta og ánægjulega. ★ Tvöföld kúpling gefur fjölbreytta möguleika með vökvadælu og aflúrtaki. ★ Óháð vökvadælukerfi (gírskiptingar rjúfa ekki vinnslu vökvadælu). ★ Óháð aflúrtak (gírskiptingar rjúfa ekki snúning aflúrtaks). — ★ Sjálfvirk átaksstilling vökvadælukerfis gefur m.a. jafnari vinnsludýpt jarðvinnslutækja, jafnari niðursetningu kartaflna og möguleika til meira spyrnuátaks við drátt en næst með nokkurri annarri dráttarvél svip- aðrar stærðar, — þökk sé MF-álagsbeizlinu. ★ Startari og 2 rafgeymar af yfirstærð í stað eins, gefa örugga ræsingu, jafnvel við erfiðustu skilyrði. ★ Dekk 600x16 að framan og 11x28 að aftan. ★ Ljósasett, 2 kastljós að framan, 1 kastljós að aftan og tvö venjuleg afturljós. ★ Mismunadriflás. / VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI aðeins kr. 110.800,00 skv. núgildandi tollskrá. — Enda þótt vélar verði ekki afgreiddar fyrr en væntanleg ný tollskrá tekur gildi er nauðsynlegt, að pantanir berist sem fyrst svo að afgreiðslutími verði sem styztur. MEÐ MF-35X bjóðum vér hinar þekktu og margreyndu Busatis-sláttuvélar, sem afgreiðast með mjög stuttum fyrirvara. Sambandshúsinu — Reykjavík — Sími 17080. Bíldudalsbátarnir Andri og Pétur Thorsteinsson lágu undir Látrabjargi um nóttina, en kom- ust ekki heim í morgun og misstu langa línu. Þingeyrarbátum gekk ágæt- lega. Þorbjörn lagði 18 bala og náði þeim og fór til Patreksfjarð- ar í gærkvöldi. Tveir komu inn í morgun. HNÍFSDALUR: Páll Pálsson varð að skilja eftir 9 bala af línu út af Kóp. Tveir netabátar héðan fóru til Patreksfjarðar í nótt. fsafjarðarbátar komust allir í höfn eða landvar. Ásúlfur kom seinastur undir morgun. Straumnes missti 6 bala og Guðný 15 bala. Símasambandslaust var frá ísafirði til Reykjavíkur frá því í gærkvöldi Og fram á kvöld vegna bilana í Brúarumdæmi. í dag hefur verið stormur hér og hylur og frost, og þá rofað til 'stöku sinnum. Um 50 manns bíða hér eftir flugfari suður og á 'annað hundrað bíða fars í 'Reykjavík til Isafjarðar á skíða- vikuna. — Högni. Hrokningor Siglufirði, 10. april. — í gær- kvöldi fóru hjón héðan frá Siglu firði með tvemur börnum sínum í jeppa áleiðis yfir Siglufjarðar- skarð. Komust þau vestur yfir, en í svonefndum Sneiðingi, ofan Skarðshóls, sat jeppinn fastur. Fólkið mun hafa ætlað að hringja til Siglufjarðar, þegar það væri komið yfir um, en er ekki varð af því, var gerður út hjálparleiðangur frá Siglufirði. Leiðangursmenn fundu jeppann og aðstoðuðu fólkið með börnin niður í Fljót, þar sem þau tóku sér gistingu á Lambanes-Reykj- um. Árla dags í gær fóru skíða- menn upp á Súlur til þéss að undirbúa landsmótið, og þar voru þeir, þegar óveðrið skall á. Komust þeir við illan leik til byggða móti grenjandi blindhríð og í hörku frosti. Veðrið hefur heldur gengið niður í dag, þótt byljir hafi verið annað veifið. ‘13 stiga frost var hér á hádegi. — Stefán. Enskum togurum hlekk- ist á nyrðra í óveðrinu Akureyri, 10. apríl — Grimsby- togarinn Northern Chief kom til Akureyrar í morgun með bilaða ratsjá og þverkubbað olíurör, sem liggur af bátaþilfari til eld- Þingeyingar leyta f jár síns Húsavík, 10. apríl — Stórviðrið í gær olli bændum hér í nálæg- um sveitum miklum örðugleiik- nm. Þegar veðrið skall á, var fé víða úti. Vegna veðurhæðar og snjókomu gekk illa að finna féð, og lá margt úti í nótt. í dag hafa bændur leitað fjárins, og þrátt fyrir vond leitarskilyrði mun flest fundið og komið í hús. Ekki er talið, að fé hafi fennt, svo að menn vona, að þaðsem ekki fannst í dag, finnist, þegar birtir. — Frétaritari. Liggja í vari Akranesi, 10. apríl: — Landlega er hér í dag. Síldarbát arnir Háraldur og Sigurfari liggja í vari á Sandvík við Reykjanes- vita og bíða þess að lygni. Kjartan Ó. Bjarna- son sýnir í Haf nar- firði KJARTAN Ó. BJARNASON, kvikmyndatökumaður, er nýkom inn heim frá Norðurlöndum, þar sem hann hefur dvalizt í vetur, aðallega í Damnörku. í dag sýnir Kjartan kl. 5,7 og 9 í Hafnarfjarðarbíói 10 kvikmynd ir sínar. Aðalmyndin er „íslenzk börn“, sem talin er ein bezta mynd hans. Auk hennar sýnir hann „Skíðamótið á Akureyri 1962“, „Holmenkollen og Zakop- ane“, knattspyrnulandsleik fs- lands og Noregs, handknattleiks- mynd, skákmót, þjóðhátíðir í Eyj um, 17. júní í Reykjavík, kapp- reiðar og listhlaup á skautum. húss, svo að ekki var hægt að elda mat. Fleiri smávægilegar skemmdir urðu um borð, er tog- arinn varð fyrir brotsjó skammt frá Grímsey í gærkveldi. Um kl. hálffimm í dag kom annar Grimsby-togari, Samarian, til Akureyrar í fylgd með togar- anum Cape Campbell frá Hull. Þegar Samarian var staddur und an Melrakkasléttu kl. hálfþrjú í nótt, varð skipið fyrir ólagi, sem sópaði öllu af bátaþilfari, m.a. björgunarbáti, gúmbáti, olíu- geymi og ýmsu lauslegu, keng- beygði afturbómuna og gerði ratsjá skipsins óvirka, svo og giro-áttavita. Öll ljós slokknuðu um stundarsakir og stjórnpallur fylltist af sjó, svo að ekki var þurr þráður á skipstjóranum, Peter Newby, og öðrum, er á stjórnpalli voru. Togarinn Cape Campbell, sem lá við Grímsey, kom Samarian til aðstoðar og fylgdi honum til Ak- ureyrar. Mikil klakabrynja var á skipunum, og stóðu menn við að höggva klakann, er þeir sigldu inn á Akureyrarhöfn. — Sv. P Bráðkvaddur viðgreftrun í kirkjugarði AKRANESÍ, 10. apríl. — Svo bar við í gær, að maður varð bráðkvaddur uppi í kirkjugarði. Nýbúið var að jarðsetja merkis- konu. Þegar mannfjöldinn, sem fylgdi hinni látnu, var kominn heim á leið, tóku mennirnir tveir, sem áttu að ganga frá gröfinni, til starfa. Annar þeirra var Karl Magnússon, búsettur á Suðurgötu 104 hér í bæ. Er þeir voru ríflega hálfnaðir með verk sitt, víkur Karl sér afsíðis. Þeg- ar samstarfsmenn hans fór að lengja eftir honum, fór hann á stúfana og fann þá Karl örend- an. Karl var um 63ja ára gamall o^: hafði verið veill heilsu síð- ustu árin. V erzl unarstarf Ungur maður, reglusamur og áreiðanlegur, óskast í fatnaðarverzlun í Miðbænum um næstu mánaða- mót. Helzt eitthvað vanur verzlunarstörfum. Um- sóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf og aldur, ásamt meðmælum, ef til eru (sem verða endursend) sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „Góð staða — 6726“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.