Morgunblaðið - 25.05.1963, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 25. maí 1963
íslandsmótið hófst með tveim leikjum
Sjálfsmörk réðu úrslitum beggja leikjanna
Fram vann 1-0 á sjálfs-
marki Akureyringa
Sjálfsmarkið í Laugardal. Haukur Jakobsson, h vítklæddur, annar frá vinstri horfir á eftir lausri
spyrnu sinni í netið. — Ljósm. Sv. l>orm.
Akurnesingar unnu KH 21
— Urslitamarkið sjálfsmark
T V Ö sjálfsmörk í fyrstu
tveim leikjum íslandsmótsins
í knattspyrnu 1963 réðu því
hvar sigrar lentu og dýrmæt
stig. — í Laugardal skoraði
bakvörður Akureyringa
sjálfsmark og það varð eina
márk leiksins. íslandsmeistar
arnir Fram fóru því með sig-
ur og 2 stig frá leik, sem þeir
að öðru leyti áttu heldur
minna í, einkum er á leið.
Á Akranesi henti það slys
markvörð KR að missa knött,
sem hann hafi varið, inn fyr-
ir línu. Akurnesingar fengu
fyrir það sigur og tvö dýr-
mæt stig. KR-ingar og Akur-
eyringar verða að hugga sig
við það að „fall sé fararheill“,
en þessi stig verða ekki aftur
unnin.
Björn Helgason tekur hér held
ur óblíðleiga á Páli útherja,
sem virðist líka til í að ýta frá
sér.
Lógmaikstíma
sundíólks
SUNDSAMBAND íslands hefur
áéveðið eftirtalda tíma sem lág-
marksafrek til þátttöku íslend-
inga í Sundmeistaramóti Norður-
landa, sem haldið verður í -Ósló
13 og 14. ágúst nk:
KARLAR
100 m skriðs. 58,8 sek.
400 m skriðs. 4:45,0 mín.
1500 m frjáls aðf. 19:10,0 mín.
200 m baksund 2:28,0 mín.
200 m flugsund 2:32,0 mín.
200 m bringusund 2:45,0 mín.
400 m einstl. fjórs. 5:20,0 mín.
KONUR
100 m skriðs. 1:07,0 mín.
400 m skriðs. 5:10,0 mín.
100 m baksund 1:17,0 mín.
100 m flugsund 1:17,0 mín.
200 m bringusund 3:00,0 mín.
400 m einst. fjórs. 6:05,0 mín.
Miðað er við að lágmarkstíma
sé náð í 33 m eða 50 m sundbraut,
tyrir 15. júli 1963.
★ Lélegur leikur
í Laugardal var allt fallegt,
veðrið, völlurinn og fólkið —
allt nema knattspyrnan. Hún var
vægast sagt af lakara taginu
lengst af. Getuleysið var áber-
andi, ennþá sárara var að sjá
hve oft var lítil hugsun að baki
leiksins, og út yfir tók þegar leik
menn, sem taldir eru í góðri lík-
amlegri þjálfun, sáust „springa“
löngu fyrir leikslok. Bæði Fram
og Akureyrarliðið standa langt
að baki því sem liðin sýndu í
fyrra. Menn, sem skipað hafa
landsliðsstöður eða verið við
þær, voru nú eins og villuráf-
andi sauðir og tilraunir þeirra
fálmandi og óöruggar.
Sjálfsmark — eina mark
leiksins
Fram hafði undirtökin í
fyrri hálfleik og var leikur
norðanmanna þá afskaplega
sundurlaus og klénn. Fram fékk
nokkur góð færi, misnotaði flest,
en stundum varð hinn fimi mark-
vörður Akureyringa að taka á
öllu sínu til að fá varið.
Og á 17. mínútu henti slys-
ið. Fram var í sókn, en hún
stöðvaðist við það að sent var
til mótherja og þannig fékk
Haukur Jakobsson knöttinn
nálægt marki. Einar mark-
vörður ætlaði að hlaupa út og
taka knöttinn hjá Hauki, en
Haukur ætlaði spyrna til Ein-
ars og gerði það, en á þann
hátt að Einar úthlaupandi,
missti af knettinum og hann
skoppaði yfir línu.
Báðir gerðu vitleysu. Einar
með því að hlaupa út og kalla
ekki. Haukur með því að
spyrna að marki, án þess að
horfa á hvert hann sendi.
Tækifærið var hættulaust að
því er virtist, en Fram fékk
við mistökin tvö stig.
Þetta var eina mark leiks-
ins, þó mikið væri reynt á báða
bóga.
ir Sókn Akureyringa
Akureyringar tóku leikinn í
sínar hendur að miklu leyti í síð-
ari hálfleik. Þeir náðu yfirráðum
á miðjunni og sóttu fast, en fengu
þó ekki oft ógnað marki Fram
verulega. Þó skall hurð nærri
hælum nokrum sinnum og Geir
bjargaði tvívegis mjög naumlega
en vasklega.
Fátt var um góð skot, þó þau
reyndar sæjust hjá báðum og
fátt um góðar, hættulegar fyrir-
sendingar og átti Fram þá beztu
rétt í leikslok er Baldur Sche-
ving sendi fyrir en Ingólfur mið-
herji missti af sendingunni, enda
kraftlítill orðinn sakir mæði.
Fáir báru af fyrir góðan leik,
en þó má nefna Jón Stefánsson
og Einar markvörð hjá Akureyr-
ingum og þá Björn Helgason,
Guðjón Jónsson og Halldór Lúð-
víksson hjá Fram.
AKR ANE SLIÐIÐ var mjög
breytt til hins betra frá bæja-
keppninni á dögunum, er' liðið
tók á móti KR-ingum á heima-
velli sínum á sunnudaginn. Lið-
inu var nú beitt í sóknarköflum
sínum og veitti harða mótspyrnu
þegar að var sótt. Lið KR og
Akraness reyndust lík að styrk-
leika — en sigurinn og bæði stig-
in féllu Akurnesingum í skaut
fyrir sjálfsmark er Heimir mark-
vörður var valdur að rétt fyrir
leikslok. Úrslitin urðu 2-1. Hin
mörkin voru skoruð af Skúla
Hákonarsyni (fyrir Akranes) og
Gunnari Felixsyni fyrir KR,
bæði úr fallegum skotum.
ir Jöfn keppni
Það voru rnargir áhorfendur
að leik þessara gömlu, jjöfnu
keppinauta og leikurinn var all-
skemmtilegur og jafn og bjó yf-
ir mikilli baráttu. Fyrri hálfleik-
urinn var marklaus, en bæði lið-
in höfðu þó átt nokkur tækifæri.
Ingvar Elísson og Þórður Jóns-
son gerbreyttu svip framlínunn-
ÍSLANDSMÓTIÐ í sundknatt-
leik er fyrir nokkru hafið og fer
fram í æfingatímum sundfélag-
anna fyrir luktum dyrum. Úr-
slitaleikur mótsins verður á
mánudag og þá verður öllum
gefinn kostur á að horfa á. Úr-
slitaleikinn leika Ármann og
KR og hefur hvorugt liðanna tap
að leik til þessa.
Á mánudagskvöldið verður
jafnframt keppt í 1500 m skrið-
ar frá bæjakeppninni og nú var
sókn liðsins á köflum ógnandi og
beitt, þá svipur æfingaleysis hafi
oft verið á leiknum.
ir Mörkin
í byrjun síðari hálfleiks
opnaðist vörn KR illa á miðjunni
og Skúli Hákonarson fékk ágætt
færi sem hann notaði vel og skor
aði úr með hæðarskoti.
í mjög hraðri og snöggri sókn
nokkru síðar jafnaði Gunnar
Felixson fyrir KR með snöggu
skoti út við stöng.
Úrslitamarkið kom svo nokkr-
um mínútum fyrir leikslok. —
Þórður Jónsson skaut að marki
KR, en knötturinn stefndi út
fýrir. Heimir markvörður greip
samt inn í, hafði varið, en missti
knöttinn milli fóta sér og yfir
línuna skoppaði boltinn — og
stigin voru töpuð KR, en eru dýr
mæt 'eign í stigasjóði Skaga-
manna á þessu íslandsmóti.
Hörður Felixson lék nú aftur
með í KR-vörninni, svo og Heim-
ir í markinu, en þá skortir báða
nokkuð á að geta sýnt sitt bezta.
sundi meistaramótsins, en mótið
fer að öðru leyti fram 29. og 30.
maí nk. í Sundhöll Reykjavíkur.
Leikir sundknattleiksmótsina
til þessa hafa farið þannig:
KR-Ægir ......... 9-4
Ármann—SH .... 13-3
KR—SH ........... 14-3
Ármann—Ægir .. 12-2
Eftir er leikur SH og Æfús a*
úrslitaleiksins.
A. St.
Einar slær frá fjaðurmagnaður að vanda. Jón virðist hræddur.
Ármaœn og KR mæt-
ast í úrslitaleiknum