Morgunblaðið - 25.05.1963, Qupperneq 2
2
MORGVN.HT. i » I 9
r
Laugardagur 25. maí 1963
52 ungir ræöumenn á sam-
komum SUS um helgina
SAMBAND ungTa Sjálfstæð-
ismanna heldur fundi og sam-
komur á 12 stöðum víða um
land nú um helgina. Á fundum
þessum koma fram 52 ungir
menn og konur, sem flytja munu
ræður og ávörp. Auk þess nokkr-
ir aðrir Sjálfstæðismenn.
Þessi fundarherferð ungra Sjálf
stæðismanna sýnir, svo að ekki
verður um viiist, hvert æska
landsins stefnir. Unga fólkið
mun nú fylkja sér um Sjálf-
stæðisflokkinn og láta þá stór-
sókn, sem nú hefst með þessum
fundarhöldum enda í glæsileg-
um sigri fyrir stefnu unga fólks-
ins — Sjálfstæðistefnunni.
Stykkishólmur:
Fundur ungra kjósenda í sam-
komuhúsinu sunnudaginn 26.
maí kl. 4 e.h. Ræðu-
menn: Einar Ólafsson, kaupm.,
Akranesi, Pétur Sigurðsson, al-
þm., Reykjavík, Þórir Einarsson,
viðsk.fræð., Reykjavík.
AKRANES:
Fundur ungra kjósenda á Hót-
el Akranesi, sunnudaginn 26.
maí kl. 4 e.h. Ræðu-
menn: Hörður Einarsson, stud.
jur., Reykjavík, Magnús Ósk-
arsson, lögfræð., Reykjavík,
Skjöldur Stefánsson, sýsluskrif-
ari, Búðardal.
KEFLAVIK:
Kvöldsamkoma í samkomu-
húsinu í Njarðvíkum sunnudag-
inn 26. maí kl. 8.30. Ræðumenn;
Eiríkur Alexandersson, kaupm.,
Grindavík, Ingvar Guðmundsson,
Keflavík, Matthías Á. Mathiesen
alþm., Hafnarfirði, Ragnhildur
Helgadóttir alþm., Rvík. Auk
þess skemmtiatriði og dans,,
ÍSAFJÖRÐUR:
Fundur ungra kjósenda að
Uppsölum, sunnudaginn 26.
maí. kl. 4. e.h. Ræðumenn: Birg-
ir ísl. Gunnarsson, borgarftr.,
Reykjavík, Ellert Schram, stud.
jur., Reykjavík, Jökull Guð-
mundsson, bifr.stj., ísafirði, Úlf-
ar Ágústsson, verzl.m., ísafirði.
SIGLUFJÖRÐUR:
Fundur ungra kjósenda í Sjálf-
stæðishúsinu sunnudaginn 26.
maí kl. 4. e.h. Ræðumenn: Jak-
ob Möller, stud. jur., Rvík., Kári
Jónsson, verzl.m., Sauðárkróki,
Stefán Friðbjarnarson, bæjarftr.,
Siglufirði.
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Kvöldsamkoma í Félagsheim-
ilinu Tjarnarborg laugardaginn
25. maí kl. 8.30 e.h. Ásamt ung-
um Sjálfstæðismönnum er Félag
Sjálfstæðismanna á Ólafsfirði að-
ili að kvöldsamkomunni. Ræðu-
menn: Gunnar Thoroddsen, fjár-
málaráðherra, Hörður Sigurgests
son, stud. oecon. Auk þess verða
skemmtiatriði og dans.
Myndir vantar
af 9 ræðumönn-
um frá Vest-
mannaeyjum.
VESTMANNAEYJAR:
Fundur ungra kjósenda í sam-
komuhúsinu sunnudaginn 26.
maí kl. 4. e.h. Ræðumenn: Bragi
Hannesson, bankastjóri, Rvík,
Arnar Sigúrðsson, flugafgr.m.,
Vestm., Arnar Sigurmundsson,
verzi.m., Vestm., .Jóhann Run-
ólfsson, bankaftr., Vestm., Garð-
ar Arason, verzl.m., Vestm.,
Guðni Grímsson vélstjóri,
Vestm., Magnús Sigurðsson, nemi
Vestm., Þorsteina Jóna Þorst-
einsdóttir, verzl.m., Vestm., Sig-
urgeir Sigurjónsson, skrifst.stj.
Sigfús Johnsen, kennari, Vestm.
AKUREYRI:
Fundur ungra kjósenda í Nýja
Bíó sunnudaginn 26. maí kl. 5
e.h. Ræðumenn: Alda Steinþórs-
dóttir, aðstoðarstúlka, Akureyri,
Gunnar Sólnes, stud. jur., Akur-
eyri, Gísli H. Guðlaugsson, tækni
fræð., Akureyri, Lárus Jónsson,
bæjargjaldkeri, Ólafsfirði, Stef-
án Stefánsson, bæjarverkfræð.,
Akureyri, Þór Vilhjálmsson,
borgardómari, Rvík.
SELFOSS:
Þjómálaráðstefna ungra kjós-
enda í Iðnaðarmannahúsinu
sunnudaginn 26. maí og hefst
kl. 1.30. Um kvöldið verður
skemmtun í Selfossbíó. Ræðu-
menn: Eyjólfur Konráð Jóns-
son, ristj., Rvík., Gunnar Schram
ritstj. Rvík, Sr. Sigurður Páls-
son, Selfossi, Sigurður Óli Óla-
son, alþm., Selfossi, Steinþór
Gestsson, bóndi, Hæli, Valgarð
Runólfsson, skólastj., Hvera-
gerði, Óli þ. Guðbjartsson, kénn-
ari, Selfossi.
Mynd vantar af Valgarði Run-
ólfssyní, HveragerðL
HAFNARFJÖRÐUR:
Fundur ungra kjósenda í
Sj álf stæðishúsinu, Hafnarfirð,
sunnudaginn 26. maí kl. 4. e.h.
Ræðumenn: Arni Grétar Finns-
son, hdl., Rvík., Guðmundur H.
Garðason, viðsk.fræð., Rvík., Jens
Jónsson, húsgagnabólstr., Hafn.
Ragnar Magnússon, prentari,
Hafn., Reimar Sigurðsson,
húsgagnasm., Hafn., Þór Gunn-
arsson, bankaritari, Hafn., Æv-
ar Harðarson, nemi, Hafn.
KÓPAVOGUR:
Fundur ungrá kjósenda í Sjálf
stæðishúsinu, Borgarholtsbraut 6,
sunnudaginn 26. maí kl. 3. e.h.
Ræðumenn: Bjarni Beinteins-
son, lögfr. Reykjavík., Herbert
Guðmundsson, form. Týs, Kópa-
vogi, Matthías A. Mathiesen, al-
þm. Hafnarfirði, Snæbjörn As-
geirsson, ’skrifst.m., Seltjarnar-
nesi, Sigurður Helgason, fram.
kv.stj., Kópavogi, ^
GRINDAVÍK:
Fundur ungra kjósenda sunnu-
daginn 26. maí kl. 5 e.h. Ræðu-
menn: Eiríkur Alexandersson,
kaupm., Grindavík, Jón E. Ragn-
arsson, stud. jur., Rvík., Matthi-
as Á. Mathiesen, Hafn.
— Gremjan
Framhald af bls. L '
því upp frá rótum, að sendiherr-
ann hafi rangfært orð Tímans.
En þessi árás á erlendan sendi-
mann er ekki látin nægja, heldur
er því bætt við í ritstjórnargrein
Tímans sl. fimmtudag, að Bretar
séu með íhlutun í íslenzk innan-
ríkismál. Þar er talað um að
„að einhverju leyti geti yfirlýs-
ing brezku stjórnarinnar stafað
af því, að kosningar standa fyrir
dyrum á íslandi og hún telur
hina undanlátssömu vini sína þar
standa höllum fæti“.
Ef einhver hefði efast um
hvers eðlis það hugarfar Fram-
sóknarleiðtoganna var, sem
stjórnaði málflutningi þeirra, þeg
ar þeir börðust gegn hinum ís-
lenzka málstað og reyndu að ala
á því, að Bretar gerðu nýjar
kröfur á hendur okkur, þá af-
hjúpar gremja þeirra nú þá al-
gjörlega.
Það gátu raunar aldrei verið
íslenzkir hagsmunir, sem þeir
voru að berjast fyrir. Þeir vissu
auðvitað jafnvel og allir aðrir, að
Bretar höfðu fyrir meira en
tveimur árum viðurkennt 12
mílna fiskveiðitakmörkin og gef-
ið yfirlýsingar um, að þeir
mundu ekki fara fram á fram-
lengingu undanþáganna, sem
renna út eftir nokkra mánuði.
En setjum svo, að Frarnsóknar-
foringjarnir væru þeir skyn-
skiptingar að hafa ekki vitað
þetta, sem allir aðrir vissu. Það
gæti byggzt á því, að sumir
þeirra a.m.k. eru haldnir ein-
hvers konar ótta- eða minnimátt-
arkomplex, sem brýst út í hvert
skipti, sem erlendir aðilar eru
nefndir á nafn, nema þá helzt að
þeir séu búsettir fyrir austan
járntjald. Þessir menn virðast
halda, að nágrannaþjóðir okkar
flestar eða allar sitji á svikráð-
um við okkur og eigi sér þá ósk
helzta að níðast á okkur og ræna
okkur frelsi.
En ef þessi skýring væri rétt,
hefðu Framsóknarleiðtogarnir
átt að gleðjast yfir enn einni yf-
irlýsingu um það, að ekkert slíkt
standi til af Breta hálfu. En
gremjan hljóp með þá í gönur,
og þess vegna standa þeir ber-
skjaldaðri en nokkru sinni áður.
— Hafa fimm
Framhald af bls. 1.
kerfi sem leiti slíkra upplýsinga.
Ennfremur segir blaðið, að NASA
muni meðal annars hafa borizt
fregnir af hinum misheppnuðu
geimtilraunum Rússa frá athug-
unarstöðunum í Jodrell Bank I
Bretlandi, Bochum í V-Þýzka-
landi, Meudon í FrakklandL
Enköping og Uppssölum í Sví-
þjóð frá stöðvum á Hawai og I
ýmsum öðrum ríkjum Bandaríkj
anna.
Talsmaður NASA neitaði I
kvöld að ræða fregn blaðsins —
en í gær sagði einn af aðstoðar-
framkvæmdastjórum stofnunar-
innar á fundi með einni af und-
irnefndum Bandaríkjaþings, að
vitað væri um misheppnaðar til-
raunir Rússa til þess að senda
menn út x geiminn. Nánari upp-
lýsingar neitaði hann að gefa.