Morgunblaðið - 25.05.1963, Side 3

Morgunblaðið - 25.05.1963, Side 3
Laugardagur 25. maí 1963 MORCVHBL4Ð1Ð 3 18 ungir hljómlist- armenn á nemenda- tónleikum í Kef lav Keflavík, 24. maí. Tónlistarskólanum var slitið í gærkvöldd með nemendahljóm- leikum í Nýja-Bíó. 18 af nem- endum skólans komu fram á tón- leikunum, í píanóleik, fiðluleik, með trompet og valdhorn, og í einsöng og tvísöng. Auk þess lék drengjalúðrasveit barnaskól- ans undir stjórn Herberts Hri- berschek. Húsið var fullskipað styrktar- félögum Tónlistarfélagsins og öðrum gestum, sem fögnuðu nemendum vel. í upphafi tón- leikanna flutti Helgi S. Jónsson évarp, og Ragnar Björnsson, skólastjóri, lýsti starfi skólans og afhenti prófskírteini og verð- laun tónlistarfélagsins, sem að l>essu sinni hlutu þau Sigrún Ragnarsdóttir og Guðmundur Jónsson. í Tónlistarskóla Keflavíkur voru í vetur 80 nemendur með 7 kennara. Þetta er 6. starfsár Tónlistarskólans og hefur Ragnar Björnsson verið skólastjóri frá upphafi. Prófdómari í skólanum var Jón Nordal, skólastjóri Tón- listarskóla Reykjavíkur. — hs. Síld og humar til Ahraness AKRANESI, 24. maí. — 5600 tunnur síldar bárust hér á land í gær og í dag, þar af 3453 tupn- ur á uppstigningardag. Átta bát- ar lönduðu þá. Aflahæstur var Skírnir með 756 tunnur. Síldin fór öll í bræðslu, nema 200 tunn- ur, sem hraðfrystar voru í Heima akaga. Fimm lönduðu í dag. Afla- hæstur var Skírnir með 800 tunn ur, annar Höfrungur með 700. Þrír humarbátar lönduðu hér í gær, Ásmundur hafði 5,8 lestir, Bjarni Jóhannesson 5,6 og Ás- björn 5,4. Humarbátarnir Fram og Svanur lönduðu í dag, sá fyrri tæpum 6 lestum og hinn síð ari 4,5 lestum. Trillan Sæljón reri í dag og íiskaði 700 kg. • • Onnur athugasemd V E G N A „svar.s“ Þórðar HaW- dórssonar, pósitmeistara, varð- andi athugasemd mína í Morg- unblaðinu hinn 8. þ. m., þykir *nér rétt að taka fram eftirfar- andi: Við lestur fyrrgreindrar at- tnugaisemdar, er öllum Ijóst að um þrjár prentvillur er að ræða, }?. e. ,,bílíuina“ í stað „biblíuna“, „skammarlaust“ í stað „skamm- laust“ og „lendingarmögúleikar“ í stað „lengingarmöguleikar". — Reiknaði ég með að póstmeistar- inn myndi nota sér þær til fram- dráttar í vandræðum sinum, sem reyndist rétt. Þórður „biður afsökunar á mis minni s.’inu um töluna 12000 í stað 10000“, og læt ég það mér vel líka, að öðru leyti en því að fcin tilfærðu ummæli hans „með litluim tilikostnaði“ eiga alls ekiki við 10000 fet, heldur „6000 til 8000“ feta langar flugbrautir, og mun honum því eki vanþörf á þv'í að „endur.lesa“ grein rnína. Þórður kvartar yfir þvi, að ég hafi ekiki svarað honuim mál- efnalega, en gerði hann það sjálf ur að þvi er mína greiin snerti? Eða er tíu lína útúrsnúningar hans 20. apríl, málefnalegt svar? Athugasemd mín vax fram fcomin til þess eins að leiðrétta röng umimæli póstmeistarans um efni greinar minnar, og því flug- miálaistjórninni algerlega óvið- fcomandi. Læt ég svo útrætt um þetta mál af minni hálfu. Reyikjavík, 13. maí 1963, Gunnar Sigurðsson. Forseta- hjónin kringum land með Esju FORSETAHJÓNIN eru ný- komin úr hringferð í kringum landið með strandferöaskip- inu Esju. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, varð 69 ára 13. maí síðastliðinn og að kvöldi þess dags héldu hjónin úr höfn með Esjunni. Komið var við á fjöldamörg- um stöðum. — Meðfylgjandi myndir tók Sigurgeir Jónas- son. Komið var við á Bíldudal. Forsetinn heilsar einum Arnfirðinga. Komið er til Reykjavíkur að förinni lokinni o g forsetahjónin kveðja skipstjórann, Tryggva Blöndal — Meðfylgjaiidi myndir tók Sigurgeir Jónsson. siA k s t r i \ \ i: Samningurinn mikill sigur Samningurinn við Breta nm Iausn landhelgisdeilunnar er einn mesti sigur, sem íslending- ar hafa unnið. Vakti samningur- inn athygli um víða veröld og þóttu íslendingar hafa komizt ó- trúlega langt með málafylgju sinni. í Bretlandi var satóomu- lagið nefnt „ósigur Breta“ í dag- blöðum. Með samningnum fengu íslendingar skýlausa viðurkenn- ingu á 12 milna fiskveiðilögsög- unni og þýðingarmiklar breyt- ingar á grunnlínupunktum, sem „vinstri“ stjórnin hafði vanrækt að gera 1958. Þessir nýju grunn- línupunktar stækkuðu landhelg- ina á þýðingarmiklum stöðum um rúmlega 5065 ferkilómetra. Þá lýsti íslenzka ríkisstjómin því yfir, að hún muni halda á- fram að vinna að útfærzlu fisk- veiðitakmarkanna. 1 staðinn fengu Bretar takmörkuð veiðirétt indi á nokkrum stöðum milli 12 og 6 mílna markanna í 3 ár. Barátta Framsóknar gcgn samkomulaginu Þrátt fyrir þennan ótrúlega hagstæða samning, þá börðust Framsóknarmenn dyggilega við hlið kommúnista gegn þesstari lausn landhelgisdeilunnar. Á- stæðurnar eru nokuð óljósar, en líklega réði hér um allt af þrennu. Tilraun þeirra tU þess að stofna til æsinga um þetta þýðingarmikla utanríkismál og reyiia þannig að notfæra sér mál ið í pólitískum tilgangi, án til- I lits til hagsrr.una þjóðarinnar. Öfundsýki vegna þess að þeir áttu ekki sjálfir hlut að máli og i þriðja lagi gengdarlaus þjónk- un við bandamenn sína, komm- únista og tilraunir þeirra til þess að nota landhelgismálið tU þess að koma íslendingum út úr vestrænu samstarfi. Framsóknarmenn lýstu því margsinnis yfir, að þeir myndu ■ rifta samkomulaginu við fyrsta tækifæri, köiluðu það „nauð- ungarsamning“ og svik. Þakka sér nú árangurinn Með þessari framkoiríj sinni hafa Framsóknarrronn óvirt sjálft Alþingi og reynt að gera þessa æðstu stofnun landsins tortryggiiega sem samningsað- ila fyrir Islands hönd. Þannig hafa þeir barizt gegn viðurkenn- ingu Breta á fiskveiðilandhelg- inni og viijað minnka landhelg- ina um 5065 ferkílómetra með því að berjast gegn viðurkenn- ingu Breta á þessari stækkun landhelginnar með útfærslu grunnlínupunktanna. Hafa þeir þannig gert málstað helztu and- stæðinga islendinga í Bretlandi að sínum. Eftir að hafa haldið fram mál- stað þessara andstæðinga þjóð- rinnar og gert hann að sinum, þá skortir Framsóknarflokkinn ekki ósvífni til þess að þakka dag blaði sínu viðurkenningu Breta, sem þeir hafa sagt að ekki aafi verið fyrir hendi. Eftir að hafa barizt hatrammlega gegn sanm- ingnum við Breta um lausn land helgisdeilunnar, þá þakka þeir sér nú árangur samkomulagsins. Slíkur blekkingaráróður um eitt þýðingarmesta utanríkismál okkar hlýtur að vera landsmönn- um víti til varnaðar um heilindi Framsóknarflokksins og dag- blaðs hans. Það er erfitt að sjá, hvemig forysta Framsóknar- flokksins fyrir utanrikismálum íslands i samvinnu við komm- únista getur farið saman við hagsmuni þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.